Dagblaðið - 25.02.1981, Page 1
7. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRUAR 1981 - 47. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMl 27022.
^ ~ z
Vinnuslys íStraumsvík:
Féll i980 stiga heitt
m og skaðbrenndist
—aldreihægtað komaalvegívegfyrirslysin, segiröryggisfulltrúiálversins
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands
steig um borð í Boeirigþotu Flugleiða f
hríðarfjúki og frostbitru um hálfátta
leytið í morgun er hún lagði upp í opin-
bera heimsókn til ríkis Margrétar Þór-
hildar. Danadrottning átti að taka á
móti henni stundvíslega kl. 10.30 að ís-
lenzkum tíma á Kastrupflugvelli, en út-
lit var fyrir að þotunni myndi seinka
eitthvað vegna sterks mótvinds á leið-
inni. í kvöld heldur drottning forsetan-
um mikla veizlu í Kristjánsborgarhöll
og geta íslenzkir útvarpshlustendur
setzt við tækin sín með kvöldinu og
hlýtt á ræðuhöld.
Meö Vigdísi fóru utan í morgun
Ólafur Jóhanriesson utanríkisráðherra
og frú Dóra Guðbjartsdóttir, Hörður
Helgason ráðuneytisstjóri og frú Sara,
Birgir Möller forsetaritari og frúGunn-
illa, og Vigdís Bjarnadóttir fulltrúi á
skrifstofu forseta.
Þá fóru utan Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir söngkona og Gísli Magnússon
píanóleikari, en forsetinn ætlar að tefla
þeim fram í veizlu sem hann heldur á
föstudagskvöldið. Einnig sáust þeir
skjótast um borð Ágúst Guðmundsson
og Jón Hermannsson, t/eir þriðju eig-
enda ísfilm, en myndin þeirra, Land og
synir verður frumsýnd í Kaupmanna-
höfn að Vigdísi Finnbogadóttur við-
staddri. Indriði G. Þorsteinssön, þriðji
fsfilmmaðurinn, verður líka viðstaddur
frumsýninguna.
Lögreglumenn stóðu heiðursvörð við
landgang þotunnar í morgun. Þar voru
einnig mættir handhafar forsetavalds
til að kveðja Vigdísi, forsætisráðherra,
forseti sameinaðs Alþingis og forseti
Hæstaréttar. Og þar voru ljka Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða og Sveinn
Sæmundsson blaðafulltrúi.
-ARH.
Akrópólis stóðst jarðskjálftann
— er fjöidi hiísa í Aþenu skemmdist
— sjá erl. fréttir bls. 6-7
Tæplega fimmtugur maður liggur
nú á brunadeild Landspítaians eftir
að hafa skaðbrennzt við vinnu í ál-
verinu í Straumsvík í fyrrinótt. Mað-
urinn var að taka álsýni úr einu ker-
inu, er hann með ókunnum hætti féll
með annan fótinn í 980 stiga heitt ál-
ið. Maðurinn skaðbrenndist upp á
læri á öðrum fæti og eitthvað á ann-
arri hendi. Hann er ekki talinn í lífs-
hættu og líðan hans var eftir atvikum
góð i gærkvöld.
Enginn var nærstaddur er slysið
varð, þannig að engin vitni eru að
legt hvernig slysið hefur orðið. Einu
sinni áður hefur sams konar slys
orðið í álverinu. Þá steig maður upp
á rafskaut, skrikaði fótur og féll í
kerið.
„Það er ekki nokkur leið að koma
í veg fyrir að svona slys verði,” sagði
Hlöðver. „Starfsmennirnir verða að
sýna varkárni við störf sín. Ég er ekki
að segja að þessi maður hafi sýnt
óvarkárni, hann hefur starfað hér
lengi, en slysin gera ekki boð á undan
sér,” sagði Hlöðver Kristjánsson,
öryggisfulltrúi í álverinu. -ELA.
hvernig það vildi til. Einn starfsmað-
urinn heyrði kallað á hjálp og hljóp
hann þá þegar til hjálpar. Lögregla
og vinnueftirlit voru þá þegar kölluð
á staðinn.
Að sögn Hlöðvers Kristjánssonar
öryggisfulltrúa í álverinu er óskiljan-
Menningar-
verðlaun DB
veitt i dag
•ktíd.
í hádeginu í dag var tilkynnt
hvaða listamenn hljóta Menningar-
verðlaun DB í ár. Eru það Þorsteinn
frá Hamri rithöfundur fyrir bók sína
Haust í Skírisskógi (Helgafell),
Oddur Björnsson leikritahöfundur
fyrir leikstjórn sína á Beðið eftir
Godot sem Leikfélag Akureyrar setti
upp, Jón Asgeirsson tónskáld fyrir
tónlist sína við ballettinn Blindisleik
sem fluttur var í Þjóðleikhúsinu,
Sigurjón Ólafsson myndhöggvari
fyrir framlag sitt til myndlistar á
síðasta ári, Telknistofa Sambandsins
og arkitektarnir Gunnar Guflnason
og Hákon Hertervig fyrir byggingu
Osta- og Smjörsölunnar á Bitruhálsi
og Sigurður Sverrir Pálsson kvik-
myndagerðarmaður fyrir kvik-
myndatöku í Laridi og sonum.
Þetta er í þriðja sinn sem þessi
Mgurlön ÖMsson, Stgurður tvsntr
myndhöggvari. Pétsson, kvkmynda-
garflarmaflur.
Oddur BJflmmon, ÞorsUinn frá Hamri,
laikskáld. ríthflfundur.
Menningarverðlaun eru veitt og i
fyrsta sinn sem íslenzk kvikmynda-
gerð er inni í dæminu. f fyrra hlutu
verðlaunin Sigurður A. Magnússon
rithöfundur, Kjartan Ragnarsson
leikari og leikritaskáld, Helga
Ingólfsdóttir semballeikari og
Manuela Wiesler flautuleikari,
Ríkharður Valtingojer grafiklista-
maður, Manfreð Vilhjálmsson og
Þorvaldur S. Þorvaldsson.
Verðlaunagripirnir eru veggskildir
úr postulíni sem Kolbrún Björgólfs-
dóttir keramikhönnuður hefur gert
fyrir DB og dómnefndir skipuðu
gagnrýnendur DB, fræðimenn og
menningaráhugafólk af öðrum
blöðum. Voru verðlaunin afhent við
sérstakan málsverð f Þingholti, Hótel
Holti.
-ÓV.
Vigdls Finnbogadóttir heilsar áhöfn Boeingþotu FiuRÍeiöa á KejiavikurfluKveili i mornun þenar hún lagði upp i Danmerkur-
fiirina. DB-mvnd: Sip. Þorri.
VIGDÍS Á FUND MAR-
GRÉTAR ÞÓRHILDAR