Dagblaðið - 12.11.1980, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980.
5
Sendinefnd frá Fleetwood í heimsókn:
FJORDUNGILÆGRILONDUN-
ARKOSTNAÐUR í FLEETWOOD
Slysadeild ínýtt hús
Slysadeild Borgarspítalgns I Reykjavik
er flutt i nýtt hús. Nýja húsifl er ifast
hinu gamla og miklu stserra og full-
komnara afl aUri gerfl. Starfsfólk slysa-
deUdarinnar var við þafl i fyrrinútt afl
flytja tól og tæld svo og smiflir sem siu
meflal annars um hln þungu skurfl-
stofuijós. Starfsemi i nýju deUdinni er
þegar hafln.
-DS.
Hlnabæp
" Siðumúla 22 - Tjarnargötu 17,
Simi 31870 Keflavik Sími 2061
Undir tvö i nótt var þossi mynd tekin af
hluta starfsfólks slysadaildar afl flytja
hafurtask sitt yfir i nýju bygginguna.
Lilja Harflardóttir deUdarhjúkrunarkona
slysadeildar er þriflja fró vinstri.
DB-mynd: S.
— íslendingum gert tilboð í nóvember, janúar og febrúar—aukin samskipti ættu aft verða báftum
þjóðunum til hagsbóta
„Okkur var mjög vel tekið og við
vonum að þessi íslandsferð okkar beri
góðan árangur. Með komunni hingað
skapast aukin og betri tengsl við Lands-
samband islenzkra útvegsmanna,”
sagði Doris Newsham, framkvæmda-
stjóri John N. Ward, útgerðarfyrir-
tækis og umboðsskrifstofu í
Fleetwood. Doris kom hingað til lands í
sendinefnd frá Fleetwood fyrir helgi,
en nefndin hélt aftur utan á mánudags-
kvöld. Með henni í sendinefndinni voru
Colin Wilson, W.E. McDonald og K.
Fairbotham.
Dagblaðið ræddi við sendinefndina
á mánudag eftir að komumenn höfðu
skoðað hið nýja og glæsilega frystihús
ísbjarnarins á Grandagarði.
„Tilgangur fararinnar var þríþættur. í
fyrsta lagi komum við til þess að auka
vináttu og tengsl við ráðamenn LÍÚ.
Sendinefnd kom fyrst frá Fleetwood til
íslands fyrir fjórum árum og stefnan er
að koma á árlegum samskiptum.
Við ræddum við Kristján Ragnars-
son framkvæmdastjóra LÍÚ og einnig
Ágúst Einarsson og Jónas Haraldsson.
Þar lýstum við því að mikilvægt væri
fyrir okkur að fá ferskan íslenzkan fisk
reglulega til löndunar í Fleetwood og
greindum jafnframt frá því að
mikilvægt væri fyrir íslendingaaðhalda
þessum markaði, sé litið til lengri tima,
vegna mjög harðnandi samkeppni á
freðfiskmörkuðum íslendinga.
í öðru lagi lýstum við óskum okkar
við eigendur báta um fisklöndun í
Fleetwood og bentum þeim á að höfnin
er opin allt áríð. Þá má geta þess að
Fleetwood er næst fslandi af
fiskihöfnunum þremur í Bretlandi,
Fleetwood, Hull og Grimsby. Það
sparar bæði olíu og tíma að sigla til
Fleetwood.
í þriðja lagði lögðum við fram
tilboð um lægri löndunarkostnað nú í
nóvember og einnig í janúar og febrúar
á næsta ári. Við bjóðum 25% lægri
löndunarkostnað og er Fleetwood
þannig ódýrasta löndunarhöfnin. Þessi
lækkun þýðir um eitt þúsund sterlings-
pund á bát, sem landar um 50 tonnum.
Við þurfum 2—3 skip á viku en
getum tekið á móti fleiri. Eftirþvi sem
meiri regla kemst á markaðinn, því
JÓNAS
HAí. MDSSON
Sendinefndin frá Fleetwood utan við frystihús tsbjarnarins, K. Fairbotham, Colin Wilson, Doris Newsham og W.E.
McDonald. DB-mynd Gunnar Örn.
betra verður verðið. Þá má benda á
það, að nú er hagstætt að selja fisk i
Bretlandi fyrir fslendinga því gengið er
hagstætt. Pundið er sterkt núna.
Síldarvertíðin hér á fslandi hefur
gert það að verkum að lítið hefur verið
um landanir íslenzkra báta ytra að und-
anförnu. Þannig hafa aðeins tveir bátar
frá fslandi landað í Fleetwood undan-
farnar þrjár vikur. En stjórnendur LfÚ
munu nú gera félögum innan sam-
takanna tilboð okkar kunnugt.
Allar hafnirnar þrjár hafa átt við
vandamál að stríða í sumar, þar sem
hluti af fiskinum, sem hefur borizt,
hefur ekki verið nógu góður. Það hefur
viljað brenna við að skipstjórar hafa
ofhlaðið skip sín og gæðin hafa
minnkað. Þetta er verið að reyna að
bæta, m.a. með því að bátar sem koma
tvisvar í röð með slæman farm, missa
leyfi sín.”
Sendinefndin lagði áherzlu á það,
að Bretar vildu ferskan fisk fremur en
frosinn. Gæðunum væri ekki saman að
jafna. Hins vegar væru Bretar ekki
færir um að afla þessa fisks sjálfir og í
Fleetwood væru t.d. aðeins tvö skip
eftir. Því yrði að treysta á landanir út-
lendinga og þá helzt fslendinga. Ef
islenzkur fiskur bærist ferskur þá
stæðist enginn annar fiskur samanburð
við hann. Aukin samskipd ættu að vera
báðum þjóðunum til hagsbóta.
-JH.
UM ALLAS
borginaS
SÍMI V
850608