Dagblaðið - 25.02.1981, Page 28
Ákvarðanir ríkisstjórnarinnar:
Sjúkratryggingagjald
fellt niður að hluta
hækkun tekjutryggingar
Ríkisstjórnin ákvaö í gær að
skattaívilnanir til handa lág- og
miðlungstekjufólki verði í því formi
að sjúkratryggingagjald falli niðurað
hluta.
Sá hluti tekjuskatts, sem fólginn
er I 1,5% sjúkratryggingagjaldi
verður felldur niður á íægri tekjum
en 6,5 milljón gkr. Sjúkratrygginga-
gjald verður algerlega afnumið á
tekjum upp að 6,75 milljónum gkr.
Breytingin er talin kosta ríkissjóð
10 milljónir gkr., eins og DB skýrði
frá í gær. Veldur þetta 1,5—1,8%
skattalækkunum á tekjum frá 4 i 10
milljónir. Eins. og DB hefur skýrt
frá eru þessar aðgerðir valdar eftir
viðræður við ASÍ-menn.
Vextir lækka yfirleitt um 1—2
prósentustig 1. marz, samkvæmt á-
kvörðun ríkisstjórnarinnar í gær.
Tómas Árnason viðskipta-
ráöherra sagði í viðtali við DB í
morgun að ríkisstjórnin mundi
Auk þess ákvað rikisstjórnin sér-
staka 8% hækkun á tekjutryggingu
elli- og örorkulífeyris. Hækkunin
verður 8% 1. marz til viðbótar
standa við fyrirheitið sem hún gaf um
áramótin og lækka vexti.
Tómas taldi þetta vera lið í
lækkun verðbólgunnar. „Þetta erað
mínum dómi einn af þeim þáttum,
sem þarf að taka á,” sagði Tómas.
almennri hækkun, sem þá verður.
Heimilisuppbót hækkar einnig um
8%.
„Þetta hefur verið gert með sam-
komulagi við Seðlabankann,” sagði
ráðherrann og kvað málið hafa verið
útrætt á fundi ríkisstjórnarinnar í'
gær.
-HH.
-HH.
1-2 prósent vaxtalækkun 1. marz
Akureyri:
Fóstrurnar
náðu
kröfum sfnum
fram
Seðlabankinn:
f gæzlu vegna hvarfs
verðmætra skjala
Togarakaupin til Þórshafnar og
Raufarhafnar áttu að koma til um-
ræðu á fundi ríkisstjórnarinnar I
gær. Svo varð þó ekki þvi fundartím-
inn fór í önnur mál og varð að fresta
ákvörðunartöku i togarakaupamál-
inu. Hvenær málið kemst á dagskrá
er óvist, en ríkisstjórnarfundur er
á morgun. Búizt er við að rikisstjórn-
in „staðfesti fyrri ákvarðanir í mál-
inu” og ítreki þannig að togarinn
skuli koma til jslands hvað sem hver
segir.
-A.Sl.
Játaði fimm
innbrot
Fóstrur á Akureyri sömdu við bæj-
aryfirvöld á fundi sem hófst kl. 21 í
gær og stóð til kl. 4 í nótt. Þær höfðu
sem kunnugt er hætt störfum á dag-
vistum bæjarins en mættu á ný um
hádegisbil í dag. Foreldrar og börn á
Akureyri geta þvl tekið gleði sína á
ný.
Samningarnir eru þess efnis að
byrjunarlaun fóstra eru samkvæmt
12. launaflokki, eftir eins árs starf
eru laun samkvæmt 13. launaflokki
og eftir 6 ára starf samkvæmt 14.
flokki. í rauninni er þó 12. flokkur-
inn nafnið eitt, þar sem nám í Fóstur-
skólanum er metið sem eins árs starf
og fóstrur sem kotna til starfa úr
skólanum farabeint í 13. flokk. Bæj-
aryfirvöldum þótti ekki fært að
semja við fóstrurnar nema að láta
samninginn líta þannig út.
-ARH.
Starfsmaður Seðlabankans var úr-
skurðaður í gæzluvarðhald síðast-
liðinn mánudag vegna gruns um aðild
að hvarfi verðmætra skjala úr skjala-
safni bankans. Maðurinn, sem er á
fertugsaldri, vann meðal annars að
vörzlu safnsins. Þegar víst þótti að
allmikið verðmæti úr skjalasafninu
hefði horfið úr venjulegum
geymslustað vaknaði grunur um að
áðurnefndur starfsmaður væri við
hvarfið riðinn.
Rannsakað er hvað kunni að hafa
horfið úr áðurnefndu safni og hafa
yfirheyrslur yfir hinum grunaða
starfsmanni staðið nær stöðugt frá
því hann var handtekinn um helgina.
Rannsókninni er ekki lokið og
hvorki bankastjórar Seðlabankans né
Þórir Oddsson, vararannsóknarlög-
reglustjóri ríkisins, sem hefur
rannsóknina með höndum, hafa talið
unnt að skýra nánar frá málinu.
-BS.
Ákvörðun
frestað
ítogara-
kaupmálinu
íKópavogi
Innbrotsþjófar voru á ferð í Kópa-
vogi í fyrrinótt og var frá því skýrt í
blaðinu i gær að farið hefði verið inn
i fjögur fyrirtæki og m.a. stolið bif-
reið á einum staðnum.
Í gær hafði Kópavogslögreglan
hendur í hári ungs manns, sem nú
hefur viðurkennt innbrot á fimm
stöðum i fyrrinótt. Maöurinn er vel
kunnur lögreglunni vegna fyrri brota.
-A.Sl.
Enn heldur hann áfram að snjóa. Miklar umferðartrujlanir urðu I Reykjavik og nágrenni I moryun eftir talsverða snjókomu I
nótt. Urðu þvl ýmsir seinir til vinnu. Strákurinn á myndinni lœtur ekki snjóinn á sigfá — hann leikur sér ifótholta þeyar
hann helzt langar til.
DB-mynd: Einar Ólason.
frfálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGHR 25. FEB. 1981.
Dönsku blöðin um
heimsókn Vigdísar:
Sambúð Dan-
merkur og
íslands aldrei
betri
— og því sé Vigdís sér-
stakur auf úsugestur
Fró Eirlki Jónssyni, fróttamanni
DB í Kaupmannahöfn:
Dönsku blöðin fjalla í dag um opin-
bera heimsókn Vigdísar Finnbogadótt-
ur forseta íslands til Danmerkur sem
hófst í morgun. Politiken fjallar um
heimsóknina i forystugrein og er Vigdís
þar boðin hjartanlega velkomin til
Danmerkur — íslenzkir forsetar séu
alltaf aufúsugestir þar í landi. Segir
blaðið að heimsóknin sé til þess ætluð
að vekja athygli á landi og þjóð gestsins
en hún gæti einnig orðið góð lyftistöng
fyrir íslenzkan útflutningsiðnað.
Blaðið fer nokkrum orðum um nor-
samvinnu og segir það skipta
miklu máli, að stjórnmálamenn og leið-
togar á Norðurlöndum þekkist inn-
byrðis. Það skipti Dani ekki sízt máli
nú, þegar útlit sé fyrir erfiða tima hjá
þeim vegna fiskveiðideilna við Græn-
land. Danir megi vafalaust eiga von á
góðum stuðningi frá íslendingum verði
eftir slikum stuðningi leitað.
Politiken fjallar síðan um iðnvæð-
ingu á íslandi, sem sé skammt á veg
komin því ísland hafi til þessa einkum
verið fiskveiði- og landbúnaðarland.
Nú sé hins vegar vitað, að iðnvætt gæti
ísland alið 330 þúsund manns í stað 220
þúsund nú. Hins vegar sé útlit fyrir að
iðnvæðingin taki lengri tíma en ella
vegna sjómanna- og bændahugsunar-
háttarins, sem sé einkenni íslenzks
þjóðfélags. Það gæti hins vegar veitt ís-
lendingum svigrúm til að læra af mis-
tökum annarra þjóða, sem þegar hafi
iðnvæðzt.
í Berlingske Tidende skrifar Bodil
Begtrup, fyrsti sendiherra Dana á
íslandi, kjallaragrein og rekur þar sögu
samskipta Dana og íslendinga langt
aftur í aldir. Kemst hún að þeirri niður-
stöðu, að sambúð ríkjanna hafi aldrei
verið betri en nú og því sé Vigdís Finn-
bogadóttir forseti íslands sérlega vel-
komin til Danmerkur.
Islendingurinn
íHöfn:
Rúmlega
mánaðar-
fangelsi
íviðbót
i
i
\
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Mál íslendingsins, sem setið hefur I
fangelsi í Kaupmannahöfn, var tekið
fyrir í gær. í morgun náðist ekki í sr.
Jóhann Hliðar sendiráðsprest, sem var
túikur í réttinum og hefur fylgzt með
málinu, en samkvæmt heimiidum DB í
morgun fékk maðurinn 40 daga fang-
elsisvist til viðbótar, en von er til þess
að fangelsisvistin verði stytt i 30 daga.
Sr. Jóhann Hliðar var í- morgun á
Kastrupflugvelli að taka á móti forseta
íslands, eins og flestir i íslenzka
sendiráðinu.
Svo sem DB greindi frá í gær, hefur
ungur sjómaður setið rúman mánuð
fangelsi í. Kaupmannahöfn, eftir að
hann henti flösku fandlirlögregluþjóns
á veitingahúsi í borginni.
I
i
1
i
i
é
-JH.