Dagblaðið - 12.11.1980, Side 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980.
II
Styttist í brottvísun franska flóttamannsins 2. desember:
„Hafið þér ákveðið
fangelsi eða frelsi?”
—spyr Patrick Gervasoni dómsmálaráðherrann í opnu bréf i
— Ragnar Aðalsteinsson iögmaður Gervasonis á f und
ráðherra
Friðjón Þórðarson dómsmála-
ráðherra þarf hvað af hverju að taka á-
kvörðun i Gervasonimálinu.Sem kunn-
ugt er frestaði hann á elleftu stundu
brottvísun franska flóttamannsins frá
Islandi til 2. desember.
Patrick Gervasoni hefur skrifað
opið bréf til dómsmálaráðherra og
sent fjölmiðlum. Leggur hann þar
spurningu fyrir ráðherra um hvort
brottvísun hans af landinu sé ennþá
ákveðin 2. des. Ef svo sé þá þætti sér
betra að vita það strax.
Baldur Möller í dómsmála-
ráðuneytinu sagði í gær að um málið
væri „ekkert nýtt að segja í augna-
blikinu, ráðherra ætti næsta orðið”.
Baldur sagði að Ragnar Aðalsteinsson
lögmaður Gervasonis ætti pantað
viðtal við dómsmálaráðherra og myndi
ganga á hans fund mjög bráðlega.
Ekki er annað vitað, en að fyrri á-
kvörðun ráðherrans um brottvísun
Gervasonis 2. desember standi
óhögguð en á vegum íslenzkra yfir-
valda hefur verið aflað gagna í málinu
undanfarnar vikur. Þannig staðfesti
yfirmaður danska útlendingaeftirlitsins
það í samtali við danska blaðið
Politiken fyrir skömmu að íslenzk yfir-
völd hafi haft samband við sig vegna
Gervasonis en hann neitaði að veita ná-
kvæmari upplýsingar um erindi
fslendinganna.
Ragnar Aðalsteinsson mun vafa-
laust fara fram á það við dómsmála-
ráðherra að láta brottvísun Frakkans
ekki koma til framkvæmda. Eru þess
mörg dæmi erlendis í hliðstæðum til-
vikum að formleg ákvörðun um brott-
vísun útlendinga standi ár eftir ár en
framkvæmdinni sé hins vegar slegið á
frest. Til vara verður þess krafizt að
íslenzk yfirvöld fullvissi sig um að
Gervasoni verði ekki framseldur
frönskum yftrvöldum ef brottvisun
verður framkvæmd í byrjun desember.
Patrick Gervasoni lýkur opnu bréfi
sínu til dómsmálaráðherrans á þessum
orðum:
„Þótt ég eigi viðbrögðum stórs
hluta íslensku þjóðarinnar aö þakka
tímabundið frelsi mitt, þá hljótið þér
að fallast á, að þaö er bæði erfitt og
ógnvekjandi aö lifa og starfa án þess
að vita hvort í næstu framtíð bíður
manns fangelsi eða frelsi.
Herra ráðherra, hver er ákvörðun
yðar: fangelsi eða frelsi? Ég fullvissa
yður um að ég er reiðubúinn að beygja
mig fyrir ákvörðun yðar, en uni ekki
lengur stöðugu óöryggi og ótta. Síðan
8. mai 1980 bíð ég svars yðar. Biðin er
að verða óbærileg og ég væri þakklátur
ef þér gerðuð mér kunnuga ákvörðun
yðar.”
-ARH.
Patrick Gervasoni er I byggingarvinnu i Reykjavík og stundar íslenzkunám af kappi.
Nú krefur hann Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra svara um hvort hann áformi að
senda sig úr iandi i desemberbyrjun. DB-mynd: Gunnar Örn.
ÓáranáBlönduósi:
STÖÐVUN FYRIRSJÁANLEG
HJÁ ATVINNUFYRIRTÆ KJUM
Iila horfir nú í atvinnumálum
íbúa Blönduóss. Fjártöku lauk
23. okt. sl. og var slátraö færra fé en
undanfarin ár. StórgripasláUun lýkur
í dag. Það fer þvi að minnka um at-
vinnu, þvi margir hafa haft vinnu í
sláturhúsinu.
Þá eru ljótar horfur hjá nokkrum
atvinnufyrirtækjum á Blönduósi
vegna vandræða i peningamálum og
lítillar fyrirgreiðslu. Fyrirsjáanleg er
lokun hjá einum fimm fyrirtækjum á
staðnum. Það eru fyrirtækin Ósplast,
trésmiðjan Fróði, Steypustöðin hf.,
Vélsmiðjan Vísir að nokkru leyti og
loks bakariiö Krútt. Heyrzt hefur að
forráðamenn bakarísins hafi hug á
þvi að færa sig um set og sé Reykja-
víkursvæðiö í sigtinu.
Þótt þessi óáran hrjái at-
vinnufyrirtækin gengur hefðbundin
þjónustustarfsemi á Blönduósi vel, er
föst í sessi og haggast lídö. Má þar
m.a. nefna starf á vegum Pósts og
síma og rafveitnanna.
-Hjálmar Blönduósi.
Blaðamenn boða verkfall
Blaðamannafélag íslands boðar
verkfall félagsmanna sinna á Dag-
blaðinu, Morgunblaðinu, Vísi og á
Manuela
Wiesler
hreif
Hellubúa
Manuela Wiesler, eiginmaður
hennar Sigurður Ingvi Snorrason og
Snorri Snorrason gerðu stormandi
lukku á tónleikum á Hellu á föstudags-
kvöldið. Voru um 100 manns á þessum
tónleikum, sem haldnir voru á vegum
Tónlistarskólans á Hellu, og fögnuðu
þeim menningarviðburði sem i tónleik-
um þremenninganna fólst.
Tónlistarmennirnir þrír léku bæði
saman og eins sinn í hverju lagi. Lék
Sigurður Ingvi á klarinettu og Snorri
bróðir hans á gítar, bæði einleik og
samleik. Sigurður Ingvi kynnti einnig
ýmsar gerðir klarinetta.
Áheyrendur fögnuðu tónlistar-
fólkinu mjög ákaft og róma mjög leik
þeirra og heimsókn alla.
Tónleikaskrá Tónlistarskólans á
Hellu hefur verið prentuð og dreift um
sýsluna. Næstu verkefni er söngur
Samkórs Rangæinga í Stóradalskirkju
30. nóvember og 28. des. verður óperu-
kynning í Hvolnum á Hvolsvelli. Þá
koma í heimsókn Guðrún Á. Símonar-
dóttir, Þuríður Pálsdóttir, Magnús
Jónsson og Guðmundur Jónsson.
-A.St/Sighvatur Lárusson Hellu.
tímaritum Hilmis hf,, Vikunni og
Úrvali, frá og með 20. nóvember nk.
Útgáfufyrirtæki fyrrnefndra blaðaog
tímarita höfðu áður boðað verkbann á
blaðamenn frá og með 19. nóvember.
Önnur dagblöð en þau sem nefnd voru
koma þó ekki út heldur vegna verkfalls
prentara, sem hefst á mánudaginn.
Á fjölmennum félagsfundi
blaðamanna í gær var samþykkt for-
dæming á Vinnuveitendasamband
íslands fyrir að hafa samþykkt
verkbann á blaðamenn vegna kjara-
deilu við prentara, sem sögð var blaða-
mönnum óviðkomandi.
-ARH.
Popparar stof na
eigið alþýðu-
tónskáldafélag
Flestir af kunnustu dægurlaga-
smiðum landsins hafa nú sameinazt
Magnús Eiriksson, formaður hins
nýja tónskáldafélags.
í nýju tónskáldafélagi — Félagi
alþýðutónskálda. Kemur félags-
stofnun þessi í kjölfar vaxandi
væringa meðal yngri tónskálda og
hinna eldri, sem á sinum tíma byggðu
upp STEF og eru flestir í Tónskálda-
félagi íslands.
Tilgangur nýja félagsins er þannig
skilgreindur í lögum þess: Að gæta
hagsmuna félagsmanna sinna og
vinna að vexti og viðgangi alþýðu-
tónlistar í landinu.
Formaður Félags alþýðutónskálda
er Magnús Eiríksson, varaformaður
Magnús Þór Sigmundsson. Aörir i
stjórn eru Karl J. Sighvatsson, Egill
Ólafsson, Jóhann G. Jóhannsson,
Magnús Kjartansson og Sigurður
Bjóla Garðarsson.
-ÓV.
HAUSTHAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
DREGIÐ A LAUGARDAG
Sjálfstæðismenn.
Vinsamlega gerið skil í happdrættinu okkar sem allra fyrst
VINNINGAR:
TOYOTA CORONA FÓLKSBIFREIÐ, KR. 7.750.000,00
SONY MYNDSEGULBANDSTÆKI, KR. 1.600.000,00
Skrifstofa happdrættisins í Reykjavík er í Valhöll, Háaleitisbraut 1,sími 82900.
Opið frá kl. 9-22.
Sækjum - Sondum
Eflum flokkinn
Hausthappdrætti Sjálfstæflisflokksins.
IIIIMISflKH
-rs'i * iitif rif i nit iti