Dagblaðið - 11.12.1980, Síða 31
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980.
(i
Útvarp
31
Sjónvarp
D
LQKRIT VIKUNNAR - útvarp kl. 20,30 í kvöld:
SÁ SEM EKKIKANN
TÖKIN Á TILVERUNNI
—verður Iftillækkaður á alla lund
1 kvöld kl. 20.30 verður flutt út-
varpsleikritið Opnunin (Vernissage)
eftir tékkneska rithöfundinn Václav
Havel.
Leikritið spannar eina kvöldstund
á heimili þeirra hjóna Veru og
Mikaels. Þau hafa lagt mikla vinnu í
að gera upp stofuna sína og til að
geta státað sig af því bjóða þau kunn-
ingjafólki sínu, hjónunum Ferdinand
og Evu, í heimsókn. Þegar til kemur
birtist þó Ferdinand einn. Hann
neyðist síðan til að sitja undir há-
stemmdum lýsingum Veru og
Mikaels á því hve vel þau hafa komið
sér áfram í lífinu. Auðvitað er bað
allt á kostnað Ferdinands, sem
þannig er lítillækkaður á alla lund.
Sá maður kann greinilega ekki ,,tök-
inátilverunni”.
Þýðinguna gerði Stefán Baldurs-
son og er hann jafnframt leikstjóri og
flytur formála að verkinu. Með hlut-
verkin þrjú fara Saga Jónsdóttir,
Sigurður Skúlason og Hjalti Rögn-
valdsson. Flutningur leiksins tekur
rúmar 40 mínútur. Tæknimaður er
Hreinn Valdimarsson.
Höfundurinn Václav Havel er
fæddur í Prag árið 1936. Hann
hugðist leggja stund á listasögu en
var meinað það vegna þess að for-
eldrarnir voru í andstöðu við stjórn-
völd. Havel fékk starf sem sviðs-
maður í þekktu leikhúsi, vann sig þar
upp og varð að lokum leiklistarráðu-
nautur. Eftir innrás Rússa 1968 var
hann settur á svartan lista og leikrit
hans bönnuð í Tékkóslóvakíu. Fyrsta
leikrit Havels var Garðveizlan 1963.
Það hlaut miklar vinsælidir og var
sýnt í mörgum löndum. Einþáttung-
urinn Opnunin var saminn árið 1975,
en alls hefur Havel skrifað um tug
leikrita, þ.á m. nokkur fyrir sjón-
varp.
Leikrit Havels, Verndarengillinn,
var flutt í útvarpinu 1969. - GSE
Saga Jónsdóttir leikkona frá Akureyri, sem nú leikur I Þjódleikhúsinu, leikur
aðalhlutverk i leikritinu Opnunin eftir tékkneska rithöfundinn Václav Havel.
DB-mynd: Bj.Bj.
HVÍSLA AD KLETTINUM - útvarp kl. 21,45:
ÞJÓDSðGUR OG UÓD SAMA
„Þetta eru brot úr Ijóða- og sagna-
sjóði sama,” sagði Einar Bragi um þátt
sem hann nefnir Hvíslað að klettinum
og er á dagskrá útvarps í kvöld kl.
21.45. Einar Bragi hefur umsjón með
þættinum og þýddi efnið. Flytjandi
auk hans er Anna Einarsdóttir. Lesið er
úr bókmenntum sama og lesin ljóð eftir
nafngreinda höfunda.
„Þarna verður líka flutt svokallað
jojk en það er nokkurs konar söngl.
Þetta eru ævaforn ljóð sem jojkuð eru
við lög, maður nokkur, Isral Ruong að
nafni, sem er prófessor í samverskum
fræðum heldur því fram að jojk 'sé
elzta tegund alþýðutónlistarsem fyrir-
finnst,” sagði Einar Bragi. „Síðah
verður komið inn á þjóðsögur og ævin-
týri sama. Samar eiga feiknalega mikið
safn þjóðsagna sem safnað hefur verið
saman nú á þessari öld af norskum
fræðimanni og eru þjóðsögur þessar í
álíka upplagi og Þjóðsögur Jóns
Árnasonar. Einnig er sagt frá skoltum
eða skoltasömum en þeir eru eiginlega
sérstök þjóð því þeir eru af öðrum upp-
runa en samar þó tunga þeirra sé af
sama uppruna og tunga sama. Þjóð
þessi á heima í norðaustur Finnlandi,
við Enare vatnið, og lifir ennþáá dýra-
veiðum, fiskveiðum og hreindýrarækt.
Skoltar eiga sér afar sérstæða menn-
ingu. Svisslendingur að nafni Robert
Crottet ferðaðist til norðurhéraða
Finnlands 1936 og hitti þar fyrir skolta.
Hann heillast af þessari þjóð og sezt að
hjá þeim. Þeir gera Robert eiginlega að
fóstursyni sinum og hann fer að safna
saman arfsögnum þeirra. Robert gefur
þær út 1942 í bók sem heitir Mánaskóg-
ar. Þetta er anzi merkileg þjóð sem
Fimmtudagur
11. desember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. 7.10
Bæn.7.15Leikflmi.
7.25 Morgunpósturinn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.) Dagskrá. Tónleikar.
9.00 Fréttir. ...
9.05 Morgunstund barnanna: Jóna
Vernharðsdóttir les „Grýlusögu”
eftir Benedikt Axelsson (6).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. lO.lOVeðurfregnir.
10.25 Tilkynningar. Tónleikar.
10.45 Verzlun og viðskipti. Umsjón:
Ingvi Hrafn Jónsson.
11.00 Tónlistarrabb Atla Heimis
Sveinssonar. Endurtekinn þáttur
frá 6. þ.m. um „Sögusinfóniuna”
op. 26 eftir Jón Leifs.
Norðurlandabúar vita naumast af en lengi ennþá til sem þjóð,” sagði Einar
ég er hræddur um að þeir verði ekki Bragiaðlokum. *GSE
Samar að fanga hreindýr, en þau hafa verið þeirra helzta lifibrauð i gegnum ald-
irnar.
DB-mynd: Hörður.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar
Fimmtudagssyrpa. — Páll Þor-
steinsson og Þorgeir Ástvaldsson.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Siðdegistónleikar. Strengja-
sveit Tónlistarskólans í Reykjavík
leikur Fjögur íslenzk þjóðlög i út-
setningu Ingvars Jónassonar, sem'
einnig stjórnar / Klaus og Helge
Storck leika Sónötu f As-dúr fyrir
selló og hörpu op. 115 eftir Louis
Sphor / Tom Krause syngur lög
eftir Franz Schubert; Irwin Gage
leikur á píanó.
17.20 Útvarpssaga barnanna:
„Himnarikl fauk ekki um koll”
eftir Ármann Kr. Einarsson. Höf-
undur les (7).
17.40 Litli barnatiminn. Heiðdis
Norðfjörð stjórnar barnatima frá
Akureyri. Gísli Jónsson mennta-
skólakennari kémur í heimsókn
og segir börnunum frá bernskujól-
um sinum í Svarfaðardal.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Guðni Koibeins-
son flytur þáttinn.
19.40 Avettvangi.
20.05 Þekldng og trú. Sigurbjörn
Einarsson biskup flytur erindi. '
20.30 Leikrit: „Opnunin” eflir
Václav Havel. Þýðandi og leik-
stjóri: Stefán Baldursson. Per-
sónur og leikendur:
Vera................Saga Jónsd.,
Mikael........Sigurður Skúlason
Ferdinand.... Hjalti Rögnvaldss.
21.15 Samleikur i útvarpssal: Einar
Jóhannesson og Anna Málfriður
Sigurðardóttir leika saman á klar-
ínettu og pianó Sónötu i Es-dúr
op. 120 nr. 2 eftir Johannes
Brahms.
21.45 „Hvfsla að kleltinum” Brot
úr ljóða- og sagnasjóði Sama. —
Einar Bragi sér um þáttinn og
þýddi efnið. Flytjandi auk hans:
Anna Einarsdóttir.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins.
22.35 Riklsútvarpið fimmtiu ára 20.
des.: Staðið i stafni. Kaflar úr
ræðum, sem útvarpsstjórarnir
Jónas Þorbergsson og Vilhjálmur
Þ. Gíslason fluttu á árum áður,
svo og lag eftir Sigurð Þórðarson,
sem var settur útvarpsstjóri um
skeið. Baldur Pálmason tók
saman og kynnir.
23.00 Kvöldstund. með Sveini
Einarssyni.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
KVIKMYNDIR
8 mm og 16 mm kvikmyndafilmur til leigu í mjög miklu úr-
vali í stuttum og löngum útgáfum, bæði þöglar og með
hljóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16 mm) og tökuvéla,
m.a. Gög og Gokke, Chaplin, Walt Disney, Bleiki Pardus-
inn, Star Wars o.fl. Fyrir fullorðna m.a. Jaws, Deep,
Grease, Godfather, China Town o.fl. Filmur til sölu og
skipta. Ókeypis kvikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opið alla
daga daga nema sunnudaga.
J<vikmyndarnarkaðurinn
ISími 154801
Gerið göð kaup
Bjóðum meðal annars: Gjafavörur, sængurgjafir, leikföng,
barnaföt, smávörur, ritföng, skólavörur, rafmagnsvörur og
margt fleira. Allt til jólagjafa.
Ath. 10% afslátturaf úlpum og barnagöllum.
NÝJA VÖRUHÚSIÐ
HAFNARFIRÐI
Hringbraut 4 — Sími 51517