Dagblaðið - 25.02.1981, Qupperneq 2
Atkvæða-
greiðsla
fari f ram
bjórinn
Gufljón Bogason skrifar:
Ég er sammála hverju orði sem
Einar Sigurðsson skrifar i DB þann
18. febrúar sl. Það er vitað mál að
þúsundir íslendinga eru fylgjandi
bjórnum. Mig langar til að víkja að
þætti alþingis i þessu máii, hvernig
stendur á því að þar nær ekki fram að
ganga atkvæðagreiðsla um frumvarp
eins og bjórfrumvarpið.
Er það svo tímafrekt að greiða at-
kvæði um hvort leyfa á bjórinn eða
ekki. Andvígir segðu bara nei, fylgj-
andijá.
Fyrst bjórinn er bannaður á það
engan rétt á sér að hér sé samt fram-
leiddur Polar Beer sem er aöeins ætl-
aðurtil útflutnings.
Verði bjórinn leyfður er ég á móti
þvi að hann verði seldur í almennum
búðum, það er nóg aö selja hann i
áfengisverzlunum og á vínveitinga-
stöðum.
Sumar víntegundir fást ekki alltaf í
ríkinu, seljast upp eins og gengur,
bjórinn yröi bara eins og venjuieg
léttvínstegund, hann myndi ekki
auka áfengismagnið i landinu mikiö.
Aö lokum. Þingmenn, greiðið at-
kvæði um bjórinn í eitt skipti fyrir
öll. Hvað þurfa margir að fara fram
á það við ykkur?
Polar Beer sem er framleiddur hér á
landl.
Raddir
lesenda
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981.
Bréfritari telur að ihaldið muni launa Ölafi Jóhannessyni frammistöðu hans i flugskýlamálinu með þvi að gera hann að heiðursfélaga f flokksbroti Geirs Hallgrímssonar.
—Ólafur Jóhannesson verði
heiðursfélagi fflokksbroti
Geirs Hallgrímssonar
4969—6299 skrifar:
Fyrirhuguð bygging á sprengju-
heldum flugskýlum á vegum hersins á
Miðnesheiði hefur valdið talsverðu
fjaðrafoki. f vikunni sem leið var
rætt um mál þetta i fréttatíma út-
varpsins þar sem fjórir pólitík usar
sátu fyrir svörum, þ.á m. Ólafur ut-
anríkisráðherra og Karl Steinar
krati. Ólafur kvað það ekkert skrítið
þó „varnarliðið” vildi ekki hafa flug-
vélar sínar úti I óveðrum, en gaf hins
vegar ekki á því neina skýringu hvers
vegna skýlin þyrftu að vera sprengju-
heldríf Ólafur og vinir hans westra
spá slíkum ofsaveðrum í framtíðinni
að ekki dugi gegn þeim annað en
sprengjuheld flugskýli þá þyrftu vís-
ast fleiri byggingar hér á landi að vera
sprengjuheldar.
Kratinn hafði það helzt til málanna
að leggja að hann vonaði til Guðs að
Ólafur léti ekki turnast i þessu þjóð-
þrifamáli þó villutrúarmenn sæktu
fast að honum og vildu skýlishug-
myndina feiga.
í kosningabaráttunni 1978gumuðu
kratar mjög af því að þeir væru nýir
menn I nýjum flokki, með nýja
stefnu og nýjar hugmyndir, o.s.frv.
Þeir hafa vafalaust ekki verið margir
kjósendurnir 1978, sem bauð I grun
að í þessum nýjungum kratanna fæl-
ust áætlanir um fyrirbænir og sízt
af öllu að krafar færu að taka upp á
því að biðja fyrir Ólafi Jóhannessyni.
En sem sagt. Fyrsti liður hinnar nýju
stefnu hefur séð dagsins ljós, og var
sannarlega mál til komið. Það verður
gaman að heyra þegar Vilmundur
Gylfason fer að biðja fyrir Ólafi vini
sínum. Vonandi er Ólafur það vel
sprengjuheldur I þjónustunni við
hernaðarpótintáta vestanhafs að
honum verði ekki bumbult af fyrir-
bænum kratanna.
Ekki liggur ljóst fyrir ennþá með
hvaða hætti íhaldsmenn ætla að
styðja við bakið á Ólafi í flugskýla-
málinu. Trúlega þykir þeim lítt frum-
legt að feta í bænaslóð kratanna og er
þetta svo sem ekki í fyrsta sinn sem
kratar stela senunni frá íhaldinu.
Talið er líklegast að íhaldið fari þá
leið að gera Ólaf að heiðursfélaga í
flokksbroti Geirs Hallgrímssonar og
væri Ólafur vel að þeirri umbun
kominn, og það þó fyrr hefði verið.
FRÆBBBLARNIR
—valda ekki eymaskemmdum
Garri skrifar:
Alfreö S. Böðvarsson skrifaði i DB
þann 18. febrúar sl. og gagnrýndi
Skonrokkið harðlega. Ég er honum
sammála á sumum sviðum, en ekki
öllunt
Hvað kallar Alfreð nýbylgju I
lægsta klassa? Varla trúi ég því að
hann sé að meina Madness eða B.A.
Robertsson. Við skulum vona ekki,
en ef svo er þætti mér fróðlegt að vita
hvað hánn kallar nýbylgju í hæsta
klassa.
Ég er sammála honum um þunga-
rokkara á borð við lron Maiden, þeir
eiga ekkert heima í þætti á borð við
Skonrokk. En hver veit nema einhver
,,fíli” þá.
Það er andskoti súrt að Skonrokk
skuli ganga ár eftir ár án þess að þar
komi fram íslenzkar hljómsveitir.
Alfreð segir að Fræbbblarnir séu
svo undirfurðulega ömurlegir að þeir
ættu ekki einu sinni að fá bilskúr
undir þessar eyrnaskemmdir. Ég vil
bara segja þér, Álfreð, að ef
Fræbbblarnir valda þér eyrna-
skemmdum þá skalt þú bara ekkert
vera að hlusta á þá, þeim er örugg-
lega alveg sama.
Garri er einn af aðdáendum Fræbbblanna.
Bréfritari vill sjá aftur jassþátt með
triói Guðmundar Ingólfssonar sem
sýndur var 10. ágúst sl.
Sjónvarp:
Endursýnið
jassþátt
— með tríói Guðmundar
Ingólfssonar
Jassisti hringdi:
Mig langar til að biðja DB að
koma á framfæri fyrir mig ósk þess
efnis að sjónvarpið sýni aftur Jass-
þátt Guðmundar Ingólfssonar sem
sýndur var 10. ágústsl.
Þetta var alveg frábær þáttur og
var hann jasstónlist og sérstaklega ís-
lenzkri j asstónlist til sóma.
Sérstakur gestur þáttarins var Árni
Scheving vibrafónleikari og var
hann ásamt tríói Guðmundar Ing-
ólfssonar alveg frábær. Vinsamlegast
endursýnið þennan þátt sem fyrst.