Dagblaðið - 28.01.1980, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 1980.
II
Valdabarátta mitönýja
forsetans og stúdentanna
— íran getur ekki haft tvær til þrjár ríkisstjórnir, segir sá nýkjömi
Abolhassan Bani-Sadr, nýkjörinn
forseti írans, lýsti yfir því í gær að
hann væri ekki reiðubúinn til þess að
fallast á þá óstjórn sem ríkt hefur í
landinu undanfarna mánuði. Hann
sagðist ekki mundu samþykkja að
raunverulegar ríkisstjórnir, eins og til
dæmis ein frá byltingarráðinu og
önnur frá stúdentunum, scm halda
sendiráði Bandaríkjanna og gíslunum
þar, yrðu við hlið þeirrar ríkis-
stjórnar sem hann skipaði í íran.
í útvarps- og sjónvarpsviðtali sem
haft var við Bani-Sadr í gærkvöldi,
rétt eftir að opinberlega hafði verið
viðurkennt að kjör hans væri öruggt,
sagði hann að stúdentarnir í sendi-
ráðinu hefðu að sjálfsögðu rétt til að
lýsa yfir skoðunum sinum á ýmsum
málum en það væri hlutverk rikis-
stjórnar hans að stjórna landinu.
Forsetinn tók sérstaklega sem dæmi
fordæmingu stúdentanna á þeirri
ákvörðun Iransstjórnar að senda full-
trúa á fund utanrikisráðherra
múhameðstrúarríkja, sem haldinn er
í Islamabad í Pakistan. Þeir hefðu
fyrst átt að ráðfæra sig við byltingar-
ráðið og fá þar uppgefnar ástæð-
urnar fyrir því að ákveðið var að
senda fullt-rúa.
Þegar Bani-Sadr ræddi við frétta-
menn var búið að telja um það bil sjö
Nathan litli frá Portsmouth á Bretlandi fékk tækifæri til að fara til Disneyworld á Flórida. Samborgarar hans söfnuðu fyrir
fargjaldinu fyrir þennan fjögurra ára pilt, sem sést á myndinni, þegar það fréttist að hann ætti aðeins um það bil sex mánuði
eftir ólifaða vegna einhvers konar heilabólgu. Allir þekkja auðvitað Mikka mús, sem er með Nathan á myndinni.
af hverjum tíu atkvæðum. Talið er
að lokatölur muni liggja fyrir seint í
dag. Hinn nýi forseti sagði fyrr í gær
að höfuðábyrgðin á ástandinu í
bandaríska sendiráðinu í Teheran
lægi hjá ríkisstjórninni í Washington.
Hennar væri einnig skyldan að sjá til
þess að það mál leystist farsællega.
— Lausnin mundi liggja fyrir þegar
Bandarikin leggðu niður stefnu sína
að takmarka frelsi írans, þá mundi
sendiráðsmálið leysast og gíslarnir fá
frelsi.
Abolhassan Bani-Sadr er fransk-
menntaður hagfræðingur, hann er 46
ára að aldri og hefur verið fjármála-
ráðherra í stjórn Khomeinis. Hann
hefur lofað að berjast fyrir endur-
uppbyggingu og þjóðarsameiningu,
auk þess að minnka verðbólguna og
atvinnuleysið í íran.
Skákmótið í Hollandi:
Guömundur tapar
fyrir Seirawan
Guðmundur Sigurjónsson tapaði
fyrir heimsmeistara unglinga, Banda-
rikjamanninum Seirawan, í tíundu
umferð skákmótsins í Hoogovens í
Hollandi i gær. Sá siðarnefndi er
kominn með örugga forustu á
rnótinu, 8,5 vinninga, og tveim
vinningum meira en Browne sem er
með 6,5 vinninga og biðskák.
Seirawan hefur þar með unnið sér
rétl til stórmeistaratitils en fyrri
hluta þess árangurs náði hann á
skákmóti i Lone Pine i Banda-
ríkjunum fyrir um það bil einu ári.
John Van Der Wiel á biðskák
gegn Browne í öðru sæti, sem sigraði
aftur á móti Ligterink í biðskák sinni
frá niundu umferð. Sá rekur nú
lestina á mótinu.
Önnur úrslit í tíundu umferð urðu
þessi: Sunie gerði jafntefli við
Ligterinik, Kortsnoj sigraði
Kovacevic frá Júgóslaviu, Biyiasis frá
Kanada tapaði fyrir Alburt frá
Bandaríkjunum, Timman sigraði
Byrne frá Bandarikjunum, Böhm á
biðskák við Hans Ree fráHollandi.
Skrifstofuvélar h.f. kynna vélar og tækni á sviði
skrifstofuvéla á sérstakri sýningu að Hótel Loft-
leiðum, Kristalssal, dagana 29., 30. og 31. janúar
1980, kl. 13 til 18 alla dagana.
Sýndar veröa vélar, tæki og tæknibúnaður, m.a.:
Omic reiknivélar, IBM ritvélar, Selex Ijósritunarvélar,
Richmac búðarkassar, Citizen hljóðritar, NCR mikrolesarar,
Stromberg stimpilklukkur, Roneo frímerkjavélar, Gakken-
og Banda myndvarpar, ABC ritvélar, U-Bix Ijósritarar,
Omron búðarkassar, Simplex stimpilklukkur, Apeco Ijós-
ritunarvélar og m.fl.
Veríð velkomin!
%
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
% +
x
Hverfisgötu 33
Simi 20560 - Pósthólf 377
Bandaríkin:
Aukning fjár
til hemaðar-
þaría fimm
af hundraði
Jimmy Carter Bandaríkjaforseli
mun í dag leggja fram frumvarp sitt
um eyðslu til hernaðarþarfa á árinu
1981. í þvi mun stefnan vera 158
milljarðar dollara (il þeirra nota. Er
það talin vera hækkun sem nemur
fimm af hundraði, miðað við eyðslu
þessa árs. Hefur þá verið lékið tillit til
verðbólgu á timbilinu. Samkvæmt
hernaðaráætlunum er ætlunin, að
hernaðarmáttur Bandaríkjanna verði
svipaður og í dag á heimsvígstöðvum.
Aukin hernaðarmáttur er hins vegar
áætlaður á olíusvæðunum við
Persaflóann og einnig i Miðaustur-
löndum.
Túnis:
Skæruliðar
frá Alsír
berjast við
stjómarher-
menn
Stjórnvöld í Túnis segja að stór
hópur skæruliða hafi ruðst inn í landð
í gær frá Alsir og bardagar hafi staðið
lengi dags á milli þeirra og öryggis-
sveita stjórnarinnar. Hafi bardaginn
verið mjög blóðugur og margir fallið. í
opinberri tilkynningu í Túnis var
tilkynnt að skæruliðasveitirnar hafi
verið hraktar á flótta. Nokkrum
óbreyttum borgurum hafi verið
bjargað úr höndum þeirra en ætlunin
hafi verið að taka þá i gíslingu.