Dagblaðið - 18.02.1981, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981.
Grótjötunsmálið flutt í Hæstarétti:
Ákærðu krefjast algerrar sýknu
rikissaksóknari þyngri viðuriaga
—tilvarastað-
festingarhins
áfrýjaða dóms
Málflutningur í Grjótjötunsmálinu
fyrir Hæstarétti hófst í fyrradag. Lauk
honum ekki þá og var haldið áfram i
gær og lauk um kl. 15. Ríkissak-
sóknari, Þórður Björnsson, flutti málið
af hálfu ákæruvaldsins, en Jóhannes
L.L. Helgason hrl., fyrir ákærða, Knút
Bruun, og Jón Finnsson, hrl. fyrir
ákærða, ÞorFinn Egilsson.
Þeir Knútur og Þorfinnur áfrýjuðu
dómi Sakadóms Reykjavikur, sem upp
var kveðinn af Haraldi Henrýssyni,
saksóknara, hinn 13. marz 1979. Ríkis-
saksóknari áfrýjaði einnig til þyngingar
hinna dæmdu viðurlaga og til vara til
staðfestingar á dómi sakadóms.
Falskt kaupverð
uppgefið
Sandskip hf. keypti sanddæluskipið
m.s. Jörpeland, síðar m.s. Grjót-
jötunn, af Lars Hovland & Co., í
Noregi, samkvæmt kaupsamningi frá
24. júlí 1974. Uppgefið verð var kr.
2.800.000 norskar, en endanlegt sölu-
verð reyndist kr. 2.4 milljónir norskar.
Knútur Bruun hrl. var stjórnarfor-
maður og framkvæmdastjóri Sand-
skips hf. Gætti hann hagsmuna
kaupenda í þessum viðskiptum, en Þor-
finnur Egilsson, hdl. var fyrir seljanda.
Var þeim i ákæru gefinn að sök fjár-
dráttur og til vara umboðssvik með því
að hafa í sambandi við kaupin á sand-
dæluskipinu komizt yfir til eigin
ráðstöfunar 400 þúsund norskar
krónur — Þorfinnur kr. 300 þúsund,
en Knútur kr. 100 þúsund norskar.
Auk þess var ákært fyrir ranga
skýrslugjöf með því að hafa í umsókn
um heimild til erlendrar lántöku og um
gjaldeyri staðhæft að kaupverðið hafi
verið kr. 2.8 milljónir norskar. Það
hafi hins vegar verið kr. 2.4 milljónir.
3 og 5 mánaða fangelsis-
dómar
Knútur gerði þá grein fyrir þeim 100
þús. kr. norskum, sem hann veitti
viðtöku, að þær hafi verið nokkurs
konar lokaafsláttur til kaupanda. Hafi
hann verið notaður í þágu skipsins.
Lagði hann fram reikninga fyrir
rúmlega helmingi fjárhæðarinnar.
Ekki var talið að hann gerði nægilega
grein fyrir afganginum og meðferð
hans á honum talinn fjárdráttur.
Knútur var hins vegar sýknaður af
ákæru um ranga skýrslugjöf.
Umboðslaun Þorfinns kr. 300
þúsund norskar voru talin óeðlilega há
miðað við kaupverð skipsins. Var talið,
að upphæð umboðslauna hafi ráðið
nokkru um það, hvaða kaupverð var
sett í samninginn. Þorfinni mátti vera
ljóst, að hin háu umboðslaun urðu að
einhverju leyti á kostnað Sandskips hf.
Þessu hafi hann leynt kaupanda í því
skyni að hagnast sjálfur.
Þrátt fyrir neitun Þorfinns var talið
sannað, að hann hefði samið um
greiðsluna til Knúts og litið á hana
sömu augum og umboðslaun sjálfum
sér til handa. Var þetta brot talið varða
við 248. gr. alm. hegningarlaga.
í Sakadómi Reykjavikur var Knútur
Bruun dæmdur til að sæta fangelsi i 3
mánuði en Þorfinnur Egilsson í 5
mánuði. Þá voru þeir sviptir mál-
flutningsréttindum í þrjú ár.
Áfrýjendurnir Knútur Bruun og
Þorfinnur Egilsson, kröfðust sýknu af
öllum ákæruatriðum.
Rannsókn hér
heima og í Noregi
Rannsókn þessa máls vakti mikla
athygli á sínum tíma. Var hún gerð
bæði hérlendis og í Noregi og tók um
BRAGI
SIGURÐSSON
það bil tvö ár. Þrátt fyrir það kom
fram í ræðum lögmanna þeirra Knúts
og Þorfinns, að nánari rannsókn á viss-
um atvikum málsins hefði getað orðið
til þess að skýra málið skjólstæðingum
- þeirra enn frekar í vil en kostur væri á
eins og á var haldið.
Grjótjötunsmálið biður nú dóms-
uppkvaðningar Hæstaréttar.
-BS.
Otsölu-
markaður
uorraterylene-buxur •••• , jo.00
'&Z#**** \f kr. 125 00
Gallabuxur . .... kr. 125.00
3533*^ •; jSK S»
Barnabuxur .
muels-o,^nabútarog
mörg önnur efin a goo
BUXNA OG
BÚTAMARKAÐURINN
HVERF/SGÖ TU 82 - SÍM/11258
Gjaldeyrir kemur—gjaldeyrir f er:
MIKIÐ UM SKIPAKOMUR TIL
ESKIFJARÐAR FRÁ JÓLUM
Hólmanesið kom inn í gærmorgun
með 120 tonn af góðum þorski. Að
sögn Hauks Björnssonar, verkstjóra
hjá Hraðfrystihúsinu, vantar
tilfinnanlega fólk við snyrtingu og
pökkun. Inflúensan kann að hafa
einhver áhrif þessa dagana. En þótt
hún sé með í dæminu, vantar fólk, eins
og verkstjórinn sagði.
4.050 kassar fóru frá
Hraðfrystihúsinu fyrir helgi, allt á
Ameríkumarkað, fullunninn frystur
fiskur. Meira verður lestað á morgun á
þennan markað.
1.360 tonn af loðnumjöli hafa farið
héðan á Þýzkalandsmarkað að undan-
förnu. Ms. Heykur er hér í dag að lesta
680 tonn í viðbót.
Dísarfellið kom í gærmorgun með
100 tonn af hjallaefni, það er að segja
trönuspírum, til Guðjóns Hjaltasonar,
fiskverkanda, sem kaupir hér fisk af
minni bátum. Hann verkar í skreið og
salt.
Sex loðnuskip komu inn í gær með
2500 tonit. Hefur þá loðnubræðslan á
Eskifirði tekið á móti 30 þúsundum
tonna af loðnu frá áramótum.
Útborguð laun daglauna- og
vikulaunafólks hjá Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar síðustu 3 vikur eru um 370
þúsundir nýkróna að sögn Hallgríms
Einarssonar, launareikningsstjóra. Til
hans bera menn mikið traust, þótt
hann sé ekki hámenntaður og er sagt að
honum skeiki aldrei.
-BS/Regína, Eskifirði.
„Samstaða” um endur-
bætur í Nauthólsvík
—undirskriftasöf nun til stuönings við lagfæringar við
„Læragjá”
Hópur fólks í Reykjavík og ná-
grenni hefur tekið höndum saman og
gengst nú fyrir undirskriftasöfnun
meðal áhugamanna um bætta
aðstöðu á útivistarsvæðinu í Naut-
hólsvík — eða við heita lækinn, eins
og það er stundum nefnt.
Aðstandendur undirskrifta-
söfnunarinnar nefna sig „Samstöðu”
og hafa um alllanga hríð verið dag-
legir gestir í heita læknum í Nauthóls-
vík.
Einn þessara gesta er Kristján
Pétursson, deildarstjóri í tollinum á
Keflavíkurflugvelli. Hann sagði í
samtali við fréttamann blaðsins að
meðal tillagna hópsins væru þær að
tryggt yrði nægjanlegt heitt vatn í
læknum allt árið um kring, en að
honum yrði þó jafnan lokað frá
miðnætti til kl. 06 að morgni.
Hópurinn leggur til að leysingavatni
verði veitt framhjá læknum: að
svæðið umhverfis lækinn verði
afgirt, þannig að vélknúin ökutæki
komist ekki inn á það; svæðið verði
tyrft, og göngustígur verði settur
meðfram bökkum lækjarins, bíla-
stæði verði jöfnuðog í þauborinmöl,
komið verði upp salernisaðstöðu
fyrir baðgesti og að lögreglan hafi
reglubundið eftirlit með svæðinu.
„Allar þessar tillögur okkar miða
að því að stuðla að almennri
heilsurækt og fegrun umhverfisins,”
sagði Kristján Pétursson. „Og
auðvitað gerum við ráð fyrir að
frekari skipulagningu svæðisins til
útivistar verði haldið áfram.”
Aðrir úr hópi forsprakka
Samstöðu eru örlygur Hálfdánarson,
Sigurbjörn Á. Friðriksson, Þór Þ.
Þorgrímsson, Arndís Guðnadóttir,
Grímur E. Guttormsson, Sigriður
Ólafsdóttir, Gerður Pálmadóttir og
Rut Ragnarsdóttir.
Undirskriftalistar liggja frammi i
móttöku Loftleiðahótelsins og víðar.
-ÓV.
Kátir krakkar á góðum sumardegi I heita læknum 1 Nauthólsvlk.
. >
I
-DB-mynd: Ragnar Th.