Dagblaðið - 04.02.1980, Blaðsíða 17
'DACBLADIÐ. MANUDAGUR 4; FEBRÚAR 1980.
11" 1i>" 111
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 4. FEBRUAR 1980.
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Eitl marka Týs I uppsiglingu. Krístján Sigmundsson
kemur engum vörnum viö.
Víkingur í 8
liða úrslitin
Víkingar áttu ekki i miklum erfiöleikum með aö
tryggja sér sæti i 8-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ er
þeir mættu 2. deildarliði Týs um helgina og sigruöu
28—21. Staðan i hálfleik var 15—12 Vikingi i hag.
Ekki sýndu Vikingar neina snilldartakta en mjög
góð markvarzla var hjá þeim Jens og Krístjáni.
Týrarar börðust vel í leiknum og létu Víking hafa
fvrir sigrinum en gelumunurinn var einfaldlega allt
of mikill á liðunum til þess að búast mætti við jöfn-
um leik.
Flest mörk Vikings skoraði Þorbergur Aöalsteins-
son eða 8 talsins. Sigurður Gunnarsson og Páll
Björgvinsson skoruðu 6 mörk hvori Fyrir Tý
skoraði Sigurlás Þorleifsson mest — 8 mörk. Óskar
skoraði 4 og Benedikt 3.
Þá lék 1. deildarlið FH tvo æfingaleiki í Eyjum
um helgina. Sigraði Tý á föstudagskvöld 34—26 og
Þór á laugardag með 38 mörkum gegn 28.
-FÓV.
Þunnur þrettándi í Niðurlöndum
— Lokeren tapaði, Standard vann en Feyenoord lék ekki
Lokeren, lið Arnórs Guðjohnsen.j
beið í gær óvæntan ósigur fyrir einu
botnliðanna í Belgíu, Beringen, og þar
með skerðist forskot liðsins verulega á
toppnum. Lokeren heldur þó enn efsta
sætinu. Hins vegar vann Standard
Liege öruggan sigur á Antwerpen á útK
velli og er nú alveg komið í sncrtingu
við toppinn.
Úrslitin í Belgiu urðu annars sem hér'
segir:
Charleroi — Winterslag 1 — 1
Waterschei — Anderlecht 0—I
FC Brugge — Beerschot 2—1
Molenbeek — Hasselt 4—0
Waregem — Berchem 2—1
Beveren — CS Brugge 1 —2
FC Liege — Lierse 3—0
Antwerpen — Standard 0—2
Beringen—Lokeren 2—1
Lokeren er í efsta sætinu með 32 stig.
eftir þessa leiki. FC Brugge og Molen-
beek eru með 31 stig og Standard með
30 stig. Þá kemur Anderlecht nreð 29
Dankersen
úr leik
Evrópudraumur Axels Axelssonar og
félaga hans i Dankersen er ekki lengri.
Sænska liðið Heim, sem sló Vikingana
út úr keppninni í síðustu umferð, sló nú
út Dankersen. Siðarí leikur.inn, sem
fram fór i Munden i gærkvöld, endaði
23—19 fyrir Dankersen en það dugði
ékki til. Heim vann fyrri leikinn 23—
18. Þetta var i Evrópukeppni bikar-
hafa.
Þá er TV Grosswallstadt komið í
undanúrslit Evrópukeppni meistara-
liða. Þeir sigruðu Partizan Belgrad í
gær, 21—17, en fyrri leiknum lauk
14—12 fyrir Slavana.
stig og þessi 5 skera sig nokkuð úr á
toppnum.
Holland
Pétur Pétursson og lið hans Feye-
Pétur í bann
Pétur Pétursson var um helgina
dæmdur i eins leiks bann f UEFA-
keppninni eftir að hafa fengið tvær
bókanir i leikjum í haust. Bannið
skiptir þó litlu máli í vetur þar sem
Feyenoord er úr leik i keppninni.
Bann Péturs telst þó ekki merkilegt í
samanburði við það er Byron Steven-
son úr Leeds fékk. Hann var dæmdur í
fjögurra og hálfs árs keppnisbann fyrir
að slá niður andstæðing i Tyrklandi.
noord áttu frí um helgina þar sem ekki
var hægt að leika á leikvelli MVV
Maastricht vegna vatnsaga. Ajax vann
að vanda öruggan sigur á sínum mót-
herjum og hefur nú sjö stiga forskot á
Feyenoord, sem þó hefur leikið leik
minna.
Úrslitin í Hollandi urðu þessi:
NAC Breda — Devnetre l—0
PSV Eindhoven — Roda 0—l
Ajax — Arnhem 3—0
Den Haag — Utrecht 2—1
NEC Nijmegen —Twente 0—3
Excelsior — Haarlem 1—2
Sparta — AZ ’67 3—3
Ajax hefur því 34 stig eftir 20 leiki en
næst kemur AZ ’67 með 29 stig úr jafn-
mörgum leikjum. Feyenoord hefur nú
27 stig eftir 19 leiki og næstu lið eru
Roda með 25 stig og PSV með 24 stig
— bæði eftir 21 leik. Töflurnar verða
að biða til morguns.
Heimamenn
töpuðu
C-keppnin í handknattleik stendur
nú yfír i Færeyjum og á laugardag voru
fyrstu leikirnir leiknir. Þá vann
Portúgal Bretland, 28—10, ítalir
sigruðu Færeyjar, 24—23 og ísrael
sigraði Belgiu, 18—15. Einnig áttu að
fara fram leikir i gær en við höfum
ekki fengiö úrslit úr þeim.
Enn sigra Stúdentar
— unnu nú Laugdæli, 3-2, í hörkuleik
Þrír ieikir voru leiknir um helgina á
íslandsmóti karlka i blaki í 1. deild.
Víkingar fóru norður á Akureyri og
léku þar tvo leiki gegn UMSE. Unnu
þeir báða lcikinu, 3—0 og 3—1. Staða
Eyfirðinga er nú orðin verulega slæm-í
deildinni og þurfa þeir að taka sig veru-
lega á ætli þeir að komast hjá falli.
1 Hagaskóla léku Stúdentar gegn
Laugdælum. Stúdentar sigruðu í bráð-
skemmtilegum leik, 3—2. Laugdælir
mörðu sigur í fyrstu hrinu, 19—17,
eftir mikinn barning. Aðra hrinu unnu
Stúdentar, 15—12, og hófu siðan þá
þriðju af miklum krafti og komust í
10—1. Laugdælum tókst aðeins að
rétta sinn hlut en Stúdentar sigruðu
engu að siður, 15—9. Staðan orðin 2—
1 fyrir ÍS. Fjórðu hrinuna unnu Laug-
dælir síðan örugglega, 15—7 eftir jafna
byrjun. Jafnt 2—2. Úrslitahrinan ein-
kenndist af mikilli baráttu beggja liða,
Stúdentar komust í 9—3 en Laugdælir
jöfnuðu. Með uppgjöfum Kjartans
Páls náðu Stúdentar öruggri forystu,
14—9, og Pétur Björnsson átti síðan
lokaskellinn og tryggði þannig glæsi-
legan ÍS-sigur.
Friðbert Traustason var bezti maður
ÍS en í heild átti liðið góðan leik. Leik-
aðferð liðsins hefur þó þann ökost að
stórt gat myrtdast oft í miðri vörn
liðsins, sem Laugdælir notfærðu sér
oft, sérstaklega Leifur Harðarson.
íslandsmeistarar Laugdæla virtust
óstyrkir, uppgjafir þeirra voru óörugg-
ar og þeir töpuðu mörgum stigum á þvi
að flækjast í netinu. Hinn kraftmikli
Haraldur Geir Hlöðversson var þeirra
sterkastur.
1. deild kvenna galopnaðist er Vik-
ingur tapaði fyrir ÍMA norður á
Akureyri, 3—0. Laugdælastúlkurnar
skruppu í bæjarferð, töpuðu fyrir ÍS
3—0 en sigruðu Þrótt óvænt 3—0.
Keppnin er nú orðin tvísýn á milli ÍS og
Vikings en ÍMA getur einnig blandað
sér i þábaráttu.
Í 2. deild karla kom hið nýja lið
Norðfjarðar-Þróttara i fyrsta sinn til
Reykjavíkur og sigraði Breiðablik 3—
1. Þróttarar léku einnig við hið sterka
Fram-lið en varð þar litt ágengt og töp-
uðu 3—0. Og frá Akureyri bárust þau
tíðindi að KA hefði sigrað ÍMA 3—2.
Eftir leiki helgarinnar er staðan i
deildunum þessi:
I. deild karla
1. UMFL II 9
2. Þróttur 9 6
4. ÍS 10 5 5
4. Vikingur 114 7
5. UMSE 9 1 8
Jnhannes Eövaldsson.
BUBBITIL TULSA
— íslenzki landsliðsfyriiiiðinn í knattspymunni skrifaði undir samning við Tulsa
,,Eg er mjög ánægður með þróun
minna mála. Síðastliðinn föstudag
skrifaði ég undir samning við banda-
ríska knattspyrnufélagið Tulsa í Okla-
homa til tveggja ára. Náði mjög góðum
samningi við forráðamenn félagsins,
sem þá ræddu við mig í þriðja sinn.
Auk þess þarf Tulsa að greiða Celtic
milli 60 og 70 milljónir íslenzkra
króna,” sagði Jóhannes Eðvaldsson,
fyrirliði íslenzka landsliðsins í knatt-
spyrnu mörg undanfarin ár, þegar DB
ræddi við hann í gær.
,,Það var fyrir um hálfum mánuði að
forráðamenn Tulsa komu hingað til
Glasgow. Þeir buðu mér þá samning,
en ég neitaði — leizt ekkert á það sem
þeir buðu. Nokkru síðar komu þeir
aftur með samningsdrög en það fór á
sömu leið. En allt er þegar þrennt er og
á föstudag ræddi ég við þá á ný. Þá
lögðu þeir fram samning sem bókstaf-
lega var ekki hægt að neita. Ég mun því
leika með Tulsa að minnsta kosti næstu
tvö árin og samkvæmt ákvæði í samn-
ingum verð ég fyrirliði liðsins á leik-
velli.
Ég fer með' fjölskyldu mína til
Bandaríkjanna um 20. marz — fyrr
vildi Celtic ekki að ég færi frá félaginu
vegna Evrópuleikja liðsins i keppni
meistaraliða. Reyndar var Celtic ekki á
þeim buxunum að sleppa mér frekar en
áður — bauð mér samning að þeim
loknum, sem nú er í gildi. En ég er
ákveðinn i að fara frá Celtic — neitaði
nýjum samningi algjörlega. Ég er nú 29
ára og ekki yngist maður. Það er því að
hrökkva eða stökkva nú og ég hef tekið
ákvörðun i samráði við eiginkonu mina
að reyna fyrir mér í Bandarikjunum.
Þetta er að vísu mikil ákvörðun — fara
frá því sem við höfum hér í Skotlandi.
En hinn nýi samningur minn er það
góður að við þurfum engu að kvíða. Ég
mun leigja hús okkar hér í Glasgow
meðan við verðum í Bandaríkjunum.
Forráðamenn Tulsa hafa rætt við
fleiri leikmenn hér á Skotlandi, m.a.
Victor Davidson hjá Celtic. Ekki hefur
þar gengið saman en þeir voru einnig á
Englandi og ræddu við forráðamenn
og leikmenn hjá QPR í Lundúnum. Ég
veit ekki á þessu stigi málsins hvort ein-
hverjir leikmenn frá QPR koma til með
að leika hjáTulsa.
Knattspyrnutímabilið hefst í apríl í
Bandaríkjunum og stendur fram í
ágúst. Lengur fyrir þau lið, sem leika
um meistaratitilinn. Síðan verður fri
fram í nóvember en þá hefst keppni á
ný i Bandaríkjunum. Þar verður fram-
kvæmd sú hugmynd, sem hefur verið í
bigerð að leika einnig yfir vetrarmán-
uðina í USA. Þá að miklu leyti innan-
húss. Knattspyrnan er þá næstum orðin
heilsárs íþrótt þar í landi. Það er þungt
á metaskálunum hvað tekjum við-
kemur.
Framkvæmdastjóri Tulsa heitir Noel
Lemon en þjálfari liðsins er Charlie
Mitchell, sem eitt sinn lék með St.
Mirren. Hann tók við af leikmanninum
kunna, Alan Hinton, sem lengi lék með
Úlfunum og Derby. Hinton hefur tekið
við liði i Seattle. Mér leizt vel á þá
Lemon og Mitchell og þeir hafa hug á
þvi að gera Tulsa að stórfélagi á banda-
riska visu. Á síðasta leiktimabili var
Tulsa um miðja deild en ég þekki ákaf-
lega lítið til félagsins,” sagði Jóhannes
ennfrem ur.
Hvernig hefur gengið hjá þér með
Celtic að undanförnu?
,,Ég hef verið í hópnum í aðalliðinu
— lék meðal annars allan leikinn við
Raith Rovers í skozku bikarkeppninni
og komið inn sem varamaður i öðrum
leikjum. Liðið stefnir greinilega á
meistaratitilinn — og menn biða
spenntir leikjanna i Evrópukeppnmni.
Ég slepp ekki frá Celtic fyrr en að þeim
loknum, og vissulega er hugurinn
farinn að beinast til Bandaríkjanna.
Ég hlakka mjög til'að reyna mig þar.
Kannski er líka möguleiki að koma
með Tulsa-liðið til íslands næsta haust.
Hver veit, félagið fer þá í keppnisferða-
lag,” sagði Jóhannes að lokum. En þó
hugur hans sé kominn hálfa leið til
Bandarikjanna var þó greinilegt af
samræðum við hann i gær að enn á ts-
lenzka landsliðið rík tök i honum.
Spurði mikið um hvort leikir þess
hefðu verið ákveðnir.
- hsím.
Öraggur sigur
Njarðvíkinga
— Framarar teknir í karphúsið syðra
Körfuknattleikur
úrvalsdeild,
UMFN—Fram, 94—69 (44—40).
Njarðvikingar unnu þýðingarmikinn
sigur yfir Fram syðra á laugardaginn.
Þeir blanda sér því enn i toppbarátt-
una, þótt róðurinn verði sýnilega
erfiður hjá þeim í næstu leikjum, því
staðreyndin er að um afturför c/ aö
ræða hjá UMFN í seinni tíð, hvað sem
veldur. Þeir verða því að taka sig ræki-
lega á til að eiga möguleika á Islands-
meistaratitlinum.
Guðsteinn Ingimarsson átti stærstan
þáttinn í sigi UMFN en Gunnar Þor-
varðarson var ásamt þeim Brynjari Sig-
mundssyni og Jónasi Jóhannssyni mjög
ötull við að skora. Hins vegar fór
fremur lítið fyrir Ted Bee þjálfara, sér-
staklega í fyrri hálfleik, þar sem mis-
heppnuð skot og sendingar hans veittu
Frömmurum tækifæri á að snúa leikn-
um sér í hag. Slíkt létu þeir Símon
Ólafsson og Darreel Shoues sér ekki úr
greipum ganga — var það svartasli
hluti leiksins fyrir UMFN. Þrátt fyrir
ágæti þeirra tveggja tókst Fram ekki að
halda forustunni nema stutta stund og
þegar ágætir dómarar leiksins,
Sigurður Valur og Gunnar Valgeirsson,
blésu til hlés var staðan 44—40 fyrir
UMFN.
Framan af seinni hálfleik hressust
Frammarar nokkuð og jöfnuðu 56—56
en þá tóku heimamenn mikinn fjör-
kipp, sérStaklega Brynjar, sem
„krækti” i knöttinn og skoraði. Eftir
að staðan var orðin 86—65 var engin
spurning um hvort liðið gengi með
siguraf hólmi.
Stigahæstu menn UMFN voru:
Gunnar Þorvarðarson með 25 stig,
Guðsteinn Ingimarsson 22 og Brynjar
Sigmundsson með 15 stig.
Stigahæstu menn Fram voru: Darrell
Shoues og Símon Ólafsson með 25 og
24 st ig. -emm
FJÖLDI ANNARRA BÉLA Á SÖLUSKRÁ
• BÍLASKIPTIOFT MÖGULEG •
BÍLAR FYRIR FASTEIGNASKULDABRÉF
Renault 12 TL 1978, brúnn, ekinn 41
þús. Verð 4,5 millj.
Chevrolet Monte Carlo árg. ’77, rauð-
brúnn m/vinyltopp, 8 cyl, m/öllu.
Vandaður bill. Verð 7,2 millj. Skipti
möguleg.
Blazer disil 1974, grænsanseraður,
Trader dfsilvél, ekin 15. þús. km.
Krómfelgur, ný dekk. Toppbfll. Verð
6,5 millj.
Dodge Dart Swinger 1974, 8 cyl,
m/öllu, ekinn 70 þús. útvarp og
kassettutæki. Skipti á Fairmont 1978,
dýrustu gerð. Staðgreiðsla á milli.
Dodge Dart 1975, 6 cyl., með öllu.
Útvarp. Verð 3,8 millj.
Mazda 323 station árg. ’79, brúnsans-
eraður (sem nýr), ekinn 5 þús. km,
snjód.+sumardekk. Verð 4,8 millj.
Saab 99, sjálfskiptur, 1974, rauð-
brúnn. Verð 3,7 millj.
Rússajeppi 1977, ný vél, ný dekk. Verð
3,2 millj. Skipti.
Wagoneer 1974, 6 cyl., ekinn 100
þús., útvarp, stólar. Verð 4,2 millj.
Toyota Corolla 30 1977, rauður, ekinn
39 þús., útvarp. Verð 3,4 millj.
Ford Econoline ’75, blár, 8 cyl.,
sjálfsk., aflstýri. Innfluttur notaður.
Mjög margir aukahlutir. Verð 6,5
millj.
1 sí aisMMÖflWWKiw" 1
Lada Sport 1978. Rauður, útvarp,
ekinn 23 þús. Skipti á ódýrari. Verð 4
millj.
Citroen CX 2000 árg. ’77, blár, ekinn
33 þús., aflstýri og -bremsur, útvarp,
segulb., snjód.+sumard. Verð 6,5
millj.
M. Benz disil árg. ’72, hvltur, sjálf-
skiptur, aflstýri, útvarp, segulb., snjó-
dekk, uppt. vél + kassi. Verð 3,5
millj.
Lada Sport ’79, ekinn 10 þús., orange,
toppgrínd, kassettutæki, mjög margir
aukahlutir. Verð 4,8 millj.
Mazda 818 station 1976, brúnsans.,
ekinn 54 þús. Skipti á nýlegum bil (jap-
önskum). (Milligjöf i peningum.)
Volvo 144 1974, Ijósblár, ekinn 85
þús., útvarp+segulb. Skipti á Lada
Sport ’79 (milligjöf í peningum).
Volvo 142 DL1971, blásans., ekinn
167 þús., útvarp. Verð 2,4 millj.
Galant 1977, ekinn 41 þús., útvarp,
snjód. + sumard. Verð 3,8 millj.
Citroen GS station, grænn, ný vél, gott
lakk, ryðlaus, útvarp. Verð 1800 þús.
VW Microbus árg. ’74, blár, ekinn 38
þús. á vél, sæti fyrir 9 manns, fallegur
bill. Verð3,5 millj.
Galant ’78, grásans. Skipti óskast á
nýlegum amerfskum bfl.
Scout 1973, grænsanseraður, 8 cyl.
sjálfsk., aflstýri og -bremsur, útvarp +
segulband. Breið dekk, ýmsir auka-
hlutir. Verð 3,9 millj. Skipti möguleg á
ódýrari bil.
Pacer Hatschback 1975, gulur, ekinn
56 þús. m., 6 cyl. beinsk. Verð 2,8
millj.
Mazda 323 1979, silfurgrár, ekinn 19
þús. km. Verð 4,2 milij. Fallegur bfll.
Blazer m/disil vél, árg. 1974, rauður,
(Bedfordvél 107) Nýupptekin, aflstýri
og -bremsur. Toppbfll, nýryðvarínn.
Ekinn aðeins 50 þús. km. frá byrjun.
Tilboð.
Honda Civic 1977, blágrár, sjálfskipt-
ur, ekinn 53 þús. km. Verð 3,4 millj.
Chevrolt Camaro, 1977, gulur og
svartur, 8 cyl. (307) m/öllu. Verð 7
millj. Skipti möguleg á ódýrari bfl.
Datsun 120 Y coupé árg. ’74, orange,
ekinn 90 þús. km, útvarp, segulb. Verð
2,3 millj.
Austin Allegro 1977, ekinn 58 þús.
km, grænsanseraður. Verö 2,7 millj.
Austin Mini special árg. ’79, m/vinyl-
toppi, blásans., ekinn 15 þús. Verð 3,2
millj.
Subaru árg. ’78, dríf á öllum hjólum,
hvftur, ekinn 55 þús. Verð 4,5 millj.
Mazda 616, ’74, orange, ekinn 56 þús.
km. Verð 2,3 millj.
Audi 100 L.S. 1977, grænn, ekinn 63
þús., útvarp, snjódekk, sumardekk.
Verð 5,5 millj. Ýms skipti.
Peugeot 504 station 1978, brúnn
sanseraður, 7 manna, ekinn 39 þús.
Verð 6,4 millj.
Chevrolet Citation árg. 1980, blágrár
(sanseraður) 4 cyl. sjálfsk., aflstýri og
-bremsur, ýmsir aukahlutir. Verð 7,3
millj. Skioti möeulee.
SELJENDUR
ATHUG/Ð
Bíllinn se/st fyrr, ef hann er á
sýningarsvæði
okkar, hreinn og snyrtílegur.
bsh Grettisgötu
nii A 12-18
DI LH” Sími
25252
markaðurinn