Dagblaðið - 04.02.1980, Síða 5

Dagblaðið - 04.02.1980, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR4. FEBRÚAR 1980. 5 Boeingþota Flugleiða komin frá Guatemala — er nú á söluskrá en nýja Boeingþotan kemur til landsins 1. eða 2. júní nk. Boeing 727 þota Flugleiða, sem hefur verið í leiguflugi undanfarna þrjá mán- uði í Guatemala, átti að koma heim i nótt. íslenzkar áhafnir hafa flogið vél- inni í Guatemala. Hin Boeingþota Flugleiða hefur verið í skoðun hér heima undanfarna daga, þannig að heimkoma vélarinnar frá Guatemala kemur sér vel. Hún verður sett inn á Evrópuleiðir félagsins. Boeingþotan sem var í leigufluginu er til sölu og hefur svo verið um nokk- urn tíma. Enn hefur þó ekkert gerzt í þeim málum, enda eru margar vélar af svipaðri stærð til sölu. Það eykur þó sölulíkur vélarinnar að hún er sérbúin til fraktflugs, bæði með stórar fraktdyr og sérstaklega styrkt gólf. Flugleiðir eiga nýja Boeing 727 200 vél í smíðum í Bandaríkjunum og kemur hún úr verksmiðju 28. apríl nk. Siðan verður unnið að því að ganga frá vélinni til fullnustu og reynslufljúga henni. Vélin verður afhent Flugleiðum síðustu daga maímánaðar og gert er ráð fyrir þvi að hún komi til íslands 1. eða 2. júní nk. - JH Nytsemi íslenzka hestsins í Þýzkalandi: Gamli sorrý Gráni beztur þegar virki- lega reyndi á íslenzkir hestar erot til margra hluta nytsamlegir. Það sannast bezt á frétt sem birtist nú í janúar í þýzka blaðinu Hamburger Abendblatt. Þar er frá því greint að þeir þýzkarar hafa lengi átt í erfiðleikum með mýrar nokkrar þar sem birkigróður keyrir úr hófi. Þeir vilja losna -við birkirunna og nú eiga hestarnir íslenzku að bjarga málunum. Þjóðverjarnir beita sem sagt fjöru- tiu hestum á mýrina og þá er fyrir- sjáanlegt að birkigróðurinn á sér ekki viðreisnar von. Raunar eru þessi sann- indi íslendingum löngu kunn. Skóg- arnir sem hér munu hafa verið þá er Ari fróði var upp á sitt bezta mega muna sinn fífil fegri. Þar hafa íslenzkir hestar sjálfsagt komið við sögu, þótt mannskepnan og sauðkindin hafi e.t.v. verið skæðari. - JH Nóg að gera á Flateyrí Togarinn Gyllir kom inn til Flateyrar í fyrri viku með 150 tonn. Togaranum hefur gengið vel að undanförnu. Hins vegar hefur verið tregt hjá línubátum. Atvinna hefur hins vegar verið næg á Flateyri. ÞT, Flateyri. er búíð að stilla Ijósin? - -♦ Tveir 15-16 ára unglingar: STÁLU VESKI0G EYDDU 30 ÞÚSUND Á HÁLFTIMA fundust af tilviljun vegna flóttalegrar hegðunar Veski með á annað hundrað þús- und krónum í var stolið frá manni sem brá sér inn í biðskýlið á Hlemm- torgi á laugardagskvöldið til að hringja. Lagði hann veskið frá sér meðan hann talaði í símann og er hann hugðist taka það aftur var það horfið. Stórir hópar unglinga hafa það orðið fyrir sið að safnast saman í bið- skýlinu meðan það er opið. Féll fljótt grunur á að einhverjir unglinganna væru hinir seku. Rúmum hálftíma síðar fann lög- reglan tvo flóttalega stráka 15—16 ára gamla. Er á þá var gengið viður- kenndu þeir veskisþjófnaðinn. Á þessum hálftíma höfðu þeir eytt um 30 þúsund krónum af þýfinu, m.a. keypt sér vín á svörtum mark- aði. Voru þeir komnir í eyðsluham og hefði sjálfsagt lítið orðið eftir af þýfinu ef tilviljun ein hefði ekki ráðið því að lögreglan gaf sig á tal við strákana, svo flóttalegir sem þeir voru. - A.St. Leifur hefur ekki áhyggjur — þótt allt sé í fári í pólitíkinni Leifur heppni stendur kyrr á stalli stnum efst á Skólavörðuholti, horfir niður að Alþingishúsi og lœtur ekki óáran og pólitlska storma raska ró sinni. Enda vœri það llklega til lltils — Leifur átti sjálfur sln tœkifœrí I eina tlð og notaði þau til hins ýtrasta. Hann lét a.m.k. ekki smámuni aftra sér frá þvl að finna heila heimsálfu. DB-myndHörður. Easy to Use When you turn the APPLE II BUSINESS SYSTEM on, easy to follow instructions appear on the video screen to teil you In plaln English what optlons you may choose. Once you get going, THE CONTROLLER'S exclusive video features tell you exactly what the sysfem is doing. Expandable and Compatible Any APPLE II computer can be expanded to operate THE CONTROLLER business software. With APPLE II, you can start small and build a larger system as your computing needs grow. And the APPLE il BUSINESS SYSTEM can be expanded to operate any of our three programming languages, including PASCAL. Variety of Appiicatlons Apple also provldes additiona! software programs as optlons, such as THE CASHIER, APPLE POST, and the DOW JONES SERIES (see our Catalog). In addltion, The APPLE II BUSINESS SYSTEM has a powerful computer language built-in that allows you to create your own customi;red problem-solving programs. Quality Service Any Authorized Apple Service Center nationwide can provide same-day or faster service on any Apple product. All Apple products come with a full 90-day warranty for parts and labor, and optional extended warrantles are available at very iow rates for any time period you desire. Reiiable Quality engineering has helped the APPLE II become the most reliable personal compufer in the world, greatly outdistancing Its compefition. There are more APPLE II computers workíng reliably today than the worldwide total of large mainframe computers, including the IBM System/v.70. Affordable The APPLE II BUSINESS SYSTEM Is available at your local computer dealer now for less than $5,000. (Ask him about optlonal dealer training, installation, and support, also available at very affofdable rates.) Einkaumboð á isiandi œMSé SKIPHOLT119 BÚDIN SÍMI29800. UMFERDARRAÐ

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.