Dagblaðið - 13.12.1979, Side 5

Dagblaðið - 13.12.1979, Side 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1979. 5 Vinsælustu jólabækurnar: Undir kalstjörnu er i Bók Sigurðar A. Magnússonar, Undir kalstjörnu, var mest selda bókin i 12 bókaverzlunum af 14 þar sem Dag- blaðið spurðist fyrir um, hvaða bækur seldust mest núna fyrir jólin. Bók Sigurðar reyndist þannig í al- gjörum sérflokki hvað sölu snertir. Aðrar islenzkar bækur, sem selzt hafa mjög vel, eru Hvunndagshetja Auðar Haralds og Miðilshendur Einars á Einarsstöðum. Þær skera sig nokkuð úr. Af erlendum bókum hefur bók Ali- stairs MacLean, Ég sprengi kl. 10, selzt langmest. Afrakstur þessarar könnunar DB gefur að líta í þeim tveim bókalistum sem hér fara á eftir. Annar listinn er yfir skáldsögur en hinn yfir önnur rit- Vinsælustu hljómplöturnar: Þrjár skera sig úr Við skyndikönnun á hljómplötusöl- unni víðs vegar urti land í gær kom í ljós að þrjár plötur skera sig nokkuð úr að vinsældum. Þær eru Ljúfa líf (Þú og ég), String Of Hits (Shadows) og Jóla- snjór (Ýmsir flytjendur). Tvær þær fyrrnefndu hafa verið nokkuð lengi á markaðinum, en sú þriðja kom út um síðustu helgi. Sannar dægurvísur (Brimkló) er i nokkurri sókn víðast hvar um landið og platan með beztu lögum Electric Light Orchestra er sömuleiðis á uppleið. Platan Off The Wall (Michael Jackson) hefur verið ófáanleg um skeið, en virðist nú vera að ná fyrri vinsældum. Sometimes You Win”(Dr. Hook) fellur nokkuð að vinsældum frá síðustu könnun á mánudaginn. Skýringin er sú að hún varð uppseld hjá innflytjanda. Önnur sending er nú komin og er unnið að dreifingu hennar. Við könnunina, sem gerð var í gær, er byggt á sölu í tíu hljómplötuverzlun- um í Reykjavík, Akureyri, Vestmanna- eyjum, Keflavik og á Akranesi. -ÁT Tíu vinsælustu plöturnar 1. LJÚFALÍF................ 2. JÓLASNJÓR............... 3. STRING OF HITS.......... 4. SANNAR DÆGURVÍSUR....... 5. OFFTHEWALL.............. 6. GREATEST HITS........... 7. THEWALL................. 8. ONTHERADIO.............. 9. BRÁÐABIRGÐABÚGÍ......... 10. KATLA MARÍA............. ..............Þú og ég ......Ýmsir flytjendur ............. Shadows .............Brimkló ..... Michael Jackson Electric Light Orchestra ............Pink Floyd ......Donna Summer .....Spilverk þjóflanna ...........Katla María sérflokki verk og þá einkum ævisögur. Ekki reyndist unnt að gera sams konar lista yfir barnabækur, til þess var dreifingin á hina ólíku bókatitla allt of mikil. Þó virðist sem strumparnir ætli að skera sig nokkuð úr og hafa viðast hvar selzt mjögvel. -GAJ Skáldsögur 1. Undir kalstjörnu, Sigurður A. Magnússon. 2. Hvunndagshetjan, Auður Haralds. 3. Ég sprengi kl. 10, Alistair Mac- Lean. 4. Fílaspor, Hammond Innes. 5. Dómsdagur, Guðmundur Daníels- son. 6. Guði gleymdir, Sven Hazel. 7. Unglingsvetur, Indriði G. Þor- steinsson. 8. Kapteinn Cook, Alistair Mac- Lean. 9. Fjallavirkið, Desmond Bagley. 10. Leyniþræðir ástarinnar, Teresa Charles. Ævisögur 1. Miðilshendur Einars á Einarsstöð- um. 2. Á brattann, ævisaga Agnars Kofoed-Hansens. 3. TryggvasagaÓfeigssonar. 4. Fyrir sunnan, Tryggvi Emilsson. 5. Þeir vita það fyrir vestan, Guðm. G. Hagalín. 6. Steingríms saga (Steinþórssonar). 7. Móðirmínhúsfreyjan. 8. Aldnir hafa orðið. 9. Þrautgóðir á raunastund. 10. ValvaSuðurnesja. -GAJ Bókarkápa Kalstjörnu Sigurðar A. Magnússonar. Sigmund þarf ekki nema nokkur strik til að taka af skarið um það sem menn vildu sagt hafa. S/ík eldsnögg viðbrögð hugar og handar eru náðargáfa. Við höfum skopmyndir hans fyrir augunum daglega, og mannlífið er stórum fátœklegra þá sárafáu daga, þegar engin mynd birtist eftir Sigmund. Stíll hans er ákaflega persónulegur og sérstœður, og tilfyndnin með eindœmum. Það er því mikill fengur að þeirri bók, sem nú kemur fyrir almannasjónir með ýmislegt af því besta sem Sigmund hefur teiknað. Meðal annars eru í bókinni úrval mynda Sigmund úr landhelgisstríðum Islendinga. ,,Ó, er ekki tilveran dásamleg ÍCE LANP STj'órnín: Erfitt að vera þorskur í dag PRENTHUSIÐ

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.