Dagblaðið - 13.12.1979, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1979.
„Ég hef alið allan minn aldur i sveit og þetta er i fyrsta sinn sem ég hef heyrt getið um trýni á kúm,” segir bréfritari.
DB-mynd Ragnar Th.
J.G. skrifar:
í franska sakamálaþættinum
„Hefndin gleymir engum”, sem
sýndur var í sjónvarpinu í gærkvöldi,
4. des., greindi frá manni nokkrum
sem var á ferðalagi með blindri konu.
Hann lýsti fyrir henni því sem bar
fyrir augu, og m.a. sá hann rauð-
brúna kú á beit, og svo kom á skerm-
inn þessi minnisstæði texti: Kýrin er
með hvítt trýni.
Ég hef alið allan minn aldur í sveit
og þetta er í fyrsta sinn sem ég hef
heyrt getið um trýni á kúm. Svo lengi
lærir sem lifir. Hins vegar hefur verið'
algeng málvenja að tala um granir á
kúm en trýni t.d. á hundum. Vera má
að textaþýðandi hafi haft í huga kú
með hvíta blesu en lítið bætir það úr
skák. Textaþýðendur sjónvarpsins
virðast oft eiga talsvert mikið ólært
þó lærðir séu.
Um nokkurt skeið hefur vaðið upp
orðið útvíkkun og er þá átt við aukna
umsetningu á ýmsum sviðum. Nú er
þetta að vísu gamalt og gott orð en
hefur einkum verið notað af Ijós-
mæðrum og læknum í sambandi við
fæðingar. Ekki hef ég orðið þess var
að málfræðingar okkar hafi amazt
við orðinu útvíkkun í þess nýju merk-
ingu enda virðast þeir haldnir þeirri
áráttu að leggja blessun sína yfir
hvers kyns málskrípi ef búið er að
nota þau um nokkurt skeið og þau
farin að festast í málinu.
Kannski verður þess ekki langt að
bíða að málfræðingar okkar telji ný-
yrðið trýni á kúm æskilega útvíkkun
á „ástkæra, ylhýra málinu”.
Spurning
dagsins
Er verð á tóbaki og
áfengi of hátt?
Jón Guðmundsson: Þetta er orðið al-
veg hryllilegt! Það er ekki einu sinni
hægt að fá sér dálitla jólaglögg til
hressingar.
Raddir
lesenda
Bjóðum írans-
keisara hæli
á íslandi
Grandvar skrifar:
Vegna fréttar um það erlendis frá,
að ísland hafi bætzt í hóp þeirra
ríkja, sem vildu veita íranskeisara
landvistarleyfi, þykir mér rétt að
bæta við eftirfarandi — og ætla ég,
að talað sé fyrir munn margra íslend-
inga.
Hafa íslendingar ekki ávallt þótzt
bera umhyggju fyrir þeim, sem of-
sóttir eru? Hver er munurinn á þess-
um umrædda manni og fjölskyldu
hans og t.d. þeim öðrum, sem land-
flótta eru, svo sem þeim, er orðið
hafa að flýja frá Austur-Evrópu og
Sovétríkjunum vegna ógnarstjórnar
þar?
Þeir sem mæla bót þeirri ógnar-
stjórn, sem nú hefur tekið við í íran
og segja, að hún eigi rétt á sér, mæla
ekki af heilum huga. Eða hvað?
íranskeisari lét mjög margt gott af
sér leiða á valdatíma sínum fyrir land
og þjóð. Hann vildi „opna vestur-
gluggann” eins og einn liðinn ráða-
maður Rússlands vildi gera.
Hann jók frelsi kvenna, þeim til
ómældrar gleði, því þær voru áður
og svo aftur nú undir ógnarstjórn
Khomeinis hinir kúguðu í landinu.
Keisarinn vildi koma á vestrænu
skipulagi í uppbyggingu lands síns og
var kominn vel áveg.
Við íslendingar höfum átt talsverð
viðskipti við íran, einmitt meðan
keisarinn var við völd og var íran
fjórði stærsti viðskiptaaðili okkar í
Asíu, áeftir Japan, Kína og Indlandi.
Ekki var þá nein hegða af okkar
hálfu að efla viðskipti við stjórn keis-
arans! Hefur eitthvað breytzt af
okkar hálfu, eftir að hann fór frá?
Einn af þekktustu klerkum okkar
var boðinn til írans á mikla hátíð þar
í landi fyrir nokkrum árum, og bar
hann landi og þjóð vel söguna —
undir stjórn íranskeisara.
Það er ekki réttmætt af núverandi
forsætisráðherra að segja í blaðavið-
tali, að hugmyndin um landvist
Iranskeisara hér sé fráleit, t.d. vegna
skorts á boðlegu húsnæði og póli-
tiskri hlið málsins.
Keisarinn gæti sem bezt komið sér
upp sínu eigin húsnæði hér fyrir sig
og sitt fylgdarlið. öryggisráðstafanir
hér eru einmitt auðveldar og óvíða
væri öryggi hans tryggara en hér,
sökum fjarlægðar frá óvinveittum
aðilum. Eftirlit með utanaðkomandi
aðilum til landsins er tiltölulega auð-
Allt til hljómfíutnings fyrir:
HEIMIUD - BÍUNN OG
DISKÓTEKIÐ
ARMULA 38
SIMAR
ilmtilu motjin 105 REYKJAVIK
83177 POSTHOLf 1366
velt og fer ekki framhjá útlendinga-
eftirliti hverjir koma hér og í hvaða
tilgangi.
Með tilliti til alls þessa og hins, að
við höfum átt gott samband og við-
skipti við íran, meðan keisarinn var
við völd, svo og vegna hinnar víð-
frægu mannúðar íslendinga (eða er
ekki svo?), ættum við að bjóða keis-
aranum hæli hér. Eða eru ekki allir
jafn-ofsóttir?
„íranskeisari lét mjög margt gott af
sér leiöa fyrir land og þjóð,” segir
bréfritari.
AHt aö því endalausir
mögu/eikar.
fáanhgar
wmmmm
superstjarna
* m
I
Asta Ólafsdóttlr: Það er allt í lagi að
hafa þetta verð. Menn reykja þá og
drekka kannski eitthvað minna.
Halldór Pétursson: Ég nota þennan
varning lítið og læt mér i léttu rúmi
liggja hvað hann kostar.
Steinþóra Guðmundsdóttir: Nei, það
má þó ekki vera hærra en þegar er
orðið.
Erla Guðjónsdóttir: Mér er alveg sama,
verðið mætti vera hærra.
Elin Guðmundsdóttir: Nei, það má
jafnvel hækka.