Dagblaðið - 25.02.1981, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRUAR 1981.
Hengdir og
síðan jarðaðir
Félagar vorir á Vísi ætla ekki að
gera það endasleppt í máli Þórshafn-
artogarans margfræga.
Fyrr í vetur komst blaðamaður
Vísis að þeirri spaklegu niðurstöðu
að ekki væri bætandi á togaraflota
landsmanna þar sem hann væri nú
þegar bundinn við bryggju 5
mánuði á ári!!!
Nú á siðustu dögum hefur allt
komizt á suðupunkt vegna þessa
máls, og auðvitað er ekki verið að slá
af í Vísi. Þar er spurt í fyrirsögn á út-
síðu sl. laugardag hvort hengja eigi
heimamenn og síðan sagt í texta undir
að allt bendi til þess að heimamenn
verði jarðaðir! ! !
VerzliðlKEA
Verið er að opna nýja verzlun með
húsgögn í Hagkaup. Þetta eru hús-
gögn frá IKEA. Þegar Hagkaup fer
að auglýsa upp þessa nýju verzlun
gæti auglýsingin hljómað dálítið
tvírætt eða „Verzlið IKEA, Hag-
kaup”.
Meira af
Hagkaupi
Þegar Hagkaup opnaði verzlun
sína á Akureyri uppgötvuðu heima-
menn skyndilega að vöruverð þurfti
ekki nauðsynlega að vera jafnhátt og
það hafði verið til þess tíma. Flestar
þær vörutegundir, sem Hagkaup
verzlaði með, lækkuðu. Áhrif þessa
,má sjá í nýlegri auglýsingu frá
verzluninni Cesar á Akureyri. Texti
hennar er á þessa leið:
Athugið. Gerið hagkaupin hjá
okkur. Það er ykkar hagur.
Hugðist klœða
þakið upp á nýtt
Sögum úr óveðrinu á dögunum
linnir ekki (reyndar mætti ætla að
aðeins eitt óveður hafi komið á
íslandi frá upphafi byggðar). Manni
nokkrum i raðhúsi í Breiðholtinu
varð litið út um glugga hjá sér á
mánudagskvöldið sæla. Sá hann þá
skæðadrífu af bárujárnsplötum
fljúga fram hjá glugga sínum og
komuþærofan að.
Maðurinn, sem er framkvæmda-
samur með afbrigðum, hugsaði með
sér að ekkert þýddi að reyna að
komast upp á þak á húsi sinu til að
bjarga þeim plötum sem eftir væru.
Hann var þvi snemma á ferðinni dag-
inn eftir, fór í bæinn og keypti
nægilega mikið af plötum til að
klæða þakið upp á nýtt. Síðan fékk
hann kunningja sinn til að hjálpa sér
viðaðnegla þærá.
En þegar þeir komu upp á þak
kom í ljós að þar var allt í sómanum.
Enginn einasta þakplata hafði svo
mikið sem losnað. Aftur á móti var á-
standið hjá nágrannanum, sem er
sjómaður, ekki sem bezt. Þaðan voru
flestar plötur foknar. Félagarnir tveir
drifu sig þess vegna bara upp á næsta
þak með járnplöturnar góðu og
löguðu þak sjómannsins.
fleira,
FOLK
ÁSGEIR
TÓMASSON
Grétar
fékk tvo bikara,
medalíur og flugu
—fyrir 26 punda lax úr Soginu
Gritar Ólafsson með bikarana, verðlaunapeningana og flugu þá sem Gull og
silfur veitti honum.
Verðlaunahafarnir sex sem voru heiðraðir á árshátlð Stanga veiðifélags Reykja-
vlkur. Einn bikar var ekki afhentur, Grlmsárflugubikarinn, þar eð sá sem hann
átti að fá lét ekki sjá sig.
Árshátið Stangaveiðifélagsins
tókst með ágætum. Súlnasalur Hótel
Sögu var þétt setinn fólki og var
margtskrafaðog skeggrætt. Að sjálf-
sögðu flugu veiðisögurnar manna á
meðal. Heiðurgestir á hátíðinni voru
Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra,
Aðalsteinn Guðjohnsen rafmagns-
veitustjóri, Víglundur Möller ritstjóri
Veiðimannsins, Þór Guðjónsson
veiðimálastjóri, Sigurjón Péturssön
forstjóri borgarstjórnar og Egill
Skúli Ingibergsson borgarstjóri.
Ekki einsdæmi
Margir munu eflaust velta þvi
fyrir sér hvort það sé ekki einsdæmi
að einn og sami maðurinn hljóti jafn-
mörg verðlaun og Grétar Ölafsson.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum
hefur þetta gerzt áður í sögu Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur. En afrekið
er merkilegt eigi að síður.
-GB/-ÁT-
Diabolus In Musica. Upphaflega áttu þau að fá plötuna Lifið I litum (þjóðsaga) I
hendur I október. Nú er búið að veiða þœr heilu úr sápulegi og útgáfudagurinn á-
kveðinn.
Plata Diabolusln
Musica að koma út
eftir miklar tafir
Tuttugu og sex punda lax úr
Soginu var sannkallaður happa-
dráttur fyrir Grétar Ólafsson stanga-
veiðimann. Á árshátíð Stangaveiði-
félags Reykjavíkur síðastliðið föstu-
dagskvöld tók Grétar við tveimur
bikurum, tveimur verðlauna-
peningum og dýrmætri flugu fyrir að
hafa landað þessum laxi.
Vesturstrandarbikarinn svonefnda
fékk Grétar fyrir að veiða
Aðalsteinn Guðjohnsen rafmagnsveitu-
stjóri flutti aðalrœðu kvöldsins á árs-
hátlð Stanga veiðifélagsins.
DB-myndir Gunnor Bender.
skipi til Reykjavíkur. En i óveðrinu
mikla í síðustu viku tók ekki betra
við. Þá kastaðist rennibekkur á gám-
inn sem plötusendingin var í og í
leiðinni velti hann sápubrúsa. Að
sjálfsögðu lentu plöturnar i sápunni.
í fyrstu héldum við að allt væri ónýtt,
en við nánari athugun kom í ljós að
nógu mikið er heilt af plötum til að
geta dreift í fyrstu umferð,” sagði
Sveinbjörn.
Diabolus In Musica gefur sjálft út
plötuna Lífið í litum. Platan var
hljóðrituð í Danmörku í fyrra. Fyrir-
tækið PM productions sá um gerð
hennar og réði síðan undirverktaka
til að skera hana og pressa.
Sveinbjörn sagði að búið væri að
prófa plötuna og pressun hennar
hefði heppnaztvel.
Auk Sveinbjarnar eru nú í
Diabolus In Musica þau Guðmundur
Thoroddsen, Jóna Dóra Óskars-
dóttir, Aagot Óskarsdóttir, Jóhanna
Þórhallsdóttir og Tómas Einarsson.
Þá leikur Steingrimur Guðmundsson
á trommur á plötunni og Kristján
Pétur Sigurðsson syngur þrjú lög á
henni.
-ÁT-
stærsta lax á frjálst agn á vatna-
svæðum Stangaveiðifélagsins. Sport-
valsbikarinn hlaut hann fyrir stærsta
flugulax á svæðum félagsins. Flugan
er ný verðlaun, sem verzlunin Gull og
silfur gefur þeim veiðimanni, sem
landar stærsta flugulaxinum. Hún er
að verðmæti um 3000 krónur.
Ætlunin er að fluga sem þessi verði
veitt árlega í framtiðinni.
Fleiri hlutu verðlaun á árshátíð
Stangaveiðifélagsins en Grétar Ólafs-
son. Hlíðagrillsbikarinn var veittur
fyrir stærsta flugulaxinn í Norðurá.
Þann bikar hlutu Halldór Þórðarson,
Steinar Petersen og Jónas Jónsson,
sem allir veiddu sautján punda fisk.
Sportstyttan er veitt þeirri konu
sem veiðir stærsta laxinn á vatna-
svæðum Stangaveiðifélagsins. Að
þessu sinni hlutu tvær konur verð-
launin, þær Magdalena Sigurðar-
dóttir og Sigríður Valdimarsdóttir.
Báðar veiddu þær fjórtán punda lax í
Norðurá. Þá var í fyrsta skipti veittur
Útilifsbikarinn. Karl Ómar Jónsson
hlaut bikarinn fyrir fisk, sem hann
veiddi í Efri-Mjódd i Elliðaánni.
Hann vó sextán pund. Einn bikar
gekk ekki út að þessu sinni. Það var
Grlmsár-flugubikarinn. Sá sem hann
átti að fá lét ekki sjá sig.
Loksins hillir undir útkomu
hljómplötunnar Lífið í litum
(Þjóðsaga) með Diabolus In Musica.
Upphaflega átti hún að koma út í
október í fyrra en hefur orðið fyrir
alls kyns skakkaföllum. Út-
gáfudagurinn hefur verið settur 3.
eða4. marz.
,,Til að byrja með týndist allt
upplag plötunnar og fannst ekki fyrr
en seint og síðar meir í vörugeymslu i
Ungverjalandi,” sagði Sveinbjörn
Baldvinsson, einn liðsmanna
Diabolus In Musica, í samtali við
blaðamann DB. ,,Að hún skyldi
finnast í Ungverjalandi er ekki svo
dularfullt, þvi að platan var pressuð
þar.
Plöturnar voru síðan sendar til
Kaupmannahafnar og þaðan með