Dagblaðið - 13.12.1979, Blaðsíða 33

Dagblaðið - 13.12.1979, Blaðsíða 33
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1979. 33 VINSÆL NATTFOT Danirsegja að aðaljólagjöfin í ár verði hlý náttföt. Af hverju hlý náttföt? Jú, vegna þess að spáð er köldum vetri í Danmörku og svo reyna allir að spara olíuna. Þessi náttföt á myndinni, sem bæði eru ætluð fyrir karlmenn og konur, eru ein af þeim hlýju náttfötum sem Danir segja að komi sér vel í vetrarkuldanum. Þau eru úr bómullar- jersey. Efhlýtt er, segja Danir, má alltaf nota náttfötin sem nokkurs konar heimadress. Laugardaginn 15. desember kl. 14.00 verður opnuð að Kjarvalsstöðum Sýning á úrlausnum sem bárust í norrænni samkeppni um stækkun á Hásselbyhöll í Stokkhólmi, en þar er aðsetur menningarmiðstöðvar höfuðborga Norðurlanda. Sýningin verður opin daglega frá 15.—17. desemberkl. 14.00—22.00. SJONVARPSBUDIN ■**>&* iV^ I JONAS JÖNASSON 'fii Ihjdulum *■* g « Jonas Xjáifsmnxaga FrásijgnþteUir Hwuíid mál I IVlUnMIN •>« Ki ikiinumtur tiiii.n>ii.*»i VfARG.SU M.W M4NNUF Invihjörv Sjgurð>V<*W‘f SlJlllWWDSiíCiN BBC MEp VINNINGINN í GERÐ JOLASJÓNVARPSEFNI Larry Grayson og Isla St. Claire fóru með hlutverk jólasveinanna í skemmtiþætti sem BBC frumsýndi á dögunum. Var þar um að ræða fyrsta þáttinn af mörgum í jólapokanum hjá BBC í ár, en mikil keppni hefur staðið á milli BBC og ITV um þátta- gerð og segjast BBC menn nú vera vissir um sigur f samkeppninni. Það er ekki bara á heimamarkaði sem þessir risar í sjónvarpsheiminum berjast, heldur selja þeir vöru sína vítt og breitt um heiminn og er um stórar fjárhæðir að keppa. Þátturinn sem Grayson og St. Claire léku aðaihlutverk í nefnist Leikur kynslóðanna. Aðaljólamynd BBC verður kvikmyndin The Sting með Robert Redford i aðalhlutverki. Forráðamenn BBC telja einsýnt hvor stöðin vinni stríöið um mark- aðinn í ár. ITV var hrjáð af verkfalli um tíma og hefur það haft sín áhrif. Meðal þatta og mynda hjá þeim eru All Creatures Great and Small og Blankety Blank. Meðal annars efnis á boðstólum hjá BBC er kvikmyndin Cabaret. Jólasvelnarnir Larry og Isla St. Claire i hlutverkum. Oddný Guömundsdóttir: SÍÐASTA BAÐSTOFAN ( þessari raunsönnu sveitalífstrá- sögn fylgist lesandinn af brennandi áhuga meö þeim Dísu og Eyvindi, söguhetjunum, meö ástum þeirra og tilhugalffi, meó fátækt þeirra og bú- hokri á afdalakoti, frá kreppuárum til allsnægta velferóarþjóöfélags eftir- stríðsáranna. Hér kynnumst við heilu héraöi og ibúum þess um hálfrar aldar skeiö - og okkur fer að þykja vænt um þetta fólk, sem við þekkjum svo vel aó sögulokum. Viö gieymum því ekki. Verð kr. 9.760. Frank G. Slaughter: DYR DAUÐANS Nýjasta læknaskáldsagan eftir hinn vinsæla skáldsagnahöfund Frank G. Slaughter. Þessi nýja bók er þrungin dulrænni spennu og blossar af heit- um ástríöum. Skáldsögur Slaughters hafa komiö út í meira en 50 milljónum eintaka. Veró kr. 9.760. Jónas Jónasson frá Hofdölum: HOFDALA-JÓNAS Þessi glæsilega bók skiptist i þrjá meginþætti: Sjálfsævisögu Jónasar, frásöguþætti og bundiö mál. Sjálfs- ævisagan og frásöguþættirnir eru með því bezta sem ritaö hefur veriö í þeirri grein. Sýnishornið af Ijóöagerð Jónasar er staöfesting á þeim vitnis- buröi, aö hann væri einn snjallasti Ijóðasmiöur í Skagafirði um slna daga. Hannes Pétursson skáld og Krist- mundur Bjarnason fræðimaður á Sjávarborg hafa búiö bókina undir þrentun. Verðkr. 16.960. Friðrik Hallgrímsson: MARGSLUNGIÐ MANNLÍF Sjálfsævisaga skagfirzka bóndans Friöriks Hallgrímssonar á Sunnu- hvoli sýnir glögglega að enn er í Skagafirði margslungiö mannlíf. Verö kr. 9.760. Ken Follett: NÁLARAUGA Æsispennandi njósnasaga úr síð- ustu heimsstyrjöld. Margföld met- sölubók bæói austan hafs og vestan. Sagan hefur þegar verið kvikmynd- uö. Verð kr. 9.760. Sidney Sheldon: BLÓÐBÖND Þetta er nýjasta skáldsagan eftir höfund metsölubókanna „Fram yfir miönætti" og „Andlit I speglinum". Hér er allt ( senn: Ástarsaga, saka- málasaga og leynilögreglusaga. Ein skemmtilegasta og mest spennandi skáldsaga Sheldons. Sagan hefur veriö kvikmynduö. Verö kr. 9.760. Ingibjörg Siguróardóttir: SUMAR VIÐ SÆINN Ný hugljúf ástarsaga eftir Ingibjörgu Siguröardóttur. Sögur Ingibjargar njóta hylli almennings á fslandi. Verö kr. 8.540. Björn Haraldsson: LfFSFLETIR Ævfsaga Áma Björnssonar tónskálds Hér er saga glæsileika og gáfna, mótlætis og hryggöar, baráttu og sigra. Þessi bók færir oss enn einu sinni heim sanninn um þaó, að hvergi veröur manneskjan stærri og sannari en einmitt í veikleika og mótlæti. Verð kr. 9.760. BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR • AKUREYRI

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.