Dagblaðið - 12.11.1980, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980.
LAUSSTAÐA
Staða fulltrúa við embætti skattstjórans í Vestmannaeyja-
umdæmi er laus til umsóknar. Æskilegt er að umsækjendur
hafi lokið prófi í viðskiptafræði eða lögfræði eða hafi hald-
góða þekkingu í bókhaldi og reikningsskilum.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist
skattstjóranum í Vestmannaeyjum, Heiðarvegi 1, fyrir 15.
desember nk. Fjármáiaráðuneytið,
10. nðvember 1980.
LAUSSTAÐA
Staða skattendurskoðanda við skattstofu Norðurlands-
umdæmis vestra Siglufirði er laus til umsóknar. Góð
þekking á bókhaldi og reikningsskilum er áskilin. Um-
sóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist skatt-
stjóra Norðurlands vestra, Túngötu 3, Siglufirði, fyrir 15.
desember 1980.
Fjármálaráðuneytið,
10. nóvember 1980.
íkvöld kl. 20.30
Sellótónleikar: Finnsku listamennirnir
ERKKI RAUTIO iseiwo*
MARTTI RAUTIO (píanó)
leika verk eftir Schubert, Brahms, Bach og M. Rautio.
Miðar seldir í kaffistofu. Norræna húsið
VÉLRITUN -
STUNDVfSI
Viljum ráða ábyggilega stúlku til vél-
ritunarstarfa. Góð íslenzkukunnátta skilyrði.
Tilboð er greini menntun, aldur og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Dagblaðsins merkt
„313—stundvís”.
TOYOTASALURIim
JVýbýlavegi 8 fí portínu)
AUGLYSIR:
Toyota Carina da Luxa
Toyota Carina
Toyota Stariat
Toyota Crossida statíon
Toyota Cressida statíon
Toyota Cressida 4ra tfyra
Toyota Crassida 4ra dyra
Toyota Carina sjálfsk. 4ra dyra
Toyota Crassida Hardtop, sjálfsk.
Toyota Corona Mark II
Toyota Corona Mark //
Toyota Corolla station
Toyota Corolla 4ra dyra
Opið laugardaga kl. 1—5.
Árg. Ekinn Verö
þús. km millj.
'80 8 8.3 millj.
76 SS 3.8 millj.
'80 6 6,5 millj.
'80 nýr 9,8 millj.
'78 84 5.7 millj.
'78 58 6,0 miiij.
78 100 5,5 míllj.
77 60 6,0 miiij.
79 6 7.7 millj.
'77 60 4,6 millj.
77 26 4.9 millj.
78 42 4.9 millj.
78 44 5,3 millj.
TOYOTASALURINN
JVÝBÝLA VEGI8, KÓP. SÍMI44144.
Nei takk ...
ég er ábílnum
FERÐAR
Undanfarið hefur verið unnið við að mála hús Sambandsins við Geirsgötu að utan. Byrjað var að sprauta allt húsið utan
með kraftmikilli vatnsdælu. Siðan var húsið málað utan. Þá var veðrið ekki sem heppilegast til þessarar vinnu. Oftast var
mjög kalt i veðri og ekki vantaði blásturinn. Tveir menn unnu að þessu og voru þeir i stólnum, sem sést á myndinni. Stóllinn
hangir i einum stálþræði, sem er ca 3/8 tommu að gildleika. Þar sem stóllinn hangir i einum þræði verður að gæta þess að
hann hallist ekki og verða mennirnir að halda honum I jafnvægi. Það leynir sér ekki, að tilsýndar er þetta nokkuð glæfraleg
vinna. Ljósm. Stefán Nikulásson.
Bygging nýrrar f lugstöð var í Keflavík og olíutanka í Helguvík
til umræðu á Alþingi:
Skellihlátur í
sameinuðu þingi
— þegar f jármálaráðherra gaf loðin svör fyrír hönd
Alþýðubandalagsins
„Endanleg hönnun með öllum
vinnuteikningum að nýrri flugstöð á
Keflavikurflugvelli liggur væntanlega
fyrir um næstu mánaðamót. Samþykki
ríkisstjórnin að ráðast’ I þessa fram-
kvæmd gætu framkvæmdir við
byggingu flugstöðvarinnar hafizt í
maf/júnimánuöi á næsta ári og veríö
lokið síðari hluta árs 1983, ef ekki
stendur á fjármagni, en alltaf hefur
verið gert ráð fyrir að flugstöðin yrði
byggð fyrir lánsfé.” Þannig svaraði
Ólafur Jóhannesson utanrikisráðherra
fyrirspurn um hvað liði byggingu nýrr-
ar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli.
Annar liður fyrirspurnar Karls
Steinars fjallaði um hvort ríkisstjórnin
hefði tekið afstöðu til byggingar
olíutanka í Helguvfk. Ef svo væri
hvenær framkvæmdir hæfust. Svar
utanríkisráðherra var þannig:
„Ríkisstjórnin hefur ekki tekið af-
stöðu til eldsneytisgeymslu í Helguvík.
Ég hef gefið ríkisstjórninni skýrslu um
málið. Álit eldsneytisnefndar liggur
líka fyrir ríkísstjórninni.
Málið hefur síðan ekki verið rætt í
ríkisstjórninni. Fjárveitingar liggja
ekki fyrir fyrr en eftir næstu áramót.
Verklegar framkvæmdir gætu I fyrsta
lagi hafizt vorið 1983.
Ákvörðunarvald um byggingu
oliugeymanna er I höndum utanríkis-
ráöherra. Ekkert er þó því til fyrirstöðu
að málið sé rætt á ríkisstjórnar-
fundum.”
Um þessar fyrirspurnir og svör urðu
miklar umræður og tóku alls átta þing-
menn til máls auk fyrirspyrjanda og
ráðherra ogtöluðu flestir tvívegis.
Ragnar Arnalds var fyrstur f stólinn
og sagði m.a. að „að sjálfsögðu yrðu
engar ákvarðanir teknar um flug-
stöðvarbyggingu nema með samþykki
ríkisstjórnar og Alþingis.”
Af þessum orðum Ragnars spunnust
miklar og skemmtilegar umræður um
hver hefði ákvörðunarvaldið. Vildu
alþýðubandalagsmenn halda í það
hálmstrá að það væri ríkisstjórnin, en
þingmenn allra annarra flokka að hefð
væri á það komin að ákvörðunarvaldið
væri í höndum utanríkisráðherra. Kom
m.a. fram af hita að það væri brot á
stjórnarskrá, þingræði og hefð ef
minnihlutaflokkur í samsteypustjórn
ætlaði þar að taka sér eitthvert
ákvörðunarvald og setja meirihlutan-
um stólinn fyrir dyrnar.
Svo margfaldur varð Ragnar
Arnalds í svörum sinum og
frammígripum í ræður annarra að
minnsta kosti tvivegis skellihló allur
þingheimur og var þó óvenju vel setinn
bekkurinn.
-A.St.
Stórhættulega bensín-
f lutninga til Suður-
nesja ber að stöðva
— því tímaspursmál getur verið hvenær þeir valda stórslysi, sagði
Benedikt Gröndal á Alþingi
„Allt eldsneyti til farþegaflugs
sem um Keflavíkurflugvöll fer er flutt
á bílum frá Reykjavfk til Suðurnesja
eftir uppskipun I Reykjavík. Það er
tlmaspursmál hvenær af þessum
flutningum hlýzt stórslys,” sagði
Benedikt Gröndal í umræöum sem í
gær urðu á þingi um byggingu ollu-
tanka fyrir varnarliðið í Helguvík við
Keflavík.
Benedikt upplýsti að íslenzku
oliufélögin hefðu tilkynnt að þau
vildu enga aðstöðu fá í Helguvik þó
þar risi oliuhöfn. Af svörum
olíufélaganna mætti ráða, að þau
hygðust hafa sama háttinn á
varðandi eldsneytisflutningana suður
eftir eins og verið hefði.
Benedikt lagði á það áherzlu, að
ef og þegar úr því yrði að í Helguvík
risi tankhöfn fyrir eldsneytisbirgöir
bæri að skylda íslenzku oliufélögin til
að koma sér þar upp aðstöðu til
birgðageymslu fyrir farþegflugið svo
stórhættulegum oliuflutningum um
fjölfarna hraðbraut linnti, svo ekki
væri talað um að linna sliti þjóðvega
vegna olíuflutninganna.
Umræðurnar spunnust út af
fyrirspurn Karls Steinars Guðna-
sonar um hvað liði ákvörðun um
byggingu olíuhafnar. Lagði Karl
Steinar áherzlu á að hraða
byggingunni vegna mengunarhættu
sem steðjaði að vatnsbólum Suður-
nesjamanna af núverandi ástandi
olíubirgða syðra.
Ólafur Ragnar Grímsson mælti
gegn byggingu olíustöðvar syðra,
m.a. vegna árásarhættu, sem hún
skapaði, kæmi til ófriðar.
-A.St.