Dagblaðið - 11.12.1980, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980.
Bóksala rétt að byrja:
Sjómenn ítreka kröfur um að þeir fái lögboðin jólaleyfi:
1. Halldór Laxness - Grikklandsárið (Helgafell)
2. Anders Hansen & Hreinn Loftsson - Valdatafl i Valhöll (örn & Örlygur)
3. Alistair McLean - Vitisveiran (Iðunn)
3. Heimsmetabók Guinness (örn & Örlygur)
S.-6. Guðjón Friðriksson og Gunnar Elisson - Forsetakjör 1980 & Mrs.
President (Örn & Örfygur)
5.-6. Guðrún Helgadóttir - Enn af Jóni Oddi og Jóni Bjarna (Iðunn)
7. Auður Haralds - Læknamafían (Iðunn)
B.-9. öldin sextánda (Iðunn)
B.-9. Guðlaugur Arason - Pelastikk (Mál og Menning)
10.-11. Hammond Innes - Hildarleikur á hafinu (Iðunn)
& Desmod Bagley - Samsærið (Iðunn).
Al.
Hluti hópsins, sem stvndur að plötunni I hátiðarskapi. Hún kom út i síðustu
viku o(> er þi'Kar orðin vinsælasta islvn/.ka platan, samkvæmt vinsældalista
Danhiaðsins. l)B-mynd: Einar Ólason.
LAXNESS OG
VALDATAFL í VAL-
HÖLL LANGEFSTAR
llalldór Laxness hefur forystu á bóka-
markaðinum með Grikklandsár sin.
DB-mynd: R. Th.
Bóksala er ekki hafin l'yrir alvöru en
þó eru línur farnar að skýrast hvað
vinsælustu bækurnar snertir. sögðu
bóksalar víða um land þegar DB hafði
samband við þá. Töldu þeir fólk yfir-
lcitt ekki hafa áhyggjur af verði bóka
og voru bjartsýnir á að jólavertíöin
yrði bókinni hagstæð. engu síður en í
fyrra. Helst kvörtuðu bóksalar yfir þvi
að forlögin auglýstu i gríð og erg i
sjónvarpi bækur sem ekki væru
komnar i búðirnar.
Til að kanna bóksölu hafði DBsam-
band við nokkra óháðar bókaver/.l-
anir: Pennann, Bókabúð Braga. Bóka-
húsið Laugavegi. Bókaverziun Snæ
bjarnar. Ástund i Austurveri. Hag
kaup. Bókabúð Jónasar Eggertssonar.
Rofabæ. Bókaverzlun Isafoldar.
Bókabúð Jónasar Jóhannssonar.
Akureyri og Bókavcr/lun Jónasar
Tómassonar. Isafirði.
Siðan gáfum við tiu efstu bókunum
stig eftir sölu, l'rá 10 til 1 slig og þegar
menn nefndu bækur sem seldusl
nokkuð jafnt. gáfum við hvcrri slikri
bók tvöstig. I grófum dráttum virðast
því 10 bezt seldu bækurnar i dag vera:
Plata Lennons ófáanleg
- DB birtir fyrsta listann yfir bezt seldu plötumar
Hljómplatan Double Fantasy með
John Lennon og YokoOno væri lang
efst á vinsældalista Dagblaðsins ef
upplagið væri ekki á þrotum. Er salan
var könnuð í gærdag i tiu verzlunum
víðs vegar um landið bar kaupmönn-
um saman um að eftirspurnin eflir
plötunni væri gifurleg. En þvi miður:
allt uppselt i bili.
Það er þvi safnplatan Mounting
Excitement. sem skreytir toppinn að
þessu sinni. Hún hefur að geynia
tuttugu vinsæl lög frá þessu ári. Meöal
flytjenda rná nefna Sheenu Easton.
Gibson Brothers. Roxy Music. Hot
Chocolate og Odyssey. Plata þessi
helur verið á markaðinum um þriggja
viknaskeið.
Jólaplatan I hátiðarskapi kom á
markaðinn i siðustu viku. en nær samt
að komasi upp i þriðja sætið. Áber-
andi var að hún er byrjuð að seljast
mun meira i Reykjavik og nágrenni
en úti á landi.
Nokkuð voru plötukaupmenn
ósammála um. hvort jólauntferðin unt
verzlanir þcirra væri hafin. Hclzt þótli
Reykvíkingum og Akureyringum sem
salan væri byrjuð að glæðast. — þó að
..geðveikin" gengi ekki yfir fyrr en
fjórum til fimm dögum fyrir jól.
Aðöðru leyti má draga þáályktuná
þessunt fyrsla lista DB af þrentur yfir
vinsælustu hljómplöturnar hér á landi
að |iað scljist bezt sem oflast scst í
auglýsingum sjónvarpsins. -ÁT-
1. (•) Mounting Excitement. . . .
2. (-) Double Fantasy...........
3. (-) Í hátiðarskapi............
4. (-) Guilty....................
5. (-) Bessi segir börnunum sögur
6.-7. (-) Geislavirkir . . . ■....
6.-7. (-) Hotter Than July........
8. (-) Hin Ijúfa sönglist.......
9. (-) The River...............
10. ( ) Ég fæjólagjöf............
...........Ýmsir flytjendur
.........Lennon/Yoko Ono
. . Gunnar Þðrðarson og fleiri
...........Barbra Streisand
...........Bessi Bjarnason
........... Utangarðsmenn
............Stevie Wonder
Jöhann Konráðsson og fjölsk.
.........Bruce Springsteen
...............Katla Maria.
Sendu Steingrími
skeyti í tugataii
— íslenzkir sjómenn einir um það á norðurhveli jarðar að þurfa að stunda
fiskveiðar um jólin, segir Óskar Vigf ússon, formaður Sjómannasambandsins
„íslenzkir sjómenn eru líklega etntr
um það á öllu norðurhveli jarðar að
þurfa að stunda ftskveiðar um jólin.
Það virðist ómögulegt að ná samning-
um við útvegsmenn um að sjómenn fái
lögboðið frí um jólin. Þeir telja sig ekki
geta fallizt á þær kröfur okkar,” sagði
Óskar Vigfússon, forseti Sjómanna-
sambands íslands, í gær þegar Dag-
blaðið leitaði upplýsinga um hvernig
sjómannasamtökunum gengi að ná
fram þessum baráttumáli sínu.
Á nýafstöðnu ASÍ-þingi báru Óskar
Vigfússon og fleiri fram tillögu að
ályktun sem samþykkt var. í henni var
lagt að sjávarútvegsráðherra að ,,nú
þegar verði gefin út reglugerð um að
allir sjómenn fái minnst þriggja daga
frífráveiðum yfir jólahelgina.”
Sjómenn sjálfir hafa líka látið til sin
heyra um málið. Undanfarið hafa
sjávarútvegsráðuneytinu borizt skeyti
frá áhöfnum 46 togara, en afrit skeyt-
anna bárust sjómannasamtökunum.
Leggja sjómenn þar til að um jólin
verði lögboðin jólaleyfi í 10 daga og
vísa til þeirrar staðreyndar að stjórn-
völd hafa hvort eð er ákveðið víðtækar
veiðitakmarkanir á þorski og fjölgað
„skrapdögum” að sama skapi. Eigi því
vel við að gefa sjómönnum langt leyfi
og „hvíla” fiskinn um leið.
Staðan í jólaleyfismáli sjómanna er
sú, að í bátakjarasamningum er ná til
minni togara og báta, er kveðið á um
að sjómenn skuli fá þriggja daga leyfi
um jólin nema ef veitt sé í því skyni að
sigla með aflann á erlendar hafnir.
Sjómenn á stærri togurunum hafa ekki
þennan varnagla í sínum samningum.
Útgerðarmönnum stærri togara er þvi
heimilt að hafa þá á veiðum um jólin ef
þeim sýnist svo.
Ólafur og
Steingrímur jákvæðir
Farmanna- og fiskimannasambandið
annars vegar og Sjómannasambandið
hins vegar hafa lengi barizt fyrir því að
fá jólaleyfi sjómanna skjalfest. Á
kjaramálaráðstefnu þeirra í desember
1978 var því beint til rikisstjórnarinnar
að taka ákvæði þar að lútandi inn i
félagsmálapakka kjarasamninganna.
Ólafur Jóhannesson þáverandi for-
sætisráðherra tók vel i það og sagði
jólaleyfið vera réttlætismál.
Alþýðusambandið gerði kröfur fyrir
hönd Sjómannasambandsins sl. haust
um að jólaleyfi kæmi inn í félagsmála-
pakka stjórnarinnar vegna kjara-
samninganna i október. Steingrímur
Hermannsson sjávarútvegsráðherra
sagðist myndu beita sér fyrir lausn
málsins ef útvegsmenn og sjómenn
næðu ekki samkomulagi sín á milli.
Óskar Vigfússon sagði Dagblaðinu
að málin stæðu þannig núna, að út-
vegsmenn neituðu að fallast á samning
um jólaleyfi. Sjávarútvegsráðherrann
hafi lofað því á dögunum að flutt yrði
frumvarp til laga þess efnis.
,,Þó að mörgum kunni að þykja
Óskar Vigfússon: Útgerðarmenn telja
sig ekki geta fallizt á kröfur okkar.
sjálfsagt réttlætismál að sjómenn fái fri
frá vinnu jóladagana, þá er það ekki
svo þegar á reynir. Einföldustu
réttindamál sjómanna ná stundum ekki
fram að ganga átakalaust, þrátt fyrir
að þeim sé lofað gulli og grænum skóg-
um við hátíðleg tækifæri,” sagði Óskar
Vigfússon.
-ARH.
Lagasetning um jólaleyf i sjómanna yrði:
„íhiutun í samn-
ingsrétt okkar”
— segir Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenzkra
útvegsmanna
„Ákvarðanir um jólaleyfi sjómanna
eru óumdeilanlega samningsatriði út-
vegsmanna og sjómannasamtakanna.
Ef stjórnvöld hyggjast lögbinda jóla-
leyfin, þá er það bein íhlutun i
samningsrétt okkar,” sagði Kristján
Kristján Ragnarsson: í alla staði óeðli-
leg vinnubrögð hjá Sjómannasamband-
inu að beina kröfum sinum tii rikis-
valdsins en ekki til útgerðarmanna.
Ragnarsson framkvæmdastjóri Lands-
sambands isl. útvegsmanna.
„Sjómannasamtökin hafa ekki beint
kröfum um jólaleyfi til okkar heldur til
ríkisstjórnarinnar. Það eru í alla staði
óeðlileg vinnubrögð.” Kristján sagð-
ist telja það óframkvæmanlegt að
hafa togaraflotann i höfn um jólin. Til
að svo mætti verða þyrftu til dæmis
fyrstu Reykjavíkurtogararnir að koma
í höfn allra næstu daga og síðan hver á
eftir öðrum fram til jóla til að vinnslu-
stöðvar hefðu undan. Stoppið yrði þar
með í raun mun lengra en fáeinir dagar
um jólin. Þá mætti spyrja hvernig það
gæti gengið að togararnir færu eftir
jólin allir á miðin í einu og vinnslu-
stöðvarnar stæðu hráefnislausar á
meðan. Augljóslega gengi dæmið
engan veginn upp.
Að sögn Kristjáns Ragnarssonar er
minni togurum og bátum heimilt að
vera á veiðum um jólin, ef aflað er
fiskjar fyrir erlendan markað ein-
göngu. Um stærri togarana (500 tonn
og þar yfir) gilda þau ákvæði að þeir
mega ekki leggja úr höfn frá 23. til 26.
desember, en geta verið að veiðum yfir
jólin fari þeir út í síðasta lagi 22.
desember.
„Stóru togararnir, alls sextán að
tölu, eru yfirleitt úti um jólin og veiða
fyrir innlendan og erlendan markað.
Við höfum ævinlega boðizt til að veita
þeim skipverjum leyfi sem þess óska.
Enginn hörgull er á mannskap til
afieysinga. Alltaf er hluti fastaáhafn-
anna sem vill vera á sjó um jólin.
Langur biðlisti er eftir plássum á
togurunum í jólatúrunum, þar á meðal
eru margir nemendur í Stýrimanna- og
Vélskólanum sem vilja afia sér tekna í
fríinu. Þar við bætist svo að í janúar-
byrjun ár hvert eru stærstu sölutúrar
togaranna erlendis. Beztu söludagarnir
eru í ársbyriun.
Við trúum ekki að stjórnvöld vilji
koma í veg fyrir allt þetta með lagasetn-
ingu,” sagði Kristján Ragnarsson.
-ARH.
Þorlákshöfn:
„Kaupfélagið setur
okkur ekki á hausinn”
— sagði eldhress eigandi bókabúðarinnar
„Það er sko úr laustt lofti glripið ur, því hér er svo gott fólk. Margt af
að Bóka- og gjafabúðin í Þorláks- því kemur og verzlar hjá okkur þrátt
höfn sé að fara á hausinn,” sagði fyrir afmælisafsláttinn hjá Kaup-
annar eigandi búðarinnar i símtali við félagi Árnesinga,” sagði eigandinn.
DB í gær. Orðróm um slæmt gengi „Við erum hins vegar ekki ánægð-
bókabúðarinnar höfðum við eftir ar með að þurfa að keppa við 10%
Guðjóni Guðmundssyni verzlunar- afslátt Kaupfélagsins, en við höfum
stjóra bókadeildar Hagkaups. um enga aðstoð beðið, hvorki bók-
„Það er allt í góðu gengi hjá okk- sala né aðra, þrátt fyrir það”. -A.St.