Dagblaðið - 28.01.1980, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 1980.
Verðkönnun:
Félagsmenn i Borgarfjarðardeild Neytendasamtakanna eru mjög áhugasamir um
neytendamúl og hafa gefið út fréttabréf i tvö ár. t fréttabréfinu er að finna marg-
víslegan fróðleik um neytendamál. Meðfylgjandi mynd er tekin af kauptúninu.
Meinar Neyt-
endasamtökum
að f ramkvæma
verðkönnun
— Kaupmaðurínn skellti á blm. er
hann var spurður um ástæðuna
„Ég hef orðið var við ýmsar vit-
leysur í þessu og hef orðið fyrir því
að fólk hefur komið og beðið um
vöru á miklu lægra verði en fást i
verzluninni,” sagði Jón Eggertsson
káupmaður í Borgarnesi, er DB
spurði hann hvers vegna hann
meinaði Neytendasamtökunum að.
gera hjá sér verðkönnun.
Eins og kemur fram annars staðar
hér á síðunni eru verðkannanir
gerðar i verzlun Jóns þrátt fyrir bann
hans. Jóhannes Gunnarsson for-
maður Bo.rgarfjarðardeildarinnar
sagíú^í viðtali við DB að samlökin
hafi orðið að kaupa þær vörur sem i
könnuninni'væru, til að geta borið
saman verð við það sem er í öðrum
verzlunum á staðnum. Sagði hann
samtökin una þessu ástandi illa og
dró i efa að kaupmanni væri stætt á
að banna samtökunum eftirlitsstörf.
Jóhannes kannaðist ekki við að
um vitleysur hefði verið að ræða i
verðkönnunum sem gerðar hafa verið
i Borgarnesi, en þær eru nú um tólf
talsins.
Við báðum kaupntanninn að
nefna okkur dæmi um vitleysur úr
verðkönnun Neytendasamtakanna en
þá svaraði hann orðrétt:
,,Það eru ýmsar ástæður sem
liggja til þess að ég vil ekki taka þátt
í þessu. Ég er ekki tilbúinn að svara
því nú á stundinni. Ég má ekki vera
að þessu,” og svo skellti kaupmaður-
inn símanum á okkur.
Okkur þykir þetta ekki sérlega
kurteisleg framkoma, en vel má vera
að kaupmaðurinn hafi verið mjög
upptekinn, því þettta var á miðjum
föstudagseftirmiðdegi.
Þykir okkur sem þetta sé dæmi um
þá tortryggni sem margir kaupmenn
sýna verðkönnunum. Er engu líkara
en að þeir telji að verið sé að væna þá
um svindl. Hins vegar höfum við
orðið vör við að margir kaupmenn
hafa skipt algjörlega um skoðun þeg-’
ar þcir hafa lagt málið niður fyrir sér
og sjá að ekki er nema gott eitt um
vcrðkannanir að segja.
-A.Bj.
V
Danski rithöfundurinn
ERIK ST/NUS
flytur fyrirlestur í Norræna húsinu
þríöjudaginn 29. janúar kl. 20.30
og nefnir Rejser pá jorden. Þar fjallar
hann um eigin ritverk.
✓
Næsta hW verð-
munur milli verzl
ana í Borgamesi
Sá aðili hér á landi sem er einnaj
duglegastur við verðkannanir er án
efa deild Neytendasamtakanna í
Borgarnesi. Okkur hefur borizt
fréttabréf Borgarfjarðardeildarinnar
þar sem birt er verðkönnun frá 15.
jan. sl.
Kannað er verð á þrjátiu og tveimur
vörutegundum í fjórum verzlunum.
Verzlanirnar eru Kjörbúð Kaupfélags
Borgfirðinga, vörumarkaður K.B.,
Neskjör og verzlun Jóns Eggerts-
sonar. í könnuninni er tekið fram að
verðkönnun hafi ekki verið heimil í
verzlun Jóns Eggertssonar, en þær
vörur sem með eru í könnuninni frá
þeirri verzlun voru keyptar 15. og 16.
janúar.
Þessi verzlun hefur áður meinað
neytendasamtökunum að gera hjá sér
verðkönnun. Er það næsta furðuleg
ráðstöfun að verzlun skuli komast
upp með slikt.
Við rannsókn á verðkönnuninni
kemur i Ijós að næsta lítill verðmunur
er á milli verzlana i Borgarnesi yfir-
leitt. Á heildartölum munar sára litlu
nema hvað verzlun Jóns Eggerts-1
sonar er lægst þegar verð allra
vörutegundanna er lagt saman.
Munur á einstaka
vörutegundum
Helzti verðmunurinn sem er í
könnuninni er að 82 kr. munar á 350
gr af hrísmjöli, 88 kr. á einu kg af
kartöflumjöli, 90 kr. á tveimur kg af
rúgmjöli, 185 kr. á 500 gr af
kornflesk og 180 kr. á 340 grafcoco
puffs. Á lyftidufti munaði talsverðu
eða 148 kr. á 450 gr af lyftidufti, 77
kr. á kaffipakkanum sem vegur 250
gr, 58 kr. á 400 gr af mjókurkexi, 91
kr. á hálfdós af rauðkáli og 122 kr. á
300 gr af maískorni, 51 kr. munaði á
minnstu tómatsósuflöskunni. Á
kókómalti, 453 gr munaði 275 kr.,
ódýrustu eggin voru á 1000 kr. en
dýrasta kg var á 1690 kr, sem er
nokkuð mikill mismunur. Þá munaði
85 kr. á 680 gr pakkningu á Þvol
uppþvottalegi og 204 kr. á 225 gr Lux
sápuspónum og hvorki meira né
minna en 105 kr. munaði á 90 gr
túpu af tannkremi. -A.Bj.
VEROKÖNNUN 15. JANÚAR 1980
Vörutectund Kjörbúð KB Vörumarkaður KB Neskjör Verslun Jóns Eggertssonar
Sykur 2 kq. 725/- 627/- 670/-
Flórsykur, Dansukker 1/2 ka. 274/- 244/- í lausu 222/- . 257/-
Pama hrísmjöl, 350 ar. 347/- 309/- 265/-
Kartöflumjöl, 1 ka. 592/- 527/- 615/-
Rúgmjöl, 2 ka. 696/- 620/- 710/-
Rivtr Rice hrísarjón, 454 ar. 265/- 2 36/- — 260/-
Solgryn haframjöl, 950 gr. 663/- 590/- 640/-
Korn flakes Coon 500 ar. 1231/- Coon 500 ar. 1045/- Robertsson 375 or. 860/- 500 ar. 1147/-
Coco Puffs 340 ar. 953/- — 226 crr. 595/- 340 ar. 895/- 340 gr. 1075/-
Ilma brauðrasn, 160 ar. 270/- 235/- 245/-
Royal lyftiduft, 450 ar. 668/- 576/- 650/- 520/-
Royal karamellubúðinqur 179/- 154/- 180/-
Maaqi asparqussúpa 234/- 199/- 212/-
Vilko sveskjuqrautur 353/- 319/- 395/- 275/-
Braaakaffi 250 qr. 932/- 876/- 855/-
Frón mjólkurkex 400 ar. 426/- 368/- 421/- 415/-
Frón kremkex 4 39/- 379/- 4 38/- 445/-
Ora fiskbollur stór dós 760/- 684/- 745/- 740/-
Grænar baunir Coop 850 gr. 483/- Coop 450 or. 277/- 850 ar. 523/- K. Jónsson 850 ar. 515/- Ora 850 gr. 470/-
Ora rauðkál, hálf dós 504/- 519/- 595/-
Ora maískorn, 300 nr. 442/- 381/- 4 35/- 430 gr. 458/- 300 qr. 320/-
Vals tómatsósa, minnsta tea. 449/- 446/- 440/-
Egils ávaxtasafi, 1 ltr. 824/- — 820/-
Kókómalt Quik 453 gr. 931/- Quik 453 gr. 803/- Hershey's 453 gr. 1078/- Quik 226,4 gr 415/- 453 gr. 830/-
Egg 1 kg. 1000/- — 1690/- 1550/-
Sardínur í olíu K.jóns. 106gr 338/- — 340/- 310/-
C-ll þvottaefni 3 kg. 2602/- 3 kg. 2302/- 10 kg. 7990/- 3 kq. 2397/-
Þvol uppþvottalöqur 680 qr. 365/- 413/- — 328/-
Lux flögur 425 qr. 924/- 720/- 910/-
Vim ræstiduft, 297 qr. 287/- 275/- 299/-
Colgate fluor tannkrem 90 gr-. 500/- 429/- — 140 gr. 615/- 90 qr. 395/-
Regin kiósettpappír 157/- 139/- 159/- 135/-
Ofangreindar vörur hjá Verslun Jóns Eggertssonar voru keyptar í versluninni 15. og
16. janúar, þar sem verðkönnun var ekki heimiluð.
Allir velkomnir
N0RRÆNA HÚSIÐ