Dagblaðið - 28.01.1980, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 1980.
FÓLK
ÁSGEIR
TÓMASSON
Fólk á frumsýningu Lands og sona
„Það er vonandi að íslenzka þjóðin
sé ekki orðin ,s i'o heilaþvegin af vestur
heimskri menningu að hún meti þessa
úgœtu kvikmynd að verðleikum og
fari ekki að bera hana saman við
ómerkilegar afþreyingarmyndir sem
tröllrlða kyikmyndahúsum hér," segir
Friðrik Þór Friðriksson kvikmynda
gagnrýnandi Dagblaðsins meðal ann-
ars i dómi sínum um Land ogsyni.
Kvikmyndin var frumsýnd í
Austurbæjarbíói ó föstudagskvöldið
var. Á sama tíma var hún jafnframt
sýnd ó Dalvík. Troðfullt hús var ú
bóðum stöðum. Áður en sýningin
hófst I Austurbæjarbíói Jlutti Ágúst
Viðstödd frumsýninguna I Austurbœjarbíói voru forsetahjónin, Knstjón og
Halldóra Eldjárn. Kvikmyndunin fór jram á œskustöðvum forsetans, i Svarfaðar-
dalnum. DB-myndir: Ragnar Th. Sigurðsson.
Sigurður Sigurjónsson, einn okkar efnilegustu leikara, fer með aðalhlutverkið I
Landi og sonum. Hérsést hann á tali við Jón Þórisson.
Jón Þórisson hannaði leikmynd Lands
og sona. Hér kemur hann á frum-
sýninguna ásamt konu sinni, Ragn-
heiði Steindórsdóttur, leikkonu.
Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri vinnur
þessa dagana að klippingum á mynd
sinni, Óðal feðranna. Til að gera hana
hlaut hann 5 milljónir úr Kvikmynda-
sjóði. Hann lét sig ekki vanta á frum-
sýnifffuna I Austurbœjarblói.
Indriði G. Þorsteinsson höfundur skáldsögunnar Land og synir kemur hér á
staðinn ásamt konu sinni, Ólöfu Friðriksdóttur.
Guðmundsson stutta tölu. Hann gerði
Kvikmyndasjóð sérstaklega að um-
rœðuefni. Þeim niu milljónum króna.
sem Ágúst og félagar hans fengu út-
hlutað úr sjóðnum, þakkaði hann það
að ráðizt var í verkið.
Land og synir fengu frábærar við-
tökur frumsýningargesta i Reykjavik
og á Dalvik. Að sýningunni lokinni
kvað við dynjandi lófatak og aðstand-
endur myndarinnar voru kallaðir upp
á svið.
Umsögn Friðriks Þórs Friðriks-
sonar um Land og syni er á blaðsiðu
13 i Dagblaðinu i dag.
-ÁT
Ágúst Guðmundsson leikstjóri Lands
og sona flutti stutta tölu áður en
sýningin hófst. Þar minntist hann á
Kvikmyndasjóðinn og þakkaði nlu
milljón króna framlag hans þvl að
ráðizt var i gerð myndarinnar. Heild-
arkostnaður hennar var um 70
milljónir.