Dagblaðið - 11.12.1980, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980.
Frakkar beinlínis í skýjunum
Gífurleg gleði var meðal Frakka í
gær eftir að lið þeirra í UEFA-keppn-
inni höfðu slegið út tvö af „stórveld-
um” Vestur-Þýzkalands á knattspyrnu-
sviðinu. St. Etienne gerði sér lftið fyrir
og vann Hamborg öðru sinni, 1-0, í
gær, og þvi samanlagt 6-0. Öllu óvænt-
ara var norðar i Frakklandi að Sochaux
Stjörnuhlaup
Stjörnuhlaup FH verður háö á
laugardag 13. desember. Hefst þaö við
Lækjarskóla kl. 14.00. í karlaflokki
eru hlaupnir fimm kílómetrar — 2,5
km í kvennaflokki. Stjörnuhlaup FH
eru háð hálfsmánaðarlega og þátttaka i
þeim góð.
sló út meistarana í keppninni frá í vor,
Eintracht Frankfurt. Sigraði 2-0 á
heimavelli og mörkin tvö, sem liðið
skoraði i Frankfurt fyrir hálfum mán-
uði seint i leiknum eftir að Eintracht
hafði komizt í 4-0, reyndust dýrmæt.
Sochaux komst í átta liö úrslit á þeim.
Aðeins eitt vestur-þýzkt lið komst svo
langt nú, Köln, sem sigraði Stuttgart 4-
3 eftir framlengingu. Enski landsliös-
maðurinn Tony Woodcock skoraði
sigurmark Kölnar-liðsins í framleng-
ingu.
Mjög óvænt úrslit urðu í Torino, þar
sem Grasshoppers frá Sviss sló út hið
fraega Torino-lið. Jafnt reyndar eftir
venjulegan leiktima og framlengingu.
Þá þurfti vítaspyrnukeppni. Svissnesku
leikmennirnir reyndust þar taugasterk-
ari. Skoruðu fjórum sinnum — ítalir
þrisvar. AZ ’67, sem stefnir nú á hol-
lenzka meistaratitilinn, fór létt með
júgóslavneska liðið Radnicki í Alkmaar
í gær. Skoraði fimm mörk gegn engu.
Kist, sem ekki komst i hollenzka liðið
fyrst i haust, skoraði þrennu. •
í Lodz í Póllandi lék Ipswich við
Widzev og hafði fimm mörk í forskot.
Varðist vel lengstum og Paul Cooper,
sem nefbrotnaði í leik Ipswich gegn
Man. City sl. laugardag, var snjall í
marki. Honum tókst þó ekki að koma í
veg fyrir mark Pieta á 56. mín. en
lengra komust Pólverjarnir ekki. Þeir
voru án þriggja landsliðsmanna, m.a.
Boniek, sem var í leikbanni og tveggja
sem brutu reglur í för pólska lands-
liðsins nýlega á Ítalíu. Ekki sást í
grænan blett á vellinum. Fimm senti-
metra snjór hreinsaður af honum fyrir
leikinn. Strax eftir mark Pólverja kom
Kevin Beattie inn sem varamaður fyrir
Múhren, haltur, og þétti það mjög
vörnina. Paul Mariner var fyrirliði i
stað Mick Mills, sem meiddist í fyrri
leik liðanna. í gær var gifsið tekið af
ökkla hans — en Mariner varð að fara
út af undir lokin. Kevin O’Callaghan,
sem keyptur var frá Millwall í fyrra,
kom í hans stað. Ipswich var þannig
skipað í gær: Cooper, Burley, Osman,
Butcher, McCall, Wark, Miihren,
Thjissen, Gates, Mariner, Brazil, Ips-
wich vann samanlagt 5-1. - hsím.
itACB'1
Steindór Gunnarsson er hér einn og yfirgefinn
lega.
Valsme
Hauk í
—þegar Stefán Halldór
Vals, 23-22, gegi
Valsmenn unnU nauman sigur á Haukum
í 1. deildinni í handknattleik í Hafnarfirði i
gærkvöld með 23 mörkum gegn 22.
Leikurinn einkenndist annars langmest af
óskaplega lélegri dómgæzlu þeirra Jóns
Friðsteinssonar og Árna Tómassonar og
voru mistök þeirra oft á tíðum grátbrosleg.
Valsmenn geta í sjálfu sér vel við unað að ná
i bæði stigin því liðið átti ekkert frekar skilið
að sigra. Jafntefli hefði verið sanngjarnast.
Framarar eiga þvi enn möguleika á að bjarga
sér frá falli en sigur Hauka i gær hefði gert
út um vonir þeirra.
Leikurinn hófst á fjörlegan hátt og Lárus
Karl skoraði fyrsta markið með fallegu skoti
af linu. Samvinna hans og Árna Hermanns-
sonar var oft á tíðum stórskemmtileg og voru
þeir beztu menn liðsins. Eftir 12 mín. leik var
staðan orðin 5—5 en þá skoruðu Valsmenn
næstu þrjú mörk — tvivegis eftir að brotið
hafði verið á leikmönnum Hauka og þeir
hreinlega hætt í sókninni. Þessi kafli dugði
Valsmönnum til þess forskots er þeir höfðu
er blásið var til hlés því þá leiddu þeir 12—
10-
Árni Hermannsson jafnaði fyrir Hauka
með tveimur glæsilegum mörkum í upphafi
s.h., en Valsmenn náðu aftur tveggja marka
forystu. Haukarnir gáfust ekki upp og um
miðjan hálfleikinn höfðu þeir náð að jafna
metin, 17—17. Aftur var jafnt, 20—20, en
þá var Svavari Geirssyni vikið af leikvelli.
Gísli Blöndal og Gunnar Lúðvíksson komu
Val í 22—20, en tvö mörk þeirra Harðar og
Lárusar Karls á innan við 30 sek. þokuðu
Haukum að hlið Vals á ný. Er um 3 mín.
Urslit íUEFi
í Dresden: — Dynamo Dresden, A-
Þýzkalandi—Standard Liege, Belgíu, 1—4
(0—2). Mörkin: Dynamo: Dörner. Standard
Ásgeir Sigurvinsson 3, Tamahata. Áhorf-
endur 35 þúsund. Standard vann samanlagt
5—2.
í San Sebastian: — Real Sociedad, Spáni,
— Lokern, Belgiu, 2—2 (0—1). Mörkin.
Real Sociedad. Lopez-Ufarte víti 82. mín.
Zomora 86. min. Lokerert Elkjær Larsen 21.
og 50. min. Áhorfendur 30 þúsund. Lokeren
vann samanlagt 3—2.
St. Etienne: — St. Etienne, Frakklandi-
Hamburger SV V-Þýzkalandi 1—0 (1—0).
Paganelli 10 mín. St. Etienne vann
samanlagt 6—0.
í Sochaux: — Sochaux, Frakklandi—
Eintracht Frankfurt, V-Þýzkalandi, 2—0
(2—0). Revelli 17. og 43. mín. Samanlagt 4—
4. Sochaux vann á útimörkum.
í Álkmaar: — AZ ’67 Alkmaar,
Hollandi, — Radnicki, Júgóslaviu, 5—0 (3—
0). Kist þrjú á 21., 24. og 65. mip. Nygaard
42. mín. Welzi á 60. mín. Áhorfendur
18.000. AZ ’67 vann samanlagt 7—2.
í Lodz. — Widzew Lodz, Póllandi-
Ipswich, Englandi 1—0 (0—0). Pieta. Áhorf-
endur 8000. Ipswich vann samanlagt 5—1.
í Köln — Köln, V-Þýzkalandi-Stuttgart,
V-Þýzkalandi, 4—1 (1—0) eftir fram-
lengingu. Köln Strack 2, Muller og