Dagblaðið - 30.04.1981, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981.
Allir þingmenn Reykvíkinga bíða svars samgönguráðherra
vegna skrefatalningarinnar:
ALLS ÓFULLNÆGJANDIUPP-
LÝSINGAR UM FRAMKVÆMD
SKREFATALNINGAR Á SÍMA
— kröf u verður að gera um upplýsingarnar vegna aukins
kostnaðar símnotenda á höf uðborgarsvæðinu
Allir þingmenn Reykjavíkur, tólf
að tölu, skrífuðu Steingrími Her-
mannssyni samgönguráðherra bréf
vegna fyrirhugaðrar skrefatalningar
síma. Bréf þetta var skrifað 30. marz
sl. og í þvi er vitnað til fyrra bréfs
nokkurra þingmanna frá 12. marz
þar sem þess var farið á leit við sam-
gönguráðherra að fá upplýsingar um
ýmis framkvæmdaatriði varðandi
fyrirhugaða skrefatainingu.
í svari samgönguráðuneytisins við
fyrra bréfinu er visað til bréfs Póst-
og símamálastofnunarinnar, dags.
17. marz, þar sem fram komu ýmsar
tæknilegar upplýsingar sem snerta
nokkur framkvæmdaatriði varðandi
skref ataln inguna.
Þingmennimir töldu að þetta svar-
aði að mjög takmörkuðu leyti þvi
Geir Hallgrimsson, fyrsti þingmaður Reykvíkinga, ávarpar konur þær sem af-
hentu þingmönnum mótmælaundirskriftir gegn skrefatalningunni. Með Geir má
sjá þrjá aðra þingmenn Reykvikinga, Benedikt Gröndal, Birgi Isleif Gunnarsson
og Ólaf Ragnar Grfmsson. DB-mynd Sigurður Þorri.
sem óskað var eftir i bréfinu frá 12.
marz og sendu þvi hið siðara. Þótt
mánuður sé liðinn frá þvi að það bréf
var sent hefur enn ekki borizt svar
samgönguráðherra.
I síðara bréflnu segir m.a. að fram
komi i svari ráðuneytisins, sem barst
27. marz, að það hafi ekki tekið að
svo stöddu afstöðu til ýmissa þeirra
framkvæmdaatriða sem tilgreind eru
i greinargerð Póst- og símamála-
stofnunarinnar. Sfðan segir:
„Þingmenn Reykvikinga telja að
um alls ófullnægjandi upplýsingar sé
að ræða varðandi framkvæmdina á
fyrirhugaðri skrefatalningu.
Við fyrirhugaða breytingu, sem
hefur í för með sér aukinn kostnað
fyrir símnotendur höfuðborgarsvæð-
isins, verður að gera þá kröfu að fyrir
liggi upplýsingar um alla þá kosti sem
fyrir hendi eru við framkvæmdina.
Hér með er óskað eftir að þeir val-
kostir verði kynntir þingmönnum
Reykvikinga og fullt samráð verði
haft við þá um alla framkvæmd
málsins áður en endanleg ákvörðun
verður tekin.”
Undir þetta bréf skrifa Jóhanna
Sigurðardóttir, Friðrik Sophusson,
Ólafur Ragnar Grímsson, Jón Bald-
vin Hannibalsson (varamaður Bene-
dikts Gröndals), Geir Hallgrimsson,
Albert Guðmundsson, Vilmundur
Gylfason, Birgir ísleifur Gunnars-
son, Guðmundur G. Þórarinsson,
Guðmundur J. Guðmundsson,
Guðrún Helgadóttir og Pétur Sig-
urðsson. -JH.
BIAÐIÐ 'S
úháð dagblað
&<*!
KÚREKASTÍGVÉL
FYRIR
DÖMUR OG HERRA
öé*1'
W
499>°
Teg. 7007
Litur: Antik-brúnt leður
Stærðir 36—46
%
I
e
is
'£
Skóverzlun Laugavegi 95. — Sími 13570.
_ , » n , Kirkjustræti 8.
ÞorOar Heturssonar v/Austurvðn. - sím, i4wi.
KJÖREIGIM SF.
SÍMAR
85988 85009
— Opið í dag kl. 9—5 og laugardaga kl. 1-5.-
5
Kársnesbraut
Vandað einbýlishús á einni hæð, um
140 ferm. Fallegur garður. Góður bíl-
skúr. Skemmtilegur staður.
! '
Ránargata
Einbýlishús (timburhús) kjallari, hæð
og ris. Húsið er mjög mikið endur-
nýjað og sérstaklega skemmtilegt fyrir-
komuiag. Möguieiki á ibúð á jarðhæð.
Eftirsótt eign á góðum stað.
Brautarás
Raðhús tilbúið undir tréverk. Skipti á
íbúð með peningamilligjöf æskileg.
Afhendist strax.
Sumarbústaður
Fullbúinn sumarbústaður, teikningar
og myndir á skrifstofunni.
Kaupandi
— Einbýlishús
Höfum fjársterkan kaupanda að ein-
býlishúsi með 4 svefnherbergjum og
bílskúr. Æskileg staðsetning í austur-
borginni.
Einbýlishús /
Stórglæsilegt hús á tveimur hæðum á
frábærum stað í Seláshverfi. Tvöfald-
ur bilskúr. Frábært fyrirkomulag. Til
afhendingar strax.
Seljahverfi
Raðhús á tveimur hæðum og auk
þess rými í kjallara. Á efstu hæðinni
eru 4 herb. og bað. Á neðri hæðinni
er stór stofa, eldhús, hol og snyrting,
í kjallara þvottahús og herb. og óinn-
réttað stórt rými. Eldhúsinnrétting og
skápur frá J.P. Suðursvalir. Frá-
gengið bílskýli.
Seláshverfi
,Raðhús á góðum stáð I hverfinu.
Húsið er tilbúið undir tréverk í dag.
Húsið er fullfrágengið að utan. Bíl-
skúrsplata 42 ferm. Mjög góð nýting
á rými. Skipti á íbúð eða íbúðum
æskileg. Afhending á húsinu strax.
Dvergabakki
5 herb. íbúö á 2. hæð. Þvottahús á
hæðinni. Möguleikar á 4 svefnher-
bergjum.
Neðra-Breiðholt
5 herb. vönduð ibúð á góðum stað við
Dvergabakka. Sérþvottahús.
4ra herbergja íbúðir
Fossvogur
4ra herb. mjög glæsileg íbúð á efstu
hæð á bezta stað í Fossvogi. Fallegt
baðherb. Rúmgott eldhús. Öll sam-
eign til fyrirmyndar. Stórar suður-
svalir.
Seljavegur
4ra herb. ódýr íbúð í steinhúsi. Laus.
Engar áhvílandi veðskuldir.
Hafnarfjörður — Kinnar
Aðalhæðin í tvíbýlishúsi við Köldu-
kinn. Sérinngangur. Stærð um 100
ferm. Á jarðhæð getur fylgt rými um
40 ferm. Geysistór bílskúr (nýr)
fylgir. Rólegur staður.
Markarf löt — Garðabær
Neðri sérhæð í tvíbýlishúsi. Sérinn-
gangur. Stærð um 100 ferm. Glæsi!cb
éign á frábærum stað. Sólríkur
staður.
Efstasund
4ra herb. íbúð í kjallara í tvíbýlishúsi.
Sérinngangur. Stór garður. Sam-
þykkt íbúð.
Seljavegur
4ra herb. sérlega ódýr íbúð. Laus. Frá-
bær kaup.
Háaleitisbraut
4ra herb. jarðhæð á góðum stað I
hverfinu.
Skipholt
4ra herb. endaíbúð á efstu hæð.
Stórar svalir. Eldhús og baðherb. ný-
lega endurnýjað. Bílskúr.
Miklabraut
4ra til 5 herb. íbúð I risi. íbúðin er
lítið undir súð, 3 svefnherb. og tvær
stofur. íbúðin er í góðu ástandi og
mjög rúmgóð. Nýtt þak og gler.
Norðurbær
Sérstaklega góð 5 herb. íbúð á efstu
hæð í góðu sambýlishúsi. Parket á
gólfum. Þvottahús inn af eldhúsi.
Stórt baðherb. með glugga. Sérherb.
og geymsla I kjallara. Bílskúr með
hita og vatni. Öll sameign fullfrá-
gengin. Geysifallegt útsýni.
2ja herbergja íbúðir
Spóahólar
2ja herb. rúmgóð íbúð á 2. hæð I 3ja
hæða húsi. öll sameign frágengin.
Æskileg skipti á stærri eign.
Holtsgata
Sérlega snotur íbúð á jarðhæð. Gengið
út í garðinn. Sólrík og björt íbúð.
Asparfell
Rúmgóð og vönduð íbúð I lyftuhúsi.
Gengið inn af svölum. Suðvestur
svalir. Öll sameign fullfrágengin.
Gnoðarvogur
2ja herb. mjög rúmgóð ibúð í enda á 2.
hæð. Frábær staður.
Nýbýlavegur
2ja herb. góð íbúð á hæð í nýlegut
húsi. Innbyggður bílskúr fylgir á
jarðhæð.
Hamraborg
2ja herb. íbúð á 1. hæð. Bílskýli.
Hraunbær
2ja herb. íbúð á 2. hæð. íbúðinni
fylgir sérherbergi í kjallara.
3ja herbergja íbúðir
Maríubakki
Mjög vönduð íbúð á 3. hæð. Sér-
þvottahús og herbergi og geymsla í
kjallara. Eignin er á frábærum stað.
Vandað tréverk.
Lyngmóar
3ja herb. ibúð I rétt nýju húsi. Inn-
byggður bílskúr.
Kjarrhólmi
Nýleg snotur íbúð á hæð. Suðursvalir.
Álfhólsvegur
3ja herb. íbúð I 5 íbúða húsi. Sér-
þvottahús, bilskúr.
Hverfisgata
3ja herb. íbúð I tvíbýlishúsi. Talsvert
endurnýjuð. Bílskúr.
Hlaðbrekka
3ja herb. ibúð, neðri hæð, um 85
ferm I tvíbýlishúsi. Góður staður.
Leirubakki
Vönduð og vel með farin 3ja herb.
íbúð á 2. hæð. Sérþvottahús inn af
eldhúsi. Sérherb. og geymsla í kj.
Útborgun 50 til 60% af heildarverði
og eftirstöð'var þá visitölutryggðar. (5
til 8 ár). Hægt að fá ibúðina keypta
með eðlilegum skilmálum.
Álfhólsvegur
Snotur 3ja herb. íbúð á hæð I 5 íbúða
húsi. Frábært útsýni. Bílskúr fylgir.
'Afhending samkomulag. Sérþvotta-
hús.
Krummahólar
3ja herb. góð íbúð I lyftuhúsi. Bilskýli.
Kjöreignl sssss œm
Ármúli 21, Reykjavík
Dan V. S. Wiium lögfr. — Ólafur Guðmundsson sölum.