Dagblaðið - 10.12.1979, Page 31

Dagblaðið - 10.12.1979, Page 31
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979. 31 NviarhfpJíjm Stórmarkaðurinn Bókaútgáfan Hildur hefur gefið út bókina Stór- markaðurinn eftir Ib Henrik Cavling. Skúli Jensson þýddi. Útáviö er Stórmarkaðurínn rísavaxið verzlunarfyrirtæki þar sem hver af hinum mörgu deildum gengur eins og vel smurt hjól I vél. En þegar Birta er ráöin sem einkaritarí yngsta forstjórans, skilst henni fljótt að bak við tjöldin er á ferðinni hættulegt laumuspil.Bókin er 188 bls. « Erfingi Patricks Mál og menning hefur sent frá sér unglingabókina Erfingi Patricks eftir K.M. Peyton í þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur. Þetta er þriðja og síðasta bókin í bókaflokknum um vandræðagripinn og hæfileika- manninn Patrick Pennington, hinar bækurnar eru Sautjánda sumar Patricks og Patrick og Rut Allar þessar bækur hafa verið lesnar í útvarp og notið mik- illa vinsælda, og þýðing Silju Aðalsteinsdóttur á fyrstu bókinni hlaut verðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir beztu þýð'ngar bama- og unglingabóka 1977. Erfingi Patricks er 233 bls., prentuð í Prentsmiðj- unni Hólum hf. Nóttpabbi Mál og menning hefur nýlega gefið út bamabókina Náttpabbi eftir Maríu Gripe i þýðingu Vilborgar Dag bjartsdóttur. Þetta er sérkennileg og falleg saga um Júliu sem er föðurlaus og „náttpabbann" sem hún eignast, manninn er gætir hennar á næturnar meðan mamma hennar er á vakt. Þessi náttpabbi er enginn venjulegur maður, svo á hann líka uglu sem hann hefur með sér „i vinnuna”. Allir vita að uglur vaka um nætur en sofa á daginn ... Maria Gripe er meðal allra vinsælustu bamabóka- höfunda á Norðurlöndum. Vilborg Dagbjartsdóttir las þýðingu sina á Náttpabba i Morgunstund barnanna fyrir nokkmm árum við miklar vinsældir, en áður hafði hún fengið verðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir þýðingu á annarri bók eftir Mariu Gripe. Náttpabbi er 139 blaðsiður, prýdd mörgum falleg- um myndum eftir Harald Gripe. Bókin er sett og prentuð i Prentstofu Guðjóns ó., skeytingu og filmu- vinnu annaðist Prentþjónustan. Gerður Steinþórsdóttir cand. mag. Kvenlýsingarf Reykjavíkurskóldsögum Út er komin Kvenlýsingar i sex Reykjavikurskáldsög- um eftir seinni heimsstyrjöld. Höfundur er Geróur Stelnþórsdóttir cand. mag. og er hér um að ræða rit- gerð hennar til kandidatsprófs i islenzkum bókmennt- um frá Háskóla íslands haustið 1978. Ðókin er gefin út af Hinu íslenzka bókmenntafélagi i samvinnu við Rannsóknastofnun í bókmenntafræði við Háskólann. Er hún fjórða bókin i flokki fræóirita stofnunarinnar. Skáldsögumar sex sem fjallað er um eru þessar: Atómstöðin eftir Halldór Laxness, Disa Mjöll eftir Þórunni Elfu Magnúsdóttur, Sóleyjarsaga eftir Elias Mar, Sjötiu og niu af stöðinni eftir Indriða G. Þor- steinsson, Dyr standa opnar eftir Jökul Jakobsson og Dægurvisa eftir Jakobinu Sigurðardóttur. — Kvenlýs- ingar í þessum sögum em kannaðar út frá hugmynda- fræði kvenfrelsishreyfingarinnar. Skiptist bókin i tvo meginhluta: í hinum fyrri er fjallað um karlveldisþjóð- félagið og drepið á nokkrar hugmyndir sem mótað hafa viðhorf til kvenna i vestrænni menningu. Þá er lýst kvenfrelsisstefnu i bókmenntarannsóknum og greiningaraðferðum feminiskra fræðimanna. í seinni hluta eru sögumar kannaðar hver fyrir sig, staða kvenna þar og sú hugmyndafrasði sem að baki býr. Bókin er liðlega 220 bls. Oddi prentaði. » Nýjar lystrœningjabækur ólafur Ormsson, sem þekktari er undir dulnefninu Fáfnir Hrafnsson, sendir nú frá sér sina fyrstu skáld- sögu: Stútungspunga. Þetta er meinfyndin ádeilu saga, satira, sem segir frá Guðmundi bruggara á Akur- eyri og sonum hans, Snorra Þór og Pjetri Diðrik. Á kreppuárunum fylgja þeir ólíkum flokkum, Snorri er kommúnisti en Pjetur nasisti. Þegar Snorri flytur tii Reykjavíkur kastar hann þó fljótt trúnni á Jósep Stalin og gengst hemámsgriSAanum á hönd. Sögunni lýkur á frásögn af próf kjörsþátttöku Helga Brynjólfs sonar Snorra. Stútungspungar er ólik öðrum skáldsögum er nú koma út. Þar er pólitískri geggjun lýst af svo miklum húmor að lesandinn hlær sig máttlausan en öllu gamni fylgir alvara. Nýr skáldsagnahöfundur hefur bæst i hinn friöa flokk, höfundur sem er ólikur öllum öðrum. Kápu gerði Ingi Hrafn. Lystræninginn gefur út. Skfmir Út er kominn Skírnir fyrir árið 1979 ásamt hók menntaskrá fyrir 1978. Þetta er 153 árgangur en rit stjóri er ólafur Jónsson. í þessum árgangi er grein eftir Kristinu Geirsdóttur sem nefnist Fáein alþýðieg orð, grein eftiur Lýö Björnsson um Reykjavik, upphaf höfuðstaðar, grein eftir Lúðvík Kristjánsson og Her mann Pálsson. Birt eru tvö kvæði eftir Jón Thorodd sen og Sveinn Skorri Höskuldsson skrifar um skáldiö. Sveinbjörn Rafnsson skrifar um kristnitökufrásögn Ara prests Þorgilssonar. Gísli Pálsson skrifar um vont mál og vonda málfræði og Einar Júliusson ritar bréf til Skirnis. Siðan eru birtir bókadómar eftir Jón Gunnars son, Magnús Pétursson. Véstein ólason. ólaf Jónsson og Svein Skorra Höskuldsson. Skírnir er 280 bls. í bókmenntaskránni eru eins og venjulega heimildir um bókaútgáfu, blaðaútgáfu og tímarit sem gefin hafa veriðútárið 1978. SKÍRNIR mTASKB* n MARJT HWS <SM>.SI«»(5kM1;N.NIa,,ÍIa0« r. ■. v, nurxjAv þvottapokarnir og böndin eru loksins komin aftur Til jólagjafa: Ilm vötn og snyrtivörur. • Gjöríð svo vel og Iftið inn REGNHLlFABÚÐIN Laugavegi 11 - Sfmi 13846. Diskó-mussur IRMA LAUGAVEGI 61. SÍM114197 Faðu mikið Krir lítið fé Ódýrustu hljómtœkjasettin á markaðnum. 4ra bylgju útvarp — plötuspilari — kassettusegulband og 2 hátalarar. 'ÆÉ BORGARTÚN118 REYKJAVÍK SÍMI27099 SJÓNVARPSBÚDIN Gerö 2000: magnari 25 vött, kr. 249.500.- Gerð 3050: magnari 50 vött kr. 298.000.-

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.