Dagblaðið - 12.11.1980, Qupperneq 27
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1980.
(i
Útvarp
27
Sjónvarp
FERSKT OG FRYST—sjónvarp í kvöld kl. 21,05:
Hvernig velja á kjöt,
úrbeina það og elda
Húsfeðrum og mæðrum þessa
lands gefst í kvöld og næsta miðviku-
dagskvöld kostur á að fræðast um
kjöt. Valdimar Leifsson sér þá um
fræðsluþátt sem nefndur er Ferskt
og fryst.
„Fólki er kennt að velja sér kjöt
þegar það fer út í búð að verzla. Því
er kennt að úrbeina það og að mat-
reiða. I fyrri þættinum er eingöngu
talað um nautakjöt en í þeim síðari
verður fjallað um kindakjöt og
kjúklinga,” sagði Valdimar
aðspurður um þáttinn.
Hann var þá í framhaldi af þvi
spurður hvort mikil ástæða væri talin
til þessarar fræðslu.
„Þetta er ákvörðun útvarpsráðs
sem mér var falið að framkvæma svo
þú skalt spyrja þá menn sem í þvi
sitja en ekki mig,” sagði hann.
í þættinum í kvöld koma fram
þeir Ólafur E. Stefánsson kjöt-
flokkunarmaður, Andrés Jóhanns-
son kjötiðnaðarmaður, Friðrik Gisla-
son skólastjóri Hótel- og veitinga-
skólans og Kristján Sæmundsson
matreiðslumaður.
Valdimar sagði að sér væri ekki
kunnugt um að fleiri þættir um neyt-
endamál ættu að fylgja i kjölfar þess-
ara tveggja. -DS.
Neytendum verður I kvöld kennt I sjónvarpinu hvað þeir eiga að hafa I huga er
þeir kaupa sér kjöt f matinn.
Ella Fitzgerald syngur fyrir útvarpshlustendur i fyrramálið ásamt Louis Arm-
strong.
P0RGY0GBESS
—útvarp í fyrramálið kl. 10,25:
Fitzgerald, Arm-
strong og Gershwin
BEIN LÍNA
— útvarpíkvöld
kl. 22,35:
Kjartan
Jóhannsson
siturfyrir
svörum
Kjartan Jóhannsson, nýkjörinn for-
maður Alþýðuflokksins, situr fyrir
svörum hlustenda útvarpsins í kvöld í
Beinni linu.
Á engan verður líklega hallað þó hér
sé sagt að Kjartan sé sá stjórnmála-
maður er mesta athygU hefur vakið
undanfarið. Þegar hann tilkynnti að
hann hygðist fara í framboð á móti
Benedikt Gröndal til formanns-
embættis Alþýðuflokksins ekki þó
vegna ágreinings eða persónulegra
deilna heldur vegna áskorana annarra
þótti mörgum sú framkoma furðuleg.
Haft var á orði að ættu menn slíka vini
þyrftu þeir ekki óvini.
Þó Kjartan segði ástæðu sína fyrir
framboðinu vera viljann til þess að
flokksmenn fengju að velja sér forystu
var Benedikt ekki á sama máli og hætti
við að bjóða sig fram þannig að
Kjartan varð sjálfkjörinn.
Þessi rúmlega fertugi maður er þvi
orðinn formaður flokks, sem hann
hefur aðeins starfað i í um það bil 10
ár, sem ekki er Iangur tími i lífi stjóm-
málaflokks. Frami hans hefur verið
með ólíkindum. Hann kom beint inn á
þing til þess að setjast í ráðherrastól og
þingferil sinn hefur hann verið lengur
ráðherra enekki.
í nærmynd sem Helgarpósturinn
dró upp af Kjartani fyrir um hálfum
mánuði kemur í Ijós að hann er yfirleitt
maður sátta og tekst oft að sætta
menn þó þeir séu alls ekki til i sættir.
Hins vegar sé hann fastur fyrir hafi
hann bitið eitthvað í sig og vilji þá
hvergi sitt láta. Hann er sagður af-
skaplega skarpur, iðinn og fróður. Það
hái honum hins vegar mest I stjórn-
málunum að hann sé of mikilll „tækni-
krati” og höfði þvi ekki nóg til launa-
fólks.
Um stefnu hans, persónu og
Alþýðuflokkinn geta menn spurt hann í
kvöld og hvað annað það sem þeim
ligguráhjarta. -DS.
Aðdáendur Gershwins, Fitzgerald
og Armstrongs ættu að rifa sig upp i
fyrramálið, leggja niður störf og
hlýða á útvarpið. Því klukkan 10.25
ætla þau Ella Fitzgerald og Louis
Armstrong að syngja söngva úr
Porgy og Bess eftir George Gershwin.
Sannarlega góður tími fyrir þessa
listamenn að leggja saman snilli sína
eðahitt þó heldur.
Porgy og Bess var sett á svið fyrst
árið 1935 I Boston. Vinsældir verks-
ins urðu ekki miklar í fyrstu því
áhorfendur vissu ekki almennilega
hvað þeir áttu að halda. Var þetta
ópera eða var það gamansamur söng-
leikur? En eftir að lög eins og Summ-
ertime, I’ve Got Plenty Of Nothing
og It Ain’t Necesserely So náðu vin-
sældum náði söngleikurinn i heild
það einnig. Hópar svertingja fóru um
allan heim með söngleikinn og færðu
upp. Þeir komust alla leið til Rúss-
lands árið 1955 og árið 1959 var gerð
kvikmynd eftir söngleiknum með
Sammy Davis og Sidney Poitier i
aðalhlutverkum.
Sagan segir frá Bess sem er léttlynd
negrastelpa. Hún býr með Crown
eiturlyfjasala og er háð kókaíni. En
þegar Crown verður manns bani flýr
hún á náðir Porgy sem er fatlaður.
Ástir takast með þeim. Bess er þó
fjörug sem fyrr og fer ein á mikla
hátið sem haldin er. Þar veröur
Crown á vegi hennar og neyðir hana
til að lofa að koma til sin aftur. Þegar
Crown kemur svo að sækja hana
banar Porgy honum. Löggan kemur
þá og tekur hann fastan og þar sem
náunginn Sportin Life telur henni
trú um að Porgy sleppi aldrei úr
steininum framar þiggur hún af
honum kókaín og þau fara saman til
New York. Porgy sleppur hins vegar
frá löggunni en finnur auðvitað Bess
hvergi. Þegar hann fréttir að hún sé
farin til New York leggur hann af
stað á eftir henni i vagni dregnum af
asna. Og þannig endar söngleikurinn.
Þau Ellu og Louis þarf vart að
kynna islenzkum útvarpshlustendum
svo oft sem þau hafa glatt eyru
þeirra. Þau voru bæði frábærir jass-
istar og þó Louis sé látinn á minning
h ans ugglaust eftir að li fa lengi. - DS
BÖRN í MANNKYNSSÖGUNNI
—sjónvarp í dag kl. 18,05:
Þrjátíu þúsund börn
hurfu f krossferð
Börn í mannkynssögunni nefnist nýr
framhaldsflokkur í 14 þáttum sem
hefst I dag klukkan rúmlega sex.
Þýðandi þessa flokks er Ólöf Péturs-
dóttir kennari i Kópavogi og var hún
spurð um hann.
„Fyrsti þátturinn er ósköp drunga-
legur. Sagt er frá 30 þúsund börnum,
sem leggja upp frá Frakklandi og ætla
til Jerúsalem. En öll týnast þau og
koma aldrei fram aftur.
Enginn veit eiginlega hvað atti þeim
út f þessa ferð. Komið hefur fram
kenning um það að þar hafi ráðið
fátækt foreldranna og börnin hafi séð
Jerúsalem í einhverri dýrðarmóðu.
Ég er búin að sjá annan þátt af
þessum flokki og sýnist eins og þetta sé
ákaflega fallega gert. Þetta er allt
leikið og i fyrsta þættinum sjást ekki
aðrir en börnin. í næsta þætti
kynnumst við hins vegar litillega fjöl-
skyldum yFirstéttarmanna í Frakk-
landi.
Ég held að stuðzt sé meira og minna
við samhengi í tímaröð atburðanna,”
sagði Ólöf. Hún var þá spurð að þvi
hvort ekki væri erfitt að þýða sjón-
varpsefni, sérlega fyrir börn þar sem
annars vegar verður að sýna textann
lengi fyrir þau seinlæsustu og hins veg-
ar að koma sem flestu að.
„Auðvitað verður að vega og meta í
hvert sinn hverju á að sleppa.
Þýðandinn stjórnar því hversu lengi
hver setning er sýnd og oft verður að
sýna þær stutt til þess að koma að
fleiri setningum. En oft skiptir það sem
sagt er ekki höfuðmáli eða þá að ráða
má það af látbragði fólks og þá er
þýðing óþörf,” sagði Ólöf.
-DS.
KÆLISKÁPAR
MEÐ OG ÁN FRYSTIS
GLÆSILEGIR - STERKIR - HAGKVÆMIR
Lítum bara á hurðina: Hægrí eða vinstri opn-
un, frauðfyiit og níðsterk — ogi stað fastra
hillna og hóifa, brothættra stoða og loka eru
færaniegar fernu- og flöskuhillur úr málmi
jg laus box fyrir
tmjör, ost, egg, álegg
jg afganga, sem bera
ná beint á borð.
b m.» «
GRAM '”»f
býður 30 möguleika i kæli
skápum, frystiskápum og
frystikistum.
pWnlUk mað VAREFAKTA,
vonorðl dönlm
naytondaitofnunai
■ tJi ___».L.
AFBORGUNARSKILMÁLAR
TRAUST ÞJÓNUSTA
innar DVN um oiku
notkun og aöra
eiglnloika.
VAREFAKTA <
JFOnix
HATUNI 6A • SÍMI 24420