Dagblaðið - 12.11.1980, Qupperneq 1
6. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980 — 257. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
Stjóm Flugleiða fellst á skilyrði ríkisins:
KAUPIR SAS HÓTEL
ESW AF FLUGLEHtUM?
— vaxandi áhugi starfsmanna á stofnun nýs flugfélags
fömu verið meðal flugmanna og ann-
arra starfsmanna Flugleiða hf. Er
fullyrt, að þau standi í beinu sam-
bandi við hugsanlega niðurfellingu á
Atlantshafsflugi Flugleiða. Sé veru-
iegur áhugi starfsmanna á því að
kanna grundvöll fyrir þeim rekstri
með stofnun nýs fíugféiags.
-BS
Svarbréf Flugleiða hf. við skilmál-
um þeim sem samþykktir hafa verið
fyrir aðstoð ríkisins við fjárhag fyrir-
tækisins var jákvætt. Eins og fram
kom í frétt DB fyrir helgina ganga
Flugleiðir hf. í raun að þeim skil-
yrðum sem sett eru. Beinar eða
óbeinar óskir um frávik frá fram-
kvæmd einstakra skilyrða og ábend-
ingar um vandkvæði á fortakslausu
samþykki við þeim koma fram.
Sigurður Helgason forstjóri og
Björn Theódórsson framkvæmda-
stjóri fóru utan áður en síðasti
stjórnarfundur Flugleiða hf. um skil-
yrðin var haldinn. Var því ekki unnt
að ræða tillögu sem nú hefur verið
kynnt stjórnarmönnum, um að
Sigurður Helgason forstjóri gegni
verulega þrengdu starfssviði, ef ekki
komi til mála, að hann segi upp störf-
um, samkvæmt heimildum, sem DB
teluráreiðanlcgar.
Á leið sinni til fundar CARGO-
LUX, sem haldinn er í Hong-Kong,
er sagt að Sigurður Helgason hafi átt
viðræður við SAS-flugfélagið í Kaup-
mannahöfn. Hafi þar meðal annars
borið á góma hvort áhugi væri hjá
SAS að kaupa Hótel Esju í Reykja-
vík.
Alfreð Elíasson, stjórnarmaður
Flugleiða hf., fór utan í morgun,
einnig áleiðis til Cargolux-fundarins i
Hong-Kong.
Mikil fundahöld hafa að undan-
HLUTVERKASKIPTIIÞYRLUFLUGINU
—Þyrla Gæzlunnar í varahlutaf lutningum vegna bilunar á þyrlu vamaríiðsins
í gær snerust hlutverk nokkuð við í
þyrluviðskiptum Islendinga og
Bandaríkjamanna á Keflavíkurflug-
velli. Þyrla varnarliðsins, sem svo oft
hefur aðstoöað islenzka aöila, varð
fyrir bilun er hún var stödd yzt á
Snæfellsnesi. Höföu Bandarikja-
mennirnir syðra ekki aðra tiltæka
þyrlu til að fara með varahluti og við-
gerðarmenn vestur. Leituöu þeir til
Gæzlunnar um aðstoð.
Nýja þyrla Gæzlunnar var þá 1
flugi til Búrfells þar sem litla og eldri
þyrla Gæzlunnar hefur verið viö raf-
linueftirlit fyrir Landsvirkjun. Hélt
TF-Rán beint frá Búrfelli dl Kefla-
vlkurvallar og þaðan með menn og
varahluti vestur á Snæfellsnes og
voru nauðsynlcgir flutningar svo
miklir að ferðirnar vestur urðu tvær.
Þetta flug gekk vel. Varð það
fyrsta reynsla þyrluflugntanna Gæzl-
unnar I næturflugi á nýju þyrlunni en
veöur var ekki sérlega gott, strekk-
ingsvindur og súld. - A.St.
Ölvaður
íleiguakstri
Reykur úr neðra
„Reykurinn fer I augun ú þér" syngja gamlir kunningjar miðaldra fólks og yngra i
sönghópnum Platters sem verða með kveðjuhljómleikana íkvöldhér á landi. „Smoke
gets inyour eyes ” gœtu þeir staifsmenn Hita veitu Reykja vlkur llka sagt en þeir voru i
óðaönn að lagftera lagnirnar efst á Grensásveginum í morgun. Og reykurinn liðast
upp í kalt morgunloftið og umhverftó minnir óneitanlega á neðra. DB-mynd Einar.
Á eftirlitsferð á Suðurlandsvegi
rétt fyrir miðnætti i nótt stöðv-
uðu lögreglumenn m.a. leigubif-
reið. Kom í ljós að leigubifreiðar-
stjórinn, sem var með farþega í
leiguakstri, var ekki allsgáður.
Við frekari athugun reyndist full
ástæða til að færa hann til blóð-
rannsóknar.
Svona tilfelli eru sjaldgæf,
enda er ábyrgð leigubílstjóra sem
gegnir atvinnu sinni i ölvunará-
standimikil. -A.St.
Krefjumst
sjálfstæéis
Póllands
— sögðu 20 þúsundir
íkröfugöngu
íVarsjáígær
— sjá erl. f réttir
bls.6og7
Vinnutími
útivinnandi
húsmæöra
óheyrilega
langur
— ogþætti ekki
boðlegur
íverkalýðsfélagi
— sjá DB á neytenda-
markaði á bls. 10