Dagblaðið - 11.12.1980, Side 2
2:
Stokkseyringar
Árnesingar
□ Vandlátir verzla hjá okkur.
□ Vorum að taka upp mikið úrval leik-
fanga og annarrar gjafavöru á góðu
verði.
□ Tilboð okkar i desember er
20% afsláttur af öllum
kjötvörum í kæliborði.
□ Nýjar kjötvörur daglega.
□ Verzlið í jólamatinn tímanlega.
□ Opið alla daga til kl. 22, laugardaga
og sunnudaga líka.
□ Þið pantið. — Við sendum heim, eða
komið og sannfærizt.
Við bjóðum ykkur velkomin.
Asbjorn
Oksendal
ÞEGAR NEYÐIN
ER STÆRST.
Margföld metsölubók
eftir Asbjörn 0ksendal.
Hrikaleg, sönn lýsing á
flótta úr þraelabúðum
nazista í Noregi.
Frásögn 0ksendals er
engu öðru lík. Hún er
svo spennandi að við
stöndum bókstaflega á
öndinni.
ÞEGAR NEYÐIN
ER STÆRST,
er bók í algjörum sér-
flokki.
DAGBLADIÐ. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980.|
Oft sést grjót standa út af pallinum, segir bréfrítarí.
Grjóthnullungar
hrynja af vöru-
bflum á vegina
—bflstjórar verða að gæta að hleðslunni
Bilstjóri hringdi:
Alveg finnst mér það vera til
skammar hvernig malar- og sandbílar
sem aka frá Hveragerði til Reykjavík-
ur eru hlaðnir. Ég ek frá Selfossi til
Reykjavíkur á hverjum degi og sé þá
oft grjóthnullunga, mörg kíló að
þyngd, liggjandi á veginum. Þessir
hnullungar hafa greinilega hrunið af
bílunum. Sérlega er þetta áberandi í
beygjunni á veginum þar sem
Þrengslavegurinn byrjar.
Um daginn ók fram úr mér 10
hjól trukkur, fullhlaðinn. Ég var áj
90 kílómetra hraða og datt í hug að'
mæla á hverjum hraða hann væri
eiginlega. Mér rétt tókst að lafa í
honum á 125 kilómetra hraða. Al-
gengur hraði þessara bíla er á milli
100 og llOkílómetraráklukkustund.
Bílstjórar þessara bíla hafa greini-
lega ekki fyrir því að aðgæta hleðslu
bílanna áður en þeir leggja af stað því
oft sér maður grjótið standa út af
pallinum. Ég byði ekki í það að vera
á litlum bíl og mæta einum þessara
vörubíla á á annað hundrað kíió-
metra hraða og fá grjót ofan á minn
bíl. Skemmst er að minnast banaslyss
sem varð vegna slíks atviks í sumar.
EKKIBARA ÚTGERDIN
Sveinn Einarsson, Neskaupstað,
hringdi:
Mér finnst rétt að vekja athygli á
því að það eru fleiri en útgerðarmenn
sem hafa orðið hart útí vegna oliu-
verðshækkana að undanförnu.
Hiutfall olíukostnaðar af heildar-
tekjum vörubifreiðastjóra er komið
upp í 22%. Um þetta hefur ekkert
verið fjallað í fréttum. Væri gaman
að vita hvort Landssamband vörubif-
reiðastjóra hyggist gera eitthvað í
þessu máli.
Raddir
lesenda
HERERBOKIN!
Ásgeir Jakobsson:
GRÍMS SAGA TROLLARASKÁLDS
LOKSINS SJÓMANNABÓK, SEM SELTUBRAGÐ ER AF.
Hér er það hásetinn, hinn óbreytti liðsmaður um borð í togara, sem segir sögu
sína. Sú saga er saga skáldsins, dárans og hausarans, þessara þriggja ólíku persóna,
sem í Grími bjuggu. Eri saga Gríms trollaraskálds er einnig saga stríðstogaranna
okkar, sem voru of gamlir, eins og „Kynbomban", of hlaðnir, eins og „Dauðinn á
hnjánum“, of valtir, eins og „Tunnu-Jarpur“, • saga um atvinnuhórur,
hjáverkahórur og stríðsdrykkinn tunnuromm, • saga um einangraðan heim á hafi úti,
framandi jafnvel eigin þjóð, • saga horfinna manna, togarajaxlanna gömlu,
manngerðar, sem aldrei framar verður til á þessum hnetti, • saga horfinna skipa,
tuttugu og tveggja kolakyntra ryðkláfa, sem aldrei framar sjást á sjó.
Það skrifar enginn íslenzkur höfundur um sjómenn, skip eða hafið eins og Asgeir
Jakobsson, og Gríms saga trollaraskálds er engri annarri bók lík.
SKUGGSJÁ
BÓKABÚÐ OL/VERS STEINS SE F