Dagblaðið - 11.12.1980, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980.
■BORGAR^
DíOið
Ný mynd frá Warner Bros.
REFSKÁK
Ný spennandi amerísk leynilögreglumynd með
kempunni Gene Hackman í aðalhlutverki (úr
French Connection 1 og 2). Harry Mostby (Gene
Hackman) fær það hlutverk að finna týnda unga
stúlku en áður en varir er hann kominn í kast við
eiturlyfjasmyglara og stórglæpamenn.
Þessi mynd hlaut tvenn verðlaun á tveimur kvik-
myndahátíðum. Gene Hackman aldrei betri.
Leikarar: Gene Hackman, Susan Clark.
Leikstjóri: Arthur Penn
ÍSLENZKUR TEXTI
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl. 5,7,9og11.
OKK4R
STYRKUR
YKK4R
ÖRYGGI
Árleg jólatréssala er ein helsta fjár-
öflunarleið björgunarsveitar Slysa-
varnarfélags íslands, Stefnirs Kópavogi.
Með því að skipta við okkur eykurðu
öryggi þitt og fjölskyldu þinnar.
Kauptu jólatréð tímanlega - Kauptu það
hjá okkur. Hamraborg 6-8 - Kaupgarður
við Engjahjalla.
BjörgunarsKeitin Stefnir KópaKogi
I
Erlent
Erlent
Erlent
I
Norðmaður sá bandaríska fanga í Víetnam:
„Segið heimiib
um frá okkur”
— hrópuðu fangarnir áður en þeir voru f jarlægðir af
lögreglunni. Bandarísk stjómvöld kanna málið
Norskur byggingaverkfræðingur,
sem vinnur við verksmiðjubyggingu í
Vietnam segir að skandinavískir sam-
starfsmenn hans hafi séð bandaríska
striðsfanga rétt fyrir utan Hanoi.
Gudding sagði þetta í símaviðtali frá
Bangkok við útvarpsstöð í Seattle í
Bandaríkjunum.
Gudding sagði að hann hefði verið
á ferð ásamt samstarfsmönnum
sínum skammt fyrir utan Hanoi er
skyndilega var hrópað til þeirra á
ensku af hópi vegavinnumanna:
„Segið heiminum frá okkur.”
Lögreglumenn komu þegar í stað á
vettvang og fjarlægðu hina banda-
rísku vegavinnumenn og skipuðu
Norðurlandabúunum einnig að koma
sér í burtu.
Talsmenn bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins sögðu í tilefni þessarar
fréttar að þeim væri ekki kunnugt um
að bandarískir stríðsfangar væru í
Vietnam. Hins vegar kváðust þeir
mundu taka framburð Norðmanns-
ins alvarlega.
Jerry Tuttle, sem stjórnar rann-
sóknum á afdrifum bandarískra her-
manna sem saknað er í Vietnam,
sagði að frétt þessi yrði könnuð nán-
ar.
Friðsæí götumynd frá Krakow I Póllandi. Viða um heim hafa menn að undanförnu óttazt að hið friðsæla lif pólsku þjóð-
arinnar verði eyðilagt af sovézkum innrásarherjum. Sovétmenn segja nú að sá ótti beri vott um móðursýki.
Móöursýkislegur
ótti Vesturvelda
—segja Sovétmenn um f réttir af hugsanlegri innrás
þeirraíPólland
Sovétmenn virtust i gær gera sér sér-
staklega far um að stilla ótta manna á
Vesturlöndum við að til innrásar
sovézkra herja kæmi í Pólland.
Á sama tíma og ráðamenn Atlants-
hafsbandalagsins þinguðu um hvernig
bandalagið ætti að bregðast við innrás
Sovétmanna í Pólland ítrekuðu Kreml-
verjar þá skoðun sina að pólska stjórn-
in muni ráða sjálf við ástandið í land-
inu.
Sovétmenn sögðu að vangaveltur
Bandaríkjamanna um innrás Varsjár-
bandalagsherja í Pólland bæru vott um
móðursýki.
Framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, Joseph Luns, sagði í gær
að meðal forystumanna bandalagsins
væru í gangi umræður um hvernig
skyldi bregðast við innrás Sovétmanna.
Bandarískir eftirlitsmenn heimsóttu í
gær landamæri Póllands og A-Þýzka-
lands og sögðust ekki hafa orðið varir
við óeðlilega herflutninga. Þeir sögðu
hins vegar að það gæti einfaldlega þýtt
að undirbúningi innrásar væri lokið.
Réttarhöldin í Beijing:
Ekkja Maös
í orðasennu
Jiang Qing, ekkja Maós formanns,
lenti i orðasennu við eitt vitnið í
réttarhöldunum yfir fjórmenninga-
klíkunni í Beijing í gær. Það var
ekkja kvikmyndaframleiðandans
Zheng Junli sem bar vitni í gær vegna
þeirrar ákæru á hendur Jiang Qing
að hún hafi gefið fyrirskipanir um að
Zheng Junli yrði myrtur.
Ekkja kvikmyndaframleiðandans,
leikkonan Huang Chen, grét er hún
las upp vitnisburð sinn þar sem Jiang
Qing var sökuð um að hafa látið
fangelsa eiginmann hennar sem síðan
hafi leitt til dauða hans.
Jiang Qing tók fram í fyrir henni
og sagði: „Huang, ég vissi ekkert um
þetta.” Frú Huang hrópaði þá að
ekkju Maós: ,,Ég vil ekki tala við þig.
Hvers konar vera ertu eiginlega?”
,,Ég vissi alls ekki neitt um
þetta,” svaraði Jiang Qing þá. „Þú
hefur alls engan rétt til að tala við
mig,” ítrekaði þá ekkja kvikmynda-
framleiðandans, sem var áður góð
vinkona Maós formanns og Jiang
Qing. Dómararnir tóku undir með
henni.
Ekkja Maós, Jiang Qing svarar dóm-
urum fulium hálsi við réttarhöldin í
Beijing.
Erlendar
fréttir