Dagblaðið - 12.11.1980, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 12.11.1980, Blaðsíða 16
16 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980. Eyrarbakki: Að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga ” Fráfarandi prestshjón kvödd ,,Það er ekki langt úr Breið- holtinu á Bakkann. Við eigum því vonandi eftir að sjá ykkur oft á komandi árum," sagði einn ræðumanna þegar prests- hjónin Aðalheiður Hjartar- dóttir og séra Valgeir Ástráðs- son voru kvödd eftir nærri átta ára búsetu og þjónustu á Eyrarbakka. Séra Valgeir hefur tekið við starfi sóknarprests í hinni nýju Seljasókn í Breiðholti. Opið hús, félagsstarf eldri borgara á Eyrarbakka, stóð fyrir kveðju- samkomunni. Þeim hjónum varfærð gjöf frá Opnu húsi en séra Valgeir var einn af hvata- mönnum þess að félagsstarj fyrir eldri borgara var hafð á Eyrarbakka. Sigurjón Bjarnason for- maður Félagsmálanefndar öryrkja og eldri borgara hafði orð fyrir samkomugestum og þakkaði þeim prestshjónunum fyrir þeirra þátt í því ágæta starf sem fram fer í Opnu húsi. Þá talaði Svanborg Oddsdóttir sóknarnefndarmaður og flutti þeim hjónum kveðjur og þakk- ir safnaðarins. Einnig töluðu Ólafur Guðjónsson ogKjartan Guðjónsson oddviti. Yflr rjúkandi kaffi og góm- sætum kökum var svo spjallað um heima og geima. Aðal- heiður og Valgeir gengu á milli borða og ræddu við fólkið. Nutu menn vel samverunnar með þeim hjónum og óhœtt er að fullyrða að Eyrbekkingar kveðja þau með mikilli eftirsjá. - MKH, Eyrarbakka. Stabba Magnúsar, Magga Ótafs, Guðmann og Svanborg fytgjast með atnhvarju tkammtUegu. Hrassar ogkétarað vanda, Vfgfústna i Qarðbm og Geiriaug í Akbrmut DB-myndír: Magnús Karel Hannesson. Svanborg Oddsdóttir færir prestshjónunum þakkir safneðarins. HJÖrtur sonurþebrm fyigist með. DB-myndir: Magnús Karel. Frú Aðaiheiður og Guðín á Hieyri rabba samen yftr tiu dropum. Merei Þórarinsson, Ingvar i Hliði, Óbrfur i Mundakoti og Kjartan oddvfti i Sandprýði ræða málin. «c Jafnréttismáiin eru í góðu legi á Bakkanum. Óskar Magnússon skóiastjóri stóð kófsveittur frammi í eidhúsi ogþvoði upp.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.