Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 13.12.1979, Qupperneq 21

Dagblaðið - 13.12.1979, Qupperneq 21
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1979. 21 Gætirþú oröið góður yfirmaður? —Ákveðnir eiginleikar eru nauðsynlegir: réttsýni, bjartsýni, taumhald á titfinningum ogfyrirhyggja, auk sérf ræðilegrar þekkingar á starf inu Dreymir þig um að stjórna fólki frekar heldur en að vera sá sem þarf að hlýða skipunum frá öðrum? Ef þú ert að velta fyrir þér að taka að þér mannaforráð skaltu leysa úr spurningunum hér á eftir og athuga hvort þú sért hæfur til starfans. — Það gæti komið í ljós að þér hæfði betur að halda áfram að taka við fyrirmælum frá öðrum. 1) Einhver sem er yngri en þú í starfi fær hugmynd sem er betri en þín eigin. a. Yrðirðu svolítið svekktur en óskaðir honum samt sem áður til hamingju með góða hugmynd? b. Reyndirðu að finna einhvern galla á hugmyndinni? c. Yrðirðu glaður yfir að eiga svo hugmyndarikan starfsfélaga og nemanda? 2) Skýrsla frá vinnufélaga þínum væri illa unnin. a. Reyndirðu að lagfæra hana? bi Létirðu í ljósi vandlætingu þína? c. Bæðirðu hann um að vinna skýrsluna upp á nýtt? 3) Drukkinn vinnufélagi segir þér til syndannaí „jólaboðinu”. a. Mundir þú segja: Takk sömuleiðis? b. Brosa, en hugsa samt þitt ráð? c. Ákveða að ræða betur um málið þegar runnið er af vinnufélagan- um? 4) Þú rekst á blaðagrein um hvernig atvinnuhættirnir munu þróast á næstu tiu árum. a. Fyndist þér það áhugavert en ekki gagnlegt? b. Asnalegir spádómar og einskis nýtir? c. Gætu verið gagnlegar uþplýs- ingar? 5) Þú gefur áríðandi fyrirskipun sem ekki er farið eftir. a. Létirðu þann sem óhlýðnaðist fá það óþvegið? b. Láta þér fátt um finnast og gera verkið sjálfur? C. Skeggræða við vinnufélaga þína um hvernig komast mætti hjá slíku í framtíðinni? 6) Telur þú að fyrirtæki sem græðir vel á áhættusamri ákvörðun sé: a. Aðeins heppið? b. Aðeins sé verið að framkvaema hluti sem öll nýtízku fyrirtæki eigi að gera? c. Þetta hafi verið dýrmæt reynsla, jafnvel þótt þeim hefði mis- tekizt? 7) Ef þú þyrftir að segja upp starfs- fólki, myndirðu þá: a. Segja upp þeim afkastaminnstu í fyrirtækinu? b. Biðja starfsfólkið um tillögur í sparnaðarátt? c. Segja upp þeim sem starfsfólkið stingur upp á að verði sagt upp? 8) Ef salan í fyrirtækinu er á niðurleið, myndirðu þá: a. Reynaaðminnkakostnaðinn? b. Eyða meiru fé í auglýsingar? c. Ekki aðhafast neitt? 9) Starfsmanni í fyrirtækinu tekst mjög vel upp. Myndirðu: a. Hælahonum? b. Hæla honum, en bæta við at- hugasemdum um hvernig hefði mátt gera enn betur? c. Hæla honum, en geta jafnframt um ástæðuna fyrir velgengninni? 10) Ef þér byðist að gerast starfs- maður í nýju fyrirtæki, vildirðu þá fá? a. Há laun og launatryggingu? b. Lægri laun og hlutdeild í hagnaðinum? c. Lægri laun og eignaraðild að fyrirtækinu? 11) Ef þú ert í vondu skapi, myndirðu þá: a. Láta það bitna á starfsfólkinu, án þess að gera þér grein fyrir því? b. Sitja á þér, þar til þér er runnin reiðin? c. Sleppa þér og biðjast síðan afsökunar? 12) Vandamál blasa augljóslega við þeim iðnaði sem fyrirtæki þitt stundar. Myndirðu: a. Rannsaka málið? b. Álíta að vandamálið hefði alltaf verið fyrir hendi? c. Álíta að þetta væru óvið- ráðanlegar aðstæður sem ættu sök á vandamálunum? A B C D 1. a,2 2. a,3 3. a,3 4. a,2 b,l b,l b,2 . b,l c,3 c,2 c,l c,3 7. a,l 8. a,l 5. a,3 6. a,l b,3 b,3 b,2 b,3 c,2 c,2 c,l c,2 9. a,2 12. a,3 11. a,3 10. a,l b,l b,2 b,l b,3 c,3 c,l c,2 c,2 Sérhver dálkur hér að ofan sýnir mismunandi hæfileika sem eru nauðsynlegir til þess að geta talizt góður yfirmaður: A-réttsýni, B-bjart- sýni, C-að hafa taumhald á tilfinn- ingum sínum, D-fyrirhyggja. Leggðu saman hvern dálk fyrir sig og athugaðu síðan hæfileika þína til y firmannsstar fans. Möguleg stig í hverjum fiokki eru 3—9. Athugaðu í hvaða fiokki þú ert með hæstu einkunnina. Ef þú ert með 9 í A-fiokki ertu rétt- sýnn. Ef þú hefur 8 eða 9 í B-flokkin- um tekst þér að sigla framhjá mörgum erfiðleikum. Bjartsýni er nauðsynleg til þess áð fyrirtækið gangi vel. Ef þú færð 8 eða 9 í C-dálkinum bendir það til þess að þú sért mjög til- finninganæmur, sem er ekki talinn æskilegur eiginleiki yfirmanns. Ef þú færð 8 eða 9 í D-dálkinum sýnir það að þú veizt nokkuð vel um það sem á eftir að gerast. Það gengur upp og ofan hjá flestum fyrirtækj- um, en ef þú veizt nokkurn veginn fyrirfram hvernig ástandið verður tekst þér betur að stjórna og sigla framhjá skerjum á veginum. Allir fjórir eiginleikarnir eru nauðsynlegir til þess að geta verið góður stjórnandi, fyrir utan að hafa þekkingu á því starfi sem um ræðir hverju sinni. Frá menntamálaráðuneytinu: Lausar kennarastöður Vegna forfalla eru lausar til umsóknar kennarastöður við Nýja hjúkrunarskólann. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf við skólann í janúar eða febrúar nasstkomandi. Til greina kemur ráðning í hálfa stöðu. Skólastjóri gefur allar upplýsingar um kennslugreinar og starfsaðstöðu. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og störf skulu sendar ráðuneytinu fyrir 30. desember næstkomandi. Menntamálaráðuneytið BlLRÚÐAN SKÚLAGOTU 28 SiMAR 25755 0G 25780 Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi söluskatts fyrir nóvembermánuð er 15. desember. Ber þá að skila skattinum til inn- heimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið 10. deaember 1979.. r &ba • GOSDRYKKJAMARKAÐUR • ÁVAXTAMARKAÐUR • KJÖTMARKAÐUR Opið kl. 14-18 virka daga, föstudaga 14—20, laugardaga eins og leyft er í desember. SPARIMARKAÐURINN AUSTURVERI NEÐRI BÍLASTÆÐISUNNAN HÚSSINS

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.