Dagblaðið - 11.12.1980, Síða 1
f
6. ÁRG. - FIMMTUDAGUR II. DESEMBER 1980 - 281. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÍJLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11.—AÐALSÍMI 27022.
Samkeppnisnefnd hefur kveðið upp úrskurð:
Geðþóttaákvarðanir um
bóksöluleyfi ólöglegar
— „Forkastanleg vinnubrögð” segir formaður Félags ísl. bókaútgefenda
„Samkeppnisnefnd kvað í gær
upp þann úrskurð að í lögum Félags
ísl. bókaútgefenda væri að finna
ákvæði sem fælu í sér skaðlegar
hömlur á samkeppni,” sagði
Björgvin Guðmundsson, einn nefnd-
armanna, í samtali við DB í morgun.
Þetta þýðir að Hagkaup hefur sigrað
í stríðinu við bókaútgefendur og á að
vera heimilt að opna bókaverzlun
sem keypt gæti inn hjá hvaða bóka-
forlagi sem er.
„Verðlagsstofnun var falið að
eiga viðræður við Félag ísl. bókaút-
gefanda og binda enda á að þessum
skaðlegu samkeppnishömlum sé
beitt,” sagði Björgvin og bætti því
við að samkvæmt lögum hefði
Samkeppnisnefnd úrskurðarvald, ef
viðræður Verðlagsstofnunar við
bókaútgefendur yrðu árangurslausar.
„Þessar skaðlegu samkeppnis-
hömlur eru m.a. fólgnar í því að
bókaútgefendur taka sér vald til að
ákveða hverjir selji bækur hverju
sinni. Leyfisveiting til slíks er ekki
bundin við að uppfylla nein ákveðin
skilyrði, heldur eru slík mál afgreidd
hverju sinni i félagi bókaútgefenda
með handauppréttingu.”
í lagagrein þeirri sem Samkeppnis-
nefnd byggir úrskurð sinn á er meðal
annars talið að takmarkanir á frelsi
til atvinnurekstrar séu skaðlegar sam-
keppnishömlur.
„Ég hef ekki séð úrskurðinn og
veit ekki um málið nema af af-
spurn,” sagði Oliver Steinn, form.
Félags bókaútgefenda. „Ég tel, það
forkastanleg vinnubrögð og
furðulega embættisfærslu að máls-
aðili heyri um einhverjar niðurstöður
þessa máls i fjölmiðlum en með öllu
sé ómögulegt að ná sambandi við
nefndarmenn eða embættismenn.”
„Ég tel málið standa nú eins og
það stóð fyrir 2—3 dögum og sé
eitthvað nýtt í „niðurstöðunni”
verður það athugað, en af okkar
hendi mun málið ganga alla leið
til Hæstaréttar, ef ástæða verður
til.”
-A.St.
Oðum styttist til jóla...
Rafmagnsveitan vann aö þvi i gœr að lýsa upp stœrsta jólatré landsins, Oslóartréð, ó
Austurvelli. Öðum styttist tiljóla og ýmislegt spennandi er að sjó í verzlunargluggum
borgarinnar fýrir yngstu kynslóðina. Þessi litli var að skoða œvintýralandið i verzl-
unarglugga t Miðbœjarmarkaðnum, en þar iðaðifjörugt brúðullf, með jólasveinum og
fleiru skrýtnu fólki.
- ELA / DB-myndir Sig. Þorri.
Nýhöggvinog
ilmandi
innlend jólatré
— sjá DBáneyt-
endamarkaði
bls. 12
Sungueinsog
englar
— sjáfólk bls. 18
Söluhæstu bækur
og plötur
á jólamarkaði:
Laxnessog
Mounting
Excitement
seljastbezt
— sjá um könnun
DBábls.6
Vinningaskrár
SÍBS
ogHáskólans
— sjábls. 19og28
Þrenna
Ásgeirs
— sjá íþróttir
íopnu
Taldisig
breytastí
JohnLennon
með þvíað
myrðahann
— sjábls.9
Ríkisstjórnin
vill íögbinda
jólaleyfi
sjómanna á f iskiskipum
Rikisstjórnin lagði í gær fram á
Alþingi frumvarp til laga um fridaga
sjómanna á fiskiskipum um jólin.
Segir þar að á timabilinu 23.-27.
desember ár hvcrt skuli allir sjómenn
á íslcnzkum fiskiskipunT eiga að
minnsta kosti þriggja sóiarhringa
leyft í heimahöfn skipsins.
Forystumenn Farmanna- og fiski-
mannasambandsins og Sjómanna-
sambandsins eru því eindregið
fylgjandi að frumvarpið verði að
lögum fyrir jólaleyfi þingmanna,
þannig að lögin komi sjómönnum til
góða nú þegar. Otgerðarmenn eru
hins vegar algerlega andvígir laga-
setningu um jólaleyfi, eða eins og
segir orðrétt i áthugasemdum við
lagafrumvarpið:
„Útvegsmenn telja, að slíku jóla-
fríi fylgi verulegt óhagræði fyrir út-
gerð togaranna og jafnframt að slíkt
muni valda vinnslunni vandræðum.
Vafalaust er þetta rétt. Staðreyndin
er hins vegar sú að slikt jólastopp er
framkvæmt á öllum minni skut-
togurum án teljandi vandræða,
sömuleiðis mun það vera talin sjálf-
sögð regla i öllum nágrannalöndum
okkar að sjómenn á fiskiskipum séu í
landi yfir jóladagana.”
Sjómenn og útvegsmenn hafa
árangursiaust reynt að ná sam-
komulagi sin á milli um jólaleyfi fyrir
áhafnir togara og báta. Þegar þaö
tókst ekki leituðu forystumenn
sjómannasamtakanna til ríkis-
stjómarinnar og lögðu hart að henni
að beita sér fyrir lögbindingu jóla-
leyfisins. -ARH.
— sjá nánarábls.6