Dagblaðið - 11.12.1980, Qupperneq 18
18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980.
Uppskeruhátíð haustsins hjá Kór Langholtskirkju:
Sungu eins og englar
— og ejhdu til meiriháttar kjötkássuhátíðar á eftir
„Heyrðu, góða, nmgir þér ekki einn dlskur?" Harpa Kristjánsdóttir (með
tvo diskai, Helga Hjáimtýsdóttir og Jón Þ. Stefánsson. öll i Kór Lang-
holtskirkju.
staka dagskrá og koma fram á árshá-
tíðum og skemmtunumum helgar til
að afla aura í ferðasjóðinn. Fram
kom að stéttarfélagamálin eru ekki
nógu mikið á hreinu hjá
Stjúpbræðrum. Þeir komast ekki i
Landssamband blandaðra kóra af því
þeir eru ekki nógu blandaðir. Því
hafa þeir lagt inn umsókn um
inngöngu í Pornógrafíska sveina-
félagið.
Haildór Torfason og Steinþór
Þráinsson sýndu leikræna tjáningu í
dramatískum söngieik við góðar
undirtektir, sagðir voru brandarar og
sungið við raust. Mér var það þvert
um geð að þurfa að hverfa af vett-
vangi áður en samkomunni var slitið.
Það þarf að kunna gott betur en að
glamra „Afi minn fór á honum
Rauð. . . ” í réttum á hausti til að
komast i Kór Langholtskirkju.
Enginn fær inngöngu i þennan ágæta
félagsskap nema að kunna eitthvað
fyrir sér í tónlist. Fimmtán manns af
sextiu í kórnum eru til dæmis í söng-
námi og enn fleiri leggja stund á nám
í hljóðfæraleik. Kórnum er skipt í
Fimm tólf manna hópa sem skiptast á
um að syngja við messu í Langholts-
kirkju. Allur hópurinn æfir tvisvar í
viku og messuhópurinn einu sinni að
auki.
Þetta leggja menn á sig með bros á
vör. Einhver sagði að það væri blátt
áfram mannbætandi að vera í
hópnum. Ætli sé ekki eitthvað til i
því. -ARH.
Dramatiskum söngleik Halldórs
Torfasonar jarðfræðings og Stein-
þórs Þráinssonar diggjandi i góK-
i'nui lauk með þvi að annar lá
óvígur / gótfinu. Hinn valkókaði
glaðhlakkalegur allt i kring.
sungið baki brotnu í þrjár vikur og
raddbönd teygð af miklum móð.
En aftur til uppskeruhátíðar
haustsins: Dúkuð veizluborð biðu
gestanna. í eldhúsi hrærði Gunn-
laugur Snævarr kennari og söngfugl í
gríðarstórum potti og beitti stærstu
þvörunni sem fannst í húsinu. Enda
var þarna að verða til meiriháttar
kjötkássa. Var engum treystandi til
að tryggja gæði kássunnar nema
Svarfdælingnum í kórnum. Og þykir
víst engum mikið.
Veizlugestir skoluðu niður! mat-
föngunum með hinu ódýa Trakía-
rauðvíni. Stóðust veitingarnar
gæðapróf vandlátustu gesta, bæði
kjötréttur a la Snævarr og
drykkurinn rauði.
Á eftir var boðið upp á
skemmiiþx'ú ai ýmsu tagi. Karla-
kórinn Stjúpbræður söng. í honum
eru allir karlar í Kór Langholts-
kirkju. Stjúpbræður bjóða upp á sér-
Garðar Cortes yfirsmakkari kjö tkássunnar við skyldustðrf I ekfhúsi.
Gunnlaugur Snævarr kássutæknir btður milli vonar og ótta eftir úrskurði
matsmanns. DB-myndir: ARH
Stefánsson stýrir söngnum og þykir
hafa skilað aldeilis makalaust góðu
verki. Eyjólfur Melsteð er að vísu
færari en ég að bregða menningar- og
listatommustokk á kórinn. En ég
myndi gauka listamannalaunum að
Jóni umsvifalaust ef ég mætti ráða.
Bara það að hafa smalað svona
skemmtilegu fólki saman í hóp rétt-
lætirþað!
Eftir síðari tónleika Kórs Lang-
holtskirkju komu kórfélagar saman í
safnaðarheimilinu og gerðu sér daga-
mun í tilefni af kaflaskiptum í starf-
inu: Haustönn var lokið og jóla-
vertíðin að hefjast. Ætlunin er að
halda jólatónleika 19. desember og
um páska fáum við að heyra Messías.
í sumar er svo meiningin að hoppa
um borð i flugvél og halda til Banda-
ríkjanna og Kanada. Þar verður
Félagarnir í Kór Langholtskirkju
eru ákaflega hresst og elskulegt fólk
— og syngja auk þess eins og englar.
(Og englar syngja í betra lagi eins og
við vitum sem höfum heyrt í þeim
hljóðin.)
Á dögunum hélt kórinn tvenna
tónleika í Háteigskirkju fyrir fullu
húsi og heillaði áheyrendur upp úr
skónum. Fleiri komu viðsögu en kór-
félagarnir einir, því þeir höfðu með
sér 20 manna flokk hljóðfæraleikara
úr Sinfóníuhljómsveitinni og 4
einsöngvara að auki: Ólöfu Harðar-:
dóttur, Garðar Cortes, Halldór
Vilhelmsson og Sólveigu Björling.
Rcyndar eru þau Ólöf og Garðar
félagar í kórnum líka og Ólöf annast
að auki raddþjálfun kórmanna. Ekki
veitir af því mikið reynir á þanþol
raddbanda í alvöru söngvurum. Jón
FÓLK
’ ~ ;
Karlakórinn Stjúpbræður tekur lagið. Stjómandinn, Jón Stefánsson, nýtur þeirra forróttinda
að geta átöiuiaust snúið baki við áheyrendum.
Jóhannesson organisti í Laugarneskirkju (eiginmaður Sólveigar Björling), sára Sigurður
Haukur Guðjónsson og Sótveig Björiing einsöngvari.
Fri borðhaidinu: Sóiveig Ólöf Jónsdóttir lengst til hægri, Sigrún Hákonardóttir, Hóimtnour
Friðsteinsdóttir og Ásdís Sigfúsdóttir. Hnakkann út við gluggann á Ingimundur Friðriksson.