Dagblaðið - 04.02.1980, Síða 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR4. FEBRÚAR 1980.
29
ísaksturs- og íscrosskeppni BÍKR:
BUKKBEUUR Á SVELll
Það var mikið spólað og spyrnt á
Leirtjörn við Úlfarsfell síðastliðinn
sunnudag en þá hélt Bifreiðaíþrótta -
klúbbur Reykjavíkur þar ísakstur og ís-
cross keppni.
ísakstur
Keppnin hófst á ísakstrinum og var
það hæfniskeppni, ef svo má segja.
Þurftu keppendur að aka tvo hringi
eftir brautinni og var tíminn tekinn á
þeim. Reyndi þá á hæfileika manna við
að hafa stjórn á bílnum á svellinu.
Töpuðu margir þar dýrmætum
sekúndum þegar þeir misstu stjórn á
bílnum og hann rann út á hlið, jafnvel
út fyrir sjálfa keppnisbrautina í beygj-
unum. í isakstrinum þurftu bílarnir að
vera með löglegan dekkjabúnað og fara
þar eftir umferðarlagaákvæðum.
Skiptust bilarnir i tvo flokka eftir því
hvort þeir voru með nagladekk eða
keðjur. í nagladekkjaflokknum sýndi
Viðar Halldórsson nokkra yfirburði og
náði besta timanum, 2 mín. 7 sek. Á
eftir honum komu þeir Sverrir Gíslason
á Escort og Halldór Úlfarsson á
Peugeot 504. Þeir félagar náðu báðir
sama tíma, 2 mín. og 10 sek. í fjórða
sæti varð svo Ómar Ragnarsson á
Renault 5 en tími Ómars var 2 mín. og
11 sek.
í keðjuflokknum var keppnin all-
hörð en keðjubílarnir náðu yfirleitt
betri tímum en naglabílarnir. Eftir að
bilarnir höfðu farið tvær umferðir var
Ijóst að Jón S. Halldórsson hafði náð
besta tímanum, I mín. og 52 sek. en
Jón ók BMW. Næstbesta tímann átti
Bragi Guðjónsson sem ók Lancer 1600
og var timi hans 1 mín. og 57 sek. í
þriðja sæti varð svo Gunnlaugur
Bjarnason sem ók Escort. Tími hans
var 1 mín. og 59sek.
íscross
Þegar ísakstrinum var lokið hófst
aðalkappaksturinn. Þá brunuðu rallí-
cross bílarnir út á ísinn og kepptu þar í
íscrossi. Var farið eftir rallicross
keppnisreglunum og var öryggisreglun-
um sérstaklega fylgt fast eftir. Dekkja-
búnaður var frjáls og gerðu keppend-
urnir tilraunir með ýmsan búnað.
Sumir voru með keðjur og aðrir með
stærstu snjónaglana sem þeir gátu
komist yfir. Nokkrir gerðu tilraun með
að nota bolta sem þeir boltuðu í gegn-
um dekkin og stóðu endar þeirra út i
allar áttir svo að dekkin minntu einna
helst á broddgölt í varnarstöðu. Mis-
munandi góður dekkjabúnaður hefur
eflaust átt einhvern þátt í hver úrslitin
urðu, en mestu skipti aksturshæfni
ökumannanna. Erlendis eru ungir
kappakstursmenn látnir æfa sig í akstri
á ís en á ísnum hegðar bíllinn sér svipað
á lítilli ferð og hann myndi hegða sér á
ofsahraða á malbiki. Alls kepptu 12
krossarar í íscrossinu og skiptust þeir
fyrst í þrjá riðla, fjórir bilar í hverjum
riðli, en síðan kepptu bestu keppend-
urnir til úrslita. Það voru þeir Jón S.
Halldórsson á BMW, Einar Gíslason á
VW og Páll Grimsson á VW. Einar
náði forustunni í upphafi og hélt henni
lengi vel en Páll rak lestina eftir að hafa
fatast í einni beygjunni á brautinni í 1.
hring. En Páll var ekki á því að láta sér
Mikilvægi þess að hafa góðan dekkjabúnað sést hér greinilega þegar sigurvegarinn f
iscrossinu, Páll Grimsson, skýst fram fyrir keppinauta sina 1 undanrisunum.
Þegar ökumennirnir misstu stjórn á bflunum snerust þeir oft i marga hringi og vissu
ökumennirnir oft ekki i hvaða átt þeir áttu að fara.
Jón S. Halldórsson leggur hér BMWinn i essbeygjuna á öllu útopnuðu. Jón vann
keðjuflokk Isakstursins og varð þriðji f iscrossinu.
þriðja sætið nægja og tókst honum að
komast fram fyrir þá báða, Jón og
Einar, undir lok keppninnar og vinna
þannig iscrossið. Timi Páls var 4 mín.
26 sek., en tími Einars, sem hékk i
skottinu á Páli í mark, var 4 min. og 27
sek. Þriðji varð svo Jón en tími hans
var4 mín. 31 sek.
Jóhann Kristjánsson.
t erfiðustu beygjunum áttu margir ökumannanna f erfiðleikum með að hafa stjórn á bilunum en sumir þeirra iétu bfiana renna
fagmannlega út á hlið f gegnum þær.
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið tilkl.10 í kvöld