Dagblaðið - 13.12.1979, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 13.12.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1979. Um fæðingarorlof Jenetta Bárðardóttir hringdi: Mig langar til að segja nokkur orð í . tilefni af lesendabréfi í DB 5. des. sl. þar sem spurt var, hvers vegna frum- varp Framsóknarflokksins um fæðingarorlof húsmæðra hafi ekki verið afgreitt. Ég vil fyrst segja það, að þetta var ekki frumvarp Framsóknar heldur var þetta eitt atriði í félagsmálapakk- anum. Ég vil lika spyrja: Er fólk að eiga börn ánægjunnar vegna eða til þess að græða peninga. Ég hefði haldið að þær konur sem ætla sér að eignast börn hugsi fyrst og fremst um hvort þær langi til þess og hafi efni á því en ekki um það, hversu mikið þær fái borgað fyrir það. Hvað mega þá þær mæður segja sem hafa komið á legg 5 —12 börnum og auk þess unnið úti? Ætti ekki að sæma þær fálkaorðunni? Sem betur fer breytast tímarnir og mennirnir með. Hér áður fyrr voru ekki til* pillur, lykkjur eða aðrar slíkar getn- aðarvarnir. Nú getur fólk ráðið, hvort það vill eignast börn og hvenær börnin eiga að fæðast. Ég hugsa að gift fólk fari ekki út í barneignir nema það hafi efni á því. Á ekki alveg eins að verðlauna karl- menn fyrir þeirra framlag við að koma blessuðum börnunum í þennan verðbólgna heim? ,,Ég hugsa að gift fólk fari ekki út i barneignir nema það hafi efni á þvi,” segir bréfritari. Morgunpósturinn þunnur og hlutdrægur — Pétur Pétursson og Jón Múla aftur Hörður Óskarsson skrifar: Ég vil taka undir gagnrýni í Dag- blaðinu síðastliðinn föstudag á Morgunpóstinn fyrir hlutdrægni. Það ágæta fólk, sem stjórnar þessum þætti, virðist alltaf vera að hnýta i Alþýðublaðið þegar það er að vitna í einstakar greinar dagblaðanna. Síðast i ntorgun (11. desember) sagði Páll lleiðar eitthvað á þá leið, að Alþýðublaðið væri þunnt að venju. Við kratar vitum að Alþýðu- blaðið er ekki eins stórt og Tíminn en kemur það Morgunpóstsmönnum nokkuð við? Aldrei hefi ég heyrt þá segja að Morgunblaðið væri stórt og SKARTGRIPIR Iiljólagjafa SIGMAR 6. MARÍUSSON Hverfisgötu 16A - Simi 21355. SPARI Vínrautt leöur, leðursóli, leðutfóður kr. 29.180.- SKÓR nýkomnir Svart leður, leðursóli, leðutfóður kr. 27.990.- PÓSTSENDUM LAUGAVEGI69 SÍM116850. efnismikið að venju þó að það sé langstærsta íslenzka dagblaðið. Þessi Morgunpóstþáttur finnst mér stundum nokkuð góður en þegar þetta ágæta fólk er að reyna að vera fyndið þá eru brandararnir oft anzi þunnir. Eins og þessi frasi: „Eins og þeir segja í . . . .”, sem er orðinn út- þvældur. Alltaf er verið að tala um peninga- leysi útvarpsins og að stofnunin geti ekki reist hús fyrir starfsemi sína. Mín skoðun er sú, að þeim pening- um sem varið er 'í þetta kostnaðar- sama morgunútvarp væri betur varið í byggingarsjóð útvarpshússins og láta þá ágætu þuli Pétur Pétursson og Jón Múla taka við morgunútvarpinu á ný með sínu þægilega rabbi og laga- vali. Bréfritari vill að þeir Jón Múli Arna- son og Pétur Pétursson taki við morgunútvarpinu á ný. Hringið í síma 27022 milli kl. 13 og 15, eða skrifið „En nú er glansinn farínn af nýja veginum i bili,” segir bréfritari. DB-mynd: emm. AKALLTILVEGA- GERÐAR RÍKISINS Vegfarandi skrifar: Mikið urðu margir glaðir hér á Suðurnesjunum sl. haust, þegar nýr, olíumalarborinn vegur var opnaður milli Garðs og Sandgerðis og átti þá að vera lokið áratuga löngu píslar- vætti okkar bíleigenda, svo og ann- arra vegfarenda, á skaganum. En nú er glansinn farinn af nýja veginum í bili, því það er kominn vetur. Hann er nú ekki hálli en aðrir léttir vegir en á hann vantar algjörlega allar ■ merkingar, svo sem strik til hliða og í miðju og einnig stikur með endur- skinsmerkjum á við vegbrúnir. Þetta gerir veginn nær óökufæran i snjó- komu, þar sem engin kennileiti eru til að fara eftir og er ekki öruggara að aka þarna i byl en að aka ljóslausum bíl i niðamyrkri. Við sem ökum þarna um daglega komumst sennilega upp á lag með að paufast þetta en hinir verða að, ,taka sjensinn”. Það væri óskemmtilegt að missa þarna út af fullan fiskbíl eða áætl- unarbíl með farþega, að ótöldu því basli sem þeir lenda í sem eru einir á ferð. Ég tel mig tala fyrir munn margra þjáningarsystkina minna nú er ég vil hér með skora á Vegagerð ríkisins að gera eitthvað í málinu hið fyrsta, áður en stórtjón eða slys hljótast af þessum skorti á jafn nauðsynlegum öryggisútbúnaði og ég nefndi fyrr í greininni. Með kveðju og þökk fyrir góðan sumarveg. Borgarbio: Fjölskyldumyndin reyndist klámmynd Gréta Björgvinsdóttir hringdi: Eftir jólainnkaup í bænum ákvað ég að fara í kvikmyndahús með fjöl- skyldu minni. Fyrir valinu varð myndin Rúnturinn í Borgarbíói enda var hún auglýst sem mynd fyrir alla fjölskylduna. Ég hafði hins vegar ekki setið lengi undir þessari mynd ásamt 8 og 12 ára gömlum börnum mínum þegar birtist hvert nektar- og samfaraatriðið á fætur öðru á sýningartjaldinu. Börn- in sátu alveg gáttuð undir þessu og fljótlega gengum við út enda greini- legt að við höfðum verið blekkt. Ég bað síðan um að fá að tala við eigandann en hann reyndist ekki við. Ég fór fram á endurgreiðslu og fékk hana hjá afgreiðslustúlku, sem var hin almennilegasta. Hún gat hins vegar engar skýringar gefið á því, hvers vegna þessi mynd var auglýst sem mynd fyrir alla fjölskylduna. Ég hef séð margar myndir bannaðar inn- an 16 ára sem eru alls ekki eins ljótar og þessi. Mér þætti gaman að vita, hvort eigandinn ræður því sjálfur hvort myndin sé bönnuð ákveðnum aldurshópum eða ekki. Afgreiðslutími bankanna: EFTIR HOFÐINU DANSA UMIRNIR ,,Ein sem fylgist með” hringdi: Nauðsynlegt er að bankarnir á ís- landi auglýsi opnunartíma sinn, sem ekki alls fyrir löngu var breytt, og minnist þess að margir erfiða mikið og koma oft að lokuðum bönkum vegna óvissu. Fólk þarf tíma til að átta sig á örum breytingum og hringli sem allt- of mikið er af hér á landi. Margir eru ósjálfbjarga á einn eða annan hátt. Aumt er að íslendingar skuli vera svona sofandi, ekki sízt bankastjór- arnir, þvi eftir höfðinu dansa lim- irnir. Mannréttindadagurinn er 10/12 1979. dag. Atvinnulaus sjómaður: Engarbætur Sjómaður hringdi: Ég hef stundað sjó frá Hafnarfirði talsvert á fjórða ár. Samt fæ ég ekki inngöngu 1 Sjóitiannafélag Hafnar-. fjarðar vegna þess að ég er búsettur í Reykjavík. í Sjómannafélag Reykja- vikur fæ ég ekki inngöngu nema ég hafi verið starfandi í hálft ár á svæði þess. Núna er ég atvinnulaus og ég fæ engar atvinnuleysisbætur vegna þess að ég er ekki í neinu stéttarfélagi.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.