Dagblaðið - 11.12.1980, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980.
1
Erleni
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Liv Ullmann
ferðast í
Afiiku
— á vegum
Barnahjálpar SÞ
Liv Ullmann leikkona er nú komin tii
Afríku á vegum Alþjóðabarnahjálpar-
sjóðs Sameinuðu þjóðanna. Hún ei
orðin eins konar sendiherra hjá sjóðn-
um og á að auka honum brautargengi.
Þetta er ný staða, sem hún gegnir fyrsi
allra. Þessa dagana er hún sem sagt i
Eþíópíu, en fer síðan til Djibouti og
Sómalíu. Ferðinni lýkur í Nairobi þann
18. desember. Það er höfuðborg Kenya
og þar eru aðalstöðvar SÞ á þessu svæði.
Er fyrirhugað að Liv Ullmann muni
segja frá því, sem hún hefur séð og heyrt
í ferðinni, á blaðamannafundi þarna i
Nairobi, en síðan flýgur hún trúlega
heim að halda jólmeð dóttursinni.
*
Liv Ullmann hefur látið sér annt um sina eigin
dóttur, en nú lætur hún ekki þar við sitja, heldur
vill reyna að hjálpa hungruðum börnum Afrfku.
Gauragangur út
afsólbruna
Sólbruni getur verið hættulegur,
það vita húðlæknar. Núna hefur það
sannazt enn frekar. Fyrir stuttu fóru
fram réttarhöld í Englandi vegna
gests af kvenkyni sem heimsótti krá
eina í Brighton í sumar og vildi sýna
barþjóni litinn sem hún hafði fengið.
Gauragangur mikill varð á kránni
með þeim afleiðingum að einn bar-
þjónninn lemstraðist mikið og annar
fékk minni háttar skrámur auk þess
sem innbú skemmdist mikið.
Upphaf málsins var það að 33 ára
kona, Susan Morse, kom inn á krána
ásamt eiginmanni sínum, Barry. Þau
ætluðu aðeins að fá sér drykk eftir að
hafa verið daglangt á ströndinni.
Frúin var að sjálfsögðu ánægð með
þann rauða lit sem hún hafði fengið á
kroppinn og fannst sjálfsagt að lyfta
upp skyrtunni sinni til að sýna kunn-
ingja þeirra hjóna, Michael Kemp,
sem starfaði sem barþjónn á um-
ræddri krá, að brjóstín væru einnig
með þennan fallega lit. Þegar bar-
þjónninn spurði frúna hvort neðri
hlutinn hefði einnig fengið þennan
fallega lit gerði hún sér lítíð fyrir og
renndi niður buxunum og sannaði að
svo var.
Nokkuð æstum gesti, kvenkyns að
sjálfsögðu, varð illilega brugðið yfir
þessum dónaskap Susan og til að
sýna henni fyrirlitningu sína á þessu
strípi skvetti hún 'framan I Susan
fullu glasi af ísköldum drykk. Aðrir
gestir á kránni skiptust nú í þrjá
hópa, með eða á móti huggulegheit-
um Susan og þriðji hópurinn ákvað
að vera aðeins áhorfendur í leiknum.
Nokkrir af þeim eiga að mæta fyrir
rétt aftur annaðhvort til að krefjast
skaðabóta eða til að afsanna hvort
það sé virkilega hættulegt eða gróft
siðferðisbrot að sýna það 1 rökkrinu
sem allir geta séð í sólarljósinu.
Upp-
blásinn
súper-
maður
Hvar átti Superman frekar að svífa á
þakkargjörðardaginn en einmitt í New
York? Þar er athafnasvæði hans, þar
sem hann snýr upp á hendurnar á mis-
indismönnum. — Á þakkargjörðadag-
inn sveif uppblásin útgáfa af Superman
yfir götum New York. Ekki er okkur
kunnugt um stærð eftirmyndarinnar,
en miðað við smæð mannfjöldans fyrir
neðan má draga þá ályktun að Super-
man þessi sé með hærri mönnum.
Enn deilt um erfða-
skrá Peter Sellers
— börn hans vilja að ekkjan gefi arf sinn til Hjartaverndar
Þegar leikarinn Peter Sellers lézt
úr hjartaáfalli 24. júlí síðastliðinn
skildi hann eftir sig erfðaskrá.
Samkvæmt henni átti ekkja hans,
Lynne Frederick, að fá 9 milljónir
dollara. Þau höfðu aðeins verið gift
skamman tíma og voru barnlaus.
En Peter Sellers átti þrjú börn frá
fyrri hjónaböndum sínum og sam-
kvæmt erfðaskránni munu þau hafa
átt aðfáum 1770dollara hvert.
Börnin, Micael (26 ára), Sarah
(23ja ára) og Victoria (15 ára) hafa
mótmælt erfðaskránni harðlega. En
nú hafa þau lýst því yfir að þau skuli
ekki gera neinar athugasemdir við
hana ef ekkjan, Lynne Fredrick, vilji
gefa sinn hluta til Brezka hjarta-
verndarfélagsins. Lynne er stödd í
Sviss umþessar mundir og hefur ekki
náðst til hennar, svo ekki er vitað um
svör hennar við þessum tilmælum.
En talsmaður barnanna segir:
„Þeim er full alvara með yfirlýsing-
unni. Þau vilja sýna að það sé ekki af
fégræðgi sem þau mótmæla erfða-
skránni. En þeim finnst ekki að allt
þetta fé eigi að renna til ekkjunnar.”
►
Sellers i einu hlutverka sinna. Á sein-
ustu árum breytti hann erfðaskrá
sinni sitt á hvað, eftir þvi hvernig
hugur hans var til barna sinna.
Fer út með ungum mönnum
— því jajhaldrarnir eru komnir undir græna torfu
Diana Vreeland, fyrrverandi ritstjóri
hinna frægu tízkublaða Vogue og
Harper’s Bazaar lætur ekki háan aldur
hindra sig í starfi né skemmtunum.
Hún er nú 78 ára gömul en nýbúin að
gefa út bók, setja upp tilkomumiklar
búningasýningar við Metropolitansafn-
ið í New York og svo er hún mætt á
mannfundum, ' þar sem eitthvað er um
að vera, og þá venjulega í fylgd yngra
fólks, oft með yngri karlmönnum.
En eins og hún lét hafa eftir sér í
tímaritinu People fyrir skemmstu: ,,Ég
get ekki farið út með jafnöldrum min-
um. Þeireruallirdauðir.”
Þess/ glæsilega
stereósamstæða með tveimur stórum hétö/urum
kostaraðeins
Verð kr. 525.530
Nýkr. 5255,30
HiNATDNEljþ
SCOTT
HIGH FIDEUTY
/4UDIOÞOX
■ racDton®
Allt tU hljómflutnings fyrir:
HEIMILID - BÍUNN
OG
DISKÓTEKIÐ
■BEs'imsga
i r
ARMULA 38 iSelmúla megin) 105 REYKJAVlK
SIM.AR: 31133 83177 POSTHOLF 1366