Dagblaðið - 15.04.1981, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 15.04.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1981 5 Fjölbreyttari o ^arfet® - r glæsilegri sumaráætlun en nökkru sinni fyrr RIMINI - ein af þeim allra bestu Sjálfstætt leiguflug alla leið til Rimini- strandarinnar - ævintýrastaðar barna og fullorðinna. 11 eða21 dagsferðir. (búðar- eða hótelgisting. Skoðunarferðir til Feneyja, Flórens, San Marinó, Rómar og víðar. Verð frá kr. 4.210 BROTTFARARDAGAR: Maí: 31. Júní: 10, 21. Júli: 1,12, 22. Ágúst: 2, 12, 23. September: 2, 13. Vinsamlegast pantið timanlega svo unnt sé að útvega sæti i heppilegustu ferðina. SUMARHÚS í DANMÖRKU Sjálfstætt leiguflug til Kaupmanna- hafnar með tveggja eða þriggja vikna dvöl í sumarhúsunum í Karlslunde, Karre- bæksminde eða Helsingör. Uppselt (bið- listi) í nær allar ferðir. Verð frá kr. 3.300 PORTOROZ - friðsæl og falleg sólarströnd Sjálfstætt leiguflug til Trieste og þaðan er ekið til Portoroz - baðstrandar sem fagnað hefur auknum vinsældum hér- lendis sem erlendis með hverju árinu sem liður. 11 eða 21 dags ferðir. Hótelgisting með hálfu fæði. Skoðunarferðir til Feneyja, Bled, Postojna-dropasteins- hellarlna og víðar. Verð frá kr. 4.450 BROTTFARARDAGAR: Maí: 31. Júni: 10, 21. Júlí: 1,12, 22. Ágúst: 2, 12, 23. September: 2, 13. Vinsamlegast pantið tímanlega svo unnt sé að útvega sæti i heppilegustu ferðina. MALTA Nýr og heillandi áfangastaður íslenskra sóldýrkenda. Tveggja vikna gisting á Möltu og einnar viku dvöl í Karlslunde í Danmörku. Uppselt (biðlisti) í nær allar ferðir. Verð frá kr. 5.900 TORONTO - leiðin til stórborga og sólarstranda um alla Ameríku Fyrsta reglubundna leiguflugið vestur um haf hefur fengið stórkostlegar viðtökur. Biðlistar hafa þegar myndast í nokkrar ferðanna og rétt erað hvetja alla Ameríkufarþega til þess að kynna sér Torontoferðirnar og panta sem fyrst. BROTTFARARDAGAR: Júní: 3, 24. Júli: 15. Ágúst: 5, 12. Ath. að nú gefst langþráð tækifæri til hópafsláttar á flugfari til Vesturheims. IRLAND sumarferðir - rútuferðir Uppselt er í páskaferðina til (rlands og aukaferð þangað um páskana seldist einnig upp á nokkrum dögum. Og nú eru hinar vinsælu sumarferðir framundan - og að venju í gagnkvæmu leiguflugi. Ferð- irnar eru 5-11 daga langar með gistingu í Dublin á hótelunum Royal Marine og Burlington. Þrjár glæsilegar og stór- skemmtilegar rútuferðir verða á boðstól- um í ferðinni 20. júni. Verð frá kr. 2.810 BROTTFARARDAGAR: 14. júni - 10 dagar 20. júli - 11 dagar 30. júlí - 5 dagar Stutt og smellin helgarferð til LONDON Helgarferðunum til London í gagn- kvæmu leiguflugi fjölgar stöðugt. Upp- selt er í páskaferðina en laus sæti í ferðina 24. -27. april, þegarvorið hefurhaldiðinn- reið sína í Lundúnaborg, sem býðurgest- um sínum að venju óþrjótandi skemmt- unarmöguleika að degi sem nóttu. Þú nýtur lifsins i London fyrlr ótrúlega lágt verð og nýtur hvíldar og umhverfisbreyt- ingar sem lengi má búa að. Hótelgisting á Royal Scott. Vinsamlegast pantiö strax eftir páska - afieins tveir virkir dagar eru til brottfarar. Verð frá kr. 2.413 Afiildarfélagsafsláttur kr. 200 Ath. aö fyrirliggjandi eru mifiar á leik Tottenham og Liverpool. Rútuferðir 8 - LANDA SYN 24. júlí - 14. ágúst Þriggja vikna stórglæsileg og spenn- andi rútuferð til 8 landa með gistingu i tólf nafntoguðum og frægum borgum. Láttu ekki upptalninguna villa um fyrir þér - aksturinn er ótrúlega lítill þegar grannt er skoðað! Ferðin hefst með flugi til Kaupmanna- hafnar og tveggja nátta gistingu þar. Síðan er ekið til Hamburg, Amsterdam (2 nætur), Brussel, Luxembourg, Paris (3 nætur), Dijon, Lausanne (2nætur), Zurich (2nætur), Innsbruck (2nætur), Munchen (2 nætur), Frankfurt, Hamburg og Kaup- mannahafnar, en þaðan er flogið heim 14. ágúst. Áætlað verð kr. 8.700 með flugi, rútuferðum, gistingu, hálfu fæði og íslenskri fararstjórn. VIKUFERÐIR TIL RÓMAR Farþegum á Rimini í ferðunum 10. júni, 1. júli og 23. ágúst gefst tækifæri til þess að taka þátt í sérstökum vikuferðum til Rómar með íslenskri fararstjórn. Dvalist verður á hóteli í Róm. Farþegar í Rómarferðinni gista á hótel- unum Excelsior eða Atlantico á Rimini. Verð ferðarinnar allrar er samkvæmt verð- lista að viðbættum kr. 1.550,- vegna Rómarferðarinnar. Innifalið í því verði er akstur til og frá Róm, gisting í sjö nætur og hálft fæði i Róm, tvær skoðunarferðir um borgina og íslensk fararstjórn. KANADA - BANDARIKIN 24. júní - 15. júlí Þriggja vikna rútuferð í tengslum við leiguflugið til Toronto. Stórborgir beggja megin landamæranna eru heimsóttar og ferðalanganna bíða ný ævintýri á hverjum degi. Ferðin hefst með flugi og tveggja daga gistingu í Toronto. Síðan er ekið til Niagra fossanna (1 nótt), Pittsburg (1 nótt), Washington (3 nætur), New York (3 nætur), Boston (3 nætur), Montreol (2 nætur), Ottawa (2 nætur), og að lokum aftur til Toronto, þar sem dvalist er í 4 nætur áður en haldið er heim á ný. Áætlað verð kr. 8.245 með flugi, gistingu, rútuferðum og islenskri fararstjórn. JÚGÓSLAVÍA - AU STURRÍKI - ÍTALÍA í ferðum til Portoroz 12. júlí og 2. september gefst farþegum kostur á viku- langri rútuferð um merka staði i Júgó- slavíu, Austurríki og ítaliu. M.a. er komið til borganna Graz og Vínar í Austurríki, Bolzano og Trieste á Ítalíu, Ljubljana og Maribor í Júgóslavíu og áfram má lengi telja. Verð fyrir þessa ferð er kr. 2.230 fyrir hvern farþega og miðast það við gistingu í tveggja manna herbergi. Gisting í Porto- roz er ekki innifalin í þessu verði, en hins vegar er gisting í allri rútuferðinni inni- falin auk hálfs fæðis og íslenskrar farar- stjórnar. KANADA 15. júlí - 5. ágúst Þriggja vikna rútuferð úm Kanada með viðkomu á (slendingaslóðunum í Gimli á (slendingadeninum 3. ágúst. Ferðin hefst með fjögurra daga gistingu í Toronto en síðan er ekið til Kingston, Montreol (2 nætur), Ottawa (2 nætur), Midlands, Niagra fossanna og aftur til Toronto, þar sem dvalist er í 3 nætur. 28. júli er síðan flogið til Winnipeg og dvalist þar i 3 nætur áður en ekið er til Heklueyjar (1 nótt) og síöan dvalist í Gimli næstu 3 næturnar á meðan hátíðahöld (slendingadagsins standa yfir. Frá Winnipeg er flogið til baka til Toronto 4. ágúst og heim er haldið 5. ágúst. Áætlað verð kr. 7.200 með flugi, gistingu, rútuferðum og íslenskri fararstjórn. ORLOF ALDRAÐRA Portoroz Tvær þriggja vikna ferðir til Portoroz í Júgóslaviu, 20. maí og 2. september. Hótelgisting með hálfu fæði á Grand Palace. Fararstjóri Ásthildur Pétursdóttir. Verð frá kr. 6.980 Malta/Karlslunde Nýir áfangastaöir í orlofsferðum aldraðra. Tveggja vikna dvöl á Möltu og einnar viku dvöl í sumarhúsunum í Karl?- lunde. Hálft fæöi. Fararstjóri Ásthildur Pétursdóttir. Verð frá kr. 6.560 2 VIKUR TIL STEFNU! 500 KRÓNA AÐILDARFÉLAGSAFSLÁTTUR fyrir fullorðna og 250 kr. fyrir börn i allar feröir til Rimini. Portoroz, Danmerkur, Möltu, írlands og viðar ef pantað er FYRIR 1. MAÍ GLEÐILEGA PASKA OG GOÐA FERÐ Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.