Dagblaðið - 14.04.1980, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1980.
Erlendar
fréttir
Svíþjóð:
15aura
kauphækkun
ogsátta-
viðræður
Samtök atvinnurekenda 1 Sví-
þjóð aflýstu í gær verkbanni sem
hótað hafði verið og átti að ná til
750.000 verkamanna. Verk-
bannið átti að taka gildi á
miðnætti sl. Alþýðusambandið í
Svíþjóð aflétti yfirvinnubanni
sem tók gildi í marzmánuði,
þegar umræður aðila um nýja
kjarasamningasigldu i strand.
Samningaumleitanir hefjast nú
að nýju undir stjórn ríkisskip-
aðrar sáttanefndar. Alþýðusam-
bandið féllst á að leyfa verka-
mönnum að vinna yfirvinnu eftir
að atvinnurekendur skuldbundu
sig til að greiða 15 sænska aura í
kauphækkun á klukkustund á
meðan viðræðurnar standa yfir.
Alþýðusambandið krefst 11,3%
kauphækkunar, en atvinnurek-
endur segja að ekki sé svigrúm til
að hækka kaup.
Norsk uppf inning vekur mikla athygli bílaframleiðenda víða um heim:
Ný bflvél sem spar-
ar40% afeldsneyti
Norski iðnjöfurinn Thor
Börresen, sem rekur álver við Vraa
skammt frá Fredrikshavn i
Danmörku, og norskur verk-
fræðingur búsettur i Bandaríkjunum
hafa kynnt opinberlega nýja tegund
af bílvél, sem verkfræðingurinn
hannaði. Nýja vélin sparar að sögn
allt að 40% af eldsneyti miðað við
þær vélar, sem nú eru mest í notkun.
Hún er þvi gulls ígildi efþærupplýs-
ingar reynast réttar. Margir
framleiðendur bílvéla víðs vegar um
heim fylgjast með prófunum á
vélinni og vilja gjarnan nýta sér hug-
myndina. Vélin er til skoðunar og
prófunar á vegum
Iðntæknistofnunar Danmerkur.
Fyrstu niðurstöður lofa mjög góðu.
Danska dagblaðið Börsen segir að
mögulegur sparnaður með notkun
nýju sparneytnu bílvélarinnar verði
mældur í hundruðum milljarða
króna. Olíuauðlindir heims endist
lengur og síðast en ekki sízt:
Rannsóknir sýna að mengun er minni
af- völdum norsku vélarinnar en
Sú deild sem annast smlði disilvéla hjá danska stórfvrirtakinu Burmeister &
Wain 1 Kaupmannahöfn hefur sýnt þvi mikinn áhuga að hefja framleiðslu á vélum
eftir teikningum norska verkfræðingsins.
þeirra sem algengastar eru nú.
Deild sú sem framleiðir dísilvélar
hjá danska stórfyrirtækinu
Burmeister & Wain í Kaupmanna-
höfn hefur sýnt því mikinn áhuga að
spreyta sig á framleiðslu á vél eftir
teikningu norska verkfræðingsins.
Sama má segja um stærstu bílvéla-
framleiðendur heims, Toyota-
verksmiðjurnar í Japan. Danir eru
áhugasamir að framleiða vélarnar
þar sem það myndi þýða geysimiklar
fjárfestingar og í framhaldi af því
aukið framboð á atvinnumöguleik-
um fyrir verkafólk. Norðmenn vilja
gjarnan klófesta einhvern anga af
málinu líka. Kongsberg
Vaapenfabrik, i Noregi, vill tryggja
sér réttinn til að fram a.m.k.
einhverja hluta í vélina.
Sagt er að norski verk-
fræðingurinn sem á heiðurinn af
uppfinningunni hafi áður starfað við
framleiðslu á flugvélamótorum í
Bandaríkjunum. Hann er búsettur i
Detroit.
Verkfall stræto- og jámbrautarstarfs -
mamaíNewYork:
Hundadagar hjá
afbrotamönnum
jákvæðar umsagnir borizt frá yfirvöld-
um New York borgar um verkfall
starfsmanna neðanjarðarjárnbrauta og
strætisvagna undanfarna daga. Verk-
fallið hefur sem kunnugt er valdið
gífurlegu umferðaröngþveiti og ringul-
reið í borginni. Nú er hins vegar komið
á daginn að glæpir eru minna stundaðir
í New York eftir að verkfall hófst en
þegar almenningsfarartæki gengu á
eðlilegan hátt. Bankaránum fækkaði
um 2/3 og kærur vegna nauðgana,
likamsárása, bílþjófnaða og fleiri
algengra glæpaverka eru mun færri en
áður. Hver hefur líka áhuga á að ræna
banka, lenda í umferðarhnút tímunum
saman og komast ekki spönn frá rassi
með ránsfenginn?
Rannsóknarlögreglustjórinn i New
York getur ekki stillt sig um að brosa
breitt yfir þessari hliðarverkan kjara-
átaka borgarstarfsmanna og borgar-
yfirvalda. „Afbrotamennirnir vita að
þeir komast ekki burt á hlaupum, með
þvi að aka burt af vettvangi, eða flýja
inn í neðanjarðarjárnbrautir og láta sig
hverfa á þann hátt.” segir James
Sullivan lögreglustjóri.
Fátt er svo með öllu illt að ekki boði
nokkuð gott. Hingað til hafa engar
Margir gripu til gamla góöa rciöhjóls-
ins i verkfallinu, en mengunin er slík í
New York aö sumir settu á sig
rykgrímur á leið til vinnu.
Líbýa:
Gaddaf i vill
Mmnum a okkar goða urval
fermingargjafa
Verð sem allir geta sætt sig við
8
HiNATONE
SYMPHONY
OpiÖ á laugardögum
Skoðið i gluggana
Sendum í póstkröfu.
FiESTA MK3
ABtthhijómfkitnings fyrir:
HEiMHJO — BÍUNN
06
OiSKÓTEKW
D i. .
ÍXdQIO
ARMÚLA 38 (Selmúla megini 105 REYKJAVÍK
SIMAR: 31133 83177 POSTHOLF1366
olíusölubann
á ísrael
Muammar Gaddafi Líbýuleiðtogi
vill fá Alsír i bandalag um sameiginlegt
bann á olíu- og gassölu til ríkja sem
styðja ísrael. Gaddafi hefur rætt málið
við Chadli Benjedid Alsírforseta, en
Alsir er umsvifamikill útflytjandi
jarðgass.
Begináfund
Carters
Menachem Begin forsætisráðherra
ísraels fer í dag i tveggja daga heim-
sókn til Bandarikjanna og ræðir við
Carter forseta. ísraelskir embættis-
menn eru ekki bjartsýnir á að Begin
hafi árangur sem erfiði, en rætt verður
um málefni Paiestínumanna á herteknu
svæðunum.
Teg. 14-51
Lilir: hvltl ng heige
Verðkr. 8.900.-
—ACO
Stœröir: 35—42.
Korktöflur, ekta skinn, með þœgilegum, skinn-
klœddum innleggjum. Léitir stamir svampsólar.
Litir: blátt, naturog hvitt.
Verðkr. 7.680.-
Sífellt nýjar sendingar.
Teg. 14—40
Litirblátt, rautt, oghvítt.
Verðkr. 7.680,-
Með skinnklceddum hæl.
kr. 8.940.-
Teg. 14—50
Litirbeige, hvltt, natur og svart.
Verðkr. 8.940,-
Domus Medica
Egilsgötu 3
Sími18519