Dagblaðið - 15.04.1981, Side 27
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1981
.19
Með
Utsyn
tilMallorca:
íslendingar aldrei leiöir
á lífínu á Mallorca
í fyrsta skipti býður ferðaskrif-
stofan Útsýn viðskiptavinum sinum til
Mallorca i reglubundnu leiguflugi.
Mallorca er orðin þekkt hér á landi
enda hefur verið farið þangað með
Islendinga i allt að 15 ár. Margir fara
þangað ár eftir ár og verða aldrei leiðir
enda margt um að vera á Mallorca.
Fyrir utan fjölbreytt landslag er þar
aö finna eitthvert fjölbreyttasta
skemmtanalíf á Spáni, enda Mallorca-
búar vanir þvi að taka á móti ferða-
mönnum og byggist eyjan að mörgu
Ieyti orðið upp á þeim.
Útsýn býður upp á fjölda skoðana-
ferða, t.d. um höfuðborg Mallorca,
Palma, ferð til Formentor og Puerto de
Pollensa á norðurströnd Mallorca,
dagsferð til Manacor og hinna frægu
Drekahella, dagsferð til Valdemosa,
Deya og Soller þar sem skoöað er hið
fræga karþanska klaustur i Valdemosa
og garðamir við Raixa og eða Alfabia.
Grisaveizla er að sjálfsögðu haldin
en hún er ómissandi í Mallorcaferð, svo
og ferð i næturklúbbinn TITO’S. Út-
sýn býður farþegum að velja milli
tveggja baðstranda, Palma Nova og
Magaluf. Eru þær um 15—20 km frá
höfuðborginni.
Eins og þeir vita sem hafa verið á
Mallorca er ýmislegt hægt að gera sér
til gamans á daginn fyrir utan að liggja
og sóla sig. T.d. má heimsækja
sædýrasafnið, fá sér reiðsprett, en
hestaleigur eru margar, nú eða skreppa
á mótorhjóli eða vespu, spila tennis,
golf, fara á sjóskíði, [ siglingar og ótal
margt fleira.
Fyrir matmenn er hægt að finna
matstaði á hverju horni, hvort sem vill
kinverska, skandinaviska, suður-
ameriska, franska eða spánska rétti. Þá
eru einnig ódýrir hamborgarastaðir á
hverju strái. Og fjöldi verzlana er þar
líka þó öllum beri saman um að ekki sé
lengur hagstætt að verzla á Spáni, góð
kaup má þó gera 1 leðurvörum.
Útsýn býður upp á íbúðar-
bygginguna Porto Nova á Palma Nova,‘
Hótel Guadalupe á Magaluf og hótel
Valparaiso i Palma. Fyrir tvo í ibúð i
Porto Nova er verðið 7.610 fyrir mann
yfir sumarmánuðina i 3 vikur og á
hótel Guadalupe með morgunmat er
verðið 7.100.
Flogið er með Boeing 720 þotu
Amarílugs og lent á Palma-flugvelli
eftir fjögurra klst. flug. Um þriggja
stundarfjóröunga akstur er frá flugvelli
til gististaða. Tímamismunur á íslandi
og Mallorca er 2 klukkustundir.
-ELA.
Ferðaskrifstofan Útsýn býður nú f fyrsta skipti reglubundið leiguflug til Mallorca.
VÖRUBÍLSTJÓRAR -
VINNUVÉLAEIGENDUR
Vegna sívaxandi sölu og mikilla umsvifa erum
við með hálftómar söluskrár.
Því auglýsum við hér með eftir öllum tegundum
og árgerðum af vörubílum og vinnuvélum á sölu-
skrá.
Látið skrá tækin ykkar þar sem þau seljast.
BÍLA- OG VÉLASALAN ÁS
HÖFÐATÚNI 2, SÍMI 2 48 60
• Kvartmílubílar
• Sendibílar
• Lúxusbílar
• Rallybílar
• Alls kyns bílar
og hjól
Barnagæzla
Veitingar
Video
Tommi og Jenni
Askur kynnir
nýja gerð
hamborgara
Sýningin verður opin sem hér segir:
miðvikud. 15. apríl kl. 19.00 - 22.00
fimmtud. 16. apríl kl. 14.00 - 18.00
föstud. 17. apríl kl. 16.00 - 22.00
laugard. 18. apríl kl. 14.00 - 22.00
sunnud. 19. apríl kl. 16.00 - 22.00
mánud. 20. apríl kl. 14.00 - 23.00
ALLIR í
HÖLLINA
KVARTMILUKLUBBURINN