Dagblaðið - 12.11.1980, Síða 28
enda verið að vinna gamalt hrúefni. Á innfelldu myndinni sést reykurinn sem gerir
Hafnfirðingum lifið leitt. DB-myndir Sig. Þorri.
Hreinsitœkin hjá Lýsi og mjöli I Hafnarfirði. Þau voru óvirk um helgina og
dreifðist mjölryk upp úr strompnum og yfir nágrennið. Þá var lyktin nánast óbærileg,
Lýsi og mjöl að kæfa Hafnf irðinga:
frjálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 12. NÓV. 1980.
Iscargo flyt-
urveðhlaupa-
hesta Marokkó-
konungs
— á miklar kappreiðar í
Riyadh í Saudi-Arabíu
ISCARGO flytur á morgun fjórtán
veöhlaupahesta fyrir Hassan II. Mar-
okkókonung til Riyadh, höfuðborgar
Saudi-Arabíu.
Þessi farmur ISCARGO er margfalt
verðmeiri en 16 islenzkir hestar sem
flugfélagið flutti í gær héðan frá ís-
landi til Hollands og Danmerkur.
í Riyadh er einn stærsti og þekktasti
skeiðvöllur heimsins og er þar veðjað
ótæpilega á marga mestu veðhlaupa-
hesta heimsins. Á stór veðhlaup koma
menn hvaðanæva úr heiminum með
hesta sína og eru veðmál sögð fjörug í
þessari austurlenzku milljónaborg.
Héðan verður í dag farið með fisk til
Boulogne i Frakklandi og þaðan til
Marokkó í flutninga á veöhlaupahest-
um Marokkókonungs.
- BS
„Ekki hægt að bjóða
bæjarbúum upp á þetta”
—segir heilbrigðisf ulltrúinn í Hafnarfirði—„ráðherra eftir ráðherra veitir
verksmið junni leyfi til að puðra þessum fjanda yf ir bæinn”
„Ég hef verið meira og minna í
stríði við þetta fyrirtæki frá árinu
1969”, sagði Sveinn Guðbjartsson,
heilbrigðisfulltrúi Hafnarfjarðar, í
morgun. „En ég held að enginn hafi
lent í því áður að fá mjölið yfir sig eins
og gerðist aðfaranótt mánudags. Og
þetta var ekkert lítið magn af mjöli.
Bílar umhverfis verksmiðjuna voru
mattir og það varð að skafa af glugga-
körmum húsa til þess að sjá lit á
þeim.”
Hafnfirðingar hafa oft kvartað und-
an nábýlinu við verksmiðjuna Lýsi og
mjöl. En svo virðist sem keyrt hafi um
þverbak aðfaranótt mánudags. Páll
Árnason verksmiðjustjóri hjá Lýsi og
mjöli sagði i morgun aö i síðustu viku
hafi verksmiðjan oft misst rafmagn út,
þar sem spennistöð hefði slegið út.
Aðfaranótt sunnudags hefði jarð-
strengur til hreinsitækja verk-
smiðjunnar farið í sundur. Það hefði
því verið um tvennt aö velja, stoppa
eða halda áfram vinnslu án hreinsi-
tækjanna. Vinnslu var haldið áfram og
opnað beint upp úr strompnum.
Aðfaranótt mánudags stífluðust ryk-
skiljur, sem aðskilja ryk og reyk, og þá
fór mjölrykið upp með reyknum.
„Vindátt var af norðvestan,” sagði
Páll, ,,og fór þetta yfir hús I ná-
grenninu. Við höfðum samband við
bæjarstjóra og heilbrigðisfulltrúa og
ákveðið var að stöðva vinnslu þar til
mengunartækin væru komin i gang
aftur. Þau voru síðan komin í gang í
gær og þá var vinnsla hafin á ný. Hins
vegar er það hráefni sem nú er verið að
vinna orðið nokkuð gamalt, þannig að
lyktin angrar fólk.
Við settum upp hreinsitæki við
verksmiðjuna fyrir tveimur árum. Þar
höfum við átt við hönnunargalla og
ýmis vandamál að stríða, en tækin
hafaþógengiðsíðan í apríl i vor.”
,,Við höfum verið að reyna að koma
skikki á þessa verksmiðju undanfarin
ár,” sagði Sveinn Guðbjartsson,
heilbrigðisfulltrúi. ,,En við höfum lent
í því að ráðherra eftir ráðherra hefur
gefið verksmiðjunni leyfi til þess að
puðra þessum andskota yfir bæjarbúa.
Verksmiðjan hefur verið starfrækt frá
1945-46 þannig að þetta er að nálgast
40 ára stríð. Ég skil það fólk vel sem
kvartar yfir þessu, sérstaklega hinni ó-
þolandi lykt frá verksmiðjunni. En það
kastar tólfunum þegar fólkið fær
mjölið yfir sig.
Þetta fer beint inn í íbúðir. Ég hef
rætt við fólk í nágrenninu og það þarf
að þvo þvotta sina aftur, gardinur og
jafnvel föt í fataskápum. Hver er réttur
bæjarbúa? Það verður eitthvað að
gera. Það er fituiag á þökum, sem ekki
er hægt að blása af og þegar rignir
veðst þetta inn í íbúðir. Það er ekki
hægt að bjóða bæjarbúum upp á þetta.
Ef eitthvaö bilar í verksmiðjunni,
verður aðstoppa.”
-JH.
Meirihlutasamþykkt á starfsmannafundi við
Hrauneyjafossvirkjun:
Fallið verðl frá
boðun verkfalls
—á vegum Rangæings
Meirihluti á fundi sem um 160
verkamenn við Hrauneyjafossvirkjun
héldu í gær skoruðu á stjórn og trún-
aðarmannaráð verkalýðsfélagsins
Rangæings að falla frá verkfallsboð-
un sem á að taka gildi frá og með
þriðjudeginum 18. nóvember.
Félagsmenn Rangæings eru u.þ.b.
þriðjungur af verkamönnum á virkj-
unarsvæðinu, en sem kunnugt er af
fréttum boðuðu atvinnurekendur
verkbann á alla aðra starfsmenn frá
og með 19. nóvember. Gætir mikillar
óánægju hjá mönnum sem ekki eru i
Rangæingi með að fá á sig verkbann
vegha kjaradeilna Rangæings og at-
vinnurekenda. Óskuðu starfsmenn
eftir fundi til aö ræða máliö og var
hann haldinn í gær. Sigurður Óska'rs-
son, framkvæmdastjóri Rangæings,
mætti á staðinn og útskýrði kröfur
félagsins. Urðu liflegar umræður og
voru margar fyrirspurnir fram born-
ar, en í lok fundar var samþykkt
áskorun um að hætt verði við verk-
fallið eins og fyrr segir.
Að sögn Arnar Erlendssonar, yfir-
trúnaðarmanns við Hrauneyjafoss-
virkjun, í morgun eru þar við störf
félagsmenn í öllum landssamböndum
Alþýðusambandsins auk félags-
manna stéttarfélaga í Rangárvalla-
sýslu. Um þessar mundir eru 350—
400 manns 1 vinnu við Hrauneyja-
foss, þar með talið verkstjórar og
yfirmenn aðrir. - ARH
Steypuvtnna við Hrauneyjafossvirkj-
un: meirihlutinn vildi ekld verkfallið.
DB-mynd: ARH
RússarogPólverjar
gerast aðsópsmiklir:
þjófar inn-
an f iskveiði-
markanna
— erGæzluvélin
kannaði
landhelgina ígær
í gær kom flugvél Landhelgisgæzl-
unnar að 4 rússneskum og 3 pólskum
skipum að kolmunnaveiðum innan 200
mílna fiskveiðimarkanna NA af land-
inu. Kom til nokkurs þrefs milli skip-
herra flugvélarinnar og veiðiskipanna,
en um síðir hífðu skipin upp veiðarfær-
in og héldu út fyrir mörkin.
Gæzluflugvélarmenn mældu skipin
5—7 milur innan 200 mílna markanna,
en skipin töldu sig vera um 1,5 sjómílu
utan markanna. Erfiðara hefur reynzt
fyrir veiðiskip að miða út stöðu sína
eftir að mastrið á Jan Mayen hrundi.
Þarf siðan að beita öðrum aðferðum,
og um borð í þessum veiðiskipum voru
ekki hepppilegustu miðunartækin.
Næsta varðskip var í 250 sjómílna
fjarlægð frá þeim stað er rússnesku og
pólsku veiðiskipin urðu brodeg, en þó
var það viö gæzlu við Austur-
land.Gefur það nokkra hugmynd um
víðáttu íslenzku fiskveiðilögsögunnar.
- A.St.