Dagblaðið - 15.04.1981, Síða 9

Dagblaðið - 15.04.1981, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 15. APRlL 1981 i Erlent Erlent Erlent Erlent Fjórir bræður Florencio, Fermin, Fernando og Fabian heita þessir fjórir hressu strákar. Eins og sjá má eru þeir nauöalíkir hver öðrum enda ekki nema von þvíþeir eru jjórburar. Þegar þeir fœddust fyrir fimm árum í New Mexico í Banda- ríkjunum voru líkurnar á því að þeir myndu allir lifa taldar mjög litlar. En í dag eru þeir allir sprelllifandi og hafa reglulega gaman af lífinu. Sérstaklega þykir þeim skemmtilegt að vita til þess að aðeins tvœr manneskjur á jörðinni þekkja þá í sundur; móðir þeirra og systir þeirra, Kathie. Faðir þeirra er ekki alveg viss um hvererhver. „Ég veit ekki hver er hver eða hver gerir hvað, en ég elska þessa drengi, ” segir faðirinn. „Ég er svo upptekinn alla daga að ég hef varla tækifœri til að fylgjast með þeim. ” Kysstu nú mömmu Þó að 12 ár séu liðin frá því að Mady Karsten kom með górilluapann Matze á dýragarðinn í Frankfurt, og þá sem unga, man hann enn eftir henni. Þegar hún kom loks að heimsækja hann rak hann henni rembingskoss eins og siðuöum syni ber eftir svo langan aðskilnað frá „fósturmömmu”. Karen Ann lifir enn Karen Ann Quinlan er nú orðin 27 áragómul. Frá 15. april 1975 hefur hún legið i dái á sjúkrahúsi i New Jersey og læknar hafa fyrir löngu gefið upp alla von um aö hún vakni á ný. Eins og menn muna vakti mál Karen Ann mikla athygli á sinum tima. For- eldrar hennar fengu framgengt með hæstaréttardómi kröfu sinni um að öndunartæki sem héldu í henni lifinu yrðu tekin úr sambandi. Tækin voru tekin úr sambandi i mai 1976 en Karen dó ekki. Hjartað hélt áfram að slá og enn slær það, reglulegum og eðlilegum slætti. Læknar segja að hún geti þess vegna lifað i mörg ár i viðbót. wv. Landakynning Vikunnar: 24 slðna fylgirit: Steypt hús á stuttri stund

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.