Dagblaðið - 30.04.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981.
Spurning
dagsins
3
Brcfritarar ráðleggja Garra að hlusta á Goombay Danse band. Ekki er þetta sú ágæta hljómsveit heldur Boney M.
Svar við bréf i Garra um diskótónlist:
Pönkið var loftbóla
sem löngu er sprungin
—sennilega stafa skrif hans af vanþekkingu á þvf sem verið
hef ur að gerast undanf arin ár
Magnús, Birgir og Samúel skrifa:
Okkur langar til að svara lesenda-
bréfi sem birtist í Dagblaðinu þann
21. apríl. Þar skrifar sá hlægilegi
popptónlistarspekúlant Garri. Segir
hann meðal annars í bréfi sínu að
diskóið sé að detta uppfyrir en hins
vegar lofar hann pönkara og „hard-
rokkara”. Hugsanlega stafa skrif
hans af vanþekkingu á tónlistar-
menningunni eins og hún er i dag.
Hann segir að diskóið sé að lognast
út af. Þvílíkt röfl, ef eitthvað er að
lognast út af þá er það örugglega
pönkið. Sem dæmi um það má benda
á það að flestar þær hljómsveitir sem
hafa verið að rembast við að spila
pönk hafa fyrir löngu gert í brækurn-
ar og eru nú gleymdar og grafnar eða
þá hafa afneitað pönkinu og eru
farnar að spila eitthvað annað. En
Garri minn, pönkið var bara tízku-
fyrirbrigði sem dó út. Hvar heyrir
maður pönk nú orðið? Hvergi.
Diskóið er músikin sem alls staðar
heyrist. Garri þessi telur sér áreiðan-
Raddir
lesenda
lega trú um að pönkið sé ennþá á lífi
þegar hann hlustar á gömlu pönk
plöturnar sínar heima hjá sér.
Að lokum er hér smáráðlegging til
Garra. Ef þú mundir kaupa þér nýju
plötuna með Goombay Danse Band
mundir þú áreiðanlega gleyma pönk-
inu ævilangt. Diskóið lifi!
d mrn
IGNIS
DeLUXE
með djúpfrystingu, á hjólum,
með ljós í loki, afrennsli fyrir
afþíðingu og viðvörunarljósum.
Frystikistur: Eldra verð: Lækkunar- verð:
145 lítra 5259 4733
210 lítra 6074 5467
260 lítra 6458 5812
320 lítra 6939 6245
400 lítra 7395 6656
500 lítra 8352
Frystiskápar:
130 lítra 4589
225 lítra 6389
RAFIÐJAN
Kirkjustræti 8. - Sími 19294
FRÁ
AUSTUR
LtíNDUM
FJÆR
Ódýrt!
Blómaborð kr. 358.00
Borð kr. 293.00
*
Skúffuborð kr. 795.00
Hornhillur kr. 647.00
Innskotsborð kr. 892.00
Borðin eru úr mahóníi
Ath. sendum í
póstkröfu
ósamsett.
•
SJÓNVAL
VESTURGÖTU 11
SÍMI
22600
Er gaman að vera í
Hrafnagilsskóla í
Eyjafirði?
Nemendur í Hrafnagilsskóla.
Jón Þorstelnsson: Það er nokkuð gott
en mætti vera meira félagslíf.
Ragnheiður Antonsdóttir: Mjög
gaman, þó gæti verið meira líf I félags-
málum skólans.
Slgrún Haraldsdóttir: AUt í lagi.
Hólmfríður Sigurðardóttir: Já, það er
ágætt.
Linda Stefánsdóttlr: Ágætt en mætti
vera meiri fjölbreytni í skólalífinu.
Ragnheiður Sigurðardóttir: Ágætt, að
vísu svolltið einangrað, en annars
ágætt.