Dagblaðið - 28.01.1980, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 1980.
G
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Týrarar stóðu
lengi í Fylki
— en Árbæjaríiðið sigraði 23-20
í bezta leik 2. deildar.
Ármann vann Tý einnig
Árbæjarliftifl Fylkir sigraði Tý frá
Vestmannaeyjum i 2. deild i handknatt-
leiknum í Laugardalshöll i gær og
hefur nú góða forustu í deildinni.
Leikurinn var bráöskemmtilegur —
bezti leikur, sem undirritaður hefur sért
í 2. deildinni í vetur. Fylkisliðið er
sterkl — á við mörg liðin í 1. deild —
og það kom því á óvart, að Týrarar
gáfu þvi litið eftir þar til lokakafla
leiksins, að Fylkir seig framúr og
sigraði 23—20. Frábær markvarzla
Kgils Steinþórssonar í marki Týs átti
mestan þátt í því hve Týrarar stóðu í
Fylki — en margir leikmenn í báðum
liðum sýndu góð tilþrif.
Týr, sem var án eins síns albezta
nianns, knattspyrnukappans kunna,
Sigurlásar Þorleifssonar, sem fingur-
brolnaði i leiknum við Ármann á laug-
ardag, byrjaði mjög vel og á fyrstu
minútunni skoraði liðið tvivegis. En
það dugði skammt. Fylkir, með
Gunnar Baldursson fremstan i flokki,
skoraði næstu sex mörk, 6—2. Týr
smá-vann upp muninn og i hálfleik var
jafnt 10—10. Lengi vel í s.h. hafði
Fylkir eitt til tvö mörk yfir en Týr
jafnaði i 17—17 og Týrarar unnu þá
upp tveggja marka forskot þótt þeir
væru einum færri. En næstu fimm
mörk voru Fylkis og var Ragnar Her-
mannsson þá aðalmaður Árbæjar-
liðsins. 22—17 og úrslit ráðin — tæpar
sjö minútur eftir.
Fylkisliðið er jafnt og gott, tvimæla-
laust jafnbezta liðið i 2. deild en
Gunnar og Ragnar báru af að þessu
sinni. Týr, með marga mjög smávaxna
leikmenn, lék oft á tíðum góðan hand-
knattleik. Þjálfarinn Helgi Ragnarsson
varð
hlutskarpastur
í Hlíðarf jalli
Fyrsta skiöamót vetrarins á
Akureyri var háð á Skíðastöðum i
Hliðarfjalli í gær. Afmælismól Þórs,
en félagið verður 65 ára á árinu. Björn
Víkingsson, Þór, sigraði á 101.00 sek.
Nánar verður skýrt frá mótinu siðar í
vikunni.
stjórnandi spilsins ásamt Óskari Ás-
mundssyni — en Helgi með allt of
mörg skot í leiknum. Þorvarður Þor-
valdsson skemmtilegur á línu og Bene-
dikt og Kári Þorleifsson í hornunum.
En maður leiksins var Egill mark-
vörður, sem m.a. varði tvö vitaköst.
Mörk Fylkis. Gunnar 6, Ragnar 5,
Einar Ágústsson 4/2, Sigurður
Símonarson, einn albezti línumaðurinn
i ísl. handknattleik, 3, Guðni Hauksson
2, Ásmundur Kristinsson 2/1 og
Óskar Ásgeirsson 1.
Mörk Týs. Helgi 6/4, Þorvaldur 4,
Óskar 4, Snorri Jóhannsson 3, Kári 2
og Benedikt Guðbjartsson 1. Dómarar
Árni Tómasson og Ólafur Steingríms-
son.
Ármann vann Tý 20—17
Á laugardag lék Týr við Armann í
Laugardalshöllinni og sigraði Ármann
20—17 i heldur slökum leik, þar sem
dómararnir Gunnar Steingrímsson og
Hjálntur Sigurðsson léku stórt hlut-
verk. Þessir piltar hafa oft dæmt vel en
nú voru þeir eitthvað miður sín. Aðal-
gallinn hvað þeir voru oft allt of fljótir
að gripa til flautunnar.
Leikurinn var litið augnayndi. Jafnt
upp i 3—3 en siðan voru Ármenningar
oftast einu til tveimur mörkuni yfir.
Slaðan i hálfleik 9—8 fyrir Ármann.
Fljótt í s.h. komst Ármann í 13—10.
Týr tókst aldrei að brúa þann mun
alveg — minnsti munur 14—13 en
Ármann komsl fljótt þremur mörkum
yfir á ný.
Björn Jóhannesson og Jón Viðar
Sigurðsson voru aðalmenn Ármanns í
leiknum ásamt Heimi Gunnarssyni i
markinu og Einari Eirikssyni i
vörninni. Hjá Týr voru Sigurlás og
Benedikt beztir — Benedikt sýndi oft
„Björgvins-takta”, þegar hann sveif
inn af linu eða úr horninu. Egill varði
vel i byrjun en fékk siðan á sig nokkur
klaufaleg mörk.
Mörk Ármanns skoruðu Björn 6/4,
Jón Viðar 5, Friðrik Jóhannsson 3,
Haukur Haraldsson 3, Þráinn Ás-
mundsson 2, og Atli Jóhannesson I.
Mörk Týs Benedikt 5, Sigurlás 4/I,
Óskar Ásmundsson, tvíburabróðir
Þráins í Ármannsliðinu 3, Ingibergur
Einarsson 3, Snorri l og Magnús Þor-
steinsson I. -hsím.
Framarar gáfu ekkerl eflir í viðureign sinni við KR eins og sjá má á þessari skemmtnegu mynd Bjarnleifs. Hér er það
Guðmundur Hallsteinsson, sem sleypir sér yfir Geir Þorsleinsson, sem varla veil hvaðan á sig stendur veðrið.
KR sigraði bara
af gömlum vana!
— Framarar stóðu uppi í hárinu á meisturum KR
en töpuðu 83-85
KR-ingar komusl heldur belur i
krappan dans í Hagaskólanum á laug-
ardaginn er þeir mættu botnliði
Framara. Lengsl af mátti vart á milli
sjá og það var ekki fyrr en undir lokin
að KR seig endanlega framúr og sigraöi
85—83. Mjórra gat það varla verið.
KR-ingar eru því enn i efsta sæti úrvals-
deildarinnar og spennan á toppnum er
orðin mikil. - r-
KR komst strax yfir í leiknum 2—0
en síðan tóku Framarar forystuna og
létu hana ekki af hendi fyrr en i síðari
hálfleik. Leikur KR einkenndist fyrst
og fremst af kæruleysi framan af og
hvað eftir annað fóru einfaldar
sendingar forgörðunt hjá þeim.
Frantarar voru nær einráðir undir
körfunni og hirtu flest fráköstin.
Jackson var i fýlu og hrisli höfuðið si
og æ yfir öllum sköpuðunt hlutum.
Skemmtilegasta atvik leiksins
gerðist rétt áður en blásið var til
leikhlés. Darrell Shouse var þá með
boltann á ntiðlínu er Ágúsl Líndal
,,stal” knettinum skemmtilega af
honum, brunaði upp og skoraði. Þá
voru aðeins 7 sek. lil hálfleiks. Shouse
var greiniltga ekki á þeint buxunum að
hleypa KR-ingunum upp með neitt
múður. Hann tók bollann, rauk upp
allan völl, plataði KR-ingana upp úr
ÍR vantaði herzlumuninn
— en allt annað en Valssigur hefði verið ósanngjamt. Valur-ÍR 105-100
Það var heldur betur fjör í Hagaskól-
anum í gærdag er ÍR og Valur mættust
í úrvalsdeildinni i körfuknattleik.
Framlengja þurfti leikinn til að ná fram
úrslilum og eins og við mátti búast voru
það Valsmenn, sem stóðu uppi sem
sigurvegarar í lokin. Lokatölur urðu
105—100 þeim í vil en staðan var 89—
89 eftir venjulegan leiktíma. Fram að
þvi höfðu Valsmenn lengst af leitt
örugglega og komust mesl 20 stigum
yfir, 77—57. ÍR-ingar gáfust hins vegar
ekki upp og þeim tókst að jafna metin
fyrir leikslok. Því varð að framlengja.
Þó varð aldrei um neina verulega
spennu að ræða i framlengingunni því
Valsmenn virtust allan tímann hafa leik-
inn i höndum sér. Dwyer, sem hafði
verið frekar rólegur i leiknum, fór á
kostum í framlengingunni en enginn þó
eins og Kristján Ágústsson, sem virtist
geta skorað hvar og hvenær sem hann
vildi. Það var sama hvaðan hann skaul
— það fór allt ofan i körfuna. Hann
skoraði 26 stig og hefur ekki leikið eins
vel lengi og er hann þó vanur að skila
sinu og rúmlega það. Smáfjör færðist i
framlenginguna er Jón Indriðason kom
inn á og skoraði 4 stig með tilþrifum en
hann kom of seint inn á til að geta
bjargað einhverju. Sigur Vals var því
öruggur undir lokin þó svo að tvisýnt
væri um tíma.
Strax í upphafi virtist augljóst hvert
stefndi. Valsmenn komust fljótlega yfir
en ÍR jafnaði jafnharðan. Staðan var
t.d. 6—6 um tíma en næstu 13 stig
komu úr herbúðum Vals og staðan
breyttist i 19—6. Varnarleikur Vals-
manna á þessum tima var hreint út sagt
frábær og gáfu þeir ÍR-ingunum engin
tækifæri undir körfunni. Það varð til
Stórsigur Þórs
Þór, Akureyri, vann stórsigur á
Grindavík í meistaraflokki kvenna i
handknaltleiknum á Akureyri á laugar-
dag. I.okatölur 28—13 eftir 16—7 í
hálfleik. Þórsstúlkurnar komu mjög á-
kveðnar til leiks. Skoruðu sex fyrstu
mörk leiksins — þar af fjögur úr víta-
köstum. Kftir það voru úrslit ráðin.
Beztu leikmcnn Harpa Sigurðar-
dótlir, Þór, 7, Magnea Friðriksdóttir,
Þór, 7, Dýrfinna 7, Kristín
Oiafsdóttir, Þór, 6, Sjöfn Ágústsdóttir,
Grindavik, 6.
Mörkin í leiknum skoruðu: Þór.
Harpa 13/11, Dýrfinna 7, Magnea 6,
Þórunn Sigurðardóttir og Valdís Hall-
grímsdóttir eitt hvor. Grindavík. Sjöfn
6/1, Hildur Gunnarsdóttir 4, Svan-
hildur Karlsdóttir, Ingunn Jónsdótlir
og Krislólína Ólafsdóttir eitl hver.GSV.
þess að þcii fóru að skjóta utan af velli
og varð ekki betur ágengt en raun bar
vitni.
ÍR tókst siðan að minnka þennan
mun niður i 5 stig, 20—25, en siðan
tóku Valsmenn al'tur við sér og stungu
af og leiddu með 14 stigum, 56—42 í
hálfleik. Mikið skorað og stefndi í 100
stig hjá Val.
Valsmenn tóku upp þráðinn þar sem
frá var horftð i fyrri hálfleiknum og
hófu þann siðari með miklutn láium.
Eftir rúmlegar 4 mín. var staðan
68—57 og virtust jR-ingar aðcins að
hressast. Þá kom hins vegar afleitur
kafli og Válsmenn skoruðu næstu 9
stig, 77—57. Mesti munur i leiknum.
Þá kom alger hrunkafli hjá Val. ÍR
skoraði 21 stig gegn aðeins 4 Vals og
skyndilega var munurinn aðeins 2 stig,
79—81. Lokakaflann skiptust liðin á
um að skora en Valsmenn voru alltaf á
undan. Jón .lörundsson jafnaði fyrir
ÍR, 89—89, þegar 8 sek. voru lil leiks-
loka og Valsmönnum lókst ekki að
svara fyrir sig á þessum fáu sekúndum.
Það, sem gerði útslagið fyrir ÍR i
þessum Ieik var að leikmenn hættu sí-
felldu móðursýkiskjökri sinu og ein-
beittu sér að leiknum. Þeir voru með sí-
fellt væl út í dómarana og þó svo að
þeir hafi verið einhverju harðræði
beittir þýðir litið að gefast upp. Hefðu
þeir leikið þannig áfram til leiksloka cr
ekki að efa að þeirra hefði beðið 30
stiga tap.
Stjarna leiksins var vafalitið Krislján
Ágústsson, sem lék stórvel allan tím-
ann. Hann var sterkastur í annars mjög
jöfnu Valsliði.
Hjá ÍR var það ungur leikmaður,
Sigurður Bjarnason ættaður úr Hólm-
inum, sem vakli mesta athygli. Hann
skoraði 12 stig i leiknum og stóð sig
mjög vel. Merkileg hversu góðir leik-
menn koma frá Stykkishólmi. Vals-
menn eru með Krislján, Rikharð og
Sigurð — alla úr Hólminum. Það segir
e.t.v. mest um IR-ingana að um tima
voru þeir Kristján, Ríkharður og
Dwyer allir ulan vallar og saml tókst IR
ekki að færa sér það i nyt. Meistara-
vonir ÍR eru þvi roknar úl í veður og
vind enn eitt árið.
Stig Vals: Kristján 26, Dwyer 18,
Rikharður 17, Þórir 14, Torfi 13,
Jóhannes 7, Jón 6 og Sigurður 4.
Stig ÍR: Christensen 27, Kristinn 23,
Jón .lör. 17, Sigurður 12, Sigmar 7,
Stefán 6, Kolbeinn 4 og Jón Indr. 4.
Staðan er nú þannig í úrvalsdeild-
inni:
KR — Fram 85—83 (43—43)
Valur — ÍR 105 — 100(56—42)
KR 12 9 3 1021—920 18
Valur 12 9 3 1052—993 18
Njarðvik 12 8 4 994—947 1 6
ÍR 12 6 6 1045—1080 12
ÍS 12 2 10 1032—1099 4
Fram 12 2 10 939—1032 4
- SSv.
skónum og sendi siðan á Omar
Þráinsson sem skoraði örugglega.
Hálfleikur43—43.
Sami barningurinn hélt áfram allan
seinni hálfleikinn cn KR komst fljót-
lega yfir 48—47. Það vakti athygli
íundirritaðs að Guðmundur Hallsteins-
Ison var notaður mjög mikið á meðan
bæði Björn Jónsson og Hilmar
Gunnarsson, sem eru betri lcikmenn,
voru hvildir. Framarar hafa ekki efni á
sliku. Munurinn á liðunum var ekki
mikill og þróaðisl leikurinn upp i
einvigi á milli Marvin Jackson, sem
hætti í fýlunni og fór að leika
körfubolta, og Simons Ólafssonar. Að
visu hafði Marvin betur í einviginu —
skoraði 41 stig gegn 27 stiguni Símon-
ar, en Simon álti stórleik engu aðsiöur.
Um miðjan siðari hálfleikinn tóku
Framararnir mikinn kipp og komust 6
stigum yfir, 67—61. Ekki var laust við
að undrunarsvipur kæmi á marga
viðsladda. Ællaði Frömurum að takast
að leggja KR að velli.
En svo varð ekkir Klaufalegar inná-
skiptingar hjá Fram kóstuðu þá
sigurinn. Á meðan reyndari leikmenn
sátu á bekknum voru aðrir lálnir leika
og slíkt gengur ekki í svo jöfnum leik.
KR-ingar náðu að vinna upp forskotið
á örstuttum tíma og komst yfir 71—69.
Framararnir höfðu ekki sagt sitt
síðasta. Sterkasta liðið aftur inn á,
nema hvað Björn Magnússon var ekki
með i s.h. vegna meiðsla, og næstu
fimm stig komu frá Fram. Staðan 74—
71 fyrir þá og 5 og hálf mín. eftir. KR-
ingar skorðu næstu 8 stig og konuist i
79—74. Shouse brenndi af 3 vitum og
KR jók muninn i 81—74. Þrár min.
eftir. Framararnir þjörmuðu hressilega
að vesturbæingunum í lokin en tókst
ekki að knýja fram sigur. Höfðu
margir á orði að þarna hefði KR bara
unnið af gömlum vana.
Þessi leikur sýndi það svarl á hvilu
að ekki má mikið úl af bregða hjá
loppliðunum ef þau eiga ckki að tapa
fyrir botnliðunum. Á góðum degi er
munurinn ekki ýkja mikili.
Stig KR: Jackson 41, Geir 14,
Garðar 10, Jón 8, Ágúst 6, Árni 4 og
Birgir 2.
Stig Fram: Simon 27, Shouse 23,
Ómar 12, Þorvaldur 7, Björn J. 6,
Hilmar 4, Björn M. og Guðmundur 2
hvor.
Dómarar voru þeir Ingi Stefánsson
og Kristbjörn Albertsson og dæmdu á-
gætlega.
-SSv.