Dagblaðið - 25.02.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR25. FEBRÚAR 1981.
Ráðherramir hvorki viðurkenndu né höf nuðu tilvist leynisamnings:
Leynisamningur stjómar-
flokkanna um utanríkismál
—sem sviptir utanríkisráðherra því valdi er því embætti hef ur alltaf f ylgt?
Því var hvorki neitað né það viður-
kennt á Alþingi í gær að til gæti verið
leynisamningur milli stjórnarflokkanna
utan við stjórnarsáttmálann sjálfan.
Geir Hallgrímsson hóf umræður um
þetta mál og yfirlýsing Gunnars Thor-
oddsen forsætisráðherra sem svar við
'spurningum Geirs hljóðaði svo:
• „Frá því er ríkisstjórnin var mynduð
hefur hún kostað kapps um að eiga sem
bezt samstarf í öllum greinum. Hún
leitast við að ná samkomulagi um þau
mál þar sem skoðanir eru skiptar og
menn kann að greina á. Það hefur vel
tekizt á því röska ári sem stjórnin
hefur starfað, og það eru engin teikn á
lofti um að þar verði breyting á veður-
fari.
Um vinnubrögð og vinnulag innan
ríkisstjórnarinnar við afgreiðslu mála
tel ég ekki ástæðu til að ræða hér
frekar.”
Ummæli
sem stangast á
Geir Hallgrímsson kvað tilefni
spurningar sinnar um tilvist leynisamn-
ings vera að málsvarar Alþýðubanda-
lagsins teldu að utanríkisráðherra gæti
ekki, eins og venjan hefur verið, leyft á
eigin spýtur t.d. byggingu þriggja flug-
skýla og um slík og þvílík mál yrði öll
ríkisstjórnin að fjalla.
Vitnaði Geir í ummæli ýmissa ráð-
herra og ráðamanna í fjölmiðlum m.a.
orð Steingríms Hermannssonar að ekki
væri til samkomulag til hliðar við
stjórnarsáttmálann um þessi mál. Þá
hefði Svavar Gestsson sagt i viðtali við
Þjóðviljann að ,,lögð hefði verið á það
áherzla milli stjórnaraðila, að viðhafa
þær reglur um vinnubrögð í stjórninni
að allir stjórnarflokkarnir fjölluðu um
öll meiriháttar mál.” „Ef þetta er rétt,
þáer leynisamningur til,” sagði Geir.
Geir lagði tvær spurningar fyrir
flokksformennina tvo og forsætisráð-
herra.
1. Var gert samkomulag við
myndun stjórnarinnar um að fram-
kvæmdir á Keflavíkurflugvelli yrðu
ekki leyfðar nema með samþykki allra
stjórnarflokkanna?
2. Eru til þær reglur sem ákveða að
ríkisstjórnin taki ekki ákvörðun í mikil-
vægum málum nema allir samþykki?
Gunnar Thoroddsen kvað stjórnar-
sáttmálann á einum stað nefna sam-
þykki allrar ríkisstjórnarinnar. Væri
það varðandi endurskoðun á áætlunum
um byggingu flugstöðvar í Keflavík.
Síðan flutti hann yfirlýsinguna sem
að framan greinir.
Svavar Gestsson og Steingrímur Her-
mannsson vísuðu báðir til svars for-
sætisráðherra og kváðust ekki hafa
neinu við það að bæta. Hlógu þing-
menn að því að Gunnar Thoroddsen
gæfi yfírlýsir.gar á Alþingi fyrir
Alþýðubandalagið og Framsókn.
Neitunarvald
Alþýðubandalags
Benedikt Gröndal (A) kvað hér um
veigamikla spurningu að ræða og þing-
maður ætti heimtingu á svari um svo
mikilsvert atriði sem það, hvort til væri
samningur um að flokkur sem nyti inn-
an við 20% atkvæðafylgis i landinu
hefði með samningamakki náð aðstöðu
til neitunarvalds í utanríkismálum.
Spurningin væri um það, hvort utan-
ríkisráðherra hefði í raun verið sviptur
því ákvörðunarvaldi sem maður í því
embætti hefði ávallt haft.
Gunnar Thoroddsen lét í ljós undrun
að Geir og Benedikt þættust tala í nafni
þingheims. Þeir væru ekki fulltrúar
þingheims. Og út yfir tæki er þeir þætt-
ust tala í nafni þjóðarinnar. „Fjarri fer
að þeir séu fulltrúar íslenzku þjóðar-
innar,” sagði Gunnar. „Tilgangur
þeirra er ekki að afla sér upplýsinga,
heldur að vekja sundrung í ríkisstjórn-
inni.”
Þegar Sighvatur Björgvinsson hafði
talað og Steingrimur Hermannsson
aftur, frestaði forseti umræðum gegn
mótmælum.
- A.Sl.
Unnur Ágústsdóttir afhendir 1. þingmanni Reykvíkinga, Geir Hallgrlmssyni, bréfið. Margir þingmanna Reykvíkinga hlýddu
á ávarpsorð hennar. Að baki má sjá hluta kvennanna sem fylltu anddyri Alþingishússins.
DB-mynd Sig. Þorri.
Fulltrúar Bandalags kvenna fylltu Alþingishúsið:
„HLÍFIÐ GAMLA FÓLKINU VIÐ
SKREFATALNINGUNNI”
—sagði formaður bandalagsins íávarpi til þingmanna
Reykjavíkur
Anddyri Alþingishússins fylltist af
virðulegum konum í gær um það leyti
sem hringt var til fundar í sameinuðu
þingi. Þarna voru á ferð stjórn og full-
trúar á þingi Bandalags kvenna sem
setið hafa á ráðstefnu undanfarna daga
að Sögu.
,,Við erum fulltrúar 14 þúsund
kvenna um land allt,” sagði Unnur Ág-
ústsdóttir formaður bandalagsins er
hún steig upp i forstofustigann og
talaði til margra þingmanna Reykvík-
inga sem þar höfðu beðið komu kvenn-
anna. „Við þingum eins og þið og
ræðum aragrúa mála og höfum starfs-
nefndir í öllum málum milli þinga.
Ein af þeim ályktunum sem við
höfum gert beinist til stjórnenda Pósts
og síma og þar er farið fram á að verði
skrefatalning sett á simtöl á Reykja-
víkursvæðinu þá verði lífeyris-, ellilíf-
eyrisþegum og öryrkjum veitt undan-
þága frá talningunni.
Og við biðjum þingmenn Reykja-
víkur að gæta hagsmuna okkar þegar
og ef málið verður tekið fyrir á Al-
þingi,” sagði Unnur.
Unnur sagði þingmönnunum frá því
að síminn væri í mörgum tilfellum eina
sambandið sem gamla fólkið og öryrkj-
arnir hefðu við umheiminn. Þeir gætu
ekki hringt öll sín símtöl eftir klukkan
tíu og skrefatalning á síma þeirra yrði
mörgum þeirra fjárhagslega um megn,
eða þá lokaði þessu eina sambandi
þeirra við umheiminn. ,,Bezt væri að
skrefatalningin kæmi alls ekki á en
þurfi hún að koma, hlífið þá gamla
fólkinu og öryrkjunum,” sagði Unnur.
Unnur afhenti síðan öllum þing-
mönnum Reykjavíkur bréf með álykt-
un kvennaþingsins og bað þá liðsinnis í
málinu.
Geir Hallgrímsson ávarpaði kon-
urnar og þakkaði þeim heimsóknina.
Lofaði hann þeirri aðstoð í málinu sem
unnt yrði að veita. Ákvörðun uin
skrefatalningu væri ráðuneytisákvörð-
un samgönguráðherra og póst- og
símamálastjóra. „En við munum sam-
eiginlega íhuga hvernig við getum sinnt
þessari beiðni ykkar,” sagði Geir.
- A.St.
STÆKKARI
FRAMKALLIÐ
OG STÆKKIÐ í
LIT MEÐ
BESELER 67CP
Höfum fengiö mikiö úrval af stækkunar-
og framköllunarvörum frá Beseler:
• Bese/er 67 CP stækkarí.
• Dicro 67 /ithaus.
• PM1L Analyser.
• FramköUunartankar.
• Rafdríf fyrir framköiiunartanka.
• Litfilterar fyrir stækkara.
• Beseler color calculator.
• Beseler framköllunarefni, bæði fyrir
negativar og pósitivar fiimur.