Dagblaðið - 13.12.1979, Síða 36
Viðsjár í herbúðum vinstrí manna:
„Afstaða Stein-
gríms einsdæmi
segiróiafur
RagnarGríms-
sonum
síðustutillögu
Framséknar
íþingforseta-
málinu
„Þetta er nokkurt einsdæmi, að
maður, sem er að reyna að mynda
stjórn, Steingrímur Hermannsson,
krefjist forseta Sameinaðs þings fyrir
sinn flokk,” sagði Ólafur Ragnar
Grímsson, þingmaður Alþýðubanda-
lagsins, í morgun um síðustu tillögur
framsóknarmanna um kjör þingfor-
seta.
„Það lofar ekki góðu, ef fram-
haldið verður svona,” sagði Ólafur
Ragnar.
Ólafur Ragnar sagði, að það hefði
komið fyrir einu sinni, 1971—74, að
maður úr sama flokki hefði verið for-
sætisráðherra og forseti Sameinaðs
þings. En þá hafi verið persónulega
verið að verðlauna Eystein Jónsson
eftir 40 ára þingsetu með því að gera
hann forseta Sameinaðs þings.
Fyrir Alþýðubandalagi og Alþýðu-
flokki liggur nú bréf frá Framsóknar-
flokki, sent á níunda tímanum í gær-
kvöld, þar sem stungið er upp á, að
framsóknarmaður verði forseti Sam-
einaðs þings. Alþýðubandalagið fái
forseta neðri deÚdar og Alþýðu-
flokkur forseta efri deildar. Alþýðu-
flokkurinn hafnaði fyrr í gær tillögu
Framsóknar um samstarf vinstri
flokkanna þriggja við forseta- og
nefndakjör, sem gekk út frá, að
alþýðubandalagsmaður yrði forseti
Sameinaðs þings.
Alþýðubandalagsmenn segja, að
sú afstaða Framsóknar sé skrýtin að
stinga fyrst upp á alþýðubandalags-
manni og síðan manni úr eigin flokki.
Þeir benda á, að á þingi í fyrra átti
Alþýðubandalagið forseta Sameinaðs
þings.
,,Það litur ekki vel út með sam-
komulag um forsetakjörið,” sagði
einn þingmaður Alþýðuflokksins í
morgun. Þingflokkur Alþýðuflokks-
ins kemur saman klukkan hálf eitt i
dag til að fjalla um bréf Framsóknar.
Verði ekki samkomulag, getur
afstaða alþýðuflokksmanna orðið á
ýmsa vegu. Þeir gætu kosið sjálf-
stæðismann forseta Sameinaðs þings
eða setið hjá. Mögulegt er, að þing-
fundum verði frestað.
Sighvatur Björgvinsson, formaður
þingflokks Alþýðuflokksins, sagði í
morgun að æskilegt væri að allir
flokkarnir næðu samstöðu í málinu
þrátt fyrir dægurþrasið. Líta bæri á
að samstarf um ríkisstjórn lægi ekki
fyrir og væri verið að skapa fordæmi
í þingsögunni við þetta kjör.
-HH.
„Ég vona að þetla verði mörgúm í okkar ktera landi til eftirbreytni, ” sagði Guðmundur Einarsson, framkvœmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, er hann tók
við andvirði jólaeplanna. DB-mynd Ragnar Th.
Gáfu andvirði jóiaeplanna til Kampútseu
„í ár höfum við, nemendur í Mela-
skóla, óskað eftir að mega gefa and-
virði jólaeplanna okkar, sem er 45.000
kr., til Kampútseu-söfnunarinnar
Brauð handa hungruðum heimi.
Þannig segir m ,a. í ávarpi barna í Mela-
Ólafurformaður
þingflokksins?
Ólafur G. Einarsson, varafor-
maður þingflokks sjálfstæðismanna,
er nú jafnlíklegur til þess að verða
kjörinn formaður i stað dr. Gunnars
Thoroddsen eins og Matth'tasarnir,
Bjarnason og Mathiesen.
Formaður þingflokks gegnir störf-
um þar til nýr er kjörinn. Á þetta
jafnt við um varaformann. Enn rikir
alger óvissa um hvernig rikisstjórn
verður mynduð, og þá ekki síður um
hverjir þingmenn veljast til ráðherra-
starfa. Meðal annars vegna þess
hefur ekki verið talið vandalaust að
ákveða formann þingflokks Sjálf-
stæðisflokks. Margt fleira kemur
þarna til athugunar, en sem fyrr segir
gegnir dr. Gunnar Thoroddsen for-
mennsku þar til annað ræðst. -BS.
skóla, sem Kristján Andri Stefánsson,
12 ára, flutti er nemendur skólans
afhentu Guðmundi Einarssyni, fram-
kvæmdastjóra Hjálparstofnunarinnar
gjöf sína.
„Okkur er tjáð að fyrir þessa
upphæð sé hægt að kaupa mjólk handa
23 börnum í eitt ár, en það samsvarar
þeim fjölda sem er í einni bekkjardeild
hér í skólanum,” segir i ávarpi
nemendanna.
Guðmundur Einarsson þakkaði gjöf-
ina og lét í ljós að þetta frumkvæði
barnanna mætti verða öðrum til eftir-
breytni.
-GAJ.j
frjálst, nháð dagblað
FIMMTUDAGUR 13. DES. 1979.
Lögregian á
höttunum
eftir horfnum
manni
Hafnarfjarðarlögreglan leitaði í
gærkvöld og leitar enn að manni sem
var einn á ferð í bláum Subarubíl með
einkennismerkinu Ö-5803.
Maðurinn er frá Keflavík en var
staddur í Mosfellssveitinni i gær og
kom síðast i apótekið í Þverholti þar
efra. Fékk hann þar lyf er hann þarf að
taka vegna sjúkdóms.
Siðan hefur ekkert til mannsins
spurzt og eftirgrennslan eftir bílnum
hefur enn ekki borið árangur. Hefur þó
verið fariðum Mosfellssveitina, Kjalar-
nesið og víðar.
Þeir sem séð hafa bifreiðina Ö-5803
eða ökumann hennar síðan um 6 i gær,
eru beðnir að hafa samband við
Hafnarfjörð, simi 5—15—66. -A.St.
Söfnunarbaukamir
streyma inn:
Að meðaltali 14
þús.krónurí
hverjumbauk
„Það er komin mjög mikil hreyfing
í söfnunina. Margir einstaklingar hafa
gefið stórar upphæðir eins og 100
þúsund krónur. Baukarnir eru líka
teknir að streyma inn og höfum við
reiknað út að þeir hafi að meðaltali
haft að geyma 14 þúsund krónur hver
sem er talsvert meira en við áttum von
á,” sagði Guðmundur Einarsson,
framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar, aðspurður um gang
söfnunarinnar Brauð handa
hungruðum heimi. -GAJ.
Tían byrjuð
beina flugið
— yfir Atlantshafið
Flugleiðir hófu i gær beint flug með
DC-10 breiðþotunni milli New York og
Luxemborgar. Þotan hefur undanfarna
daga verið i skoðun í New York eftir
pílagrimaflugið en hefur nú hafið
reglubundið áætlunarflug beint yfir
Atlantshafið. Þotan fer siðan í dag til
Baltimore og Chicago. Næstu tvo daga
fer hún síðan frá Luxemborg til
Bahama og þá aftur til New York.
Vegna mikilla flutninga fyrir jólin
hefur DC-8 þota verið sett á Norður-
landaleiðir og er fyrsta flugið með
slíkri vél þangað í dag. Þá má geta þess
að önnur Boeing vél Flugleiða fer í dag
leiguflug fýrir SAS frá Kaupmanna-
höfn til Keflavíkur og síðan til
Grænlands.
í gær var gengið frá vinnu fyrir
fjórar áhafnir á DC-8 þotunni TF FLC,
sem leigð hefur verið til Cargolux.
Áhafnirnar fljúga vélinni aðallega frá
Charles de Gaulle flugvelli i París til
vesturstrandar Afríku og stendur það
flug í þrjá mánuði til að byrja með.
Aukaflugferðir innanlands vegna
jóla hefjast á laugardag og standa alveg
framáaðfangadagjóla. .jh.
Eitthvað hæg-
arí verðbólga
—segja sérfræðingar vinstrí f lokkanna
í skjölum þeim sem fulltrúar
vinstri flokkanna eru nú að glugga i
gera sérfræðingar ráð fyrir að verð-
bólgan verði ívið hægari næstu vikur
en orðið var á tímabili í haust.
Hraði verðbólgunnar á tímabilinu
1. ágúst til 1. nóvember var kominn
yfir 80% á ársgrundvelli, ef reiknað
væri með því, að sami hraði héldist í
heilt ár. Þá, segja sérfræðingarnir,
kom til mikil olíuverðshækkun,
aukning söluskatts og vörugjalds og
mikil verðhækkun á sykri og korn-
vöru, auk margs annars. Nú telja þeir
að heldur hafi verið kyrrlátara síðan
1. nóvember þrátt fyrir ýmsar áber-
andi verðhækkanir að undanförnu.
Ríkisstjórnin hefur setið á ýmsum
hækkunum. Ef gert er ráð fyrir að
þær hækkanir nái nú fram að ganga
að mestú á næstu vikum telja sér-
fræðingar : flokkanna í stjórnar-
myndunarviðræðunum að verð-
hækkanir frá I. nóvember til 1.
febrúar verði 10—12%. Það mundi
samsvara frá46,4 upp i 57,4 prósent-
um á heilu ári, ef sú þriggja mánaða
hækkun yrði talin halda áfram á
sama skriði í tólf mánuði. ♦
Verðbólgan á árinu 1979 verður
ekki langt undir 60%, samkvæmt
síðustu tölum, þegar reiknaðar eru
verðhækkanir frá ársbyrjun til
ársloka.
-HH.