Dagblaðið - 12.11.1980, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
REUTER
írland:
Brezkur her-
maður skotinn
til bana
Brezkur hermaður í leyfi frá
störfum var skotinn til bana í gær-
kvöldi í Londonderry á Norður-
írlandi. Skotið var á hann úr bifreið
sem keyrði framhjá honum. Bifreiðinni
hafði áður verið stolið í einu af
kaþólsku hverfum borgarinnar.
Enginn hefur enn lýst sig ábyrgan
fyrir morðinu. Þetta er í sjöunda sinn á
þessu ári sem brezkur hermaður er
drepinn á Norður-írlandi. Her-
maðurinn var staddur fyrir utan
sjúkrahús, þar sem hann beið eftir
félaga sínum, þegar hann var skotinn
til bana.
Kyrkislanga
drepurbarn
Kyrkislanga drap sjö mánaða
gamalt stúlkubarn í Bandaríkjunum í
síðustu viku. Slangan, sem var 2,5
metrar á lengd, hafði verið eins konar
gæludýr á heimilinu. Faðir barnsins
fylltist örvæntingu þegar hann gerði sér
grein fyrir hvað gerzt hafði. Hann
reyndi að drepa slönguna með hnífi,
siðan með byssu, en tókst það ekki fyrr
en hann beitti stórum búrhnífi.
Handtekinn
með hass
ískónum
Tuttugu og sjö ára gamall maður
var í siðustu viku handtekinn á
Kastrup flugvelli með 3,5 kíló af hassi,
sem hann hafði að hluta til komið fyrir
í skó sínum og að hluta til í tösku.
Hann sagði, að hassið í skónum hefði
hann ætlað til eigin nota en sagðist ekk-
ert vita um hvernig hassið hefði komizt
í töskuna.
Ef nahagssamdríttur í Japan:
1600 fyrírtæki á
hausinn í október
— spáð átján þúsund gjaldþrotum á árinu sem er að líða
Tilkynnt var i Tókíó að verulegs
samdráttar gætti nú í efnahagslífi
Japans. Kemur þetta meðal annars
fram í því að gjaldþrotum fyrirtækja
hefur mjög fjölgað í síðasta mánuði.
Urðu þau rúmlega eitt þúsund og sex
hundruð talsins. Einnig hefur eyðsla
almennings dregizt verulega saman
og byggingaframkvæmdir í Japan
hafa minnkað.
Talið er að gjaldþrotafyrirtæki í
Japan muni verða rúmlega átján
þúsund í ár en það yrði þá hæsta tala
síðan árið 1977. Samdráttur í
byggingariðnaði Japana varð 5,4% í
september að því er húsnæðisráðu-
neytið í Tókíó tilkynnti í gær. Eink-
um mun það vera bygginga og
vefjariðnaðarfyrirtæki sem standa
illa um þessar mundir. Munu það
fremur vera lítil fyrirtæki sem hafa
orðið gjaldþrota.
Háttsettur maður í japönsku efna-
hagslífi sagði í gær að þess sæjust nú
merki að til alvarlegs vanda gæti
dregið i efnahagslífi landsins. Vel
gæti verið að grípa þyrfti til alvar-
legra gagnráðstafana. Verkalýðs-
málaráðherra landsins hefur tilkynnt
um fyrirætlanir um sex mánaða bann
við hækkunum á gasi og rafmagni.
Verð þessara orkutegunda hækkaði
um fimmtíu af hundraði i apríl
síðastliðnum.
Einnig er kunnugt um mikinn
áhuga margra japanskra ráðamanna
fyrir því að vextir af lánum til
byggingaframkvæmda verði
lækkaðir. Auk þess hefur þess verið
krafizt að aukið fé verði lagt fram úr
opinberum sjóðum til bygginga.
Japanir hafa nú nokkrar áhyggjur
vegna útflutnings bifreiðaframleiðslu
sinnar til Bandarikjanna. Ótta gætir í
Tókíó um að. Ronald Reagan,
nýkjörinn forseti Bandaríkjanna,
muni beita sér fyrir einhverri aðstoð
við innlendan bifreiðaiðnað sem
koma mundi niður á Japönum.
Fjórða nóvember slðastliðinn var ár liðið frá þvl að úaml.rHska sendiráðið I að hann væri ekki bjartsýnn á að lausn gislamálsins væri á næsta leiti, þar sem
Teheran var tekið af írönskum námsmönnum, og bandarisku s^diráðsstarfs- svar bandarisku stjórnarinnar við kröfum írana væri ekki nægilega jákvætt.
mennirnir hnepptir I gislingu. í gær lýsti bankastjóri iranska seðlabankans þvi yfir
Skipt um vaxmynd
Starfsmenn Madame Tussaud vax- Reagan, sigurvegaranum i kosning-
myndasafnsins i London biðu ekki unum. Þó Ronald Reagan taki ekki
boðanna eftir að úrslitin i bandarisku við embætti Bandaríkjaforseta fyrr
forsetakosningunum voru Ijós. Vax- en 20. janúar næstkomandi, þá hefur
myndin af Jimmy Carter Bandarikja- hann sem sé þegar leyst Carter af
forseta var fjarlægð og i hennar stað hólmi á hinu heimsfræga vaxmynda-
var borin inn ný stytta af Ronald safni i London, Madame Tussaud.
VATTERUÐ
VESTI
•
Peysur - blússur -
nilc tnlrin Upp í dag