Dagblaðið - 18.02.1981, Page 28
Verða aurarnir saf ngripir í árslok?
RIKIOG SVEITARFELOG
HUNDSA NÝJU AURANA
þætti ekki gott ef einkafyrirtæki gerðu þetta, segir aðstoðarbankastjóri
Seðlabankans — hið opinbera sniðgengur aurana vegna lagaheimildar
„Það er tvenns lags kerfi í gangi
varðandi nýju myntina,” sagði
starfsmaður tölvufyrirtækis eins í
samtali við DB. „Almenningur notar
krónur og aura jöfnum höndum, en
riki og sveitarfélög hundsa aurana.
Frá okkur fékk ríkið skilauppgjör,
þar sem allt var reiknað út í krónum
og aurum, en við fengum það aftur í
hausinn og verðum að standa skil á
heilum krónum i okkar uppgjöri.
Lög heimila hinu opinbera þetta og
virðist það benda til þess að aurar eigi
að verða safngripir í árslok. Ymis
fyrirtæki þurftu að leggja i umtals-
verðan kostnað við breytingar á vél-
um, þegar upp var tekin nýja myntin
með krónum og aurum um áramót.
Það er þvi hart að hið opinbera skuli
ganga fyrir og neita að nota aurana.
Spurningin er því sú, hver borgi þessa
breytingu á tækjum og hvort gjald-
miðilsskiptin hafi heppnazt eins full-
komlega og af er látið vegna þessara
neitana hins opinbera.”
„Það fóru í gegn lög á Alþingi um
miðjan desember, þannig að notkun
aura nær ekki til reikninga sem hið
opinbera kaupir,” sagði Björn
Tryggvason, aðstoðarbankastjóri
Seðlabankans í gaér. „Þetta er ekki
gott og þætti ekki gott ef einkafyrir-
tæki gerðu þetta. Bankar reikna hins
vegar alveg niður í einn eyri. Það
komu upp deilur vegna fyrirfram-
greiðslna á sköttum. Það er laga-
heimild fyrir því að fá upphæðir þar
afrúnnaðar í heilar krónur. Það er
hins vegar engin lagaheimild fyrir
slíku í öðrum viðskiptum hins opin-
bera.
Almenningur tileinkaði sér gjald-
miðilsbreytinguna mjög fljótt og vel.
Það er til marks um það, að ekki
hefur komið upp eitt einasta mál með
misferli tékka vegna breytingarinnar.
Það er því ekki gott að hið opinbera
gangi fyrir og neiti að nota aurana,
þótt ekki sé mikið við því að gera,”
sagði Björn Tryggvason.
-JH.
Tjónifl af völdum fárviðrisins, sem gekk yfir I fyrrak völd OR fyrrinótt er ylfurleyt oy
Ijóst að tjónið nemur milljörðum ykr. Unnið er að viðycrðum oy að hreinsa til oy á
myndunum má sjá fjölda manna taka til hendinni í yróðrarstöðinni Siytúni i Reykja-
vik. en húsiðfór illa i veðrinu og miklar skemmdir urðu á vörum. Gróðurhús fóru illa
viða sunnanlands oy uppskera eyðilagðist.
DB-myndir Einar Ólason.
Tjónið af völdum fárviðrisins nemur
milljörðum gkr.:
UTVEGA VERÐ-
UR BJARG-
RÁÐASJÓÐIFÉ
— eða breyta lögum um viðlagatryggingu
Bjargráðasjóður óskar eftir þvf að
félagsmáiaráðherra taki málið þegarfyrir
Bjargráðasjóður er tómur eins og
fram kom I DB I gær. Þessi sjóður kom
tjónþolum óveðursins í september 1973
til hjálpar og þvi spyrja menn hvort
svipaður háttur v'erði nú á, þar sem við-
lagatrygging nær ekki til tjóns af völd-
um óveðurs.
Stjórn Bjargráðasjóðs kom saman til
fundar i gær. Þar kom fram að tjón af
völdum óveðursins í fyrrakvöld og
fyrrinótt næmi milljörðum gamalla
króna. Sýnt þætti að grípa yrði til sér-
stakra ráðstafana til að mæta því tjóni
sem nú hefur orðið. Því mælist stjórn
Bjargráðasjóðs til að félagsmálaráð-
herra taki þetta til sérstakrar meðferö-
ar.
Stjórnin bendir á í þessu sambandi
hvort ekki sé eðlilegt að lögum um við-
lagatryggingu verði breytt á þá lund að
hún taki að sér bótagreiðslur vegna
þessara tjóna. Þyki það ekki fært, er
einsýnt að útvega verði Bjargráðasjóði
sérstakt fjármagn til þessa verkefnis og
hraða afgreiðslunni eins og unnt er
þannig að svara megi tjónþolum hvers
þeir megi vænta.
-JH.
Srfálst, nháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 18. FEB. 1981.
Flugskýlin:
Fundurf
utanríkis-
málanefnd
—Framsókn styðurólaf
Fundur var boðaður kl. 9 i morgun í
utanríkismálanefnd og er talið að
Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra
mundi þar gefa skýrslu um flugskýla-
málið.
Bygging „sprengjuheldra” flugskýla
fyrir Phantom-þotur verði innan þess
ramma, sem framkvæmdir hersins á
Keflavíkurflugvelli hafa verið i árum
saman. Þetta var mál þingmanna
Framsóknar á þingflokksfundi í fyrra-
dag, þar sem flugskýlin bar á góma.
Þingmenn sögðu eftir fundinn, að
framkvæmdir hersins hefðu á hverju
ári verið fyrir 15—20 milljónir dollara,
eða innan við 130 milljónir nýkróna.
Þótt umrædd flugskýli yrðu reist,
yrðu framkvæmdir í heild fyrir svipaða
fjárhæð. -HH.
Ríkissáttasemjari:
„Allt í áttina”
— gangur f sjómanna-
samningumog fundað
með vélstjórum f dag
„Þetta er farið að ganga,” sagði
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemj-
ari í morgun um gang viðræðna báta-
og togarasjómanna og viðsemjenda
þeirra. „Menn voru svo uppteknir af
fiskverðinu að skriður komst ekki á
viðræður fyrr en í gær. Þótt hægt hafi
gengið er þetta allt í áttina núna.”
Fundur með undirmönnum á far-
skipum stóð í gær og hófst aftur í
morgun kl. 10. Þá hafa flugvirkjar og
flugvélstjórar einnig verið boðaðir til
fundar. Vélstjórar í ríkisverksmiðjun-
um koma saman tii fundar hjá sátta-
semjara kl. 16 í dag eftir hlé sem hefur
verið í þeim viðræðum. Sem kunnugt
er hefur verkfall vélstjóranna stöðvað
framleiðslu Áburðarverksmiðjunnar í
Gufunesi og sementsverksmiðjunnar á
Akranesi. -JH.
Heimsmeistaraeinvfgið
fskák:
Keppendur
íhuga tilboðin
-hæstogjöfn boðls-
lendinga og Spánverja
ísland og Spánn höfðu hæstu til-
boðin í heimsmeistaraeinvígið í skák, er
tilboðin voru opnuð í aðalstöðvum
FIDE í Amsterdam í fyrradag. Bæði
löndin buðu 1 milljón svissneskra
franka. Þriðja tilboðið kom frá Ítalíu
að upphæð 800 þúsund svissneskra
franka.
Það kemur í hlut keppenda í einvíg-
inu að taka ákvörðun um hvar keppt
verður og hvenær. Hafa þeir tvær
vikur til að taka ákvörðun. Verði þeir
ekki sammála kemur málið til kasta
FIDE.
fsland setti sem skilyrði að keppt
yrði i júlíbyrjun og yrði Þjóðleikhúsið
notað sem keppnisstaður. Spánverjar
buðu upp á Las Palmas á Kanaríeyjum.
Stuðningur þriggja ráðherra, þeirra
Ragnars Arnalds, Ingvars Gíslasonar
og Steingrims Hermannssonar, liggur
fyrir í þessu máli. - ELA
Fóstrurnarneita
Fóstrur I Kópavogi samþykktu ein-
'róma að ganga ekki að tilboði bæjar-
ins. Tilboðið fól í sér sem svarar eins
launaflokks hækkun í formi aukinna
yftrvinnugreiðslna án aukinnar vinnu.
Á fundi í félagi fóstra á mánudags-
kvöldið var hins vegar samþykkt að
þetta nægði ekki og ef bærinn býður
ekki betur ganga fóstrurnar út á föstu-
dag. -DS.