Dagblaðið - 13.12.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1979.
Meðal þeirra sem tóku tal saman á þinghússgöngum voru þeir Gunnar Thorodd-
sen og Eggert Haukdal. Ekki fer sögum af þvi sem þeim fór á milli, en Eggert
hefur tekið frjálsræðið fram yfir flokksræðið eins og alþjóð veit.
DB-mynd Hörður.
„Hér hef ur enginn gott af
að verða mosagróinn”
sagði Davíð á Arnbjargarlæk
Þrír ungir og nýir þingmenn Fram-
sóknarflokksins skipuðu sæti sín
röggsamlega. Frá vinstri talið Davíð
Aðalsteinsson, Vesturlandskjör-
dæmi, Guðmundur Bjarnason, Nl-
eystra og Jóhann Einvarðsson,
Reyk janesk jördæmi.
,,Ég held ég líti mátulega hátíðlega
á þetta,” sagði Davíð eftir fund.
„Stjórnmálin eru mér ekkert nýtt, ég
hef stússazt í þessu frá 1970 og var
m.a. erindreki flokksins á Vestur-
landi,” sagði Davíð. Hann kvað bú-
störf og þingstörf illa samrýmast en
þegar um tvíbýli væri að ræða, eins
og á Arnbjargarlæk nú, og velvildar-
menn allt um kring myndi allt fara
vel. „Ég vona að ég verði hér mátu-
lega lengi, það hefur enginn gott af
því að verða hér mosavaxinn,” sagði
Davíð að lokum.
- A.St. / DB-myndir Hörður.
Ráðherra gekk um ganga
meðan þingmenn unnu
,,Ég hef nú dottið út af þingi áður,
svo þetta er ekki nýtt fyrir mig,”
sagði Bragi Sigurjónsson iðnaðar- og
landbúnaðarráðherra, sem spigspor-
aði um Alþingishússganga meðan
kjördeildir voru að störfum. Hann
situr á þingi nú sem ráðherra en ekki
alþingismaður.
„Ég verð þó hér í sölum eitthvað
áfram og kann bera vel við það, þó
staða mín núsé nokkuð sérstæð.”
Viðskiptakjör 3-4% und-
ir meðaltali ársins
Hlutfallið milli þéss, sem við fáum
fyrir afurðir okkar erlendis, og þess,
sem við greiðum fyrir það, sem við
kaupum, viðskiptakjörin, hafa farið
versnandi.
Viðskiptakjörin eru nú 3—4 prósent-
um undir því, sem verið hefur á árinu
að meðaltali.
Sérfræðingar ganga ekki lengra en
svo að spá því, að þau verði á næsta ári
svipuð því, sem er síðustu vikur þessa
árs. >á yrðu þau sem sé 3—4 prósent-
um verriáárinu 1980enáárinu 1979.
Þó munu sumir eygja glætu, ef vonir
eru bundnar viö, að hagstæðari oiíu-
samningar náist á næsta ári.
- HH
Jólotré
Landgræðslu
Söluskálinn viö Reykjanesbraut í Fóssvogi
Sími: 44080 — 40300 — 44081.
Aðol útsölustoður og
bírgðostöð söluskolinn við Reykjonesbrout
Aörir útsölustaöir:
I Reykjavík:
Slysavarnad. Ingólfur
Gróubúð Grandagarði.
Vesturgata 6.
Félagsheimili Fáks
v/Elliðaár.
(Kiwaniskl. Elliði)
I Garöabæ:
Ingólfsstræti
Blómabdðin Runni
Hrísateig 1
Laugarnesvegur 70
Grímsbær
v/Bústaðaveg.
Blómabúðin Fjóla
Goðatúni 2
Búðargerði 9
I Hafnarfirði:
Hjálparsveit skáta
Hjálparsveitarhúsinu.
Sýningahöllin/
Ártúnshöfða.
I Kópavogi:
Blómaskálinn
v/ Kársnesbraut
í Keflavik:
Kiwanisklúbburinn
Keilir.
Valsgarður
v/Suðurlandsbraut.
Hamraborg 8
Slysavarnad. Stefnir
Kópav.
I Mosfellssveit:
Kiwanisklúbburinn
Geysir.
Styrkið Landgrceðslusjöð
Koupíð jólotré
og greínor of
fromongreíndum
oðilum.
Stuðlið oð upp-j
græðslu londsins
Aðeins fyrsto
flokks voro
LAHDORiCDSLUSJÓDUR
Rowenla
KG19
KG18
KG24
■
V
3vr
Vörumarkaðurinn hf.
w\ Ármúla 1 A, S. 86117
1