Dagblaðið - 28.01.1980, Side 25
DAGRLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 1980.
25
Til leigu 2ja hcrb. íbúð
við Skipasund. Laus 1. febr. ’80. Fyrir-
framgreiðsla æskileg. Tilboð með uppl.
um greiðslugétu óskast sent DB merkt
JbúðlOO”.
Kaupmannahafnarfarar.
2ja herb. íbúð til leigu J miðborg
Kaupmannahafnar fyrir túrista. Uppl. í
síma 20290.
c
Húsnæði óskast
i
3—4 herb. íbúð óskast,
4 í heimili. Heitið er góðri umgengni og
stakri reglusemi. Simi 37897 eftir kl. 7
næstu daga.
Óskum eftir 2—3ja herb. íbúð.
Má þarfnast lagfæringar. Góð
umgengni, reglusemi og skilvísar
greiðslur. Uppl. í síma 29809 eftir kl. 5.
Alþingismaður utan af landi
óskar að taka íbúð á leigu. Uppl. hjá
auglþj. DB í síma 27022 og á kvöldin í
síma 11440, herb. 306.
H—137.
Iðnaðarhúsnæði óskast
á Stór-Reykjavíkursvæðinu, þarf helzt
að vera með stórum innkeyrsludyrum.
Ýmsar stærðir koma til greina. Uppl.
gefur Karl í síma 41287.
Ungur maður óskar
eftir að taka á leigu 1 herbergi með
aðgangi að eldunaraðstöðu, helzt nálægt
miðbænum. Góðri umgengni og
reglusemi heitið. Lysthafendur hringi í
síma 14613 eftir ki. 6.
Keflavík.
Óska eftir 3ja herb. íbúð sem fyrst, til
sölu á sama stað ITT frystikista, 360 1.
Uppl. í síma 92—1648.
Einhleypur maður
óskar eftir ibúð. Er tilbúinn til að greiða
háa leigu fyrir góða íbúð, og fyrir-
framgreiðsla eftir samkomulagi.,
Vinsamlegast hafið samband við
Guðmund í sima 42513.
Hjón með tvo stálpaða drengi
óska eftir 3—4 herbergja íbúð nú þegar.
Mætti þarfnast málningar og minnihátt-
ar lagfæringar. Algjör reglusemi og góð
umgengni. Fyrirframgreiðsla ef óskað'
er. Sími 11993.
Ung stúlka óskar
eftir 2ja herb. ibúð sem fyrst. Ekki í
Breiðholti eða Kópavogi. Fyrirfram-
greiðsla möguleg. Uppl. í síma 15450 á
skrifstofutíma og 83727 á kvöldin.
íbúð óskast til leigu
á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Leiga til
lengri tíma æskileg. Uppl. í síma 53642 á
kvöldin.
Reglusamur, ungur maður
óskar eftir herbergi með aðgangi að
eldhúsi eða einstaklingsíbúð. Uppl. í
síma 35981 milli kl. 7 og 9.
Lítil ibúð í gamla bænum
óskast til leigu fyrir fullorðna konu, eina
í heimili. Algjör reglusemi. Uppl. í síma
28073 eftir kl. 19.
Óskum eftir íbúð
sem allra fyrst, fyrsta flokks umgengni
og fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppl.
gefur auglýsingaþj. DB i síma 27022.
H—035.
Hverjir vilja fá
áreiðanlega leigjendur? Erum tvö í
heimili. 2—4 herb ibúð. helzt á
Seltjarnarnesi í mið- eða vesturbæ. Þó
ekki skilyrði. Uppl. i sima 15302.
29 ára maður
utan af landi í öruggu starfi óskar eftir
2—3 herb. íbúð, góðri umgengni heitið.
Uppl. í vinnu síma 86580 frá kl. 14—21.
Húsráðendur ath.
Leigjendasamtökin, leigumiðlun og
ráðgjöf, vantar íbúðir af öllum stærðum
og gerðum á skrá. Við útvegum
leigjendur að yðar vali og aðstoðum við
gerð leigusamninga. Opið milli kl. 3 og 6
virka daga, Leigjendasamtökin,
Bókhlöðustíg 7, sími 27609.
Atvinna í boði
í
Vantar vana háseta
á net á m.b. Kristbjörgu VE 70. Uppl. í
síma 72512 eftir kl. 7 á kvöldin.
Kona óskast
til að þrífa litla íbúð einu sinni í viku, á
föstudögum eftir hádegi, 2 í heimili.
Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022.
H—52.
Starfskraftur óskast strax.
Hverfiskjötbúðin, Hverfisgötu 50.
Vantar múrara
til þess að fínpússa 200 fm húsnæði,
engin loft. Uppl. í síma 38256 á kvöldin.
Afgreiðslustúlka óskast
1/2 daginn. Uppl. á staðnum. Kjörbúðin
Laugarás, Norðurbrún 2.
Ráðskona óskast I sveit
í Skaftafellssýslu. Uppl. hjá auglþj. DB í
síma 27022.
H—165.
Stúlka, rösk og ábyggileg,
óskast til starfa í sælgætisverzlun frá kl.
1—6. Uppi. í sima 73105 milli kl. 8 og 10
ídagogámorgun.
Fertugur reglusamur maður
óskar eftir innivinnu. Hefur innsýn í
ýmsar vélar. dálítil reynsla í af-
greiðslustörfum. Fjölmargt kemur til
greina. Uppl. í síma 11993.
Akstur.
Óska eftir vinnu við útkeyrslu. Margt
annað kemur til greina. Uppl. hjá
auglþj. DB í síma 27022.
H—186.
Vil komast i samband
við leirkerasmið með ákveðið verkefnii
huga. Tilboði merkt „Leir 370” óskast
skilað á augld. DB fyrir 1. feb.
Ráðskona óskast
á heimili úti á landi,
Uppl. í síma 71235.
þrennt i heimili.
ií
Atvinna óskast
26 ára gamall maður
óskar eftir atvinnu, helzt við akstur eða
léttan iðnað. Uppl. í síma 31053 eftir kl.
19ákvöldin.
23 ára stúlka með 1 barn
óskar eftir ráöskonustarfi strax. Uppl.
gefur Anna í síma 95—4466.
Kjötiðnaðarmaður óskar
eftir vinnu í Reykjavík eða úti á landi.
Uppl. í síma 38293.
Húsasmiðanemi
sem er að ljúka námi óskar eftir auka-
vinnu sem allra fyrst. Uppl. í síma
77871.
Tapað-fundið
Lítil svört og hvit læða
tapaðist frá Efstasundi 6. Uppl. í síma
32121.
Nordica smelluskór nr. 8,
blágráir, urðu vjðskila við eiganda sinn
við Víghólaskóla eða Vörðufell á
fimmtudagskvöld. Fundarlaun. Sími
43360.
Tapazt hefur ómerkt
dökkgræn skjalataska með fötum í.
Tapaðist úr bíl við Fellsmúla sunnu-
daginn 19. jan. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 37166. Fundarlaunum
heitið.
Ymislegt
i
Tek að mér að teikna
og mála eftir mynd. Uppl. í síma 39076.
I
Framtalsaðstoð
i
Skattframtöl.
Tek að mér skattframtöl einstaklinga.
’Haukur Bjarnason hdl., Bankastræti 6,
R., símar 26675 og 30973.
Skattframtöl,
launauppgjör, byggingaskýrslur og þ.h.
Fyrir einstaklinga og minni fyrirtæki.
Vinsamlega hafið samband tímanlega.
Helgi Hákon Jónsson viðskipta-
fræðingur, Bjargarstíg 2, R., sími 29454,
heimasími 20318.
Skattaframtöl.
Skattaframtöl einstaklinga og fyrir-
tækja. Vinsamlegast pantið tíma sem
fyrst. Ingimundur Magnússon, sími
41021, Birkihvammi 3, Kóp.
Framtalsaðstoð.
Viðskiptafræðingur tekur að sér skatt-
framtöl einstaklinga. Tímapantanir í
síma 74326.
Skattframtöl-bókhaldsþjónusta.
önnumst skattframtöl fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Veitum einnig alhliða,
bókhaldsþjónustu og útfyllum tolláskjöl.
Vinsamlegast pantið tíma sem fyrst.
Bókhaldsþjónusta Reynis og Halldórs
sf„ Garðastræti 42, 101 Rvík. Pósthólf
857, sími 19800. Heimasímar 20671 og
31447.
Lögfræðingur
aðstoðar einstaklinga og smærri fyrir-
tæki við skattframtöl. Uppl. og tíma-
pantanir í síma 12983 milli kl. 2 og 5.
Gerum skattframtöl
einstaklinga og fyrirtækja. Lögmenn
Jón Magnússon hdl. og Sigurður Sigur-
jónsson hdl., Garðastræti 16, sími
29411.
Viðskiptafræðingur
tekur að sér skattaframtöl einstaklinga.
Timapantanir i síma 85615 milli 9 og 17
og 29818 ákvöldin.
Framtalsaðstoð.
Viðskiptafræðingur aðstoðar við skatt-
framtöl einstaklinga og lítilla fyrirtækja.
Tímapantanir i síma 73977.
Skattaðstoðin, simi 11070.
Laugavegi 22, inng. frá Klapparstíg.
Annast skattframtöl, skattkærur og aðra
skattaþjónustu. Tímapantanir kl. 15—
18 virka daga. Atli Gislason lögfræðing-
Innrömmun
B
Innrömmun.
Vandaður frágangur og fljót afgreiðsla.
Málverk keypt, seld og tekin í umboðs-
sölu. Afborgunarskilmálar. Opið frá
11—7 alla virka daga, laugardaga frá kl.
10—6. Renate Heiðar, Listmunir og inn-
römmun, Laufásvegi 58, sími 15930.
I
Barnagæzla
Si
Get tekið ungabarn
í gæzlu, helzt til lengri tíma. Er i
Melgerði, Kópavogi. Uppl. í sima 45876.
Keflavík-Njarðvík.
Get tekið að mér börn í gæzlu hálfan
eða allan daginn. Uppl. i síma 92—3879.
Tek börn i gæzlu,
hef leyfi, er í vesturbænum, Uppl. í síma
17094.______________________________
Óska eftir konu
eða stúlku til þess að gæta 1 árs stúlku
, fyrir hádegi, þarf helzt að geta komið
heim. UpjM^Uíma7690IL^^^
1
Einkamál
9
46 ára maður óskar
að komast í samand við konur, giftar eða
ógiftar, á öllum aldri með tilbreytingu i
huga. Tilboð með sima ef fyrir hendi er,
senþist DB merkt: „Trúnaður”.
Samtökin ’78.
Samtökin 78 er félag hómósexúalfólks á
islandi. Við erum af báðum kynjum, á
öllum aldri og í öllum stéttum. Hitzt er
tvisvar í viku i húsnæði félagsins. Skrifið
eftir fréttaritinu og öðlist frekari
vitneskju. Samtökin 78, pósthólf 4I66,
124 Reykjavík 4. (Vinsamlegast sendið
með 500 kr. fyrir sendingarkostnaði
fréttaritsins).
Fullorðin kona
óskar að kynnast eftirlaunamanni sem
hefur rúman fjárhag, kann ensku og
hefur gaman af ferðalögum. Alger
trúnaður. Tilboð sendist DB fyrir 1. feb.
merkt „Ferðafélagi 500”.
Óska eftir að kaupa
fasteignatryggða víxla i allt að 6
mánuði, sem fyrst. Tilboð sendist til
augld. DB merkt „075”.
Ráð I vanda.
Þið sem hafið engan til að ræða við um
vandamál ykkar, hringið og pantið tíma
i síma 28124 mánudaga og fimmtudaga
kl. 12—2, algjör trúnaður.
I
Kennsla
B
Kenni islenzku, ensku, dönsku,
stærðfræði og bókfærslu. Aðstoða nem-
endur fyrir samræmd grunnskólapróf.
Uppl. í sima 12983 milli kl. 2 og 5.
I
Skommtanir
D
„Diskótekið Dollý”
Fyrir árshátíðir, þorrablót, skóladans-
leiki, sveitaböll og einkasamkvæmi, þai
sem fólk kemur saman til að skemmta
sér og hlusta á góða danstónlist. Höfum
nýjustu danslögin (þ.e.a.s. diskó, popp,
rokk), gömlu dansana og gömlu rokklög-
in. Tónlist við allra hæfi. Litskrúðugt
Ijósasjó fylgir ef óskað er. Kynnum tón-
listina hressilega. „Diskótekið ykkar”.
Uppl. og pantanasími 51011.