Dagblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 13
12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. JtJNÍ 1980.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980.
13
Staðan
Staðan í 1. deild eftir leikina í gær
kvöld er nú þessi:
Keflavík — Fram 0—(
Þróttur — Akranes 1—1
Fram 5 4 1 0 5—0 S
Valur 5 4 0 1 17—5 í
Keflavik 5 2 2 1 6—5 (
Akranes 5 2 1 2 5—7 «
Breiðablik 5 2 0 3 8—9 4
KR 5 2 0 3 3—6 4
ÍBV 5 2 0 3 5—10 4
FH 5 1 2 2 7—11 4
Þróttur 5 113 3—5 3
Markahæstu menn:
Matthías Hallgrímsson, Val '
Sigþór Ómarsson rekur hér hausinn i knöttinn og skorar mark Akurnesinga í gær.
Jón Þorbjörnsson gefur ekkert eftir og ætlar sér að ná knettinum en gripur i tómt.
Hér liggja þeir báðir og tuðran i netinu. Af svip Jóns má ráða að hann er ekki allt of
ánægður með þróun mála.
DB-mvndir Þorri.
Gróf misnotkun
—segir stjórn TBR um stuðningsyf ir- *
lýsingar forystumanna ÍSÍ við einn
forsetaframbjóðenda
Undanfarið hefur birzt i blöðum
auglýsing frá ýmsum forystumönnum
iþróttahreyfingarinnar, þar sem þeir
lýsa yfir stuðningi sinum við ákveðinn
forsetaframbjóðanda. Hér á meöal eru
fjórir stjómarmenn IþrÓUSSSmbands
■siands og fjórir stjómarmenn íþrótta-
bandalags Reykjavikur. Stjóm TBR
telur að hér sé um grófa misnotkun að
ræða á þeim embættum sem viðkom-
andi aöilar eru kosnir i og munu full-
trúar félagsins á næstu ársþingum ÍBR
og ÍSÍ mótmæla þessari notkun.
Teljum við að um leiö og stjórnar-
menn ÍBR og ÍSÍ tengja embætti sín
innan íþróttahreyfingarinnar slíkri
stuðningsyfirlýsingu sem þessari, séu
þeir að koma fram fyrir hönd viðkom-
andi stjórnar. Tengja þeir þá um leið
íþróttahreyfinguna við þá stjórnmála-
baráttu sem fylgir væntanlegum for-
setakosningum.
í forsetakosningum er kosinn æðsti
stjórnandi landsins. Kosning hans er
því stjómmálalegs eðlis, þrátt fyrir að
hér sé um kosningu einstaklings að
ræða. íþróttahreyfingin hefur ætíð sett
sér það mark aö vera yfir alla stjórn-
málabaráttu hafin. í henni rúmast full-
trúar allra stjórnmálahreyfinga og hafa
þeir fram að þessu starfað saman innan
iþróttafélaganna óháðir stjórnmála-
skoðunum hvers annars. Með fyrr-
greindri Stuðp.ÍMgsyfiriýsingu er brotið
blað í sögu íþróttahreyfingarinnar og
.heildarsamtðk hennar verða tæplega
litin sömu augum og áður.
Einmitt um þessar mundir leggur
íþróttahreyfmgin áherzlu á stjórnmála-
hlutleysi sitt með þátttöku í ólympiu-
leikum. Á sama tíma treysta forystu-
menn ÍSÍ og ÍBR sér til að gefa út yfir-
lýsingu um málefni sem er mun við-
kvæmara meöal íslenzku þjóðarinnar
en ólympíuleikarnir.
Slíkar yfirlýsingar geta hugsanlega
stutt frambjóðendur, en um leið skaða
þær álit íþróttasamtakanna og stuðla
að missætti innan þeirra.
Stjóm TBR hefur nú til athugunar
að draga félagið út úr þeirri íþrótta-
starfsemi sem fyrirhuguð er á vegum
ÍSÍ og ÍBR á tímabilinu fram yfir for-
setakosningarnar, en þá mun þessari
stjórnmálabaráttu íþróttaforystunnar
vonandi Ijúka.
F.h. stjórnar TBR.
Sigfús Ægir Árnason,
formaður.
Sigurður Grétarsson, Breiðabliki 3
Þá hafa 10 leikmenn skoraö 2 mörk i
1. deildinni f ár.
Næstu leikir i 1. deild verða á laugar-
dag. Þá leika Akranes og KR á Akra-
nesi, Vestmannaeyjar og Keflavík í
Eyjum og Breiðablik og FH i Kópa-
vogi. Á sunnudag mætast Fram og
Vikingur og svo Þróttur og Valur á
mánudag.
Þorsteinn Bjarnason er hér með fyrrverandi og núverantji landsliðseinvaida sér við hlið, þá Hafstein Guðmundsson og Guðna'
Kjartansson./
Steini hættur hjá Louviere
DB-mynd - emm.
— hef ur áhuga á að reyna fyrir sér h já öðru félagi
,,Ég veit ekki hvað verður, en alla leikið með sínum gömlu félögum, ef
vega er ég hættur hjá La Louviere,” hann kærir sig um, en hann ætlar þó
sagði Þorsteinn Bjarnason, mark- alla vega að hjálpa upp á sakirnar með
vörður, sem er nú laus allra mála hjá
því félagi i Belgíu. „Félagið hefur tekið
upp hálfatvinnumennsku og það er
ekki fýsilegt, að minnsta kosti ekki
fyrir útlendinga. Sá sem samdi fyrir
mig í upphafi er að þreifa fyrir sér um
annan samning— en hvar, það get ég
ekki látið uppi að svo stöddu.”
Eftir mánuð getur Þorsteinn aftur
því að þjálfa markverðina. „Fjárskort-
ur þjáir II-deildarliðin í Belgíu, sérstak-
lega þegar liðin hafa misst af voninni
um að lenda í úrslitum og áhorfendum
fækkar.”
Þorsteinn lék aldrei í a-liðinu í vetitr
vegna meiðsla, þrívegis átti hann að
spila, en fékk þá spark í hendurnar, á
æfingum eða í æfingaleikjum.” Það
gekk allt á afturfótunum hjá okkur,
stjórn félagsins var ekki i sátt við liðið
og þjálfarann, sem ekki verður endur-
ráðinn.”
Aðspurður um hvernig honum litist á
knattspyrnuna hér á landi i dag sagðist
hann lítið um það geta dæmt, hann
væri aðeins búinn að vera heima í tvo
daga, en kannski fengi hann þverskurð-
inn i leiknum á eftir, þ.e. ieik ÍBK og
Fram.
VITASPYRNA A SILFURFATI
—færði Þrótti annað stigið gegn Skagamönnum
Þróttur og Akranes skildu jöfn, 1—1
í Ijótum leik i Laugardal í gær. Leikur-
inn var lengst af mjög harður og gróf-
lega leikinn af beggja hálfu en í lokin
sauð algerlega upp úr. Á 84. mínútu
var Baldur Hannesson, sem hafði
komið inn á fyrir Ágúst Hauksson á
69. mín., rekinn af leikvelli fyrir að slá
Kristján Olgeirsson eftir venjulegt sam-
stuð. Ekki var æsingnum þar með lokið
þvi minútu siðar færði slakur dómari
leiksins, Sævar Sigurðsson, Þrótturum
vitaspyrnu á silfurfati. Páll Ólafsson og
einn varnarmanna Skagamanna fóru
saman i venjulega tæklingu — knöttur-
inn á milli. Áður en varði hafði Sævar
bent á vítapunktinn og varð ekki
haggað þrátt fyrir áköf mótmæli
Skagamanna. Úr vítinu skoraði Daöi
Harðarson örugglega framhjá góðum
markverði Akurnesinga, Bjarna
Sigurðssyni.
Akurnesingar náðu forystunni á 19.
mínútu og var það vægast sagt slysaiegt
mark. Guðjón Þórðarson tók innkast
og fékk boltinn að fara alia leið tii
Sigþórs Ómarssonar, sem skallaði i
netið. Þar var Jón Þorbjörnsson illa
sofandi í markinu.
Skagamenn voru mun sterkari aðii-
inn í fyrri hálfleiknum en tókst ekki að
bæta við mörkum þrátt fyrir harða hríð
að marki Þróttara. Á 28. mínútu gaf
Arni Sveinsson mjög vel fyrir markið
þar sem Sigurður Lárusson skallaði fyrir
fætur Kristins Björnssonar. Kristinn er
hins vegar hvorki fugl né fiskur þessa
dagana og skot hans var slakt og fór
framhjá. Kristinn var annars mjög
slakur í þessum leik. Seinn og losaði sig
illa við knöttinn. Þróttur fékk aðeins
eitt gott færi í fyrri hálfleik er Ólafur
Magnússon skallaði máttiaust að markj
Skagamanna i dauðafæri. Bjarni varði
skot hans vel.
Kristinn var allt of seinn á sér á 56.
Altrincham
náði ekki
Aðeins munaði einu atkvæði að
Altrincham kæmi i stað Rochdale i 4.
deildinni ensku á mánudag er atkvæði
voru talin i kosningunni um hvort
hleypa ætti áhugamannaliði i deildina
að þessu sinni eins og svo oft hefur
verið gert undanfarin ár með góðum
árangri. Rochdale slapp fyrir horn,
hlaut 26 atkv. en Altrincham 25. For-
maður Luton mætti ekld á fundinn og
tapaði Altrincham þar einu atkvæði að
talið var. Mörg sterk lið hafa komið úr
áhugamannadeildunum undanfarin ár,
s.s. Hereford, Wigan, Oxford o.fl.
mínútu er hann komst í gott færi og á
sömu mínútu munaði minnstu að
Þróttur jafnaði. Halldór Arason komst
inn í sendingu ætlaða Bjarna mark-
verði en Bjarni sá við honum og varði
fast skot hans. Mínútu síðar komst Páll
Ólafsson í gegnum vörn ÍA en skot
h^ns fór beint á Bjarna.
Kristinn var enn mjög klaufskur á
69. mínútu er hann fékk góða sendingu
frá Sigþóri Ómarssyni, sem hafði tekið
sprett upp með endamörkum og gefið
vel fyrir. Kristinn var hins vegar allt of
seinn að vanda og tækifærið fór út um
þúfur. Síðasta færið er heitið gat féll
Akurnesingum í skaut á 73. mínútu.
Kristján Olgeirsson sendi þá vel þvert
yfir völlinn til Árna Sveinssonar, sem
gaf viðstöðulaust inn á Sigþór, sem
sneri af sér varnarmann. Skot hans fór
hins vegar framhjá.
Lokakaflanum hefur áður verið lýst
og það eru aðeins hin ljótu atvik sem
sitja eftir þegar huganum er rennt til
baka. Jafntefli voru mjög sanngjörn
úrslit þessa leiks en vítaspyrnan var
alveg út í hött. Flestir leikmenn liðanna
|léku vel undir getu en hjá Skagamönn-
um stóðu þeir Bjarni, Jón Gull., Sig-
urður Halldórsson, og Árni Sveins
uppúr. Árni virtist þó í slæmu skapi.
Hjá Þrótti áttu þeir Sverrir Einarsson
og Rúnar Sverrisson góðan leik í vörn-
inni en annars staðar var fátt um fína
rirætti.
-SSv.
Enn heldu Framarar
hreinu í Keflavík!
—hafa ekki fengið á sig mark Í450 mínútur í íslandsmótinu
íslandsmótið I-deild, ÍBK—Fram 0:0
í geysilegum baráttuleik skildu ÍBK
og Fram jöfn í Keflavik I gærkveldi.
Framarar, sem til þessa höfðu unnið
alla sina leikl, máttu nú prisa sig sæla,
jmeð að halda öðru stiginu. Heima-
jmenn voru mun meira í sókn, sérstak-
lega í fyrri hálfleik, en í þeim siðari
jafnaðist leikurinn nokkuð, en varnir
liðanna og markveröir brugðust aldrei,
svo knötturinn fór aldrei inn fyrir
marklinu, hvað þá heldur i netið.
Framarar halda þvi forustunni með níu
stig en ÍBK hefur hlotið sex stig og er
greinilega að sækja sig. Gæti því allt
eins orðið með í baráttunni um
meistaratitilinn.
Veður var hið bezta, logn og létt-
skýjað, þurr völlur og því hin beztu
skilyrði til að sýna góða knattspyrnu,
en spennan sem ríkti hjá liðunum olli
því að góður leikur vék fyrir fullmikilli
festu og allt að því hörku á stundum.
Urðu tveir heimamenn fyrir meiðslum
isvo að flytja varð þá á sjúkrahús,
ISteinar Jóhannsson og Gísli Eyjólfs-
son, sem reyndar fékk spark í hnéð
eftir að leik lauk. Keflvíkingar sóttu
mjög fast mestan hluta fyrri hálfleiks
og fengu nokkur tækifæri en skotin
voru ýmist í ökkla eða eyra ef svo má
að orði komast. Steinar Jóhannsson
átti snemma í leiknum aðeins mark-
vörðinn eftir en hitti ekki markið.
Skömmu síðar slapp Ragnar Margeirs-
son einn inn fyrir en þrumaði himinhátt
yfir. Rétt fyrir hlé sendi Þórður Karls-
son mjög nákvæma sendingu beint á
koll Hilmars Hjálmarssonar, sem
skallaði rétt yfir þverslá. Menn greindi
nokkuð á um hvort vítaspyrna hefði
verið réttmæt þegar Steinar Jóhanns-
son féll rétt fyrir utan markteig,
snemma í fyrri hálfleik, í upplögðu
marktækifæri, en aðþrengdur af
tveimur varnarmönnum Fram. Dómar-
inn, Arnþór Óskarsson, sem átti
erfiðan dag, leit öðrum augum á málið
Daði Harðarson skorar jöfnunarmark Þróttar úr hinni vafasömu vitaspyrnu.
DB-mynd Einar Ólafsson.
— taldi Steinar hafa rekið fótinn í
|varnamann Fram og fallið við það.
Annars má kannski segja að Arnþór
hafi ekki tekið nægilega strangt á
sumum brotum, aðallega tæklingum
aftan frá, en þó slapp hann nokkuð vel
frá leiknum að öðru leyti.
Keflvikingar sýndu oft skemmtileg
tilþrif í seinni hálfleik, fallega samleiks-
kafla, sem náðu þó sjaldan lengra en
inn í vítateig Framara, með einstaka
undantekningum, sérstaklega þegar
Ólafur Júlíusson sendi knöttinn inn á
markteig til Steinars sem skaut illilega
yfir markið. Framarar áttu líka sína
möguleika, t.d. þegar Gunnar Bjarna-
son skallaði naumlega yfir þverslá en
hurð skall býsna nærri hælum hjá ÍBK
þegar Kristinn Jörundsson skaut í
marksúlu af stuttu færi.
Markvarzlan hreflir ekki lengur ÍBK.
Jón örvar hefur nú fundið sig í
markinu og var mjög öruggur, góð út-
hlaup og grip — allsendis ófeiniinn við
knöttinn. Greip vel inn í og varði þau
fáu skot sem á markið kom. Guðjón
Guðjónsson og Óskar Færseth voru að
vanda driffjaðrirnar í liðinu en Gisli
Eyjólfsson miðvörður átti sinn bezta
leik í sumar. Einnig komst Kári
Gunnlaugsson vel frá leiknum. Annars
er vart hægt að telja einn öðrum betri
— allir gerðu sitt bezta í miklum
baráttuleik.
„Varnarlið” Fram hefur ekki ennþá
,fengið á sig mark — gott afrek í fimm
'leikjum, enda ekki við neina aukvisa að
etja í vörninni, þar sem fyrir eru jafn
þrælöruggir menn eins og Marteinn
Geirsson og Gunnar Bjarnason. Krist-
inn Atlason stendur ávallt fyrir sínu. í
framlínunni átti Pétur Ormslev góða
spretti en Guðmundur Steinsson, lét
óvenju lítið að sér kveða. Þess má geta
að Jón Pétursson lék ekki með vegna
veikinda og hafði það vafalaust sitt að
segja þótt ekkert „gat” myndaðist í
fjarveru hans. Sóknarleikur Framarara
var kannski ekki upp á marga fiska, en
Guðmundur Torfason einna virkastur í
framlínunni. -cmm.
Markakóngur Arroðans iðinn við kolann
Þriðja deildin komst loks almenni-
lega á skrið um helgina er Norður- og
Austurlandsriðlamir tóku við sér.
Voru þar leiknir 7 leikir og f allt voru
14 leikir á dagskrá i 3. deild um helg-
ina. Að vanda erum við með umsagn-
ir um alla leikina og við hefjum hala-
rófuna á leik ÍK og Léttis f A-riölin-
A-riðill
ÍK — Lóttir 3—2 (0—2)
Þetta var góður sigur ÍK-manna,
einkum og sér í lagi ef það er haft í
huga að Léttir leiddi 2—0 í leikhléi.
ÍK-menn börðust eins og grimmir
hundar í siðari hálfleiknum og upp-
skáru þá þrjú mörk. Ólafur Pedersen
var að vanda á skotskónum og það
voru þeir Kristján Hermannsson og
Ingimar Bjarnason einúig. Hand-
boltakappifm Hörður Harðarson,
sem leikur með ÍK og skoraði mark
um daginn (ekki með undirskoti þól),
skoraði ekki núna en er einn af
burðarásum liðsins. Mörk Léttis i
fyrri hálfteiknum gerðu þeir Svavar
Guðnason og Kjartan Skaftason.
Hekla — Óðinn 3—2 (3—1)
Heimamenn voru mun sterkara
liðið í fyrri hálfleik. Engu að síður
var það Óðinn sem tók forystuna í
fyrri hálfleik með marki Kjartans
Guðjónssonar. Leikmenn Heklu
tóku síðan heldur betur við sér og
skoruðu þrívegis fyrir leikhlé. Mörk-
in gerðu Ari Lárusson, Heimir
Heimisson og Tryggvi en föðumafn
hans var ekki þekkt á Hellu.
Eftir leikhlé lögðust leikmenn
Hellu í vörn ánægðir með forystuna.
Af og til náðu þeir þó hættulegum
skyndiupphlaupum. Kristján
Ásgeirsson minnkaði muninn i 3—2
með marki fyrir Óðin og þar við sat.
—skoraði þrennu í 3-2 sigri sinna manna yf ir Magna f rá Grenivík um helgina
Katla — Reynir 1 —7 (1 —3)
Reynismenn tóku strax forystu í
þessum leik með mörkum þeirra
Þórðar Ólafssonar og Ara Arasonar
en Kjartan P. Einarsson svaraði fyrir
heimamenn áður en langt um leið.
Jón Guðmann bætti þriðja marki
Reynismanna við fyrir hlé og í síðari
hálfleiknum tóku Sandgerðingarnir
leikinn algerlega í sinar hendur.
Miðvörðurinn Júlíus Jónsson fékk
„chance of a lifetime” til að skora
þrennu en mistókst. Hann var búinn
að skora tvívegis í síðari hálfleiknum
er honum var falið að framkvæma
vitaspyrnu. Júlíus lét hins vegar
markvörð þeirra Kötlumanna verja
frá sér og þar fór þrennudraumurinn
út um þúfur. Ómar Björnsson
skoraði hin tvö mörk Reynis í síðari
hálfleiknum. Til gamans má geta þess
að staðan var 5—l er tvær mínútur
voru til leiksloka. -emm.
B-riðill
VttJir - Njarðvfk 2-4 (0-2)
Undan norðan kaldanum sóttu
Víðismenn fast að marki Njarðvík-
inga framan af en þrátt fyrir sæmileg
færi tókst þeim ekki að skora enda
varði markvörður Njarðvíkinga mjög
vel. Þegar langt var liðið á hálfleikinn
var dæmt víti á Víði er Njarðvíkingar
brunuðu upp í einni af stórhættu-
legum skyndisóknum sinum. Úr vít-
inu skoraði Haukur Jóhannesson
örugglega. Á lokamínútu fyrri hálf-
leiksins bætti Gunnar Þórarinsson
síðan öðru marki viö.
Snemma í síðari hálfleiknum
minnkaði Vilhjálmur Einarsson mun-
inn með því að skora fyrir Víði en
Njarðvíkingar gerðu út um leikinn
með tveimur mörkum fljótlega.
Haukur skoraði þau bæði. Hið fyrra
úr viti en hið síðara af stuttu færi
eftir góða sendingu. Undir lok
leiksins var þriðja vítaspyrnan dæmd
og nú fengu Víðismenn að spreyta
sig. Guðjón Guðjónsson skoraði
örugglega fyrir þá. Njarðvík sigraði
því örugglega í leiknum og var sigur-
inn sanngjarn því þeir voru heil-
steyptari aðilinn.
Stjarnan — Grindavik 1 —4 (0—3)
Fyrri hálfleikurinn var alger ein-
stefna á mark Stjörnunnar og þá
skoruðu gestirnir þrivegis. Sigurgeir
Guðjónsson það fyrsta og Haukur
'Andrésson bætti síðan öðru við.
Sigurgeir var svo aftur á ferðinni
fyrir hlé með gott mark.
Hann lét ekki þar við sitja og skor-
aði það þriðja í síðari hálfleiknum en
eina mark Stjörnunnar var skorað
undir lok leiksins og breytti þvi engu
um gang leiksins — öruggur sigur
Grindavikur i höfn. -emm.
Hveragerði — Afturelding 0—2 (0—2)
Það voru þeir Hafþór Kristjánsson
og Ríkharður Jónsson, fyrrum
| Bliki, sem skoruðu mörk Aftureld-
úngar um miöjan fyrri hálfleik. Mörk
■ Aftureldingar hefðu hæglega getað
iorðið fleiri miðað við gang leiksins.
Þannig misnotaði Hafþór vítaspyrnu
og auk þess átti Axel markvörður
Hvergerðinga stórleik og bjargaði
liðisinu frástærra tapi. -GAJ.
C-riðill
Vfkingur — Skallagrimur 0—0 (0—0)
Þrátt fyrir aö leiknum lyktaði meö I
markalausu jafntefli var talsvert um
marktækifæri á báða bóga. Víkingar
voru sprækari í fyrri hálfleiknum og
áttu meðal annars skot í vinkilinn
snemma í leiknum. í síðari hálfieik
snerist dæmið aiveg við og Borgnes-
ingarnir sóttu þá mun meir. Var eins
og Ólsarar væru ekki í nægilegri út-
haldsþjálfun. Þetta var mikill
baráttuleikur og jafnteflið sanngjarnt
iþegar upp var staðið. -GAJ.
D-riðill
Magni — Árroðinn 2—3 (1 —2)
Þetta var mikill hörkuleikur á
Grenivík og þeir félagar úr Árroðan-
um komu þarna nokkuð á óvart. Það
var jreirra aðalmarkaskorari, örn
Tryggvason, sem var manna skæð-
astur að vanda því hann sendi knött-
inn þrívegis í netmöskva Magna-
manna og tryggði sínum mönnum
sigur. örn skoraði fyrsta mark sitt á
15. mínútu en Hringur Hreinsson
jafnaði 10 mín. síðar. örn kom
Árroðanum síðan aftur yfir fyrir hlé
með marki úr vítaspyrnu eftir að
honum hafði sjálfum verið brugðið.
Fyrrum Þórsarinn Jón Lárusson jafn-
aði aftur fyrir Magna á 63. mínútu
áður en Örn innsiglaði sigur Árroðans
með marki úr þröngu færi í vítateign-
um á 85. mínútu. Magnamenn mót-
mæltu þessu marki harðlega og töldu
Örn hafa verið rangstæðan en markiö
stóð. Jafntefli hefðu þó verið sann-
gjörnustu úrslitin í leiknum.
Leiftur — HSÞ1—4(1—2)
Heldur hófu þeir Ólafsfirðingar
keppnistímabilið ógæfulega en lið
jþeirra var í fyrra mjög efnilegt,
jskipaö ungum og frískum strákum
Þeir áttu hins vegar ekk»"
HSÞ-liðinu. —‘t svar við
leiií‘:- , ocm skoraði öll mörk
-■”.fis. Það voru þeir nafnar Jónas
og Jónas Þór, sem skoruðu öil mörk
HSÞ. Það var reyndar Leiftur sem
tók forystpna í leiknum en Jónas Þór
Hallgrímsson jafnaði metin. Síðan
skoraði Jónas Skúlason, sem áður lék
með Stjörnunni í Garðabæ, mark úr
víti og í síðari hálfleiknum bætti
hann tveimur mörkum við úr auka-
spyrnum af 30—40 metra færi.
Þóttu það mikil glæsimörk. Sigur
HSÞ b var aldrei í hættu.
E-riðill
Reynir — Efling 6—1 (3—0)
Þetta var alger einstefna eins og
tölurnar segja reyndar til um og virð-
ast Reynismenn vera nokkuð sterkir
um þessar mundir. Óðinn Valdimars-
son (ekki þó söngvarinn kunni) skor-
aði þrjú marka Reynismanna en
Bjarni Freysson tvö og Elvar bættu
við mörkum. Guðmundur Jónsson
skoraði mark Eflingar, sem fékk víta-
spyrnu í leiknum en tókst ekki að
færa sér hana í nyt.
Dagsbrún — Tindastóll 0—1 (0—0)
— Þetta var mjög jafn leikur og gat
farið á hvom veginn sem var. Ekki
hefði jjó verið ósanngiarnt að Iiðin
hefðu skilið jöfn en Tin j',stc!! SÍíOr-
áði eina mark leiksins á 80. minútu
óg var þar Þórhallur Ásmundsson aö
verki. Þrátt fyrir örvæntingarfullar
tilraunir til að jafna undir lokin tókst-
Dagsbrúnarmönnum það ekki og er
hætt við að heldur hafi dimmt yfir 1
þeirra herbúðum við tar>:* >
-.piO. -GS.
F-riðill
Einherji - Vahir 4-0 (1 -0)
! Hér var um að ræða nær látlausa
sókn Einherja en mörkin létu bíða
jeftir sér. Þau urðu þó 4 áður en yfir
lauk og voru þar að verki bræðurnir
Gísli og Vigfús Davíðssynir með sitt
markið hvor, Steindór Sveinsson og
Einar Friðþjófsson þjálfari. Þess má
geta að sl. sumar var minnsta tap
Reyðfirðinga á útivelli 7—1 svo
greinilega er um framfarir að ræða
hjá þeim. Einherji hefur þá skorað 12
mörk gegn einu í tveim fyrstu leikjum
sínum og verða ekki auðunnir í ár
frekar en undanfarið.
Sindri - Huginn 1 -3 (0-3)
Huginn hóf leikinn meö miklum
látum og eftir 20 mín. var staðan
orðin 0—3 þeim í hag. Mörkin komu
öll upp úr hornspyrnum og innköst-
um og skoraði Þorgeir Þorgeirsson
tvö þeirra-með skalla en Guðjón
Harðarson það þriðja. Unnar mark-
vörður Hugins átti stórleik og varði
meðal annars víti frá Magnúsi Páls-
syni í f.h. í s.h. sótti Sindri mun
meira en uppskar aðeins eitt mark
sem Hermann Erlingsson skoraði og
héldu Huginsmenn þvi heim með tvö
dýrmæt stig frá Hornafirði að þessu
sinni.
Súlan - Hrafnkell 0-1 (0-1)
Óvæntur sigur Breiðdælinga gegn
'nágrönnum sínum á Stöðvarfirði.
iHrafnkell hafði tapað sin”' r
leik 1—8 á hei’”- ■/"
nAA ...„avelli en Sulan hafði
jöfnu á Seyðisfirði i fyrstu um-
ferð. Leikur þessi var mjög slakur og
skoraði Þorvaldur Hreinsson eina
jmarkið á fyrstu mínútunum með
jskalla eftir horn. Seinni hluta s.h.
jsótti Súlan linnulítið en tókst ekki að
ískora og máttu því sjá á eftir báðum
istigunum suður fyrir Kambanesið.
Reichenbach með
21,13 míkúlu
V-Þjóðverjinn Ralf Reichenbach setti nýtt þýzktj
met I kúluvarpl I þriggja landa keppni Póllands, V-
Þýzkalands og Ungverjalands, sem hófst I Varsjá I
gærkvöldi. Reichenbach varpaði kúlunni 21,13
metra sem er 4 cm lengra en íslandsmet Hreins Hall-
dórssonar.
Af öðrum úrslitum á mótinu má nefna að pólska
stúlkan og heimsmethafinn 1100 metra grindahlaupi
kvenna, Grazyna Rabsztyn, náði bezta heimstiman-
um i ár I grein sinni er hún hljóp á 12,73 sekúndum.
Heimsmethafinn i hástökki, Jacek Eszola frá Pól-
landi, stökk 2,29 metra i hástökki og var þvi 6 cm frá
heimsmetinu sem hann á ásamt V-Þjóðverjanum
Diatmar Moegenburg. Ólympiumeistarinn Tadeuszj
Slusarski frá Póllandi sigraði i stangarstökki. Hann
stökk 5,65 metra. Marian Woronin, Póllandi, sigr-
aði i 100 metra hlaupi karla á 10,32 sek. Ann Wlod-
arczyk setti pólskt met i langstökki kvenna er hún,
stökk6,90metra.
United tilbúið að
ffyrir Liam Brady
Manchester United er tilbúið til að greiða metupp-,
hæð fyrir írska landsllðsmanninn Liam Brady frá1
Arsenal. Denis Hill Wood, stjórnarformaður Arsen-
al, sagði í gær að hann hefði gefið United leyfi tilj
að hafa samband við Brady, sem nú er i brúðkaups-
ferð f Kaliforníu.
Samningur Brady við Arsenal rann út nú i lok|
keppnistimabilsins og hann hefuf lýst þvi yfir að!
hann vilji helzt leika erlendis. Stórlið eins og Bayern
Miinchen I Þýzkstandi, Juventus á Ítaliu og Barce-
lona hafa öll lýst áhuga á að fá Brady i sínar raðir.
United gerir sér hins vegar vonir um að geta talið
Brady á að vera áfram í Englandi og félagið er reiðu-
búið til að greiða metupphæð fyrir hann. Wolves
greiddi á sinum tima 1,5 milljón punda fyrir Andy
Gray frá Aston Villa og stendur það met enn.
fyrir útsendurum Manchester United.
Eyjamenn unnu
Akureyringa
íkraftlyftingum
Vestmannaeyingar sigruðu Akurcyringa i árlegri
bæjakeppni i kraftlyftingum sem fór fram f Eyjumi
um helgina. Heimamenn lyftu samtals 2,805 kg en
Akúreyringar lyftu 2790 kg. Fimm menn kepptu f
hvorri svelt. Eftir fyrstu tvær greinarnar, hnébeygju
og bekkpressu voru liðin nákvæmlega jöfn, höfðu.
lyft samtals 1630 kg hvort félag en keppnin i rétt-
stöðulyftu réð úrslitum. Margir lyftingamannanna
bættu sinn árangur án þess þó að nokkur met væru
sett.
-FÓV.