Dagblaðið - 25.02.1981, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981.
27
D
Útvarp
Sjónvarp
■ ■
• •
■
ÍSLAND-FRAKKLAND - útvarp kl. 20,15:
Leikurinn sem
ræður úrslitum
—um möguleika íslands á að komast
íA-keppnina
Fjórða lýsing Hermanns Gunnars-
sonar frá B-heimsmeistarakeppninni
Frakklandi verður í kvöld. Að þessu
sinni eru Frakkar andstæðingar is-
lenzka liðsins.
Leikur fslands og Frakklands er
mjög þýðingarmikill fyrir báðar
þjóðirnar. B-keppnin fer fram í tveim
riðlum og komast tvö efstu í hvorum
í A-keppnina. Liðin í þriðja sæti í
hvorum riðli keppa siðan innbyrðis
um fimmta sætið en fimm efstu liðin
í B-keppninni færast upp í A-keppn-
ina. í henni leika 12 beztu handknatt-
leiksþjóðir heims.
Hermann Gunnarsson er ekki ókunn-
ur handknattleik. Hann á að baki
fjölda landsleikja, ekki aðeins i hand-
knattleik heldur einnig i knattspyrnu.
Fyrir keppnina var því almennt
spáð að Pólverjar og Svíar yrðu í 1.—
2. sæti í riðlinum sem tsland er í, en
Frakkar og fslendingar myndu berj-
ast um þriðja sætið og þar með rétt-
inn til að leika um fimmta sætið.
Frakkar standa að því leyti betur
að vígi að þeir eru á heimavelli. En ís-
lenzka liðið hefur hingað til verið
talið betra en það franska og
spurningin er því sú hvort heimavöll-
urinn nái að brúa það bil sem ,er á
milli getu liðanna.
Leikurinn fer fram í borginni Bes-
ancon sem er rétt við landamæri
Sviss, í um 100 km fjarlægð frá Genf.
-KMU.
Gegn samábyrgð
flokkanna
AÐ BYGGJA SIG UPP
TIL ÞÁTTTÖKU
í ÞJÓLÍFINU Á NÝ
Á þessu ári, alþjóðaári fatlaðra,
verða í útvarpinu fluttir nokkrir
þættir um málefni sem snerta fatl-
aða. f kvöld verður einn þeirra,
fjallar hann um endurhæfingu.
Guðni Þorsteinsson, yfirlæknir á
endurhæfingardeild Landspítalans,
stjórnar umræðuþætti um það mál.
Hann og Haukur Þórðarson, yfir-
læknir á Reykjalundi, munu spjalla
um fötlun, aðallega hreyfifötlun frá
læknisfræðilegu sjónarmiði. Tveir
hreyfifatlaðir verða einnig þátttak-
endur, þau Elsa Stefánsdóttir og Jón
Sigurðsson.
Rætt verður um ferilinn frá því
fólk fatlast, endurhæfmguna og
endurkomuna út í þjóðfélagið. Elsa
Stefánsdóttir hefur gengið þessa
braut og að sögn Guðna Þorsteins-
sonar hefur hún mikið starfað að
málefnum hreyfihamlaðra. Jón Sig-
urðsson er staddur á þessari braut og
er að komast inn í mannlífið á ný.
Hann þekkir því af reynslu til þessara
-KMU.
Guðni Þorsteinsson yfirlæknir, stjórnandi umræðuþáttarins.
DB-mynd:
Þorri.
ENDURHÆF1NG FATLAÐRA - útvarp kl.22,40:
Metsölurithöfundurinn Harold Robbins.
FRAMADRAUMAR
—sjónvarpkl. 21,05:
ST0FNA EIGIN
KVIKMYNDAGERD
—segia þar með einokunarhring
stríðáhendur
Fyrri hluti bandarískrar sjónvarps-
myndar, Framadraumar (The Dream
Merchants) sem byggð er á skáldsögu
eftir Harold Robbins verður sýndur í
sjónvarpinu í kvöld.
Sagan hefst í Bandarikjunum
skömmu eftir fyrri heimsstyrjöld.
Peter Kessler, þýzkur innflytjandi,
sýnir kvikmyndir í eigin kvikmynda-
húsi en ágóðinn af því er ekki meiri
en svo að hann hefur rétt oní sig og á.
Hann er háður einokunarhring sem
ræður öllu i kvikmyndaiðnaðinum.
Johnny, ungur munaðarleysingi,
rekst inn á sýningu hjá Kessler.
Johnny er stórhuga og með honum
og Kessler t^kst samvinna. Johnny
fær þá hugmynd að selja sælgæti í
kvikmyndahúsinu og er það i fyrsta
sinn sem slikt er gert í kvikmynda-
húsi.
En Johnny stefnir hærra. Hann
kannar möguleika á eigin kvik-
myndagerð og tekst að fá Kessler til
að selja kvikmyndahúsið og flytja til
New York. Þar setja þeir á stofn
kvikmyndaframleiðslu og hefja þar
með stríð gegn einokunarhringnum.
Höfundurinn, Harold Robbins, er
sjálfsagt mörgum kunnur hérlendis
en hann er einn mest lesni rithöfund-
ur heims í dag.
Með aðalhlutverkin í niyndinni
fara Mark Harmon, Vincent Gard-
enia og Morgan Fairchild. Kristmann
Eiðsson er þýðandi myndarinnar.
-KMU.
VIDEO
Video — Tœki—Filmur
Leiga — Sala
Kvikmyndamarkaðurinn — Simi 15480.
Skólavörðustíg 19 (Klapparstígsmegin).
KVIKMYIMDIR
NEMENDALEIKHÚSIÐ Peysufatadagurinn eftirKjartan Ragnarsson. Sýning fimmtudag 26. febr. kl. 20 og sunnudag 1. marz kl. 20. Miðasala opin i Lindarbœ frá kl. 16—19 alla daga, nema laugar- daga. Miðapantanir i sima 21971 á sama tíma.
ÚTBOÐ
Öryrkjabandalag íslands óskar eftir tilboði í að
steypa upp og fullgera að utan nýbygginguna við
Hátún 10 í Reykjavík. Byggingin er l hæð og
kjallari. Heildargólfflötur 3033m2.
Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofunni
Óðinstorgi, Óðinsgötu 7, gegn kr. 2000 skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
10. mars kl. 11.