Dagblaðið - 15.04.1981, Side 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1981
5
Fjölbreyttari o
^arfet® -
r
glæsilegri sumaráætlun
en nökkru sinni fyrr
RIMINI
- ein af þeim allra bestu
Sjálfstætt leiguflug alla leið til Rimini-
strandarinnar - ævintýrastaðar barna og
fullorðinna. 11 eða21 dagsferðir. (búðar-
eða hótelgisting. Skoðunarferðir til
Feneyja, Flórens, San Marinó, Rómar og
víðar.
Verð frá kr. 4.210
BROTTFARARDAGAR:
Maí: 31.
Júní: 10, 21.
Júli: 1,12, 22.
Ágúst: 2, 12, 23.
September: 2, 13.
Vinsamlegast pantið timanlega svo unnt
sé að útvega sæti i heppilegustu ferðina.
SUMARHÚS
í DANMÖRKU
Sjálfstætt leiguflug til Kaupmanna-
hafnar með tveggja eða þriggja vikna dvöl
í sumarhúsunum í Karlslunde, Karre-
bæksminde eða Helsingör. Uppselt (bið-
listi) í nær allar ferðir.
Verð frá kr. 3.300
PORTOROZ
- friðsæl og falleg
sólarströnd
Sjálfstætt leiguflug til Trieste og þaðan
er ekið til Portoroz - baðstrandar sem
fagnað hefur auknum vinsældum hér-
lendis sem erlendis með hverju árinu sem
liður. 11 eða 21 dags ferðir. Hótelgisting
með hálfu fæði. Skoðunarferðir til
Feneyja, Bled, Postojna-dropasteins-
hellarlna og víðar.
Verð frá kr. 4.450
BROTTFARARDAGAR:
Maí: 31.
Júni: 10, 21.
Júlí: 1,12, 22.
Ágúst: 2, 12, 23.
September: 2, 13.
Vinsamlegast pantið tímanlega svo unnt
sé að útvega sæti i heppilegustu ferðina.
MALTA
Nýr og heillandi áfangastaður íslenskra
sóldýrkenda. Tveggja vikna gisting á
Möltu og einnar viku dvöl í Karlslunde í
Danmörku. Uppselt (biðlisti) í nær allar
ferðir.
Verð frá kr. 5.900
TORONTO
- leiðin til stórborga og sólarstranda um alla Ameríku
Fyrsta reglubundna leiguflugið vestur um haf hefur fengið stórkostlegar viðtökur.
Biðlistar hafa þegar myndast í nokkrar ferðanna og rétt erað hvetja alla Ameríkufarþega
til þess að kynna sér Torontoferðirnar og panta sem fyrst.
BROTTFARARDAGAR: Júní: 3, 24. Júli: 15. Ágúst: 5, 12.
Ath. að nú gefst langþráð tækifæri til hópafsláttar á flugfari til Vesturheims.
IRLAND
sumarferðir - rútuferðir
Uppselt er í páskaferðina til (rlands og
aukaferð þangað um páskana seldist
einnig upp á nokkrum dögum. Og nú eru
hinar vinsælu sumarferðir framundan - og
að venju í gagnkvæmu leiguflugi. Ferð-
irnar eru 5-11 daga langar með gistingu í
Dublin á hótelunum Royal Marine og
Burlington. Þrjár glæsilegar og stór-
skemmtilegar rútuferðir verða á boðstól-
um í ferðinni 20. júni.
Verð frá kr. 2.810
BROTTFARARDAGAR:
14. júni - 10 dagar
20. júli - 11 dagar
30. júlí - 5 dagar
Stutt og smellin helgarferð til
LONDON
Helgarferðunum til London í gagn-
kvæmu leiguflugi fjölgar stöðugt. Upp-
selt er í páskaferðina en laus sæti í ferðina
24. -27. april, þegarvorið hefurhaldiðinn-
reið sína í Lundúnaborg, sem býðurgest-
um sínum að venju óþrjótandi skemmt-
unarmöguleika að degi sem nóttu. Þú
nýtur lifsins i London fyrlr ótrúlega lágt
verð og nýtur hvíldar og umhverfisbreyt-
ingar sem lengi má búa að. Hótelgisting
á Royal Scott.
Vinsamlegast pantiö strax eftir páska -
afieins tveir virkir dagar eru til brottfarar.
Verð frá kr. 2.413
Afiildarfélagsafsláttur kr. 200
Ath. aö fyrirliggjandi eru mifiar á leik
Tottenham og Liverpool.
Rútuferðir
8 - LANDA SYN
24. júlí - 14. ágúst
Þriggja vikna stórglæsileg og spenn-
andi rútuferð til 8 landa með gistingu i tólf
nafntoguðum og frægum borgum. Láttu
ekki upptalninguna villa um fyrir þér -
aksturinn er ótrúlega lítill þegar grannt er
skoðað!
Ferðin hefst með flugi til Kaupmanna-
hafnar og tveggja nátta gistingu þar.
Síðan er ekið til Hamburg, Amsterdam (2
nætur), Brussel, Luxembourg, Paris (3
nætur), Dijon, Lausanne (2nætur), Zurich
(2nætur), Innsbruck (2nætur), Munchen
(2 nætur), Frankfurt, Hamburg og Kaup-
mannahafnar, en þaðan er flogið heim
14. ágúst.
Áætlað verð kr. 8.700
með flugi, rútuferðum, gistingu, hálfu
fæði og íslenskri fararstjórn.
VIKUFERÐIR
TIL RÓMAR
Farþegum á Rimini í ferðunum 10. júni,
1. júli og 23. ágúst gefst tækifæri til þess
að taka þátt í sérstökum vikuferðum til
Rómar með íslenskri fararstjórn. Dvalist
verður á hóteli í Róm.
Farþegar í Rómarferðinni gista á hótel-
unum Excelsior eða Atlantico á Rimini.
Verð ferðarinnar allrar er samkvæmt verð-
lista að viðbættum kr. 1.550,- vegna
Rómarferðarinnar. Innifalið í því verði er
akstur til og frá Róm, gisting í sjö nætur og
hálft fæði i Róm, tvær skoðunarferðir um
borgina og íslensk fararstjórn.
KANADA
- BANDARIKIN
24. júní - 15. júlí
Þriggja vikna rútuferð í tengslum við
leiguflugið til Toronto. Stórborgir beggja
megin landamæranna eru heimsóttar og
ferðalanganna bíða ný ævintýri á hverjum
degi.
Ferðin hefst með flugi og tveggja daga
gistingu í Toronto. Síðan er ekið til Niagra
fossanna (1 nótt), Pittsburg (1 nótt),
Washington (3 nætur), New York (3
nætur), Boston (3 nætur), Montreol (2
nætur), Ottawa (2 nætur), og að lokum
aftur til Toronto, þar sem dvalist er í 4
nætur áður en haldið er heim á ný.
Áætlað verð kr. 8.245
með flugi, gistingu, rútuferðum og
islenskri fararstjórn.
JÚGÓSLAVÍA
- AU STURRÍKI
- ÍTALÍA
í ferðum til Portoroz 12. júlí og 2.
september gefst farþegum kostur á viku-
langri rútuferð um merka staði i Júgó-
slavíu, Austurríki og ítaliu. M.a. er komið
til borganna Graz og Vínar í Austurríki,
Bolzano og Trieste á Ítalíu, Ljubljana og
Maribor í Júgóslavíu og áfram má lengi
telja.
Verð fyrir þessa ferð er kr. 2.230 fyrir
hvern farþega og miðast það við gistingu í
tveggja manna herbergi. Gisting í Porto-
roz er ekki innifalin í þessu verði, en hins
vegar er gisting í allri rútuferðinni inni-
falin auk hálfs fæðis og íslenskrar farar-
stjórnar.
KANADA
15. júlí - 5. ágúst
Þriggja vikna rútuferð úm Kanada með
viðkomu á (slendingaslóðunum í Gimli á
(slendingadeninum 3. ágúst. Ferðin hefst
með fjögurra daga gistingu í Toronto en
síðan er ekið til Kingston, Montreol (2
nætur), Ottawa (2 nætur), Midlands,
Niagra fossanna og aftur til Toronto, þar
sem dvalist er í 3 nætur. 28. júli er síðan
flogið til Winnipeg og dvalist þar i 3 nætur
áður en ekið er til Heklueyjar (1 nótt) og
síöan dvalist í Gimli næstu 3 næturnar á
meðan hátíðahöld (slendingadagsins
standa yfir. Frá Winnipeg er flogið til baka
til Toronto 4. ágúst og heim er haldið
5. ágúst.
Áætlað verð kr. 7.200
með flugi, gistingu, rútuferðum og
íslenskri fararstjórn.
ORLOF
ALDRAÐRA
Portoroz
Tvær þriggja vikna ferðir til Portoroz í
Júgóslaviu, 20. maí og 2. september.
Hótelgisting með hálfu fæði á Grand
Palace. Fararstjóri Ásthildur Pétursdóttir.
Verð frá kr. 6.980
Malta/Karlslunde
Nýir áfangastaöir í orlofsferðum
aldraðra. Tveggja vikna dvöl á Möltu og
einnar viku dvöl í sumarhúsunum í Karl?-
lunde. Hálft fæöi. Fararstjóri Ásthildur
Pétursdóttir.
Verð frá kr. 6.560
2 VIKUR TIL STEFNU!
500 KRÓNA
AÐILDARFÉLAGSAFSLÁTTUR
fyrir fullorðna og 250 kr. fyrir börn i allar feröir til Rimini. Portoroz, Danmerkur,
Möltu, írlands og viðar ef pantað er
FYRIR 1. MAÍ
GLEÐILEGA PASKA OG GOÐA FERÐ
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899