Dagblaðið - 10.12.1979, Qupperneq 36
36
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
Veðrið
Spáð er austanátt á landinu í dag.
Hvasst og rigning á Suðausturlandi
og Austfjörðum en hægviöri og
vfðast þurrt annars staðar. Hiti 2—5
stig.
Kl. 8 (morgun var 4 stiga hiti og al-
skýjað ( Reykjavlc, GaltarvHí 5 stig
og léttskýjað, Akureyri 2 stig og.
skýjað, Raufarhöfn 2 stig og þoku-'
móða, Dalatangi 3 stig og alskýjað,
Höfn ( Homafirði 2 stig og rigning og
Vestmannaeyjar 4 stig og skýjað.
Þórshöfn ( Færeyjum 6 stig og
rigniog. Kaupmannahöfn -1 atig og
aiijoKoma, Osló —7 stig og skýjað,
Stokkhólmur -8 »tig og léttakýjað.
London 9 stig og þoka, Hamborg 10
stig og skýjað, París 13 stig og
rigning, Madrid 11 stig og alskýjað,
Mallorca 5 stig og þoka, New York 2
stig og léttskýjað.
Halldór Sij>urbjörnsson Borgarnesi lézl
í Sjúkrahúsi Akraness 7. desember.
Tryggvi Edvarðsson, Bárðarási 21
Hellissandi lézt í l.andakotsspítala 8.
des.
Bjarni Höskuldsson verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju á morgun kl.
I5.
Jóhanna Hansen, Stóragerði 38, vcrður
jarðsungin frá Dómkirkjunni á morgun
kl. I 5.00
Þóra Jónsdóttir Hafnarfirði verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 12. des. kl. 13.30.
Jóhann Bjami Kristjánsson, Hraunbæ
86, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju i dag kl. 13.30.
Bonny Bjarnarson, ekkja Björns
Bjarnarsonar kaupmanns í Manitoba,
lézt 12. nóvember og var jarðsett i Big
Point kirkjugarði 16. nóvember.
Guðmundur Marteinsson rafmagns-
eftirlitsstjóri, sem lézt 30. nóv. sl., var
fæddur 4. sept. 1894 i Reykjavík.
Foreldrar hans voru Guðrún Erlends-
dóttir og Marteinn Teitsson.
Guðmundur gekk í skóla í Noregi og
lauk þaðan rafmagnsverkfræðipról'i
árið 1922. Flutti hann þá til Bandaríkj-
anna þar sem hann dvaldi við störf til
ársins 1935 er hann kom heim til
íslands. Var hann um árabil forstjóri
Raftækjaeinkasölu ríkisins, hann rak
eigið heildsölufyrirtæki og loks var
hann rafmagnseftirlitsstjóri rikisins um
árabil.
Konu sína, Ólafiu Hákonardóttur,
missti hann fyrir fjórum árum. Áttu
þau tvær dætur. Guðmundur
Marteinsson er þekktur fyrir störf að
skógræktarmálum og stofnaði m.a.
Skógræktarfélag Reykjavíkur og var
formaður þess alla tíð.
Friörik Gislason fyrrverandi kirkju-
vörður, sem lézt 30. nóv. sl., var
fæddur 22. janúar 1900 að Hrauni í
Grindavik. Foreldrar hans voru Pálína
Margrét Þorleifsdóttir og Gísli
Hermannsson. Friðrik lærði bifvéla-
virkjun og vann um á, bil hjá Agli
Vilhjálmssyni en rak sið. „igið verk-
stæði. Hann var kirkjuvörður ILaugar
neskirkju frá byggingu kirkjunnar fyrir
um það bil 30 árum. Eftirlifandi konu
sinni Sigriði Ásmundsdóttur kvæntist
Friðrik árið 1928 og eignuðust þau þrjú
börn. Friðrik er jarðsunginn frá
Laugarneskirkju í dag.
Fundif
Kristniboðsfélag karla
Reykjavík
Fundur veröur i Betaníu, Laufásvegi 13 mánudags
kvöldið 10. des. kl. 20.30. Lesin verða bréf og jóla
kveðjur frá Kristniboðunum. Allir karlmenn vel
komnir.
Systrafélag
Fíladelfíu
Jólafundurinn verður i kvöld aö Hátúni 2 kl. 8.30.
Veriðallar velkomnar. Stjórnin.
Kvenfélag
Grensássóknar
heldur jólafund sinn i kvöld kl. 20.30 i Safnaðar
heimilinu við Háaleitisbraut. Allar konur velkomnar
Mætum vel og stundvíslega. Stjórnin.
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
Jólafundurinn verður haldinn að Hótel Borg i kvöld
kl. 8.30. Jólahugleiðing, Jón Dalbú Hróbjartsson.
Börn úr Melaskóla syngja. Glæsilegt jólahappdrætti.
Kynnir Anna Guðmundsdóttir leikkona. Allir vel
komnir. Stjórnin.
Keflavík
Slysavarnadeild kvenna Keflavik-Njarðvik. Jóla
fundur verður haldinn i Tjarnarlundi þriðjudaginn 11.
des. kl. 21.00. Stjórnin.
Kvenfélag
Bæjarleiða —
Jólafundur
Jólafundurinn veröur haldinn þriðjudaginn 11. des.
kl. 20.30 aö Siöumúla 11. Ostakynning. Munum jóla
pakkana.
I.O.G.T.
St. Vikingur nr. 104. Fundur i kvöld kl. 20.30 i
Templarahöllinni. Minnzt 75 ára afmælis stúkunnar'.
Fundurinn er opinn gestum. Kaffi eftir fund.
Kvenfélag Breiðholts
verður með jólafund sinn miðvikudaginn 12.
desember kl. 20.30 i anddyri Breiðholtsskóla. Vegna
barnaárs sjá börn að mestu le'yti um skemmtiatriði.
einnig verður skyndihappdrætti og kaffiveitingar.
Eins og undanfarin ár býöur Kvenfélagið öllum 67
ára og eldri i Breiðholti I og II til samverustundar á
samt fjölskyldum félagskvenna.
Kvenfélag
Bústaðasóknar —
Jólafundur
Jólafundur félagsins verður haldinn mánudaginn
10. des. kl. 20.30 í Safnaðarheimilinu. Fjölbreytt efni.
Kvenfélagið Seltjörn
Jólafundur félagsins verður þriðjudaginn 11. des. kl.
20 i félagsheimilinu og hefst með boröhaldi. Ágústa
Björnsdóttir sýnir myndskreytingar. Barnakór Mýrar
húsaskóla syngur. Jólahugvekja.
FRAM
Aðalfundur knattspyrnufélagsins Fram verður
haldinn i félagsheimmilinu v. Safamýri mánudaginn
17. des. kl. 20.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Ferðafélag
íslands
Þriðjudagur 11. des. kl. 20.30. Myndakvöld á Hótel
Borg. Bergþóra Sigurðardóttir og Pétur Þorleifsson
sýna myndir m.a. frá Borgarfirði eystra, Tindfjöllum.
Kverkfjöllum. Hoffellsfjöllum, Goðaborg i Vatna
jökli og viðar.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Kvikmyndir
Islenzki Alpaklúbburinn
Mánudag 10. desembcr og miðvikudaginn 12.
desember nk. kl. 20.30 verður kvikmyndasýning i
félagsheimili ÍSALP að Grensásvegi 5. Sýnd verður
myndin „The Conquest of Everest" um brezka
leiðangurinn sem sigraði Everst, hæsta fjall heims
fyrstir manna 1953. — Aögangur er ókeypis og allir
velkomnir.
Embætti, sýslanir o. fl.
Hinn 22. nóv 1979 veitti heilbrigðis- og trygginga
málaráðuneytið Kristni Bjarna Jóhannssyni, lækni
leyfi til þess að nega starfa sem sérfræðingur i al
mennum skurðlækningum og brjóstholsskurð
lækningum hér á landi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðunevtið,
23. nóvember 1979.
Hinn 5. nóvember 1979 veitti heilbrigðis og
tryggingamálaráðuneytið cand. med. et. chir.
Höskuldi Kristvinssyni, leyfi til að mega stunda
almennar lækningar hér á landi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
12. nóvember 1979.
Menntamálaráðuncytið hcfur skipaö dr. Kjartan
Gislason dósent i þýsku i heimspekideild Háskóla
íslandsfrá l.júli I979aðtelja.
Menntamálaráðuneytið,
15. nóvember 1979.
Hinn 21. nóvember 1979 skipaði dóms- og
kirkjumálaráðuneytið, Sigriði Ólafsdóttur. lög
fræðing. til þess að vera aðalfulltrúi við borgar
dómaraembættið i Reykjavik' frá I. desember 1979 að
telja.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
21. nóvember 1979.
Kristjana Jónsdóttir, lögfræðingur og Þorgeir
örlygsson, lögfræðingur, hafa hinn 20. nóvember
1979 verið skipuð fulltrúar við borgardómara
embættið i Reykjavik frá I. desember 1979 að telja.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
20. nóvember 1979.
iiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiMimiiiiimiimiiiiiNiimiiiiiii
Þrif — teppahreinsun — hreingerningar.
Tek að mér hreingerningar á íbúðum,
stigagöngum og stofnunum. Einnig
teppahreinsun með nýrri vél sem
hreinsar með góðum árangri. Vanir og
vandvirkir menn. Uppl. i simum 33049
og 85086. Haukur og Guðmundur.
Teppa- og húsgagnahreinsun.
Hreinsum teppi og húsgögn meðgufu og
stöðluðu teppahreinsiefni sem losar
óhreinindin úr hverjum þræði án þess að
skadda þá. Leggjum áherzlu á vandaða
vinnu. Nánari upplýsingar i síma 50678.
Teppa- og húsgagnahreinsunin Hafnar-
firði.
Hreingerning og teppahreinsun.
Gerum hreinar íbúðir, stigaganga og
stofnanir. Vanir og vandvirkir menn.
Simi 13275 og 77116. Hreingerningar
s/f.
önnumst hreingerningar
á ibúðum, stofnunum og stigagöngum,
vandvirkt fólk. Simi 71484 og 84017,
Gunnar.
Félag hreingerningamanna.
Hreingerningar á hvers konar húsnæði
hvar sem er og hvenær sem er. Fag-
maður í hverju starfi. Simi 35797.
Hreingerningastöðin
Hólmbræður. önnumst hvers konar
hreingerningar stórar og smáar í Reykja-
vik og nágrenni. Einnig i skipum.
Höfum nýja, frábæra teppahreinsunar-
vél. Símar 19017 og 28058. Ólafur
Hólm.
Hreingerningafélagið Hólmbræður:
Margra ára örugg þjónusta, einnig
teppa- og húsgagnahreinsun með nýjum
vélum. Símar 77518 og 51372.
ökukennsla
Ökukennsla — xfingatimar.
Kenni á Toyota Cressida og Mazda 626
árg. ’79 á skjótan og öruggan hátt. öku-
skóli og öll prófgögn ef óskað er. Njótið
eigin hæfni, engir skyldutímar, greiðsla
cliir samkomulagi. Friðrik A. Þorsteins-
son.simi 86109.
ökukennsla
Kenni á Datsun árg. 78. Pantið reynslu-
tíma og í þeim tíma kynni ég ykkur
námsefnið og þær nýjungar og þau kjör
sem ég hef lípp á að bjóða. Ath. að mjög
hagstætt er ef tveir til þrír panta saman.
P.S.: Allar kennslubækur fáið þið
ókeypis. Sigurður Gíslason, simi 75224.
ökukennsla — æfingatlmar.
Kenni akstur og meðferðbifreiða. Kenni
á Mazda 323 árg. 78. ökuskóli og öll
prófgögn fyrir þá sem þess óska. Helgi
K. Sesselíússon, sími 81349.
ökukennsla — æfingatlmar —
hæfnisvottorð.
Engir lágmarkstimar. Nemendur greiða
aðeins tekna tíma. ökuskóli og öll próf-
gögn ef ðskað er. Jóhann G Guðjóns
son, simar 21098 og 17384.
Ökukennsla — æfingatímar
— bifhjólapróf.
Kenni á nýjan Audi. Nemendur greiða
aðeins tekna tíma. Nemendur geta
,byrjað strax. ökuskóli og öll prófgögn ef
.óskað er. Magnús Helgason, sími 66660.
Get nú aftur bætt við
nemendum, kenni á hinn vinsæla
Mazda 626 árg. ’80, nr. R—305.
Nemendur greiða aðeins tekna tima.
Greiðslukjör ef óskað er. Kristján
Sigurðsson, sími 24158.
Ökukennsla-æfingatfmar.
Kenni a Mazda 626 hardtop árg. 79.
ökuskóli á vegum ökukennarafélags
Islands og prófgögn fyrir þá sem þess
óska. Hallfriður Stefánsdóttir, sími
'81349.
KrabbanwinsfMag Raykpivlkun
Nýr f lokkur frœðslurtta
Krabbameinsfélag Reykjavíkur hóf fyrir nokkru út-
gáfu á nýjum flokki fræöslurita um krabbamein. Þrjú
eru þcgar komin út. Hiö fyrsta nefnist „Krabbamein I
leghálsi” og er eftir Guömund Jóhannesson yfirlækni.
Segir þar i stuttu máli frá tiðni þessa sjúkdóms. eöli
hans og hugsanlcgum orsökum.einkennum og meö-
ferö, svo og leitinni sem gerö er að þessum sjúkdómi
meö skipulögðum hópskoðunum og hvaöa árangur
hún hefur boröið.
Annað ritið hefur AuÖólfur Gunnarsson læknir
samið. Nefnist þaö „Hvemig þú átt að skoöa brjóst-
in”. Þar er þvl lýst hvemig konur geta sjálfar skoöað
brjóst sln, en geri þær það reglulega kynnu þær að
uppgötva illkynja brjóstamein sem enn er á byrjunar-
stigi og fulikomlega læknanlegt.
Þriðja fræösluritið, „Hjálp til sjálfshjálpar”, felur I
sér hagnýtar leiöbeiningar fyrir konur sem brjóst
hefur verið tekiö af. Einkum er bent á ýmsar æfingar
til að biálfa öxl og handlegg. Gunnlaugur Snædal yfir-
læknir þýddi þetta rit úr norsku. í þvl er fjöldi skýr
ingarmynda.
Fyrri fræðsluritunum tveimur hefur veriö dreift
víða. T.d. ættu þau aö vcra fáanleg á heilsugæzlu-
stöövum um allt land. „Hjálp til sjálfshjálpar” fæst á
sjúkrahúsum þar sem skoriö er upp viö brjóstakrabba-
meini. öll ritin fást auk þess hjá Krabbameinsfélaginu
I Suðurgötu 22—241 Reykjavlk.
Fyrirhugaðer aö naatu fræðslurit fjalli um krabba-
mein almennt og um krabbamein I meltingarfærum,
brjóstum og lungum.
Minningarkort
Laugarneskirkju
fást I SÓ búðinni, Hrísateigi 47, sími 32388. Einnig i
Laugarneskirkju á viðtalstlma prests og hjá safnaöar
systrum.simi 34516.
Gengið
GENGISSKRANING
NR. 233 - 6. DESEMBER 1979
Ferðmanna-
gjaldeyrir
Eiaing Kl. 12.00
Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 391,40 392,20 431,42
1 Steriingspund 855,70 857,50* 943,25*
1 Kanadadollar 335,20 336,20* 369,82*
100 Danskar krónur 7287,30 7302,20* 8032,42*
100 Norskar krónur 7862,20 7878,30 8666,13*
100 Sænskar krónur 9348,00 9387,10* 10303,81*
100 Rnnsk mörk 10487,70 10509,10 11560,01
100 Franskir frankar 9581,40 9601,00* 10561,10*
100 Belg. /rankar 1382,55 1385,35* 1523,89*
100 Svissn. frankar 24451,00 24501,00* 26951,10*
100 Gyllini 20327,20 20368,70* 22405,57*
100 V-þýzk mörk 22535,70 22581,80* 24839,98*
100 Lírur 48,11 48,21* 53,03*.
100 Austurr. Sch. 3124,95 3131,35* 3444,49*,
100 Escudos 783,60 785,20* 883,72*
100 Pesetar 589,50 590,70* 649,77*
100 Yen 161,17 161,50* 177,65*
1 Sérstök dráttarróttindi 511,52 512,57*
Breyting frá siðustu skráningu.
Símsvari vegna gengisskráningar 22190
2V /S
UM
HELGIWA
V V
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
GRATT LBKNIR
AF KERHNU
Byrjun á aðfinnslunum. A
föstudagskvöldið keyrðu auglýsingar
i sjónvarpi úr hófi fram og allar tima-
setningar á dagskrá voru út í hött. Er
virkilega ekkert samband milli
auglýsingadeildar þessarar stofnunar
og þeirra sem eiga að berja saman
dagskrá? Nú geta þeir háu herrar
sjálfsagt sagt nöldrurum að loka bara
fyrir tækið meðan skrumið gengur
yfir. En hvað með þá sem ætla að
horfa á kvikmynd sem byrjar
klukkutíma á eftir áætlun og stendur
fram á rauðanótt? Ég efa ekki að
fleiri en ég hafi verið fúlir eftir að
hafa beðið eftir sjónvarpsmyndinni
sama kvöld og fyrir vikið var
upplifun af Snikjudýrinu allmikilli
beizkju blandin. Víst er að þeirri
mynd gieymir maður ekki i bráð, svo
rækilega sem hún sýndi hvernig
„kerFið”, þ.e. samsafn fremur
velviljaðra embættismanna, getur þó
leikið einn einstakling. Það má rétt
imynda sér hvernig Svíar hefðu
steindrepið þetta efni. Hér var í
bland alþýðlegur húmor, hversdags-
leg sannindi og harmleikur og ailt
ofur trúlegt. Mér þykja það siæm
tíðindi að sjónvarpið skuli hafa
það útvatnaða og ómerkilega
afsprengi af kvikmyndinni
M.A.S.H., Spítalalíf, til sýningar á
laugardögum. En kannski er allt
betra en norskir prófessorar.
Tennessee Williams hefur yfirleitt
þolað illa flutninginn af sviði yfir á
breiðtjald, en Sporvagninn Girnd og
Glerdýrin eru heiðarlegar undan-
tekningar. Ég gat engan veginn tekið
mark á því fólki sem finna mátti í
Nótt eðlunnar laugardagskvöldið, en
það hefði samkvæmt öllum sólar-
merkjum átt að vera talsvert útlifað
og jaskað. Föngulegra fólk var ekki
að finna á skerminum það kvöld,
ekki einu sinni í íþróttunum. Og
Richard Burton með sína klassísku
veisku barýtónrödd sem afdankaður
prestur í Mexikó? Ég held ekki. En
T.W. er alltaf samur við sig: horfnar
hugsjónir, brostnar vonir, sektar-
kennd, allt var þetta að finna í
stykkinu.
Fólk hefur farið fögrum orðum
um stjórn Bryndisar Schram á barna-
tima i mín eyru. Má ég aðeins taka
undir það? Efnið er fjölbreytt, liflegt
og fræðandi. Kvölddagskrá var
sömuleiðis öll úr skorðum vegna
auglýsinga. Forseti íslands mátti bíða
í 13 mínútur eftir að komast að, og
Jón forseti Sigurðsson, sómi vor,
sverð og skjöldur, í einar 15mínútur.
Svona framkomu geta aðeins stjórn-
endur i bananaþjóðfélagi leyft sér
gagnvart almenningi. íslenzkt mál
var jafn tilgangslaust og áður og
myndin um Jón Sigurðsson er 10 ára
gömul og hefur þá galla sem söguleg-
ar myndir af þessari gerð hafa yfir-
ieitt, þ.e. ofnotkun á „statísku”
myndefni. Ég horfi ávallt á „rætur”
íranna, Andsreymi. Kannski getum
við gert okkur mat úr okkar sögu og
selt öðrum þjóðum, t.d. Dönum?
Ekta flamenkó höfðar til mín en
hann á lítið skylt við það sem boðið
er upp á á sólarströndum. Paco Pena
ereinn sábezti. Olé.. .