Dagblaðið - 25.02.1981, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
9
1
REUTER
D
Haigtil
Miðaustur-
landa
Alexander Haig, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, segist hafa í hyggju að
fara í heimsókn til Miðausturlanda
innan skamms til friðarviðræðna.
Hann lýsti þessu yfir eftir að Ronald
Reagan forseti hafði átt hálftíma fund
með utanríkisráðherra ísraels, Yitzhak
Shamir.
Reagan vill
ræða um El
Salvador við
Brezhnev
Ronald Reagan hefur lýst áhuga
sinum á að hitta Leonid Brezhnev for-
seta Sovétríkjanna að máli og þar með
tekið undir ósk Brezhnevs þessa efnis.
Reagan kveðst mundu nota slíkt
tækifæri til að ræða málefni eins og
afvopnunarmál og E1 Salvador. Hann
sagði að slíkan fund yrði að undirbúa
vel og áður yrðu forystumenn vest-
rænna ríkja að ræðast við. Hann
kvaðst mundu ræða þetta mál á fundi
sem hann á síðar í vikunni með
Margareth Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands.
Kania segist
ráða við
vandamálin
Leiðtogar kommúnistaflokka
Tékkóslóvakíu og Ungverjalands
gagnrýndu vestræn ríki á þingi sovézka "
kommúnistaflokksins í gær fyrir af-
stöðu þeirra til þróunar mála í
Póllandi.
Stanislaw Kania, leiðtogi pólska
kommúnistaflokksins, fullvissaði þing-
fulltrúa um að flokkur hans mundi
reynast fær um að ráða fram úr vanda-
málum þeim sem Pólverjar hefðu átt
við að glima.
Níu fórust í
flugslysi
Að minnsta kosti níu manns létu
lífið er lítil farþegaflugvél hrapaði
skammt fyrir utan borgina Belem í
norðurhluta Brasilíu í nótt. Tveggja
manna var saknað en þrir komust af og
voru fluttir á sjúkrahús. Báðir flug-
mennirnir fórust.
Erlendar
fréttir
Öflugur jarðskjálfti f Grikklandi:
Akrópólis stóðst
jarðskjálftann en
fjöldi húsa hrundi
—að minnsta kosti átta manns létu lífið
Að minnsta kosti átta manns létu
lífið í öflugum jarðskjálfta sem varð í
Grikklandi í gærkvöldi og olli miklu
tjóni í borginni Kórintu og mikilli'
ringulreið í höfuðborginni Aþenu.
Fimm manns í viðbót var saknað
af hóteli í Vrakhati skammt frá
Kórintu en það hrundi í jarðskjálft-
anum. !
Kórintuborg varð verst úti. Þar
særðust að minnsta kosti fjörutiu
manns og meira en 200 hús
skemmdust. Af þeim sem létust fóru
fjórir úr hjartaslagi, einn er hann
stökk út um glugga og þrir fengu
steina í höfuðið.
í Aþenuborg, sem fram til þessa
hefur verið talin standa á svæði þar
sem jarðskjálfta væri tæpast að
vænta, urðu skemmdir á hundruðum
húsa. Þúsundir manna flýðu út úr
borginni í skelfingu og fjölmargir
höfðust við á bersvæði í nótt.
Þrátt fyrir skemmdirnar á Aþenu
stóðst hið 2500 ára gamla Akrópólis
jarðskjálftann svo og aðrar fornar
minjar. Jarðskjálftinn mældist
Richterskvarða.
6,6 á
Þrátt fyrir að skemmdir yrðu á tjölmörgum húsum i Aþenu. sá ekki á hinu
ára gamla Akrópólis né öðrum fornminjum.
2500
Framkvæmdum við
Alta fram haidið
Frá Sigurjóni Jóhannssyni
fréttaritara DB í Osló:
Framkvæmdum við Altavirkjun
verður haldið áfram. Sú varð niður-
staða ríkisstjórnarfundar í Osló í
fyrradag. En ríkisstjórnin verður
samt að taka tillit til kröfunnar um
skráningu og varðveizlu forn- eða
menningarminja á svæðinu. Þá
verður og að endurskoða fyrirhugað
vegarstæði.
Rolf Hansen umhverfismála-
ráðherra fundaði í gær með fulltrú-
um frá Tromsösafni og fulltrúum
virkjunar- og raforkustofnana. Gert
er ráð fyrir að framkvæmdaröð
breytist við þetta, en samt verður
leitazt við að halda óbreyttum fram-
kvæmdahraða.
Þeir samar sem eru í hungur
verkfalli i Svíþjóð telja þessa
tilslökun af hálfu ríkisstjórnarinnar
ekki nægilegt skref og munu því
halda áfram hungurverkfalli.
Leiðtogi þjóðarsamtaka gegn
Altavirkjun, Alfred Nilsen, telur
afstöðu ríkisstjórnarinnar óskýra en
vonast samt til þess að framkvæmd-
um verði hagað þannig að samtökin
þurfi ekki að grípa til frekari mót-
mælaaðgerða á Altasvæðinu.
Gro Harlem Brundtland forsætis-
ráðherra hafði vonazt til að and-
stæðingar virkjunarinnar tækju nú
málalyktum með ró og skynsemi.
„Við höfum áhyggjur af hinum svelt-
andi sömum en við getum ekki látið
stjórnast af slíkum mótmæla-
aðgerðum,” sagði hún.
„Við höfum áhyggjur af hinum sveltandi
sömum,” segir Gro Harlem Brundtland.
|j0ttéur
.. frátgmw meh
teituUpi Sbaninnj
ftijö qeUtnáræ&ruleitil
KIRRKtll(^é)regtaPv ,
seméggttbrej/it °^'/T!
ill þex áðgreinoþcránMly
(BafcHlT-rt)
verð með fo1
«6f,énVkr.98.-.8to-9-800--
Sendum
í póstkröfu.
UR OG SKARTGRIPIR
JÓN OG ÓSKAR
LAUGAVEGI70. SÍMI24910.
TOYOTA-
SALURINN
SÍMI44144
Nýbýlavogi 8 !i portínu)
OpU laugardaga kl. 13—17
Toyota Cressida statíon 78, sjilf-
skiptur. Utur grænn. Ekinn
23.000km. VerO 83.000,-
Stariet ■80. Ekinn 13.000. Litur
btórsans. 1ferð 75.000. Bein sató.
*
Scout Jeppi, '89, 6 cyl. Litur
hvhur/rauOur. VerO 18.000. Skipti
möguleg.
Honttó Civic statíon érg. '78.
Ekinn 25.000, 1500 cc vól. Litur
hv'rtur. Verð 64.000.
Toyota Coroltó ke-30 statíon 78.
Ekinn 53.000. Lrtur brúnn sans.
Verð 57.000. Beinsató.
Ford Granada 78, 6 cyl. Litur
svartur. Ekinn aðeins 59.000 km.
Verð 59.000. £kipti möguleg ótd.
Toyota Cressktó.
Toyota Cressktó statíon 78. L 'rtur
biér sans. Ekinn 51.000. Verð
73.000. ITransistorkveikjaJ.
Toyota Coroltó ke-30 78. Ekinn
40.000. Litur brúnn sans. Verð
55.000. Bein sató.
Toyota Cressktó statíon 80. Litur
gull sans. Ekinn 21.000. Verð
116.000. Bein sató.
Toyota Coroltó ke-30 79. Litur
gulur. Ekinn 16.000. Verð 65.000.